Morgunblaðið - 12.12.2009, Side 55
Minningar 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
✝ Ásgeir Sæ-mundsson fædd-
ist í Selparti 22.
maí 1927. Hann lést
á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands, Fossheimum,
hinn 5. desember sl.
Foreldrar hans
voru Sæmundur Jó-
hannsson, f. 2. maí
1893, d. 18. ágúst
1944, og Ólína Ás-
geirsdóttir, f. 19.
febrúar 1898, d. 18.
ágúst 1936. Systkini
Ásgeirs eru: Gunnur Gunn-
arsdóttir, f. 1917, d. 2007, Mar-
grét Sæmundsdóttir, f. 28. jan-
úar, maki Ólafur Torfason, f. 28.
júlí 1936, Sigríður Sæmunds-
dóttir, f. 19. ágúst 1928, maki
Eiður Sveinsson, f. 7. október
1932, d. 16. ágúst 1990, Jóhann
Sæmundsson, f. 20. maí 1930,
maki Hulda Eiríksdóttir f. 22.
mars 1931, Ásta Rakel Sæmunds-
dóttir, f. 23. nóvember 1931,
maki Styrmir Hreinsson, f. 17.
febrúar 1934, og Gunnar Sæ-
býlismaður Svavar E. Kjærne-
sted, 6. janúar 1979. Stjúpbarn
Marínu, Elísabet Lilja S. Kjærne-
sted, f. 8. ágúst 2002, 1.3.1) Össur
Týr S. Kjærnested, 5. október
2009. 2) Sæmundur Ásgeirsson, f.
15. janúar 1963. Fyrrverandi
maki Guðný Traustadóttir, f. 9.
ágúst 1965, 2.1) Trausti Sæ-
mundsson, f. 2. mars 1989. 3) Ól-
ína Ásgeirsdóttir, f. 20. ágúst
1965, sambýlismaður Alexander
Hafþórsson, stjúpbörn Ólínu eru
tvö, Aron Snær Melsteð, f. 12.
ágúst 1993, og Guðný Þóra Guð-
rúnardóttir, f. 29. júní 1995. 3.1)
Lára Katrín Alexanders Ólínu-
dóttir, f. 26. febrúar 2004. 4)
Bragi Ásgeirsson, f. 18. maí 1968,
maki Petra Nicola Deatrich, f. 25.
júní 1978, 4.1) Eva Bragadóttir,
28. janúar 2007, 4.2) óskírð
Bragadóttir, f. 15. júlí 2009.
Ásgeir ólst upp og bjó alla sína
ævi í Selparti. Hann var nokkra
vetur í farskóla og kynntist þar
málaralistinni sem átti hug hans
alla ævi. Hann náði góðum tökum
á grænmetisræktun sem hann
stundaði með búskapnum.
Útför Ásgeirs fer fram í Vill-
ingaholtskirkju í dag, laugardag-
inn 12. desember, og hefst at-
höfnin kl. 11.
mundsson, f. 17. febr-
úar 1935, maki Ásta
Halldóra Ágústs-
dóttir, f. 26. október
1935. Ásgeir og
systkini hans ólu upp
Guðbrand Gíslason, f.
24. ágúst 1944, frá 7
ára aldri.
Ásgeir kvæntist 27.
júlí 1963 Magneu
Sigurbergsdóttur, f. í
Grænhól, Ölfusi, 4.
september 1937. For-
eldrar hennar voru
Sigurbergur Jó-
hannsson, f. 18. ágúst 1886, d. 23.
febrúar 1969 og Arnfríður Ein-
arsdóttir f. 8. júlí 1906, d. 2. nóv-
ember 1994. Barn Magneu og
Knud Erik Andersen, f. 21.6.
1938, d. 1960, en stjúpbarn Ás-
geirs 1) Anna Lísa Andersen, f.
24. október 1959, barnsfaðir
Haukur Emil Venharðsson, f. 14.
febrúar 1954, börn þeirra 1.1)
Magnús Finnur Hauksson, f. 29.
ágúst 1977, 1.2) Arndís Andersen,
f. 1. júlí 1980, 1.3) Marína And-
ersen, f. 26. nóvember 1988, sam-
Nú er hann horfinn, lúinn eftir
langa ævi, fóstri minn kær.
