Morgunblaðið - 12.12.2009, Side 64
64 Menning
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
Færeyska tónlistarkonan Eivör
Pálsdóttir spilar frítt í Ramma-
gerðinni á morgun kl. 15, í tónleika-
syrpunni Iceland Giftstore Live
sem hóf göngu sína í sumar. Þá
heldur Eivör tvenna tónleika í Frí-
kirkjunni um helgina og er uppselt
á báða. Þeir sem ekki fengu miða
ættu því að mæta í Rammagerðina.
Eivör spilar frítt í
Rammagerðinni
Fólk
KLAUFAGANGURINN verður allsráðandi á útgáfugleði
Klaufabárðanna á Rósenberg í dag kl. 17. Á gleði þessari
verður því fagnað að tékknesku þættirnir um Klaufa-
bárðana, eða Pat & Mat á frummálinu, eru komnir út á
mynddiski. Klaufabárðarnir voru framleiddir í Tékkó-
slóvakíu fyrrverandi á árunum 1979 – 1989, handgerðir
brúðuþættir unnir með s.k. „stop-motion“-aðferð. Flestir
fullorðnir Íslendingar kannast við félagana hagsýnu en
jafnframt klaufsku. Klaufabárðarnir voru sýndir í Sjón-
varpinu til fjölda ára og má segja að fullorðnir hafi notið
þeirra jafnmikið og börn, enda stefið kunnuglegt, þ.e. að
rembast við að gera allt sjálfur með tilheyrandi afleið-
ingum.
Á útgáfuhátíðinni verður margt til gamans gert, Óttar
Martin Norðfjörð hinn hálf-tékkneski heldur erindi um
frændur sína Klaufabárðana og lúðrasveitin Klaufa-
brassarnir leikur Klaufabárðatónlist. Þá mun básúnuleik-
arinn Helgi Hrafn Jónsson einnig taka lagið og grínistinn
Ari Eldjárn býður upp á klaufalegt uppistand.
Einar Árnason kvikmyndatökumaður og fyrirtækið
Filmus gefa þættina út og dreifa þeim. Einar er
mikill aðdáandi Klaufabárðanna og segir gott að
horfa til vinnubragða félaganna í kreppunni.
„Svo verður klaufabrauð, með k-i inni í sviga,“
segir Einar og hlær, fimmaura-
klaufabárðabrandararnir koma á færibandi.
Einar segir sölu á Klaufabárðunum ganga
vonum framar, Íslendingar hafi tekið útgáf-
unni fagnandi. helgisnaer@mbl.is
Umsjónarmenn tónlistarvefsíð-
unnar gogoyoko.com, Eldar Ást-
þórsson og félagar, sendu frá sér
yfirlýsingu í gær þar sem fram kom
að þeir höfnuðu boði STEFs, Sam-
bands tónskálda og eigenda flutn-
ingsréttar, um að gefa eftir inn-
heimtu höfundarréttargjalda, á
Degi íslenskrar tónlistar, sem fram
fór í gær.
Í yfirlýsingunni segir að gogo-
yoko geti hvorki né vilji gefa tónlist
listamanna nema með leyfi þeirra
og boð STEFs hafi borist of seint,
ekki hafi verið tími til að fá slík
leyfi frá listamönnum gogoyoko.
Boði STEFs hafnað
vegna lítils fyrirvara
Tónlistarmaðurinn geðþekki,
Svavar Knútur, er afskaplega iðinn
við tónleikahald þessa dagana. Í
fyrrakvöld tróð hann upp á Hemma
og Valda með trúbadornum Gabriel
Lynch, í dag mæta þeir í Þjóðmenn-
ingarhúsið á aðventuskemmtun og
um kvöldið á Café Cultura. Á morg-
un á Café Rósenberg. Og þá er að-
eins fátt eitt talið.
Svavar Knútur spilar
og syngur úti um allt
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
SÆÞÓR Örn Ásmundsson opnaði í
gær sýninguna Portrait á kaffihús-
inu Mokka. Þetta er fimmta einka-
sýning Sæþórs og samanstendur af
olíumálverkum á striga, ab-
straktverkum sem sýna mann-
eskjur. Sæþór segir verkin eins
konar leik að línum og formum.
Hann spili inn á þá tilhneigingu
mannsins að leita að andlitum í ab-
straktinu, hann hafi sjálfur haft þá
tilhneigingu. „Ég spilaði í rauninni
aðeins inn á það með því að setja
ávöl og hringlaga form sín hvorum
megin ofarlega og beinni, láréttar
línur einhvers staðar fyrir neðan.
Það var svona útgangspunkturinn,“
segir Sæþór.
Sæþór lærði vídeógrafík í Istituto
Europeo di Design í Mílanó og
starfar hann sjálfstætt við auglýs-
ingagerð fyrir ljósvakamiðla, sam-
hliða myndlistinni. Hann hélt sína
fyrstu einkasýningu fyrir 12 árum
og er sýningin Portrait sú sjötta í
röðinni. Hann hefur einnig tekið
þátt í þremur samsýningum og ber
þar helst að nefna sýninguna Peggy
and beyond í Guggenheim í Fen-
eyjum.
