Morgunblaðið - 12.12.2009, Síða 34
34 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
Þar sem mér hefur alltaf verið hlýtttil kirkjunnar og allra hennardeilda þá ákvað ég fyrir skömmuað bjóða henni starfskrafta mína.
Ég hringdi í föður Hauk Haraldsson, innsta
kropp í búri guðs almátt-
ugs og kunngerði honum
að Serðir Monster væri
til þjónustu reiðubúinn
sem forsöngvari á jóla-
tónleikum Fíladelfíusafn-
aðarins. Hann spurði
pirraður hvort þetta væri
eitthvert grín og hvort
það væri ekki hægt að fá
neinn frið fyrir furðu-
poppurum. Ég tjáði hon-
um að hér væri dauðans alvara á ferð enda
ég ekki vanur að hafa kirkjunnar mál í
flimtingum. Serðir Monster væri skapaður í
guðs mynd eins og aðrir apakettir og ætti
fullan rétt á að fá að syngja hástöfum í öll-
um kirkjum landsins eins og hann lysti.
Annað væri mannréttindabrot. Haukur
spurði hvort það væri ekki í lagi heima hjá
mér. Ég sagði svo vera en ég ætti eftir að
ryksuga. Hann sagði að þetta kæmi ekki til
greina og vildi greinilega slíta samtalinu.
Ég sagðist finna fyrir örlitlum fordómum
hjá honum, bað hann um að slaka aðeins á
og anda með rananum – Serðir Monster
væri ekki rassriddari heldur bara ósköp
venjulegur pervert og að þetta yrði mikil
lyftistöng fyrir Hvítasunnukirkju hans og
að fréttatilkynningin yrði flott:
„Serðir Monster verður forsöngvari á
jólatónleikum Fíladelfíusafnaðarins. Serðir
mun syngja sálma eins og t.d. „Saddam átti
syni 7“, „Þrjú tól undir fílnum“, „Snæfinnur
hórkall“ og „Stóð mér útí pungsljósi“ og
mun svo klykkja út með lögunum „Nei, nei,
ekki á kjólinn“ og „Another dick in the
hole“ af nýju plötunni sinni „Tekið stærst
uppí sig.“
Ég spurði Hauk hvort þetta gæti nokkuð
orðið glæsilegra.
– „Þetta er hreint út sagt ógeðslegt. Við
erum að reyna að skapa hátíðlega jóla-
stemningu á þessum tónleikum en ekki að
búa til einhverja djöflamessu.“
Ég: „Voðalegar kellingar getiði verið. Þið
eru svo stífir að þið gætuð brotið nagla á
milli rasskinnanna. Á ég að skilja þetta sem
svo að þið afþakkið þjónustu Saint Mon-
sters?“
„Já! Kirkjan er ekki griðastaður fyrir
klámkjafta og ósiðlegheit.“
– „Við skulum nú ekki fara að tala illa
um séra Gunnar Björnsson og fleiri guðs-
menn.“
– „Þetta er útrætt mál.“
– „Heyrðu Gaukur minn....“
– „Ég heiti Haukur.“
– „Ókei, næsta fuglategund við, þú hlýtur
að sjá að Serðir Monster er himnasending
fyrir kirkjuna. Ég skal fara hérna með
nokkrar hendingar af nýju plötunni þó ég
muni ekki kapítula og vers, t.d: „Taktú ofan
kaskeitið og glenntu út rassg...“
– „Ég vil ekki heyra þetta!“
– „Hvernig er þetta eiginlega með ykkur
í Fílabeinsturnssöfnuðinum...“
– „Þetta heitir Fíladelfíusöfnuðurinn!“
– „Ókei, hvernig er þetta eiginlega með
ykkur í Fýludelasöfnuðinum, fyrst útskúfið
þið Fretrik Ómari og nú ætlið þið að út-
skúfa Serði Monster. Ég meina, hver verð-
ur það næst? Guðmundur í Byrginu?“
– „Ekkert rugl. Guðmundur hefur látið af
störfum í Byrginu.“
– „Nú? Er hann kominn út í pólitík? Ætli
hann muni ganga „óbundinn“ til kosninga?“
– „Vertu blessaður. Reyndu að ganga á
guðs vegum.“
– „Nei, ég held ég taki taxa.“
Það mætti hækka laun heimsins. Þau eru
ekkert nema vanþakklæti.
stormsker@gmail.com
Laugardagshugvekja Sverris Stormskers
Serði Monster meinað að syngja í Hvítasunnukirkjunni
Sverrir Stormsker
GAGNSEMI náms-
og starfsráðgjafar
fyrir farsælt náms-
og starfsval hefur
verið viðfangsefni
margra rannsókna.