Ásgeir Sæmundsson bjó alla
sína tíð á Selparti og gerði að einni
bestu jörð í hreppnum. Þar liggur
á bak við hagsýni og framsýni en
þó mest vinna, endalaust slítandi
puð og seigla. Þessi arfleifð Ás-
geirs er dýrmæt en þó er hún mun
víðtækari. Foreldrar hans létust
ung frá sex börnum, sumum á
barnsaldri en Ágeir sautján ára og
hálfsystir hans Gunnur litlu eldri.
Ásgeir tók við búinu og axlaði
ábyrgðina sem fylgdi af æðruleysi
og dugnaði. Hann átti drjúgan þátt
í því að koma systkinum sínum á
legg og svo átti hann Sæmund,
Ólínu og Braga með eiginkonu
sinni Magneu og kom þeim öllum
vel til manns og líka dóttur henn-
ar, Önnu Lísu. Svo fóstraði hann
mig.
Ásgeir var af Lækjarbotnaætt,
kominn af Oddaverjum og líkur
þeim um háttalag: lítt gefinn fyrir
valdabrölt og illdeilur en umburð-
arlyndur, seinn til vandræða,
drenglyndur og góðgjarn. Hann
var herðabreiður, hárprúður, enn-
ishár, bláeygur, ljósfreknóttur,
rétt nefið og hafið upp í fram-
anvert eins og Gunnar á Hlíðar-
enda, mildur og stilltur eins og Jó-
hann bróðir hans sem er skyldur
honum í mannkostunum.
Við Ásgeir hittumst fyrst á
hlaðinu í Gaulverjabæ þegar ég
steig út úr hálfkassabíl Jóns í Túni
sumarið 1951, kominn austur í
Flóa af upptökuheimilinu Silunga-
polli tæpra sjö ára, einn og hrædd-
ur. Hann vék sér að mér, heilsaði
og leiddi mig að bílnum sem senn
myndi flytja okkur í Selpart, seild-
ist í poka í framsætinu og rétti
mér úr lófanum glóandi, fagur-
rautt epli. Í þá daga voru epli
sjaldséð nema á jólum og stundum
varla þá. Svo ókum við heim í nýja
Willys-jeppanum hans, öðru undr-
inu á þessari erfiðu ferð og urðum
vinir æ síðan.
Löngu síðar fórum við saman til
Mallorka og dvöldum þar í eina
viku. Ásgeir var vanafastur og
vildi ekki hvað sem var. Best þótti
honum og skemmtilegast mér þeg-
ar hann loks fann eitthvað sem
líktist skyri í kaupfélaginu og
smjattaði á. Ásgeir hélt með sín-
um.
Þarna keypti hann póstkort af
landslagi og þegar ég kom næst í
Selpart hafði hann málað eftir
þeim, en Ásgeir var litaglöggur
frístundamálari og skapaði lands-
lag sem var friðsælt og allt í réttu
horfi. Í málverkinu fann hann sam-
hljóm við eðli sitt og ég veit að
þrátt fyrir amstrið allt var hann
fagurkeri sem teygaði sumarbirt-
una á hlaðinu á Selparti og nam
söng stjarnanna yfir bænum á
kyrrum kvöldum. Þar var hans
paradís.
En svo lagðist Alzheimer-fant-
urinn á hug Ásgeirs og herti linnu-
laust og æ fastar að uns hann sett-
ist smám saman allur og nauðugur
inn í alltumlykjandi snjóhvíta
þögnina.
Undir lokin gisti hann á Foss-
heimum á Selfossi. Þar uppi á
þriðju hæð sér yfir Ölfusána til
vesturs. Við leiddumst að gluggan-
um einn sólskinsdag í sumar og
horfðum saman út. Þá bráði af
honum stundarkorn og hann sagði
mér að þær væru góðar við sig
þarna og að Nicola á Selparti væri
mikið góð við sig. Þetta er hér með
þakkað og komið til skila. Best
þótti honum þó að Selpartur skyldi
haldast í fjölskyldunni. Þá var ekki
erfiðað til einskis.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
verið í lífi Ásgeirs Sæmundssonar.
Ættingjum hans og vinum sendi
ég samúðarkveðjur.
Guðbrandur Gíslason.
