Morgunblaðið - 12.12.2009, Síða 47
Umræðan 47BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
JAFNVEL þótt hin fleygu orð Frið-
riks mikla, að því betur sem hann
kynntist mönnunum, þess vænna
þætti honum um hundinn sinn, séu sí-
gild, þá finnst mörgum að í bili sé kom-
ið nóg af hrunfréttum og umfjöllun um
stórgáfuð fífl. Við getum okkur að
meinalausu sleppt frekari kynningu á
þessum blessuðu mönnum. Við þurf-
um ekki meira í bili. Réttvísin á næsta
leik. En þetta hefur verið góður hund-
ur hjá kallinum.
Ein eldri frú hér fyrir vestan sagði
við mig um daginn: „Við Íslendingar
eigum ekki að venja okkur á þetta sí-
fellda væl. Við höfum allt til alls. Við
eigum nóg af húsum. Við þurfum ekki
að byggja meira í bili. Við eigum nóg
af fötum. Við eigum nóg af bílum. Við
eigum nóg af drasli. Þótt við sendum
heilu skipsfarmana af dóti út í heim til
þeirra sem ekkert eiga sæi ekki högg
á vatni hjá okkur. Og við eigum nóg af
mat. Við þurfum ekki betri lífskjör.
Verkalýðsforkólfar og stjórnmála-
menn eru sífellt að tönnlast á að við
þurfum að bæta lífskjörin. Þeir gá
ekki að því að hér eru bestu lífskjör í
heimi. Hitt er allt annað að við þurfum
að jafna lífskjörin. Hætta að henda
mat í stórum stíl. Okkar mesta skömm
er að einhver skuli vera svangur mitt í
öllum allsnægtunum. Það á enginn að
þurfa að líða skort í okkar góða landi.
Við eigum að hjálpa hvert öðru. Oft
var þörf en nú er nauðsyn.“
Eitthvað í þessa átt hljóðaði ræða
hinnar vestfirsku valkyrju og er á við
marga milljarða í krónum talið ef eftir
þeim væri farið. Ef forsvarsmenn
okkar hafa vit á að standa saman og
ganga á undan með góðu fordæmi
mun þjóðin fylgja þeim. Við þurfum
breytt hugarfar. Og hætta bruðlinu!
Sú þjóð sem ætlar að gleypa allt sem
tönn á festir fær ekki staðist og glatar
sálu sinni.
Og fyrir nokkru birtist stórkostleg
frétt á mbl.is. Söngvarinn Stefán
Helgi Stefánsson hefur heimsótt Alz-
heimersjúklingana í Fríðuhúsi und-
anfarið og sungið fyrir þá. Bók-
staflega hrífandi að sjá viðbrögðin.
Það er nákvæmlega þetta sem við Ís-
lendingar eigum að gera mitt í öllu
volæðinu. Gefa eitthvað af okkur sjálf-
um. Ekki vera sífellt að hugsa um ein-
hverja neyslu og skemmta okkur per-
sónulega. Hugsa um náungann. Þá
mun allt annað veitast okkur að auki.
Höfundur er bókaútgefandi
og starfsmaður á plani
á Brekku í Dýrafirði.
Er ekki nóg komið?
Eftir Hallgrím Sveinsson
FRÓÐLEGT væri
að vita hver (eða
hverjir) bera
ábyrgð á því óþurft-
arverki að flytja
hinn ágæta og vin-
sæla þátt, Vítt og
breitt, frá bezta
hlustunartíma, rétt
eftir hádegi, yfir til
klukkan 7 að
morgni, þegar varla nokkur maður er
að hlusta. Þeir sem eru þá að flýta sér
til vinnu eru sízt í skapi til að hlusta á
vandað efni í tali eða tónum, en hinir,
gamlir og/eða sjúkir, nema hvort
tveggja sé, (svo sem eins og ég sjálf-
ur), eru fráleitt setztir hjá viðtækj-
unum sínum svo snemma dags.
