Morgunblaðið - 12.12.2009, Síða 60
60 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
Orð dagsins: Ef von vor til Krists nær aðeins
til þessa lífs, þá erum vér aumkvunarverðastir
allra manna. (1. Korintubréf 15, 19.)
Það er með ólíkindum hvað sum-um er í nöp við þá rúmlega
15.000 Íslendinga sem hafa raðast í
póstnúmeri 101 Reykjavík. Þetta er
ekki nýtt fyrirbæri en jafnþreytandi
fyrir því. Víkverja var nóg boðið
þegar hann rakst á tvö, frekar
slæm, dæmi um þetta sama daginn.
Fyrra dæmið var í aðsendri grein
sem birtist nýlega í Morgunblaðinu
eftir Írisi Róbertsdóttur, grunn-
skólakennara og varaþingmann
Sjálfstæðisflokksins. Íris benti á að
mikilvægi sjávarútvegs færi vax-
andi og bætti svo við: „Fólki í hinni
talandi og skrifandi stétt í 101
Reykjavík – sem heldur kannski að
gjaldeyrisöflun felist helst í því að
lesa bókarhandrit og prófarkir fyrir
hvort annað – finnst þetta ábyggi-
lega hallærislegt og jafnvel svolítið
subbulegt, en svona er það nú
samt.“
Hvað er atarna? Víkverji bjó þar
til fyrir skemmstu í pósthverfi 101
og hann er bæði talandi og skrif-
andi þannig að þetta hlýtur að hafa
átt við hann. Samt hefur Víkverja
aldrei dottið svona vitleysa í hug.
x x x
Seinna dæmið var í hádegis-fréttum RÚV. Þá höfðu borist
fréttir af því að að ríkisstjórnin vill
afnema sjómannaafsláttinn. Sævar
Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambandsins, brást harkalega við
og færði ágæt rök fyrir máli sínu.
En svo sagði hann að ekki kæmi til
greina að afnema afsláttinn „af því
að einhverjum þingmönnum í 101
Reykjavík datt í hug að gera það
eina nóttina“. Sævar nefndi engan
þingmann með nafni en hann veit
mætavel að fjármálaráðherrann er
þingmaður Norðausturkjördæmis.
x x x
Í þessum tilvikum, og ótalmörgumfleirum, hafa íbúar í 101 Reykja-
vík verið gerðir að fulltrúum ein-
hverrar óskilgreindrar stéttar eða
hóps sem er algjörlega óvíst að þeir
eigi nokkra samleið með. Víkverji
biður fólk, sérstaklega þá sem hafa
verið valdir til trúnaðarstarfa, að
láta af þessum þreytandi og
ófyndna ávana. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 dauðsjúkur, 8
benda, 9 tölustaf, 10
drykk, 11 búa til, 13 líf-
færa, 15 kenna, 18 óbif-
anlega, 21 blása, 22
kind, 23 hæð, 24 yf-
irburðamanns.
Lóðrétt | 2 svipað, 3 af-
henda, 4 ástundunin, 5
einn af Ásum, 6 óns, 7
verma, 12 smávaxinn
maður, 14 fiskur, 15
gamall, 16 hyggja, 17
lausagrjót, 18 detti, 19
al, 20 keyrir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 smali, 4 Flóra, 7 aðild, 8 romsa, 9 inn, 11 arni,
13 Frón, 14 látir, 15 stál, 17 úlpa, 20 hal, 22 orkar, 23
eimur, 24 sunds, 25 tærir.
Lóðrétt: snapa, 2 arinn, 3 ildi, 4 forn, 5 ólmur, 6 afann,
10 nýtna, 12 ill, 13 frú, 15 spons, 16 álkan, 18 lemur, 19
aurar, 20 hrós, 21 lekt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú mátt vænta þess að einhver
sýni þér áhuga, vertu á varðbergi því
oft er flagð undir fögru skinni. Ein-
hver reynir á þolrifin í þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Kannski að þú finnir nýjar leiðir
til þess að vinna þér inn peninga í
dag. Taktu í taumana áður en í óefni
fer í uppeldinu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Taktu í útrétta hönd þeirra
sem vilja aðstoða þig. Einhver þér ná-
inn fer yfir strikið í stjórnsemi sinni.
Haltu ró þinni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ástin tekur völdin á næstunni.
