SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Side 27

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Side 27
2. maí 2010 27 H rikta tók í fjármálakerfi heimsins sumarið og haustið 2007 þegar húsnæðislán fóru að gjaldfalla í hrönnum í Bandaríkjunum. Það kann að virðast undarlegt að gjaldfallin húsnæðislán geti leitt til fjármálahamfara um allan heim, en í kringum þau höfðu verið búnir til svo snúnir fjármálavafningar að ekki einu sinni höfundar þeirra virtust skilja þá og þegar bólan sprakk var tapið yf- irgengilegt. Þótt þorri manna hafi flotið sofandi að feigðarósi voru þeir þó til, á milli tíu og tuttugu manns, sem áttuðu sig á að hið glórulausa kerfi myndi hrynja. Nokkrir þeirra eru dregnir fram í The Big Short (eða Stóra skortstaðan) eftir Michael Lewis, sem er þekktur fyrir bókina Li- ar’s Poker. Þessir menn voru eins og hrópendur í eyðimörkinni. Þeir bentu á brestina í kerfinu og veðjuðu gegn því, en enginn tók mark á þeim. Söguhetjur Lewis eru flestir utan- garðsmenn á jaðri fjármálakerfisins. Menn á borð við Steve Eisman lögfræð- ing, sem sá sjálfan sig í köngulóarmann- inum og var ófær um að tala tæpitungu, og Michael Burry, eineygðan lækni með Asperger-heilkennið og nánast óbrigðult auga fyrir tækifærum til að hagnast í fjármálaheiminum. Hin hæpnu húsnæðislán Hinir hæpnu húsnæðislánavafningar snerust um svokölluð undirmálslán. Þar er um að ræða lán til fólks, sem ekki hefur mikið á milli handanna. Um miðj- an tíunda áratug tuttugustu aldarinnar voru veittir um þrjátíu milljarðar dollara í slík lán. Árið 2000 var upphæðin kom- in í 130 milljarða dollara og 2005 í 625 milljarða dollara og út frá þeirri upphæð voru gefin út húsnæðislánaskuldabréf að upphæð 500 milljarðar dollara það sama ár. 1996 höfðu verið fastir vextir á 65% lánanna, en árið 2005 var fyrirkomulag- ið þannig á 75% lánanna að vextir voru fastir fyrstu tvö árin eða svo og breyti- legir eftir það, ekkert ólíkt húsnæð- islánum, sem íslensku bankarnir veittu áður en þeir fóru á hausinn. Upphafs- vextirnir voru einnig kallaðir lokk- unarvextir. Undirmálsbólan hafði sprungið með ósköpum í lok tuttugustu aldarinnar, en hún fór engu að síður að bólgna út aftur í upphafi þeirrar tuttugustu og fyrstu. Þeir sem veittu lánin drógu sinn lærdóm af fyrri óförum. Hann var ekki sá að hætta að lána fólki, sem gæti ekki borg- að lánin aftur. Þeir einfaldlega losuðu sig við lánin um leið og þau höfðu verið veitt með því að selja þau stóru fjárfest- ingarbönkunum á Wall Street. Fjárfest- ingarbankarnir bjuggu síðan til úr þeim skuldabréf og seldu fjárfestum. Lánin voru misgóð, en þeim var hrúgað saman undir einn hatt, mörg hundruð eða þús- und slæm lán og góð lán í einum vafn- ingi, til þess að skapa öryggistilfinningu hjá viðskiptavinunum. Vafasamar einkunnir matsfyrirtækjanna Síðan komu matsfyrirtækin Moody’s og Standard & Poor’s og gáfu herlegheit- unum einkunn, sem var ekki í neinu samhengi við hin ótraustu lán, sem skuldabréfin voru byggð á og úr varð gjörningur, sem velti stjarnfræðilegum upphæðum. Til marks um óskiljanlega hegðun matsfyrirtækjanna er að Moo- dy’s og Standard & Poor’s gáfu 80% af skuldabréfum byggðum á vafasömum lánum sömu einkunn og skuldum ríkis- sjóðs Bandaríkjanna. Sögupersónur Lewis veðjuðu á að þessi skuldabréf myndu hrynja með því að kaupa skuldatryggingar (Credit De- fault Swaps). Þessi skuldatrygginga- viðskipti voru svo undarleg að þau tengdust í raun ekki lánunum sjálfum beint, voru aðeins háð því að greitt væri af þeim – eða ekki. Lewis líkir þessu við tölvuleik, Fantasy Football. Þegar leik- maður kaupir Peyton Manning í liðið sitt verður ekki til nýr Peyton Manning. Þegar keypt var skuldatrygging með vísan til tiltekinna skuldabréfa með undirmálslán að bakhjarli gat bankinn búið til nýtt skuldabréf, sem var eins og hið fyrra að öllu leyti