Nú ber þess að geta, að sumt úr efni
þessara þátta er endurtekið um miðj-
an dag á laugardögum, á milli kl. l5 og
16, en það er bara alls ekki nægileg
„yfirbót“ þótt hún sé án efa hugsuð
þannig – kannski vegna pínulítið
vondrar samvizku! Í kaffitímanum á
laugardögum er jafnan margt sem
truflar, gestir eða annað. Ég get sagt
fyrir mig að ég hef misst af fleiri en
einum og fleiri en tveimur laug-
ardagsendurtekningum af slíkum or-
sökum – og ég er varla einn um það.
Þó að það komi okkur hlustendum
strangt til tekið ekki við er ekki hægt
annað en að líta á þetta hringl með
þáttinn sem móðgun við það ágæta
fólk sem er þar við stjórn, þótt sú hafi
sjálfsagt ekki verið ætlun dagskrár-
stjórnar. Það er ekki á neinn hallað
þótt það sé sagt sem satt er, að þau
Hanna G. Sigurðardóttir og Pétur
Halldórsson séu með allra beztu
þáttastjórnendum útvarpsins nú um
stundir. Og eru þar þó ýmsir góðir.
Svo ekki sé nefnt það nauðsynjaverk,
sem Pétur vinnur í samstarfi við
Orðabók Háskólans.
Auðvitað er alltaf vandi að semja
dagskrá menningarstofnana – og
framfylgja henni. Meira að segja mik-
ill vandi. Þar verður seint gert svo öll-
um líki. En hér fannst mér svo slæ-
lega að verki staðið að ég gat
hreinlega ekki á mér setið.
Og mér finnst okkur hlustendum
koma Ríkisútvarpið við, a.m.k. á með-
an það fær að vera sameign þjóð-
arinnar, en ekki í eigu braskara og
fjármálabófa, eins og ýmsa dreymdi
víst um, á meðan brjálsemi frjáls-
hyggjunnar gekk eins og drepsótt yfir
landið.
En sú tíð er nú liðin og kemur von-
andi aldrei aftur.
VALGEIR SIGURÐSSON,
rithöfundur og fyrrv.
blaðamaður.
Skemmdarverk
Frá Valgeir Sigurðssyni
Valgeir
Sigurðsson
Sorgarsaga frá farþegum hjá Sum-
arferðum, Úrvali-Útsýn og Plúsferð-
um.
Við vorum búin að eiga dásam-
legar stundir í 2 og 3 vikur á Tenerife
í sól og hita og gistum öll á mjög góð-
um hótelum. Svo hellist yfir okkur
þetta líka heimflugið, sem var algjör
martröð. Í fyrsta lagi seinkun og aft-
ur seinkun og loks þegar við leggjum
í hann frá Tenerife, þurftum við að
lenda í London þar sem skipta þurfi
um flugstjóra sem kom eftir um 1
klukkustundar bið. Og nú er ekki allt
búið, björgunarbátar voru teknir úr
vélinni og ekkert sagt við okkur far-
þeganna og leist okkur ekkert á að
sjá þetta gert og ekki voru settir nýir
bátar í staðinn. Síðan var beðið í 3
klukkustundir eftir eldsneytisþjón-
ustu og vorum við látin sitja inni í
vélinni allan tímann og enginn mátti
hreyfa sig í vélinni. (Við höldum að
ekki sé æskilegt að farþegar séu um
borð þegar eldsneyti er dælt á vél-
arnar vegna hættu.)
Allur matur og vatn var uppurið
og svörin sem við fengum var bara
„því miður“ og það var ekkert verið
að fá það lagað, þannig að við hefðum
geta keypt okkur mat og drykk, einu
svörin „því miður“ enn og aftur. Því-
líkt hneyksli að þetta nær engu tali,
hvernig farið var með farþegana sem
var fólk á öllum aldri, allt frá unga-
börnum til aldraðra, allir útkeyrðir
af þreytu, og einnig af vatns- og mat-
arskorti í margar klukkustundir.
Við sýndum mikinn skilning, yf-
irvegun og ekkert nema kurteisi. Við
fórum frá hótelinu kl. 17.40 þann 4.
nóv. og lentum í Keflavík kl. 8.45
þann 5. nóv þannig að ferðalagið tók
15 tíma. Þetta er algjör skömm fyrir
þá háu herra sem reka Iceland Ex-
press og er þetta ekki í eina skiptið
sem þetta kemur fyrir hjá Iceland
Express og því ættu þeir að skamm-
ast sín að bjóða farþegum upp á slíka
meðferð eins og fram hefur komið af
framansögðu.
