SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Síða 28

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Síða 28
28 2. maí 2010 G ordon Brown fer um land sitt með fríðu föruneyti og berst fyrir völdum sínum og Verkamannaflokksins. En fríða föruneytið er ekki eitt um hituna. Seinheppnin eltir hann hvert sem hann fer. Og stundum nær hún honum. Nú síðast lenti hann óvænt í kjósanda, sem var á leiðinni út í bakarí og sá óvænt forsætisráðherrann sjálfan í atkvæðaleit í götunni hennar. Hún vatt sér að honum og bar undir hann nokkur mál sem henni voru efst í huga þá stundina. Ekki var það allt hreinn póli- tískur rétttrúnaður hjá þeirri gömlu (hún er örfá- um árum eldri en bréfritari), en þó hvorki ofsi né ofstæki. Brown þótti ekki takast illa upp í svörum sínum. Sem sagt gott. Brown var með hljóðnema festan á bindið fyrir sjónvarpsstöð. Þegar hann hafði kvatt „þá gömlu“ og aðra háttvirta kjós- endur brosandi og þekkilegur með veifum í kveðjuskyni settist hann upp í ráðherrabílinn og brunaði af stað. Þá fór hann að tala illa um kjós- andann og þá bjálfa í hópi eigin starfsliðs sem leyfðu henni að heilsa upp á ráðherrann. Kerlu sagði hann fordómafulla og ómögulega og uppá- komuna því vandræðalega fyrir sig. En hann hafði gleymt að slökkva á hljóðnemanum og sjónvarpsmenn SKY, sem áttu hljóðnemann voru komnir í feitt. Bein útsending er annað mál Enginn stjórnmálamaður lífs eða liðinn myndi þola að allt sem hann segir við sína trún- aðarmenn um sína elskulegu kjósendur eða ein- staka samherja færi út í beinni. Enginn biskup gæti búið við að allt sem hann segði um prestana við sína nánustu færi út í beinni eða páfinn um kardínálana. Með þessu er ekki verið að segja að þessir sem nefndir eru af handahófi séu óhrein- lyndir eða falskir. Lífið í beinni útsendingu lýtur öðrum lögmálum en það sem ekki er sent út. Staðinn að verki Gordon Brown var í sjónvarpsviðtali þegar hann var upplýstur um slysið. Hans eigin orð í útsend- ingunni voru spiluð fyrir hann. Hann greip um höfuðið og var bersýnilega miður sín. En al- menningur sá að hann var ekki miður sín yfir ómaklegum ummælum um konu sem kosið hafði Verkamannaflokkinn alla sína tíð og var búin að setja atkvæði sitt í þessum kosningum í utankjör- fundarumslag með X við Brown og hans menn. Hann var miður sín yfir því að hafa verið staðinn að verki. Hann hafði í einni sviphendingu eyði- lagt þá mynd sem ímyndarsérfræðingar höfðu dregið upp af honum fyrir fúlgur fjár. Hann var aftur á ímyndarlegum byrjunarreit. Var orðinn sá Brown sem hann hefur alltaf verið og ímynd- arfræðingar höfðu talið lítt kjósendavænan. Þeir höfðu sett á hann nýtt bros, útbúið handa honum lipurlegar útskýringar á mannamáli um flókin mál og hannað viðkunnanlegra göngulag. Og nú hafði hann sest augnablik við tölvuna sína gler- augnalaus og ýtt á „Eyða“ í staðinn fyrir „Enter“. Og hin pólitíska gæfa gufaði upp. Það er auðvitað fráleitt að kosningaúrslit ráðist af slíkum atvik- um. En þau gera það samt. Bændahjón flæmd af jörð En það hafa fleiri verið staðnir að verki. Sama daginn og upplýst er að ung bændahjón hafa ver- ið neydd til að selja aldargamla föðurleifð af bankanum þeirra, fær maður „kúlulán“ sem hann þarf ekki að borga af næstu tíu árin. Það er einhver sem enn telur rétt að lána manni hálfan milljarð eða svo án afborgana í áratug, sem þegar hefur hlaupið frá 1000 milljarða skuld við banka- kerfið og lífeyrisþega á Íslandi. Hinn örláti lán- veitandi hefur ekki gefið sig fram. Því hafa verið getgátur uppi um að viðkomandi sé að lána sér sjálfum vegna þess að það sé eina aðferðin til að útskýra af hverju hann getur allt í einu borgað háar fjárhæðir í Landsbankann til að tryggja eignarhald sitt á fjölmiðlum á meðan hann greiðir ekki skuldir sínar. Þess vegna hafi fréttinni verið „lekið“ í sjónvarpsstöðina hans og sá leki sé hluti af þessum spuna. Ekkert skal um slíkt fullyrt en það væri í fullu samræmi við það sem á undan er gengið. Hvað sem um það er að segja er hitt ljóst að Landsbankinn hefur verið staðinn að verki. Hann fylgir hinum ærulausa Arion banka fast á eftir. Íslandsbanki var staðinn að verki í jarðar- málinu í Árnessýslu og hlýtur að leita leiða til að vinda ofan af því máli. Tilvísun í einhverja eftir- litsnefnd sem þau Jóhanna og Steingrímur hafa látið skipa er gagnslaus. Slíkri nefnd treystir eng- inn. Enda hefur ekki heyrst í henni múkk eftir að hún var skipuð og á meðan fylgja nýju bankarnir fast eftir þeim óskeikulu siðareglum sem þeir Sigurður Einarsson, Sigurjón Árnason og Jón Ás- geir Jóhannesson settu. Það er ekki hætta á að bankarnir fari út af á meðan siglt er eftir slíkum leiðarstjörnum. „Ég á mig sjálf“ Árni Tómasson, sem lætur jafnan eins og hann eigi gamla Glitni og nýja Íslandsbanka, staðfesti þá stöðu nýlega. Hann kom inn á vegum Fjár- málaeftirlitsins á sínum tíma. En nú „heyrir“ hann undir „eigendur“ Glitnis, sem hann segir að muni þó ekki koma nærri stjórn á Íslandsbanka fyrr en eftir 5 ár! Reyndar er neitað að gefa upp hverjir það eru sem Árni Tómasson „heyrir“ undir, því það viti það enginn með vissu. Menn- irnir sem eiga að hafa forystu fyrir landinu reyna að gera gömlu einkavæðingu bankanna tor- tryggilega þótt allt um hana liggi skjalfest fyrir og rannsakað af Ríkisendurskoðun. En þeir telja þessa einkavæðingu sína á Kaupþingi og Glitni í Reykjavíkurbréf 30.04.10 Staðnir að verki

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.