Hvernig væri að bjóða ástinni þinni út
að borða í hádeginu? Farðu varlega í
umferðinni þó mikið liggi á.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Einhver hefur lofað upp í ermina
á sér og það bitnar á þér. Stattu fast á
þínu, það á eftir að borga sig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ættir að setjast niður með
þínum nánustu og fara í gegnum þau
plön sem þið hafið um framtíðina.
Trúin flytur fjöll.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur lagt mjög hart að þér að
undanförnu og átt því alveg skilið að
sinna sjálfum þér í dag. Sættu þig við
þau takmörk sem þér eru sett.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert undir miklu álagi
og þarft nauðsynlega að draga úr því,
því annars áttu á hættu að það komi
fram í líkamlegum kvillum. Þú stend-
ur með pálmann í höndunum í vissu
verkefni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Einhver sem hefur legið á
peningum sínum eins og ormur á gulli
reynir á þolrifin í þér. Teldu upp að
tíu áður en þú segir skoðun þína.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu ekkert hnika þér af
leið heldur haltu þínu striki hvað sem
á dynur. Ekki vera hrædd/ur við að
krefjast réttar þíns.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nú er tímabært að hefjast
handa við jólaundirbúninginn. Leyfðu
þér að njóta dagsins í faðmi fjölskyld-
unnar þó einhver maldi í móinn.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ekki láta aðra segja þér fyrir
verkum. Þú mátt samt alveg slaka á
taumnum. Vinur segir þér fréttir sem
hafa munu mikil áhrif á þig.
Stjörnuspá
12. desember 1948
Snjóflóð féll á bæinn Goðdal í
Strandasýslu. Sex manns fór-
ust. Húsbóndanum var bjarg-
að úr flóðinu eftir fjóra sólar-
hringa.
12. desember 1987
Hótel Ísland var tekið í notkun
þegar Blaðamannafélag Ís-
lands hélt 90 ára afmælis-
fagnað. Þetta var þá sagður
stærsti skemmtistaður lands-
ins.
12. desember 1998
Örn Arnarson varð Evr-
ópumeistari í 200 metra bak-
sundi á móti í Sheffield á Eng-
landi og setti Íslandsmet, synti
á 1 mínútu og 55,16 sek-
úndum. „Það gekk allt upp,“
sagði Örn í viðtali við DV. Ár-
in 1999 og 2000 endurtók
hann leikinn.
12. desember 2003
Háhyrningurinn Keiko drapst
úr lungnabólgu í Taknesbugt í
Noregi, en þar hafði hann
dvalið í rúmt ár eftir að hafa
synt frá Vestmannaeyjum.
Keiko var grafinn í landi.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Sigrún Sím-
onardóttir frá
Borgarnesi,
Blöndubakka 9,
Reykjavík er sjö-
tug í dag, 12. des-
ember. Hún bjó
alla tíð í Borgar-
nesi, þar til fyrir
fimm árum. Sig-
rún starfaði lengst af sem trygg-
inga- og innheimtufulltrúi hjá
sýslumannsembættinu, auk þess
tók hún þátt í félagsmálum og var
m.a. forseti bæjarstjórnar og sat í
stjórn Grundartangahafnar. Sigrún
fagnar deginum með fjölskyldunni.
70 ára
UNG dama fylgist með mannlífinu í miðborginni sæl og örugg í faðmi
mömmu sinnar. Veðrið var ekki upp á sitt besta í gær þó að það væri
hlýtt. Nú eru eflaust flestir til í að fá snjó, sem þó er vart í kortunum.
Örugg í faðmi mömmu
Morgunblaðið/Golli
Reykjavík Pétur fæddist
18. ágúst kl. 15.37. Hann
vó 4.180 g og var 51 cm
langur. Foreldrar hans
eru Ásta Kristín Reyn-
isdóttir og Rúnar Frið-
riksson.
Akranes Ólafur fæddist
2. október kl. 15.55.
Hann vó 4.525 g og var
55 cm langur. Foreldrar
hans eru Sigríður Ásdís
Þórhallsdóttir og Ólafur
Ólafsson.
Reykjavík Sigrún Vala
fæddist 22. september kl.
19.56. Hún vó 3.280 g og
var 50 cm löng. Móðir
hennar er Valgerður Guð-
mundsdóttir.