Niðurstöður hafa
sýnt að nemendur
sem hafa fengið
náms- og starfs-
ráðgjöf eru líklegri
til að hafa meiri
metnað og ljúka frekar námi en
þeir sem ekki fengu slíka ráðgjöf.
Einnig eru þeir líklegri til að
verða færari í að taka ákvarðanir
um nám og störf og haldast frek-
ar í þeim störfum sem þeir velja
sér. Að auki hefur komið í ljós að
ungt fólk sem hefur leitað til
náms- og starfsráðgjafa hefur
meiri trú á eigin hæfni til náms,
nær betri árangri í námi og á
auðveldara með náms- og starfs-
val.
Foreldrar og nánasta fjölskylda
unglings eru miklir áhrifavaldar á
náms- og starfsval og aðfara þess.
Það hefur sýnt sig að foreldrar
eru óöruggir í að aðstoða börn sín
við náms- og starfsval. Rann-
sóknir sýna að foreldrar telja
náms- og starfsráðgjafa geta veitt
bestar upplýsingar
um nám og störf.
Náms- og starfs-
ráðgjafar eru í lyk-
ilhlutverki við að leið-
beina foreldrum og
öðrum uppeldisaðilum
við náms- og starfsval
nemenda.
Ný lög um náms-
og starfsráðgjafa
voru samþykkt á Al-
þingi 30. mars síðast-
liðinn. Þar er starfs-
heitið náms- og
starfsráðgjafi lögverndað. Með
lögverndun starfsheitisins eru
ákveðin gæði þjónustu tryggð,
hagsmunum nemenda sinnt og
mikilvæg sér- og fagþekking skil-
ar sér inn í menntakerfið. Sá sem
leitar aðstoðar náms- og starfs-
ráðgjafa getur í skjóli lögvernd-
unar verið þess fullviss að sá sem
þjónustuna veitir hafi tilskilda
menntun og fagþekkingu. Með
lögunum er verið að huga að heill
nemenda og þeirra er njóta þjón-
ustu náms- og starfsráðgjafa jafn-
framt því að tryggja fagleg vinnu-
brögð stéttarinnar, auk þess sem
náms- og starfsráðgjafar og fagið
sjálft getur stuðlað að öflugri
tengingu milli skóla og atvinnu-
lífs.
Náms- og starfsráðgjafar starfa
m.a. í skólum, í fyrirtækjum og á
atvinnumiðlunum. Starf náms- og
starfsráðgjafa byggist að grunni
til á því sameiginlega markmiði
að stuðla að velferð einstaklinga
með hagsmuni þeirra að leið-
arljósi. Markmið náms- og starfs-
ráðgjafar er að efla vitund ein-
staklinga um viðhorf sín, áhuga
og hæfileika þannig að þeir fái
notið sín í námi og starfi. Fagleg
þekking og vinnubrögð liggja að
baki náms- og starfsráðgjöf og
starfsheitið náms- og starfs-
ráðgjafi vísar til þess að sá hinn
sami veitir faglega ráðgjöf á
grundvelli sértækrar menntunar
sinnar. Meginverkefni náms- og
starfsráðgjafa í grunn- og fram-
haldsskólum er að aðstoða nem-
endur við náms- og starfsval og
veita ráðgjöf meðan á námi stend-
ur. Náms- og starfsrágjafi er
trúnaðarmaður og talsmaður
nemandans.
Mikilvægt er að allir nemendur
hafi aðgang að þjónustu náms- og
starfsráðgjafa í sínum skóla og að
sérþekking náms- og starfs-
ráðgjafa skili sér að fullu inn í
grunn- og framhaldsskóla lands-
ins. Með nýjum lögum um náms-
og starfsráðgjafa eru ákvæði um
náms- og starfsráðgjafa tekin upp
í löggjöf um grunnskóla og fram-
haldsskóla. Á þann hátt er tryggt
að einungis þeir sem uppfylla
lagaskilyrði eigi kost á að sinna
náms- og starfsráðgjöf í grunn-
og framhaldsskólum landsins.