Engin viðbrögð hafa komið frá
Iceland-Express. Því höfum við
ákveðið að deila þessari reynslu með
öðrum. Við sem undirritum þetta
bréf hugsum ekki hlýtt til Iceland-
Express eftir svona meðferð.
Virðingarfyllst,
HALLDÓRA OG INGÓLFUR
BÁRÐARSON, Reykjanesbæ
SVAVA OG HRÓÐMAR
HJARTARSON, Akranesi.
ELSA OG KRISTJÁN
GUÐMUNDSSON, Reykjavík
Raunir ferðalanga
með Iceland Express
Frá farþegum með Iceland Express
frá Tenerife 4. nóv. sl.
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Með því að kaupaMiele
þvottavél eða þurrkara
leggur þú grunn að
langtímasparnaði
Sparaðu meðMiele
TILBOÐ
2.000
Neytenda-
stofnanir
Aðrir
framleiðendur
Miele
0
4.000
6.000
8.000
10.000
Klst.
3.800
klst.
4.500
klst.
6.000
klst.
10.000
klst.
A B
20 ára líftími = 10.000 klst.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Þvottavél W1634 1400 sn/mín/6 kg/ísl. stjórnborð 179.950
Þvottavél W1714 1400 sn/mín/6 kg/ ísl. stjórnborð 194.950
Þurrkari T7634 f. barka/6 kg/m. rakaskynjara 149.950
Þurrkari T7644C m. þétti/6 kg/m. rakaskynjara 164.950
Miele
þvottavélar eru
framleiddar
til að endast
í 10.000 klst.
Miele þvottavélar eru allar með íslensku stjórnborði,
íslenskum leiðbeiningum, stóru hurðaopi
Opið í dag laugardag frá kl. 11:00-15:00
Samfylkingin á
Seltjarnarnesi
gerir alvarlegar
athugasemdir við
framkvæmd íbúa-
fundar meirihluta
Sjálfstæðisflokks-
ins á Seltjarn-
arnesi sem hald-
inn var 24.
nóvember síðast-
liðinn. Samráði
við minnihlutann, framkvæmd og
trúverðugleika var verulega ábóta-
vant. Færst hefur í aukana að halda
íbúaþing, t.a.m. um skipulagsmál og
um fjárhagsáætlanir í kjölfar efna-
hagshrunsins. Hugmyndin um íbúa-
lýðræði felur í sér göfuga hugsjón, en
á sama tíma visst vantraust á
ríkjandi stjórnmálaöflum og -hreyf-
ingum. Til að ávinna traust íbúa og
tryggja þátttöku þeirra á íbúa-
fundum þarf að vanda vel til.
Nýafstaðinn þjóðfundur Íslend-
inga er gott dæmi um vel heppnað
íbúaþing þar sem vinnubrögð voru
vönduð, bæði hvað varðar fram-
kvæmd og úrvinnslu. Á sveit-
arstjórnarstigi er það ein forsenda
vandaðs íbúafundar að bæjarstjórnin
standi sem heild að fundinum. Það
þarf að vera svigrúm til að ræða og
spyrja um forsendur niðurskurð-
arins, fjárhagsáætlun og valkosti. Á
sama tíma verður úrvinnsla og birt-
ing niðurstaðna að vera í höndum
fagfólks sem leggur heiður sinn að
veði, en ekki meirihluta bæj-
arstjórnar eða einstakra embættis-
manna.
Nýafstaðið íbúaþing á Seltjarn-
arnesi uppfyllti ekki þessar kröfur að
mati Samfylkingarinnar á Seltjarn-
arnesi. Fulltrúum minnihlutans var
ekki boðin þátttaka við skipulagn-
ingu, stjórn eða úrvinnsla fundarins,
heldur var hann eingöngu af hálfu
meirihluta Sjálfstæðisflokksins.