Ásgeir Sæmundsson
Minningar á mbl.is
G. Frímann
Hilmarsson
Höfundur: Hilmar
Ólína Halldórsdóttir
Höfundur: Ásthildur Ísidóra
Sigurðardóttir
Hlynur Þór
Sigurðsson
Höfundur: Arndís Huld
Ólafur Tryggvi
Jónsson
Höfundur: Erla frá Hólmi
Unnur Ólöf
Andrésdóttir
Höfundar: Svavar,
Brynhildur og börn
Meira: mbl.is/minningar Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma
og systir,
SVEINBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR
frá Norðfirði,
Fellsmúla 5,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn
6. desember.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju mánudaginn
14. desember kl. 13.00.
Sesselja G. Ingjaldsdóttir, Sveinbjörn Kristjánsson,
Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir,
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir, Birgir Árnason,
Kristbjörg Sveinbjörnsdóttir,
Auðbjörg Stefánsdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar,
SIGRÍÐAR GÍSLADÓTTUR
frá Skógargerði.
Smári Hermannsson, Ásdís Elfa Jónsdóttir,
Dagný Hermannsdóttir,
Hermann Hermannsson, Sigríður Guðmundsdóttir,
Gísli Hermannsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Hermannsdóttir, Hugo Þórisson,
Stefán Hermannsson, Arnfríður Einarsdóttir,
Ívar Ásgeirsson, Þórunn Árnadóttir
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞÓRARINS ÞORKELS JÓNSSONAR
löggilts endurskoðanda.
Þorbjörg Jónsdóttir,
Jón Þórarinsson, Birna María Antonsdóttir,
Helga Halldóra Þórarinsdóttir, Dagur Jónasson,
Bryndís Þórarinsdóttir, Halldór Geir Þorgeirsson,
Þórarinn Eiður Þórarinsson, Alexandra María Klonowski,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Af alhug sendum við þakkir til ættingja og vina er
sýndu okkur samúð og virðingu við andlát og útför
elsku eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa,
GUÐMUNDAR JÓNS BENEDIKTSSONAR
prentara,
Gullsmára 7,
áður Víðihvammi 19,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til Félags íslenskra bókaútgefenda, Háskólans á Bifröst,
frábærs starfsfólks Smárans fyrir alla hjálpina og vina hans í getraunum
eldri borgara Breiðabliks er heiðruðu minningu hans á eftirminnilegan
hátt.
Guð leiði ykkur áfram til góðra verka.
Sigurlaug Jóna Jónsdóttir,
Birna Guðmundsdóttir, Sverrir Davíð Hauksson,
Sigríður Guðmundsdóttir, Heimir Þór Sverrisson,
Jón Orri Guðmundsson, Júlía Ágústsdóttir,
Benedikt Þór Guðmundsson, Guðrún Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MARTEINS HAFÞÓRS HREINSSONAR
vélfræðings,
Skeljatanga 42,
Mosfellsbæ,
sem lést 19. apríl síðastliðinn.
Sérstakar þakkir sendum við til ykkar allra fyrir faðmlög, kossa, blóm,
gjafir, framlög í minningarsjóði og aðstoð við kaffi og veitingar við útför.
Einnig viljum við þakka föður hans og fjölskyldu, prestinum okkar Ingileif
Malmberg, karlakórnum Fóstbræðrum, Birgi Haraldssyni, Sigurgeiri Sig-
mundssyni og Útfararstofu kirkjugarðanna. Vinnuveitendum og sam-
starfsfólki þökkum við fyrir umburðarlyndi og skilning á erfiðum tímum.
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Ásgerður Pálsdóttir,
Páll Þórólfsson, Katrín Rós Gunnarsdóttir,
Elísabet Inga Marteinsdóttir,
Margrét Vala Marteinsdóttir, Hjalti Rafn Gunnarsson,
Þórhildur Dana Marteinsdóttir,
Aron Dagur Pálsson,
Gunnar Hrafn Pálsson,
Gyða Stefanía Halldórsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og sendu góðar kveðjur við andlát
og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ELÍNAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
áður Tjarnarbraut 25,
Hafnarfirði.
Þökkum sérstaklega starfsfólki deildar A3 á
Hrafnistu, Reykjavík fyrir óaðfinnanlega umönnun.
Sveinn Magnússon, Kristín Bragadóttir,
Margrét Sesselja Magnúsdóttir, Ólafur Emilsson,
Ingibjörg Magnúsdóttir, Einar Ólafsson,
Elín Magnúsdóttir, Garðar Briem,
barnabörn og barnabarnabörn.