SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 4
4 2. maí 2010
Eins og Hawking bendir á í þáttum sínum er það eng-
in óskhyggja að halda að líf þrífíst annars staðar en á
jörðinni. „Tölfræðin ein og sér gerir það að verkum að
það er fullkomlega skynsamlegt að áætla að geim-
verur séu til,“ segir hann.
Það var árið 1961 að stjarneðlisfræðingurinn
Frank Drake, upphafsmaður SETI-verkefnisins, lýsti
með frægri jöfnu líkunum á að okkur tækist að heyra
í vítsmunalífi á öðrum plánetum í Vetrarbrautinni.
Jafnan gerir ráð fyrir þáttum eins og hve margar nýjar
stjörnur myndast í stjörnuþokunni ár hvert, hversu
margar þeirra eru með reikistjörnur þar sem vits-
munalíf getur þróast, og hversu lengi þróað sam-
félag myndi senda frá sér merki sem við gætum num-
ið hér á jörðu.
Frá 0 til 20.000 í okkar hverfi
Byggt á formúlunni hljóða bjartsýnustu spár upp á
20.000 samfélög geimvera sem bíða nánast eftir að
við svörum símanum. Ágætis fjöldi, en stjörnuþokan
er þó svo stór að næsti nágranni okkar væri í um
1.500 ljósára fjarlægð.
Svartsýnustu tölur benda hins vegar til þess að við
séum alein á sveimi hér í okkar þoku.
Þegar nýjustu rannsóknir og vandlega meitlaðar
tilvistarlegar vangaveltur eru settar inn í formúluna
er niðurstaðan sú að a.m.k. eitt samfélag þróaðra
vitsmunavera sé á sveimi hér með okkur.
En það er bara á Vetrarbrautinni, sem er aðeins
eitt agnarsmátt korn í óendanlegri mauraþúfu af
stjörnuþokum.
Ekki hvort, heldur hversu margir
Fagur geimurinn myndaður af Hubble-sjónaukanum.
Reuters
M
arkaðsdeildin hjá sjónvarpsstöð-
inni Discovery kann augljóslega
sitt fag. Netheimar hreinlega
loguðu í byrjun vikunnar vegna
þeirra ummæla Stephens Hawking að ástæða
væri til að hafa varann á: verur úti í geimi
gætu haft illan ásetning og koma þeirra til
jarðarinnar haft svipaðar afleiðingar fyrir
mannkynið og landafundir Kólumbusar höfðu
fyrir innfædda í Ameríku.
Hawking klykkti út með þessum orðum í
lokin á fyrsta hluta þáttaraðar þar sem hann
fræðir áhorfendur um geiminn og það sem í
honum kann að leynast.
Því miður færir Hawking ekki mjög ítarleg
rök fyrir þeirri skoðun sinni að það sé vara-
samt fyrir mannkynið að reyna að ná sam-
bandi við aðrar verur úti í geimnum. Megnið
af þættinum fer í vangaveltur um hvort og
hvernig líf geti þróast á öðrum plánetum, og
þau lögmál sem ætla má að eigi við um þró-
unina þar rétt eins og hér á jörðu. Ekki nema
örfáar mínútur undir lokin fjalla um háþróað
vitsmunalíf og ferðalög milli sólkerfa.
Rökin hjá Hawking eru nokkurn veginn
þessi: Ef við lítum á þróun vitsmunalífs á
jörðinni til þessa, þá getum við vel ímyndað
okkur að vitsmunalíf á öðrum hnöttum geti
þróast út í eitthvað sem við kærðum okkur
ekki um að hitta. Þróaðar geimverur væru
líklegar til að þurrausa á endanum auðlindir
sinnar heimaveraldar, og ímyndar Hawking
sér að þá geti orðið til n.k. flökkuþjóðflokkur
sem ferðast um geiminn og notar allt sem á
vegi verður.