Sudoku
Frumstig
8 4 9
4 5 7
3
8 3 6
1 7
9 1 3
7 9 1 5
4 5
3 6 7 9
9 1 7
8 2 9
5 9 6 8
1 6 4 8 2
7 5
4 9 5
2 8
5 7
1
8 3
5 4
6 2 1 3
2 7 6
3 9
7 1 8
7 9 4
8 5 3
2 5
3 9 4 2 6 1 7 8 5
8 5 7 9 4 3 6 2 1
6 2 1 7 5 8 9 4 3
2 7 6 1 9 5 8 3 4
9 3 5 4 8 6 1 7 2
4 1 8 3 2 7 5 9 6
7 6 3 8 1 2 4 5 9
5 4 2 6 7 9 3 1 8
1 8 9 5 3 4 2 6 7
4 8 2 7 5 9 1 3 6
3 5 6 2 8 1 9 7 4
1 7 9 6 3 4 8 2 5
2 9 1 4 6 3 5 8 7
7 6 8 5 9 2 3 4 1
5 3 4 8 1 7 2 6 9
6 2 3 9 7 5 4 1 8
8 1 5 3 4 6 7 9 2
9 4 7 1 2 8 6 5 3
7 2 6 8 1 3 9 4 5
3 1 9 7 5 4 2 8 6
4 5 8 2 9 6 3 1 7
5 9 1 4 2 8 6 7 3
8 7 3 1 6 9 5 2 4
6 4 2 3 7 5 1 9 8
9 8 4 6 3 2 7 5 1
2 3 7 5 4 1 8 6 9
1 6 5 9 8 7 4 3 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 12. desember,
346. dagur ársins 2009
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. d4 cxd4 3. c3 d3 4. Bxd3 Rc6
5. c4 g6 6. Rf3 Bg7 7. Rc3 d6 8. h3 Rf6
9. O-O O-O 10. Be3 Rd7 11. Hc1 b6 12.
Dd2 He8 13. Bb1 Bb7 14. Hfd1 Rde5
15. Rxe5 Rxe5 16. b3 Hc8 17. Rb5 a6
18. Rc3 Rd7 19. f3 Dc7 20. Bd3 Db8 21.
Bf1 Bc6 22. De2 Ba8 23. Rd5 Rc5 24.
Df2 Bxd5 25. cxd5 b5 26. Bxc5 dxc5 27.
Hxc5 Hxc5 28. Dxc5 Hc8 29. Dxe7 Df4
30. Dd7 De3+ 31. Kh1
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Belgrad í
Serbíu. Alþjóðlegi meistarinn Jón
Viktor Gunnarsson (2454) hafði svart
gegn heimamanninum Slavko Jovic
(1931). 31… Hc1! þótt hvítur sé tveim
peðum yfir þá er staða hans töpuð. 32.
De8+ Bf8 33. Hxc1 Dxc1 34. Kg1 Kg7
35. De5+ f6 36. Db8 Bc5+ 37. Kh2
Bd4! 38. Db7+ Kh6 og hvítur gafst upp
enda fátt til varnar.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Bramley í banastuði.
Norður
♠Á9842
♥Á9
♦ÁK9
♣K97
Vestur Austur
♠1065 ♠DG7
♥K1083 ♥652
♦1074 ♦DG62
♣Á64 ♣D103
Suður
♠K3
♥DG74
♦853
♣G852
Suður spilar 3G.
Haustleikum Bandaríkjamanna í
San Diego lauk fyrir skömmu. Helst
dró til tíðinda að Nickell-sveitin vann
Reisinger, en Björn Fallenius og Bart
Barmley unnu hina virðulegu tvímenn-
ingskeppni um Bláa borðann. Bramley
beitti ósvífnu bragði í spili dagsins. Út-
spilið var hjarta og nía blinds átti
fyrsta slaginn. Hvað gerði Bramley?
Hann hugsaði sem svo að spaðinn
gæti beðið og húrraði út ♣K! Bramley
er geðprýðismaður og ekki líklegur til
gerræðis. Vestur var því grunlaus um
hina raunverulegu stöðu og dúkkaði.
Bramley beit þá höfuðið af skömminni
með því að spila laufi áfram á gosann
og aftur dúkkaði vörnin. Þriðja lauf-
slaginn fengu austur og vestur sameig-
inlega á ás og drottningu. Nú var spilið
öruggt og tíu slagir runnu upp úr því
að spaðinn féll.
Nýirborgarar