Eldri löggjöf um grunnskóla og
framhaldsskóla bar þess merki að
starfsheitið náms- og starfs-
ráðgjafi var ekki lögverndað og
því var ótryggt að fagleg náms-
og starfsráðgjöf væri til staðar í
skólum landsins. Þær upplýsingar
sem nefnd um eflingu náms- og
starfsráðgjafar í grunn- og fram-
haldsskólum (2008) hafði um
náms- og starfsráðgjöf hér á landi
bentu því miður til þess að sá
undirbúningur sem íslenskir nem-
endur fá í náms- og starfsvali inn-
an skólanna sé allsendis ófull-
nægjandi. Þetta kemur m.a. fram
í því að náms- og starfsfræðsla er
í boði í um fjórðungi grunn- og
framhaldsskóla og ekkert heild-
stætt, hlutlaust upplýsingakerfi
um nám og störf er til á Íslandi.
Líklegasta skýringin á þessu
ástandi er að hér á landi hefur
okkur skort stefnu og þar af leið-
andi umgjörð utan um þær að-
gerðir sem gera þennan und-
irbúning að náms- og starfsvali
markvissari. Það má jafnvel full-
yrða að við þessar aðstæður sé
það rökrétt að svo margir nem-
endur falli brott úr framhalds-
skólum sem raun ber vitni.
Nú ber svo við að íslensk
menntamálayfirvöld hafa nýlega
fest í lög það markmið að allir
grunn- og framhaldsskólanem-
endur eigi rétt á náms- og starfs-
ráðgjöf. Ef þetta markmið á að
nást er ljóst að endur-
skipulagningar er þörf í náms- og
starfsráðgjöf í skólakerfinu.
Besta leiðin til að hefja slíka
endurskipulagningu er að kort-
leggja það sem gert er og skipu-
leggja hver framkvæmdaskrefin
eru í átt að þeim markmiðum sem
stefnt er að. Því er það ein meg-
intillaga nefndarinnar að mennta-
málaráðuneytið beiti sér fyrir
rannsókn á árangri náms- og
starfsráðgjafar og marki stefnu í
málaflokknum.
Skýrslu Guðbjargar Vilhjálms-
dóttur, Ágústu E. Ingþórsdóttur
og Sigríðar Bílddal um eflingu
náms- og starfsráðgjafar í grunn-
og framhaldsskólum sem úrræðis
gegn brottfalli nemenda má finna
á eftirfarandi slóð: http://
www.althingi.is/altext/136/s/
pdf/0353.pdf
Fagleg náms- og starfsráðgjöf
tryggð í sessi með nýjum lögum
Eftir Ágústu E.
Ingþórsdóttur »Ný lög um náms- og
starfsráðgjafa voru
samþykkt á Alþingi 30.
mars síðastliðinn. Þar er
starfsheitið náms- og
starfsráðgjafi lögvernd-
að.
Ágústa E. Ingþórsdóttir
Höfundur er formaður Félags náms-
og starfsráðgjafa 2006-2009.
BITNAR lengdur
útkallstími slökkviliðs
í umferðaslysum á
mér, þér eða þínum
nánustu? Þetta er
spurning sem maður
kemst ekki hjá því að
spyrja sjálfan sig.
Slökkvilið Hvera-
gerðis hefur um langa
hríð sinnt klippuút-
köllum vegna um-
ferðaslysa á Suður-
landsvegi og Hellisheiði ásamt
öðrum vegum í Ölfusi. Slökkvilið
Hveragerðis er ákaflega sterkt á
þessu sviði og á mjög öflugan og
góðan búnað til þessarra starfa,
búnað í hæsta gæðaflokki. Slökkvi-
lið Hveragerðis hefur einna mesta
þekkingu og reynslu af klippustörf-
um af slökkviliðum á Suðurlandi
vegna fjölda alvarlegra
umferðaslysa á þeirra
svæði, auk þess eru
slökkviliðsmenn liðsins
með mikla reynslu og
menntun á þessu sviði.
