SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Síða 10
10 2. maí 2010
E
nn lýsum við eftir hinu „Nýja Íslandi“, þar sem allt er
uppi á borðum, gegnsæi algjört, og leyndarhyggja, puk-
ur og baktjaldamakk er á bak og burt. En erum við farin
að sjá eitthvað sem gefur okkur fyrirheit um að svo muni
verða? Það er ég ekki viss um.
Vissulega gefur skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis okkur mjög
margt til að hugsa um, mjög margar ábendingar um það sem úr-
skeiðis hefur farið og mjög margar ábendingar um það hvað beri
að laga, í vinnubrögðum, stjórnarháttum, regluverki og fleira.
Þannig að ótímabært er með öllu að leggja árar í bát, fyllast von-
leysi og halda því fram að hér muni ekkert breytast til hins betra.
Við verðum einfaldlega að trúa því að hér muni margt breytast til
hins betra, því annars tæki bara við allsherjar depurð og þung-
lyndi.
Undanfarið hefur mikið ver-
ið rætt um styrki til stjórn-
málaflokka og styrki til stjórn-
málamanna, sem hafa tekið
þátt í prófkjörum á vegum
flokka sinna.
Það hefur verið rætt um sið-
ferði í stjórnmálum og hvernig
menn hafa misst sjónar á því
sem talist getur siðlegt og boð-
legt. Öll slík umræða er af hinu
góða og til þess fallin að menn
og flokkar vandi sig betur hér
eftir en hingað til.
En ég velti því fyrir mér,
hvernig stendur á því, að
styrkjakóngur Íslands í pólitík,
Guðlaugur Þór Þórðarson,
kemst upp með það að gera
ekki grein fyrir þeim styrkjum
sem hann hlaut frá einhverjum
til þess að fjármagna próf-
kjörsbaráttu sína. Hann hlaut
samtals 24,8 milljónir króna og
þegir bara þunnu hljóði um það hver eða hverjir styrktu hann um
milljónir á milljónir ofan.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur sagt af sér varafor-
mennsku og tekið sér tímabundið leyfi frá þingstörfum. Það gerði
hún ekki vegna þess að hún hefði gert eitthvað rangt, heldur
vegna þess að fáránleg starfshlunnindi eiginmanns hennar, þegar
hann starfaði hjá Kaupþingi, gerðu það að verkum að hann tók
kúlulán upp á tæplega 1,7 milljarða króna hjá vinnuveitanda sín-
um. Þessi lántaka eiginmannsins varpaði rýrð á trúverðugleika
varaformannsins. Það sá hún og brást við með ofangreindum
hætti.
Illugi Gunnarsson sagði af sér sem formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins og tók sér tímabundið leyfi frá þingstörfum, þar
sem rannsóknarnefnd Alþingis hafði vísað störfum stjórnar Pen-
ingamarkaðssjóðs 9 í Glitni til skoðunar hjá sérstökum saksóknara
ásamt fjölda mála, en Illugi átti, eins og alþjóð er kunnugt, sæti í
þeirri stjórn.
Ekki hefur neitt saknæmt komið fram tengt störfum Illuga í
stjórn þessa sjóðs, en ef ég skildi yfirlýsingu hans rétt, þá taldi
hann sér rétt og skylt að víkja tímabundið, á meðan botn er feng-
inn í þá skoðun sem væntanlega mun fara fram á störfum stjórnar
sjóðsins.
En Guðlaugur Þór, 25 milljóna maðurinn, situr sem fastast.
Hrokinn er slíkur, að hann gerir ekki einu sinni grein fyrir því
hverjir stóðu á bak við hinar mjög svo rausnarlegu styrkveitingar
til hans. Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að láta þar við sitja? Hvað seg-
ir heilagur Sveinn Andri Sveinsson nú, sem hefur svo sannarlega
ekki þagað þunnu hljóði, hafi hann á annað borð talið, að menn
þyrftu að gera grein fyrir hinu eða þessu? Þegir Sveinn Andri
þunnu hljóði vegna þess að styrkjakóngurinn er einkavinur hans,
eða býr eitthvað annað að baki þögn hins „sigursæla“ lögmanns?
Getur Guðlaugur Þór haldið áfram að þegja yfir því hverjir vel-
gjörðarmenn hans eru? Gerir þingmaðurinn sér enga grein fyrir
því, að með áframhaldandi þögninni, þá magnar hann bara upp
sögusagnir um styrkveitingarnar, sem hafa verið ærið fyrirferð-
armiklar í langan tíma? Sögusagnir í þá veru, að Guðlaugur Þór
hafi fjármagnað rándýra og hatramma prófkjörsbaráttu sína,
einkum gegn Birni Bjarnasyni, með Baugspeningum. Hvenær ætl-
ar þingmaðurinn að gera hreint fyrir sínum dyrum?
Þögnin er
orðin hávær
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Sveinn Andri
Sveinsson
’
Hvernig stend-
ur á því, að
styrkjakóngur
Íslands í pólitík, Guð-
laugur Þór Þórð-
arson, kemst upp
með það að gera ekki
grein fyrir þeim
styrkjum sem hann
hlaut?
Það er í nógu að snúast hjá
Andrési Ramón, tónlistar-
manni, sem er í tónsmíðanámi í
Listaháskóla Íslands og starfar
við hljóðfæraverslunina San-
gitamiya á Klapparstíg, þar sem
fást hljóðfæri frá öllum heims-
hornum.
