Morgunblaðið - 12.12.2009, Qupperneq 51
Minningar 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
✝ Andres Krist-insson fæddist á
Grímsstöðum 21.
mars 1938. Hann lést
5. desember 2009.
Faðir hans var Krist-
inn Hannes Guð-
mundsson (1910-
1995), bóndi á Gríms-
stöðum. Móðir
Andresar er Greta
Guðmundsdóttir, f.
1917, húsfreyja.
Systkini Andresar
eru Adda (1936-
1936), Kristín Munda,
f. 1941, Guðmundur, f. 1945, og
Sigurður, f. 1948.
Eiginkona Andresar er Ásta
Kristjana Ragnarsdóttir, f. 1942.
Þau giftu sig 13. nóvember 1960.
inn Grétar, stálvirkjasmiður, f.
1965. Búsettur á Spáni.
Andres ólst upp á Grímsstöðum
en flutti til Borgarness árið 1958
þar sem hann hóf nám í bifvéla-
virkjun. Húsið í Þórólfsgötu
byggði Andres árið 1967 og bjó
þar til æviloka.
Andres starfaði fyrir Bifreiða-
og trésmiðju Borgarness frá 1958
til 1971. Hann lauk sveinsprófi í
bifvélavirkjun 1961 og fékk svo
meistarabréf í bifvélavirkjun 1965.
Frá 1971 til 1977 starfaði hann hjá
Sæmundi Sigmundssyni. Síðan tók
við starf hjá Prjónastofu Borg-
arness þar til prjónastofan var
lögð niður 1991. Eftir það vann
Andres hjá Vegagerðinni þar til
hann lét af störfum vegna aldurs í
apríl 2008.
Útför Andresar fer fram frá
Borgarneskirkju í dag, laugardag-
inn 12. desember 2009, og hefst at-
höfnin kl. 14.
Faðir Ástu var Ragn-
ar Ingimarsson (1917-
1992), sjómaður á
Ólafsfirði og móðir
hennar er Kristín
Pálsdóttir, f. 1924,
húsfreyja frá Siglu-
firði. Börn Andresar
og Ástu eru: 1) Ragn-
ar Ingimar, trésmið-
ur, f. 1961. Kona
Ragnars er Magnea
Kristín Jakobsdóttir,
starfsmaður í versl-
un. Greta Bogadóttir
er dóttir Magneu. 2)
Sigríður, framleiðslustjóri, f. 1964.
Sigríður og maður hennar, Ing-
ólfur Friðjón Magnússon, vélstjóri
og nemi, eiga Bjarka Má, Ástu
Kristínu og Lindu Björk. 3) Krist-
Pabbi lagði mikla áherslu á að
kenna okkur að bera virðingu fyrir
því sem við eigum og okkur þykir
vænt um. Í dag er það okkur ljóst
að það er mikilvægur eiginleiki að
kunna að bera virðingu fyrir öðrum
sem og sjálfum sér.
Pabbi var alltaf tilbúinn að
hjálpa. Byggingarvinna var honum
lítið mál og var hann til mikillar
hjálpar þegar Ragnar byggði hús
sitt. Þá var hann orðinn veikur en
lét það ekki koma í veg að aðstoða
son sinn. Það var líka alltaf hægt
að hringja í hann ef maður lenti í
bílavandræðum, hann leiðbeindi
manni þá auðveldlega í gegnum
símann eða leit á hann við tæki-
færi.
Pabbi var heimsins besti afi.
Hann gerði aldrei upp á milli
barnabarna sinna og vildi allt fyrir
þau gera. Þau fóru með í ferðalög í
húsbílnum og fengu meira að segja
að koma með í vinnuna en það
fengum við aldrei þegar við vorum
börn.
Þegar veikindin fóru að láta á sjá
lét hann það ekki stoppa sig. Á
góðum degi fór hann niður í bílskúr
eða jafnvel skrapp til Reykjavíkur í
búðir. Undir lokin var það okkur
ljóst að ekki væri mikið eftir og það
var óskaplega erfitt að sætta sig
við að geta ekkert í því gert.
Elsku besti pabbi, við vitum að
þú ert á góðum stað núna, þar sem
þér líður vel og getur fylgst með
okkur. Og á meðan þú passar okk-
ur munum við passa hana mömmu
fyrir þig eins og við vorum búin að
lofa.
Þín börn,
Ragnar, Sigríður (Sigga)
og Kristinn (Kiddi).