Hefur liðið haft á sér
mjög gott orð fyrir
fagleg, snögg og góð
störf á vettvangi.
Suðurlandsvegur er
einn fjölfarnasti og
jafnframt einn hættu-
legasti vegur landsins.
Á síðustu árum hefur
fjöldi alvarlegra um-
ferðaslysa orðið á vegkaflanum frá
Litlu kaffistofunni að Ingólfsfjalli.
Á árunum 2007 og 2008 var
slökkvilið Hveragerðis kallað út um
24 sinnum með klippur til björg-
unar á fólki úr bílflökum og voru
flest þessarra útkalla á þessum
hluta Suðurlandsvegar, en af þess-
um 24 útköllum voru 5 banaslys.
Um síðustu áramót sagði sveitar-
félagið Ölfus upp þjónustusamningi
sem sveitarfélagið hafði gert við
Hveragerðisbæ um rekstur slökkvi-
liðsins, þjónustu sem slökkvilið
Hveragerðis hefur séð um í sveitar-
félaginu Ölfusi fram til þessa.
Sveitarstjórn Ölfuss undirritaði nú
á dögunum samning við Brunavarn-
ir Árnessýslu um að BÁ taki við
öllum þeim verkefnum sem slökkvi-
lið Hveragerðis hefur séð um í
sveitarfélaginu Ölfusi. Nánar til-
tekið, hefur slökkvilið Hveragerðis
séð um öll klippu störf í Ölfusinu og
um allar brunavarnir á því svæði
sem nær hefur verið Hveragerði en
Þorlákshöfn.
Um næstu áramót taka Bruna-
varnir Árnessýslu (BÁ) Selfossi við
þessari þjónustu og kemur það til
með að lengja útkallstíma vegna
umferðarslysa á þjóðvegi 1 veru-
lega. Svæðið nær allt frá Ingólfs-
fjalli að Litlu kaffistofunni,
Þrengslunum og öllum öðrum veg-
um í Ölfusi. Viðbragðstími slökkvi-
liðs Hveragerðis er með því besta
sem gerist í hlutastarfandi slökkvi-
liðum og hefur það í mörgum til-
vikum verið á undan bæði lögreglu
og sjúkraliði á vettvang. Kemur út-
kallstími til með að lengjast veru-
lega og sem dæmi má nefna að
þegar þörf verður á að kalla til
klippur vegna alvarlegs um-
ferðaslyss á Hellisheiði tekur það
slökkvibíl frá BÁ allt að 15 til 20
mínútum lengur að komast á vett-
vang heldur en slökkvibíl frá
Hveragerði. Þetta er tími sem ekki
má missa þegar um alvarleg um-
ferðaslys er að ræða og fólk er í
bráðri lífshættu, því þá skiptir hver
mínúta miklu máli og getur und-
irritaður vart til þess hugsað hvaða
afleiðingar þessi aukna bið getur
haft í för með sér.
Undirritaður er starfandi sjúkra-
flutningamaður og þekkir því vel
hvað lengri bið eftir aðstoð getur
þýtt þegar kemur að björgun
mannslífa. Er það von mín, og
margra annarra, að yfirstjórn
Brunavarna Árnessýslu og sveitar-
stjórn Ölfuss taki þessa hluti til
skoðunar og láti til hliðar alla sam-
keppni og hrepparíg og hugsi fyrst
og fremst um hag þeirra ein-
staklinga sem munu þurfa á þess-
arri aðstoð að halda. Tryggjum
vegfarendum áfram öruggustu og
fljótustu þjónustuna með samningi
við slökkvilið Hveragerðis á þeim
svæðum sem slökkvilið Hveragerðis
er fljótara á vettvang. Það er lífs-
spursmál.
Lengdur útkallstími
á Suðurlandsvegi – lífsspursmál
Eftir Steinar Rafn
Garðarsson » Þetta er tími sem
ekki má missa þegar
um alvarleg umferða-
slys er að ræða og fólk
er í bráðri lífshættu, því
þá skiptir hver mínúta
miklu máli ...
Steinar Rafn
Garðarsson
Höfundur er sjúkraflutningamaður
EMT-I og formaður Brunavarða-
félags Hveragerðis