nema einu: hvorki var um að ræða raunveruleg húsnæð- islán né raunverulega húnæðiskaup- endur. Þessi skuldabréf fengu sömu ein- kunn hjá hinum valdamiklu matsfyrirtækjum, sem fá háðulega útreið hjá Lewis. Þar sem skuldabréfamarkaðurinn í Bandaríkjunum er vettvangur fjármála- fyrirtækja og atvinnumanna, en ekki ætlaður litlum fjárfestum og óbreyttum borgurum eins og hlutabréfamarkaður- inn, er hann ekki háður sama reglu- verki, til dæmis hvað varðar upplýs- ingaskyldu og gagnsæi. Það er nánast hrollvekjandi að lesa kaflann í bók Lewis þar sem hann lýsir því hvernig nafn- giftir og óskiljanlegur orðavaðall er not- aður til að breiða yfir það, sem er raun- verulega á ferðinni, en þegar lesandinn áttar sig á því að bankamennirnir sjálfir skildu ekki hvað var á ferðinni kastar fyrst tólfunum. Undirmálslánin voru á svo veikum grunni byggð að húsnæð- isverð þurfti ekki að lækka til þess að allt hryndi, það þurfti aðeins að hætta að hækka jafn hratt og það hafði gert. Í The Big Short lýsir Michael Lewis því hvernig skapað var stjórnlaust skrímsli, sem framleiddi gull úr brotajárni þar til það hratt af stað mesta fjármálaglund- roða frá kreppunni miklu fyrir áttatíu árum. Þátttakendur í leiknum voru stærstu fjármálafyrirtæki Bandaríkjanna, Lehman, Goldman Sachs og Morgan Stanley svo einhver séu nefnd og bankar um allan heim voru með án þess að gera sér nokkra grein fyrir áhættunni. Hin einkareknu matsfyrirtæki stimpluðu allt saman og nú blasa við þeim málaferli. Eftirlit með herlegheitunum var ekkert. Söguhetjur höfundar högnuðust á ósköpunum, en það kaldhæðnislega er að sökudólgarnir gerðu það líka. Þeir ollu tjóni, sem nam trilljónum dollara, og gengu í burtu með milljónir. Frásögn Lewis er reyfarakennd og aðgengilegri lýsing á hinum flóknu fjármálagjörn- ingum er vandfundin. The Big Short er eftir Michael Lewis, útgefandi W.W. Norton & Company. Glópagull úr brotajárni Hús til sölu í Broomfield í Colorado. Afleiðinga undirmálslánanna gætir um öll Bandaríkin og sér ekki fyrir endann á þeim enn. Reuters Lánin voru veitt fólki, sem átti fullt í fangi með að greiða af þeim til að byrja með og var jafnvel þegar komið í þrot, og því mátti búast við miklum vanskilum um leið og vextirnir hækkuðu. Í bók Michaels Lewis, The Big Short, er tekið dæmi um mexí- kóskan innflytjanda, sem vann við að tína jarðarber og var með 14 þúsund dollara í tekjur á ári. Hann fékk 100% lán til að kaupa hús í Bakersfield í Kaliforníu fyrir 724 þúsund dollara. Annað dæmi er um systur frá Jamaíku, sem eignuðust sex hús í Queens. Önnur þeirra hafði verið barnfóstra hjá einni af sögupersónum Lewis. Þegar hún var spurð hvernig hún hefði farið að því sagðist hún fyrst hafa keypt sér eitt hús. Þegar það hækkaði í verði bauð bankinn endurfjármögnun með veði í húsinu og það gerði henni kleift að kaupa annað hús. Enn hækkaði húsnæðisverð og þá endurtók hún gjörninginn – alls fimm sinnum. Svo fór húsnæðisverðið að lækka og afborganirnar urðu systrunum um megn. Sögur af þessum toga eru legíó um öll Bandaríkin. Þegar lánin féllu blöstu við gjaldþrot og nauðungarsölur hjá fjölda manns í neðri hluta bandarískrar millistétt- ar. Bandarísk stjórnvöld skárust ekki í leikinn til að bjarga þessum einstaklingum, en eins og Lewis orðar það gripu þau til sinna ráða til að „koma í veg fyrir hrun stórra fyrirtækja á Wall Street, sem höfðu reynt að gera sig sjálf gjaldþrota með veðja þráfaldlega á þá, sem tóku undirmálslán, án þess að nokkur glóra væri í því“. Jarðarber og lánstraust Bandarísku undir- málslánin, sem hrundu af stað heimskreppu, eru umfjöllunarefni reyfarakenndrar bókar eftir Michael Lewis. Karl Blöndal kbl@mbl.is ’ Svimandi háum lán- um var nánast þröngvað upp á fólk, sem þurfti á kraftaverki á halda til að geta nokkurn tímann borgað þau.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.