Það fyrsta sem okkur dettur í
hug þegar við hugsum um afa er afi
og húsbíllinn. Það var svo gaman
að fá að vera í húsbílnum með
ömmu og afa, sérstaklega þegar
þau komu á húsbílnum að sækja
okkur í skólann. Þá gátum við sýnt
vinunum hversu flottur bílstjóri afi
var og allt íslenska góðgætið sem
þau komu með frá Íslandi. Brjóst-
sykurinn hans afa var alltaf á sín-
um stað í hanskahólfinu og afi var
ófeiminn að bjóða okkur einn.
„Finnst þér þetta ekki gott?!“
sagði afi stundum í hneykslunartón
þegar hann sat við eldhúsborðið og
fékk sér eitthvað sérkennilegt að
borða. Oft var það samblanda af
nokkrum matartegundum því ef
það var gott eitt og sér hlaut það
að vera gott saman. Þetta gerði
hann þó oft bara til þess að stríða
okkur.
Afi var ljúfur maður og var alltaf
tilbúinn að gera hvað sem er fyrir
okkur, jafnvel þótt hann hafi stund-
um þurft að fórna eigin þægindum.
Í einni af mörgum heimsóknum hjá
ömmu og afa var afa skipað úr
hjónarúminu til þess að leyfa okkur
stelpunum að sofa uppi í hjá ömmu.
Hann svaf þá aleinn í rúmi í næsta
herbergi en kvartaði ekki.
Gönguferðirnar með ömmu og
afa voru okkur kærar. Best var að
leiða afa og ömmu því þá var mað-
ur svo öruggur. Afi hélt fast um
hönd okkar eins og hann gerði þeg-
ar við vorum litlar til þess að passa
okkur. Á unglingsárunum hættum
við ekki að vilja leiða afa í göngu-
ferðunum jafnvel þótt það gæti ver-
ið vandræðalegt ef einhver sá til
okkar.
Afi gat líka verið ansi þrjóskur
og kláraði alltaf það sem hann tók
sér fyrir hendur. Liturinn rauður
var alltaf í miklu uppáhaldi hjá afa
en allt sem var blátt fannst honum
ljótt. Hann vildi ekki eiga neitt
blátt og hvað þá að eiga bláan bíl!
Hins vegar hafði hann eignaðist
svartbláan bíl á sínum yngri árum
en þrætti lengi fyrir að bíllinn hefði
verið svartur en ekki blár.
Nú ríkir mikil sorg í hjörtum
okkar en við huggum okkur við það
að vita að afa líður vel þar sem
hann er núna. Elsku afi, megi
minning þín ávallt vera með okkur.
Hvíl í friði.
Þínar,
Ásta Kristín og Linda Björk.
Í dag, 12. desember, kveðjum við
félaga minn Andres Kristinsson.
Ég ólst upp á Þórunnargötunni í
Borgarnesi en við enda hennar
hafði Andres byggt sér hús, á Þór-
ólfsgötu 21. Í minningunni var
margt framandi að gerast þar á
bílaplaninu og í bílskúrnum. Þar
voru bílar oft með opið húdd eða á
tjakk og verið að gera við. Þegar
strákarnir hans Andrésar höfðu
aldur til komu þríhjól, reiðhjól og
mótorhjól á hlaðið sem var ekki
eins algengt og er í dag. Við fé-
lagarnir í Björgunarsveitinni Brák
bárum hlýjan hug til Andresar í
orðsins fyllstu merkingu því að
þegar Andres vann á prjónastof-
unni prjónaði hann lambhúshettur,
sokka og peysur á alla félagana.
Peysurnar eru mér minnisstæðar
því þær voru prjónaðar með nafni
björgunarsveitarinnar.
Árið 1991 byrjaði Andres að
vinna á vélaverkstæði Vegagerðar-
innar í Borgarnesi og þar unnum
við saman þar til hann hætti að
vinna í mars 2008. Það er mikill
fengur að hafa fengið tækifæri til
að vinna með Andresi. Hann var
ekki neinn meðalmaður. Það fór lít-
ið fyrir honum hann hafði sig ekki
mikið í frammi en það var
skemmtilegt að fylgjast með hon-
um því hann hafði gaman af öllu
sem hann var að fást við. Ef hlutir
gengu ekki eins og til stóð eins og
hendir alltaf þá var það ekki
gremja eða geðvonska sem vaknaði
heldur var strax komin áætlun að
lausn þeirra verkefna. Hann var
ófeiminn við að láta hugann reika
um framandi og óþekkta hluti. Þeg-
ar hann var byrjaður á verkefni var
hugurinn við það þar til því var lok-
ið. Það er með ólíkindum hvað
hann mundi um vélar, útfærslur og
aðferðir, það skipti ekki máli hvort
það var nýlegt eða gamalt. Hann
var útsjónarsamur við að nýta sér
tæki og tól til að létta sér vinnuna.