Stórt er spurt
Hawking varð ekki fyrstur til að setja fram
tilgátur um illan ásetning geimvera. Ein til-
gátan hljóðar einmitt á þá leið að óttinn við
þróaðri verur, sem ættu alveg örugglega að
vera til, sé ástæða þess að við greinum ekki
neitt vitsmunalíf hér á Jörðu: Þegar samfélag
nái vissum þroska komi fram hugsuðir eins og
Hawking og telji sitt fólk á að slökkva ljósin,
að segja má, svo aðrir verði þeirra ekki varir.
Kenningin er síðan að öll þróuð samfélög frá
miklahvelli hafi fallið í þessa sömu rökrænu
gildru og skjálfi á beinunum þegar þau horfa
til stjarnanna.
Önnur kenning er reyndar á þá leið að við
heyrum ekki merki frá öðrum plánetum hér á
Jörðinni einmitt vegna þess að einhvern tíma
fyrir óendanlega löngu síðan hafi komið fram
herská geimverutegund sem leitar uppi og út-
rýmir öðru vitsmunalífi með þeim rökum að
af öðru þróuðu lífi stafi hætta. Jafnvel þó sú
siðmenning væri löngu liðin undir lok gætu
sjálfvirkir tortímendur verið enn á sveimi
leitandi uppi „geimkakkalakka“ sem slysast
til að senda frá sér merki um þróaða tækni.
Órökrétt svartsýni?
Erfitt er að andmæla Hawking þar sem hann
útskýrir mál sitt ekki í þaula. En sá sem þetta
skrifar vill halda, eða vona, að Hawking hafi
rangt fyrir sér.
Sú skoðun byggist kannski umfram allt á
óhóflegu glápi á Star-Trek seríuna. Menn geta
haft sínar skoðanir á afþreyingargildi þáttanna
en um hitt er ekki hægt að deila að hvergi
hafa verið settar fram jafnfjölbreyttar kenn-
ingar og útpældar heimspekilegar vangaveltur
um eðli og ásetning annarra vitsmunavera.
Stef sem kemur þar ítrekað upp er að sam-
félög sem ekki tileinka sér friðsemd og um-
burðarlyndi nái yfir höfuð ekki að þróast svo
langt að geta ferðast milli sólkerfa. Þar sem
græðgin og grimmdin þrífst eru samfélög lík-
legri til að tortíma sjálfum sér frekar en vera
ógn við aðrar plánetur.
Við þurfum ekki annað en að skoða fjölda-
mörg dæmi úr mannkynssögunni: þar sem
góðmennskan þrífst þar verða framfarir og
velmegun fyrir háa sem lága. Þar sem ógnun
og ótti ríkir, hvað þá virðingarleysi fyrir lífi,
verður afturför og eymd.
Það væri synd ef við reyndum að fela plán-
etuna okkar fyrir geimnum og meiri líkur en
minni að það verði til góðs þegar við loksins
uppgötvum geimnágranna okkar.
Hitt er sennilega meira áhyggjuefni en
skarar grimmra geimbandíta, hvort við náum
yfir höfuð að forðast það nógu lengi að tor-
tíma okkur sjálf.
Kannski erum við vondu geimverurnar.
Vondu
geimver-
urnar
Á að slökkva ljós-
in svo geim-
skúrkar finni
ekki Jörðina?
Worf í Star Trek er gott dæmi um geimveru sem virðist vond, en þegar betur er að gáð er hann alls ekkert svo slæmur.
Vikuspegill
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þar sem tölfræðilega
eru ágætar líkur á að
heimurinn sé iðandi
af vitsmunalífi, hvers
vegna verðum við
ekki vör við það?
Sú ráðgáta hefur ver-
ið kölluð Fermi-
þversögnin.
Kenningarnar eru af
ýmsum toga: Kannski
er það eðli þróaðra
samfélaga að tortíma
sjálfum sér. Kannski
berast okkur þegar
skilaboð sem okkur
skortir tæknina eða
vitsmunina til að
skilja. Eða er jörðin
einangruð af ásetn-
ingi og bíða geimver-
urnar þess að sýna
sig þar til mannkynið
hefur tekið út nægi-
legan félagslegan
þroska?
Fermi-
þversögnin
www.noatun.is
Nóatúni
Nýttu þér nóttina í
Nú eru allar verslanir Nóatúns
opnar allan sólarhringinn