Í Saltfélaginu sáluga varpaði Sæ-
þór myndböndum yfir málverk og
segist hann hafa áhuga á því að
vinna meira út frá slíkri blöndun
miðla.
20. desember ætlar Sæþór að
bjóða upp eitt verkanna á Facebook
(leitarorð „Sæþór ART“) og rennur
söluandvirðið til Hjálpræðishersins.
Morgunblaðið/Heiddi
Sæþór Við eitt verka sinna á hinu listvæna kaffihúsi Mokka.
Tilhneiging mannsins að
leita andlita í abstrakti
Abstrakt form sett í kunnuglegt samhengi á Mokka
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„VIÐ fundum okkar tón þegar við
byrjuðum að vinna með Barða, hvert
við vildum fara með lögin og hvaða
skref við vildum stíga tónlistarlega
enda er hann besti upptökustjóri
landsins að okkar mati,“ segir Jón
Björn Árnason í hljómsveitinni
Ourlives um samvinnu sveitarinnar
og Barða Jóhannssonar. Ourlives
sendi nýverið frá sér sína fyrstu
plötu, We Lost the Race, og er hún
gefin út hjá Kölska, útgáfufyrirtæki
Barða, auk þess sem Barði er upp-
tökustjóri plötunnar.
Ourlives hefur verið til í fimm ár
og er þekkt nafn, því má velta fyrir
sé hvers vegna fyrsta platan hafi
ekki komið út fyrr en núna.
„Hljómsveitin var aðeins öðruvísi í
upphafi, það urðu mannabreytingar
og við vorum ekki alveg búnir að
festa hvert við vildum fara og hvað
við vildum gera. Við vorum þyngri
og hugsuðum allt of mikið um það
sem við gerðum en síðan tókum við
bara u-beygju og ákváðum að fara að
gera tónlist frá hjartanu,“ segir Jón.
Hvernig tónlist spilið þið þá í dag?
„Þetta er popptónlist, það virðist
vera í tísku á Íslandi að reyna að af-
tengja sig við popptónlist en við spil-
um þessa gerð af tónlist og erum
stoltir af því. Við höfum ekkert kúl
til að fela, við bara gerum það sem
við gerum og gerum það heiðarlega
enda búnir að finna okkur núna.“
Á We Lost the Race er að finna
níu lög en það er ekki öll sagan.
„Við erum með b-hliða-plötu. Ef
fólk kaupir diskinn er kóði sem
gengur inn á Tónlist.is og þar er
hægt að ná í önnur níu eldri lög.“
Meira truflun en tækifæri
Ourlives hefur ekki aðeins vakið
athygli hérlendis því nokkuð er síðan
erlendir aðilar fóru að fylgjast með
henni. „Við höfum verið heima síðan
við byrjuðum að taka upp plötuna í
fyrra en það hafa verið alls konar
hræringar úti sem voru meira trufl-
un en tækifæri fyrir band sem hafði
ekki fundið sig. Þessi áhugi að utan
opnaði augu okkar fyrir því að við
vildum stíga okkar fyrstu skref hér
heima, í stað þess að vera að elta
stóra drauma úti,“ segir Jón.
Ourlives mun spila víða á næst-
unni. „Við verðum 15. desember í
Vídalínskirkju ásamt Dikta og Pétri
Ben., 17. desember leikum við á Só-
dómu með Lights on the Highway og
The Viking Giant show, 18. desem-
ber á Xmas og hinn 20. með Diktu á
Sódómu,“ segir Jón að lokum.
Ourlives Hljómsveitina skipa f.v.: Jón Björn Árnason, Garðar Borgþórsson, Leifur Kristjánsson og Eiður Ágúst.
„Við höfum ekkert kúl til að fela“
Ourlives sendi nýverið frá sér sína fyrstu plötu, We Lost the Race Tóku
u-beygju í tónlistarstefnu og fóru að gera popptónlist sem þeir eru ánægðir með
Á netinu má sjá myndband við tit-
illag plötunnar, „We lost the
Race“, og þar er búsáhaldabylt-
ingin í forgrunni.
„Þetta lag var samið á þeim
tíma þegar allt hrundi og allt virt-
ist vera hálf geðveikt. Okkur
fannst við hæfi að myndefnið væri
um það sama og lagið fjallar um,“
segir Jón og harðneitar spurður
hvort kreppan hafi verið þeim inn-
blástur. „Nei hún var truflun, gríð-
arleg truflun, fjárhagsleg truflun,“
segir Jón og hlær. „Við viljum allt-
af að allt sé á fullu en svo kemur
allt í einu kreppa og þá þarf maður
að fara að taka því rólega og spara
peninga, loftið fór aðeins úr okkur
eins og allri þjóðinni. Kreppan var
a.m.k enginn innblástur.“
Kreppan enginn innblástur
Klaufagangur, klaufa brass og klaufabrauð
Klaufabárðarnir Ekkert sérlega handlagnir.
FÓLK