Andrés var vel heima um hina
ýmsu hluti og hafði skoðanir á því
sem hann hafði kynnt sér og þurfti
sterk rök til að breyta hans skoð-
unum. Það eina sem hann sýndi
verulegt fálæti voru boltaíþróttir
og hann skildi engan veginn að það
væri verið að fylgjast með mönnum
hlaupa á eftir boltatuðru eins og
hann orðaði það. Þegar menn voru
að gera að gamni sínu og kannski
smáhrekkir í gangi var Andrés lið-
tækur og hafði hann gaman af því
að hafa svolítið líf í kringum sig.
Það eru forréttindi að hafa feng-
ið að kynnast Andrési og því hvað
hann og Ásta voru samstiga og
höfðu gaman af lífinu. Ég votta
Ástu, Ragnari, Siggu, Kidda og
fjölskyldum samúð mína.
Guðmundur Finnur.
Andres Kristinsson
✝
Ástkær systir mín, föðursystir og mágkona,
GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
frá Reykjum í Fnjóskadal,
lést á dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík
mánudaginn 7. desember.
Útförin fer fram frá Illugastaðakirkju miðvikudaginn
16. desember kl. 14.00.
Sætaferðir verða frá Umferðarmiðstöðinni á
Akureyri kl. 13.00.
Tryggvi Gunnarsson,
Gunnar M. Guðmundsson,
Þóra K. Guðmundsdóttir,
Pálína Magnúsdóttir.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
bróðir,
HARALDUR STEINAR TORFASON
fyrrum bóndi
Haga í Nesjum,
lést á hjúkrunardeild HSSA, Hornafirði,
fimmtudaginn 10. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarkirkju miðvikudaginn
16. desember kl. 11.00.
Jarðsett verður í Stafafellskirkjugarði í Lóni sama dag.
Elín Dögg Haraldsdóttir,
Gunnar Björn Haraldsson, Guðrún Kristjánsdóttir,
Halldór Sölvi Haraldsson, Anna Halldórsdóttir,
Sigrún Brynja Haraldsdóttir, Þorvaldur Helgason,
Þorleifur Haraldsson,
Harpa Cilia Ingólfsdóttir, Ivon Stefán Cilia,
barnabörn, barnabarnabarn og systkini.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma
og langamma,
ÞÓRA JÓNSDÓTTIR,
Klifshaga,
Öxarfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga þriðjudaginn
8. desember.
Útförin fer fram frá Skinnastaðarkirkju föstudaginn
18. desember kl. 14.00.
Daði Þröstur Þorgrímsson, Jóhanna Birna Falsdóttir,
Sigra Þorgrímsdóttir, Jón Sigurðsson,
Pétur Þorgrímsson, Magnea R. Árnadóttir,
Grímur Jónsson,
María Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Kær vinur okkar og samferðamaður í lífinu,
HRAFN SÆMUNDSSON,
lést fimmtudaginn 10. desember.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn
21. desember kl. 13.00.
Ester Hulda Tyrfingsdóttir,
Agnes Huld Hrafnsdóttir, Páll Breiðfjörð Pálsson,
Hulda María Hrafnsdóttir, Björn Hersteinn Herbertsson,
Berglind Hrönn Hrafnsdóttir, Ólafur Vignir Björnsson,
Eva María, Viktor Hrafn, Páll Elvar, Sindri Freyr,
Hrafnhildur, Zophanías, Ester Hulda,
Fjölnir Þór og Alma Júlía.
✝
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
AÐALBJÖRN SCHEVING,
Hraunbæ 146,
Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans föstudaginn
4. desember.
Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju fimmtu-
daginn 17. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Anna Björg Björnsdóttir,
Freydís Aðalbjörnsdóttir, Róbert Línberg Runólfsson,
Snædís S. Aðalbjörnsdóttir, Óli Valur Guðmundsson,
Katla Ósk og Viktoría Rós Róbertsdætur.
✝
Eiginkona mín,
BRYNHILDUR FRIÐBJÖRNSDÓTTIR,
Billa,
Túngötu 13b,
Grenivík,
lést miðvikudaginn 9. desember.
Útför hennar fer fram frá Grenivíkurkirkju
föstudaginn 18. desember kl. 13.30.
Ernst Ingólfsson.
✝
Ástkæri faðir, sonur og bróðir,
NÍELS ÓLAFSSON,
Aarhus,
Danmörku,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 1. desember.
Minningarathöfn verður auglýst síðar.
Hafþór Níelsson,
Tryggvi Níelsson,
Ólafur Hafþór Guðjónsson,
Björg Ólafsdóttir,
Daníel Ólafsson,
Guðjón Hafþór Ólafsson.