Samt sem áður var fundurinn aug-
lýstur og kostaður af bæjarstjórn
Seltjarnarness. Það má einnig spyrja
sig hversu mikil alvara býr að baki
fundi þegar fyrir liggur að afgreiðsla
fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn verð-
ur að fara fram innan tveggja vikna?
Sá tími er ekki nægur til að vinna úr
þeim hugmyndum sem fram hefðu
getað komið.
Íbúalýðræði er mikilvæg aðferð
við stjórnun sem þarf að rækta og
þroska. Slík vinnubrögð sem Sjálf-
stæðisflokkurinn viðhafði á umrædd-
um íbúafundi eru bæði ómarkviss og
ófagleg og ekki til þess fallin að
tryggja aðkomu íbúa Seltjarnarness
að þeirri forgangsröðun sem fram-
undan er við gerð fjárhagaáætlunar
fyrir næsta ár.
JÓN MAGNÚS
KRISTJÁNSSON,
formaður Samfylkingar
á Seltjarnarnesi.
Er þetta íbúalýðræði?
Frá Jóni Magnúsi Kristjánssyni
Jón Magnús
Kristjánsson
HVENÆR fáum
við að vita hver bar
ábyrgð á því að Ca-
rol Van Voorst
fyrrverandi sendi-
herra fékk ekki
orðuna sem búið
var að veita henni
bréflega?. Vænt-
anlega barst sendi-
herranum sú til-
kynning í bréfi frá einhverju
ráðuneyti og með undirskrift ein-
hvers, hvernig var það? Hvers vegna
valdi Ólafur Grímsson að niðurlægja
sendiherra sem ekki er vitað til að
hafi gert neitt á okkar hlut? Var það
vegna þess að sendiherrann var kona
eða var það vegna þess að sendiherr-
ann var Bandaríkjamaður? Eða hver
var ástæðan? Það var búið að segja
sendiherranum að hann ætti að fá
þessa orðu og hún yrði afhent á
Bessastöðum. Orða sem þá hafði
gildi.
Ólafur Grímsson átti að afhenda
hana fyrir okkar hönd. Hann valdi að
gera það ekki og gerði okkur að kján-
um og laskaði þar með gildi orðunnar:
Einhver hefði sjálfsagt snúið bílnum
við eftir símtalið þar sem tilkynnt var
að hætt væri við orðuveitinguna, og
yfirgefið landið án þess að kveðja. En
Carol lét sér hvergi bregða og kláraði
erindi sitt við hinn valdsmannslega
bónda að Bessastöðum, enda vænt-
anlega búin að átta sig á tegundinni.
En hver skipaði að hringt skyldi?
Heiður verður
ekki metinn í gulli
Sendiherra hefur heiður að verja
gagnvart þjóð sinni og sjálfum sér.
Sendiherrann hafði aldrei farið fram
á að fá þessa orðu. Sendiherrann var
niðurlægður þar sem atast var með
orðuveitingu honum til handa. Nið-
urlæging sendiherrans varð þó minni
en leit út fyrir þar sem við erum eftir
á stimpluð sem skrælingjar, þökk sé
Ólafi Grímssyni. Leiða má að því lík-
ur að þessi afglöp og önnur þau er
Ólafur Grímsson hefur unnið að, valdi
því með öðru hvernig fram er við okk-
ur komið á alþjóðavettvangi. Skræl-
ingjar eru nefnilega taldir fremur illa
að sér í góðum mannasiðum. Í þessu
máli er ekki nóg að vísa til mistaka
hjá einhverjum embættismanni, því
að þannig er það ekki. Málið var kom-
ið í þann farveg að það var fjarri öllu
réttlæti og viti að láta sér detta í hug
að snúa því við. Nema, fyrir sérfræð-
ing í asnaskap. Ég krefst þess að
þetta mál verði skýrt á heiðarlegan
hátt og á íslensku mannamáli af þeim
sem það eiga að gera. Gerist það ekki
með ásættanlegum hætti, þá er
maðkur í mysunni sem beita þarf öðr-
um brögðum.
HRÓLFUR HRAUNDAL,
rekur vélsmiðju á landsbyggðinni.
Ekki orðu-
veiting Ólafs
Grímssonar
Hrólfur
Hraundal
Frá Hrólfi Hraundal