SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Page 2

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Page 2
2 2. maí 2010 12 Ósanngjörn eignatilfærsla Úlfur Eldjárn sendi alþingismönnum bréf í vikunni, þar sem hann deildi harkalega á úrræðaleysi vegna skuldavanda heimilanna. 34 Hver gítar hefur sína sál Listasmiðirnir Eggert Már Marinósson og Björn Bollason una hag sín- um vel þar sem þeir nostra við að handsmíða gítara. 36 Alþingismaður á línuskautum Pétur H. Blöndal fer ekki troðnar slóðir í tóm- stundum sínum. Sumardaginn fyrsta fór hann frá Gljúfrasteini að Gróttu á línu- skautum. 38 Alvöru hamfarir Íslendingar hafa lagt hönd á plóginn við hjálparstarfið á Haíti. 42 Snýr Schwarzenegger aftur? Tapar hinn stæðilegi ríkisstjóri Kaliforníu stólnum í næstu kosningum og hallar sér aftur að kvikmyndunum? Lesbók 48 Gestur á heimaslóð Friðgeir Helgason sýnir á Listahátíð í Reykjavík myndir frá Breiðholtinu þar sem hann ólst upp. 48 Kvika málsins Guðrún Egilson hefur umsjón með Tungutaki. 52 Jesús og Kristur Breski rithöfundurinn Philip Pullman skrifar Nýja testamentið upp á nýtt í nýrri bók og úr verður beitt gagnrýni. Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Ljótu hálfvitunum Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. 40 32 Augnablikið H aldið hefur verið pylsupartí á hverjum föstudegi í tuttugu ár í elsta húsinu sem búið er í á landinu, Krambúð í Neðstakaupstað á Ísafirði. Stemmningin var með besta móti í gær, því þá var upphitun fyrir Fossavatnsgönguna sem fram fer í dag, en segja má að skíðaganga sé höfuðíþrótt Ísfirðinga. „Við krakkarnir báðum alltaf um pylsur og upp- haflega hugmyndin hjá mömmu og pabba var að hafa pylsur það oft að allir yrðu leiðir á þeim, en það heppnaðist ekki,“ segir Hinrik Jóhannsson, verkfræðingur, sem mættur var vestur til að taka þátt í göngunni. Þau eru fjögur systkinin og vinahópurinn er því stór, sem foreldrarnir, Jóhann Hinriksson, bóka- vörður, og Sigríður Steinunn Axelsdóttir, fyrrver- andi kennari, hafa tekið á móti á föstudögum í þessu 250 ára gamla húsi. Í þetta skipti voru gest- irnir níu á mismunandi aldurskeiðum. Hinrik er 35 ára, en samt tiltölulega nýbyrjaður á skíðum, sem er óvenjulegt af Ísfirðingi að vera. Hann segir að stemmningin í bænum hafi ráðið úrslitum um að hann lét slag standa. „Þetta snýst allt um undirbúninginn, að bera vel á skíðin, og kvöldið fyrir keppni hópast fólk saman í bíl- skúrum hingað og þangað – þetta er félagssport.“ Margar sögur eru til frá kvöldinu fyrir keppni. Ein er af verkfræðingnum Eiríki Gíslasyni, sem var einnig gestur í pylsupartíinu í gær. Í fyrra mætti Eiríkur of seint í bílskúrinn. Ástæðan var sú að hann ruglaðist á bílskúrum, en áttaði sig ekki á því, því þar var líka verið að bera á skíði og auð- vitað glatt á hjalla. „Það er gaman að því hvað fólk er samt stressað yfir áburðarvalinu þegar það kemur saman, enda er þetta keppni,“ segir Eiríkur. „Ef spurt er hvort það ætli að nota þennan eða hinn áburðinn, þá jánkar það kannski en meinar lítið með því og er ekkert of hjálplegt!“ Hinrik og Eiríkur eru með fjölskyldurnar með sér og eru börnin, sem eru um þriggja ára aldur, þegar farin að renna sér á minnstu gerð af göngu- skíðum, þó að þau taki ekki þátt í keppninni. Slík skíði voru ekki til þegar Eiríkur byrjaði. „Þá grip- um við gönguskíðin ef skíðasvæðið lokaði vegna veðurs og við höfðum ekki þolinmæði til að vera inni,“ segir Eiríkur. „Ég var á gönguskíðum af mömmu, sem voru helmingi lengri en maður sjálfur, en það dugði í hallæri.“ Hann segir marga byrja fyrst á gönguskíðum þegar líði á vorið. „Þá getur maður farið upp um fjöllin, fengið víðsýni eftir að hafa verið lokaður í dimmunni. Þá er líka hlýtt og notalegt og hægt að fara á öllum tímum sólarhringsins.“ Og keppnin er að hefjast. „Það setja sér allir persónuleg markmið og máta sig við aðra á heimasíðunni,“ segir Eiríkur. „Einn þátttakand- inn verður áttræður á þessu ári, Gunnlaugur Jón- asson bóksali. Maður vill helst ekki vera fyrir aftan hann.“ pebl@mbl.is Jóhann, Hinrik og Eiríkur í pylsupartíinu í Krambúð á Ísafirði í gær. Skíðaganga og pylsupartí 5. maí Caput-hópurinn heldur tónleika næstkomandi miðvikudag, en á þeim verða frumflutt þrjú ný íslensk verk. Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari mun flytja einleikskonsertinn Allt hefur breyst. Ekkert hefur breyst eftir Hauk Tómasson og Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari flytur Kons- ert fyrir kontrabassa og kammersveit eftir Snorra Sigfús Birgisson. Einnig verður frumflutt verkið Hrím eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Stjórnandi er Snorri Sigfús Birgisson og hefjast tónleikarnir kl. 20. Caput-hópurinn í Listasafni Íslands Við mælum með… 2. maí Í dag býð- ur Þjóðminjasafn- ið upp á barna- leiðsögn um safnið, sem að þessu sinni er ætluð börnum á aldrinum 5-8 ára. Ferðast verður um tímann frá landnámi og fram til nú- tímans og verða t.d. skoðaðar beinagrindur, gömul sverð og dularfullur álfapottur. Leiðsögnin hefst kl. 14 og stendur í um 45 mínútur. 8. maí Létt- sveit Reykjavík- ur heldur upp á 15 ára af- mæli sitt með tónleikum í Háskólabíói. Með- limir kórsins eru um 120 tals- ins, en auk þeirra munu hinir sí- glöðu Álftagerðisbræður kíkja í heimsókn. Tónleikarnir hefjast kl. 17. hollt og gott! Brazzi appe lsínu- og eplasafi 99kr.stk.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.