5.50. „Ég vaknaði rétt fyrir
sex, fór í sturtu og hugleiddi í
40 mínútur. Þetta var fallegur
morgunn og ég söng nokkur
lög í hálftíma. Svo las ég and-
legar bókmenntir hálftíma í
viðbót. Ég er að lesa ritgerðir
eftir indverskan heimspeking
að nafni Sri Aurobindo, en þar
talar hann um þróun mann-
kynsins og hvert næsta skref
þess verður. Það eru áhuga-
verðar kenningar. Hann segir
til dæmis að munurinn á
manninum eins og hann er í
dag og því hvernig hann verði í
framtíðinni sé meiri en mun-
urinn á öpum og mönnum. Þú
getur sagt þetta í viðtalinu!“
segir hann og hlær.
8.30 „Ég fékk mér morgun-
mat ristað brauð með kotasælu
og mangó.“
9.00 „Ég fór í Listaháskól-
ann, æfði mig á píanó í tæpa
fjóra tíma. Ég er að æfa og
semja verk, sem ég flyt eftir
mánuð.“
12.30 „Mötuneytið var fullt
af fólki þegar ég borðaði í há-
deginu. Þar voru tónlistarmenn
og nemendur í leiklist og dans-
arar sem ég spila undir hjá. Það
leiðist engum í slíkum fé-
lagsskap.“
13.30 „Ég kom við í
hljóðfæraversluninni Sangita-
miya og hitti hjón sem eru tón-
listarmenn og spila með Sin-
fóníuhljómsveitinni. Það voru
Steef van Oosterhout, slag-
verksleikari, og Herdís Anna
Jónsdóttir, víóluleikari. Þau eru
fastir viðskiptavinir í búðinni
og það er alltaf gaman að spjalla
við þau og sýna þeim hljóð-
færi.“
14.00 „Keypti í matinn og
fór heim og æfði smávegis á pí-
anó verkin sem ég er að semja.“
14.30„Fékk að vita að við
hefðum fengið risastóra send-
ingu með fullt af skemmti-
legum og framandi hljóðfærum.
Þá fór ég niður til að taka á
móti þeim. Þetta eru margar
tegundir af úkúlele og þá nefni
ég sérstaklega minnsta bassa í
heimi, úkúlele-bassa sem kall-
aður er „u-bass“.
Við fengum eitt slíkt hljóð-
færi fyrir þremur mánuðum, en
okkur hélst bara á því í nokkra
daga. Það vakti hinsvegar mikla
athygli og nú eru margir tón-
listarmenn að spyrja um u-
bassann. Við fengum líka sópr-
an-úkúlele í allskonar litum og
viðartegundum. Og svo fengum
við íhluti, stillitæki, töskur og
poka utan um úkúlele.
Hljóðfærið úkúlele er upp-
runalega frá Portúgal, margra
alda gamalt. En eftir að það
barst til Havaí varð það aðal-
hljóðfæri eyjarskeggja. Það eru
aðallega tónlistarmenn þaðan
sem hafa borið hróður þessa
hljóðfæris um allan heim.“
18.00 „Fór heim að borða,
en hélt svo áfram að taka úr
kössum og verðleggja. Svo bíða
tónsmíðarnar helgarinnar.“
Dagur í lífi Andrés Ramón tónlistarmaður
Andrés Ramón með úkúlele-bassa, minnsta bassa í heimi, í hljóðfæraversluninni Sangitamiya á Klapparstíg.
Líf með hljóðfærum
Morgunblaðið/Kristinn
Sunnudagur
Herbert Friðrik Stefánsson vill
breyta Heilsuverndarstöðinni í
iðrunarmiðstöð.
Mánudagur
Guðrún Eva Mínervudóttir fékk
skilaboð í draumi um að „lesa
milli línanna“.
Kristján Runólfsson Paul
McCartney er orðinn elsta krútt í
heiminum.
Þriðjudagur
Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugs-
dóttur finnst rangt að mótmælt
sé við heimili fólks. Svona gera
menn ekki.
Ásdís Ásgeirsdóttir á strákinn á
baksíðu Morgunblaðsins!
Svavar Knutur Hversu kul (eda
glatad) er thad thegar madur
labbar inn a internetkaffi i tasm-
aniu og starfsfolkid heilsar
manni med nafni og bydur manni
„thad venjulega“...
Fimmtudagur
Hallgrímur Helgason Guð skap-
aði homma og lesbíur en ekki
presta.
Föstudagur
Davíð Logi Sigurðsson Fylgdist
einu sinni býsna vel með popp-
inu. Núna myndi ég ekki geta
þekkt lag með Lady Ga Ga og ég
hef enga hugmynd um það hver
Taylor Swift er. Merki um að
maður sé orðinn miðaldra?
Hildur Loftsdóttir Oona (6) búin
að missa fyrstu tönnina. Allir
voða glaðir og stoltir.
Ásthildur Sturludóttir páskalilj-
urnar sprungnar út undir vegg á
Norræna húsinu í tilefni af sigri
Snæfells í gær....
Elín Margrét Hallgrímsdóttir Ey-
firski safnadagurinn er á morg-
un, þá gefst tækifæri til að
heimsækja öll söfn á svæðinu
ef farið er með safnarútu. Ég
ætla að heimsækja húsbóndann
á Sigurhæðum og safnið á Sval-
barðsströnd þegar gerð hefur
verið málamynda tiltekt á heim-
ilinu.
Góða helgi.
Fésbók vikunnar flett