SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Side 54

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Side 54
1. maí er ansi stór dagur, líka hjá List án landamæra. Það kæmi sér vel að geta verið á mörgum stöðum í einu þar sem mikið verður um að vera á hátíðinni víða um landið. Gaman væri að komast á Egilsstaði þar sem heilmikil há- tíðardagskrá verður í Sláturhúsinu, eða á Safnasafnið á Svalbarðsströnd þar sem sýning á verkum safnsins frá Sólheimum verður opnuð auk afhjúpunar skúlptúrs Geð- listar á bílastæðinu. Bót í máli að sýningin verður opin í allt sumar og skúlptúrinn mun standa til frambúðar. Ég mun halda mig í höfuðborginni þessa helgina og vakna eldsnemma á Verkalýðsdaginn til að opna Hitt Húsið og taka á móti þátttakendum Geðveika Kaffihússins sem opnar kl. 13:00. Þar ætla hópar frá Ásgarði, Bjarkarási, Gylfaflöt og Iðjubergi að vera með handverksmarkað til kl. 17:00 og Hugarafl ætlar að vera með heitt á könn- unni og kræsingar á meðan Unghugar sjá um ýmsar skemmtilegar uppákomur. Kvöldið fer í algjöra afslöppun í faðmi fjölskyldunnar og einnig fyrripartur sunnudagsins, en svo kíkjum við í Nor- ræna húsið á opnun hönnunarsýningar kl. 16:00 þar sem nemendur úr Mynd- listaskólanum í Reykjavík sýna af- rakstur spennandi verkefnis sem þau gerðu í samstarfi við Lyngás. Fengum gamalt grill gefins um daginn og stefnan að hefja grills- umarið á sunnudagskvöldið. Helgin mín Viðar Jónsson, fram- kvæmdastjóri Listar án landamæra Mikið um að vera í List án landamæra 54 2. maí 2010 Haraldur Jónsson hefur í áratugi tekið og sýnt ljós- myndir, þær hafa verið eins og óslitinn þráður í list hans meðfram áþreifanlegri verkum, skúlptúrum og innsetningum af margvíslegum toga. Nú er komin út bók eftir Harald, TSOYL, sem inniheldur hluta af ljósmyndum hans. Titill bókarinnar vísar til sýningar sem Haraldur hélt í Þjóðminjasafninu árið 2005, en hér er skammstöfun látin duga sem um leið öðlast nýtt líf, verður möguleiki á orðasamsetningum í huga áhorfandans. Það var vel til fundið að koma ljósmyndasafninu á bók. Haraldur hefur um langt skeið leitast við að rannsaka tilfinningar og undirmeðvitundina á ná- kvæman máta. Hinn orðlausi kjarni listar hans birtist í hnotskurn, tjáning þess ósegjanlega. Línulaga framsetning virkjar áhorfandann á máta sem hentar myndunum, hver um sig verður áleitnari en þegar margar koma saman eins og mósaík á vegg. Viðtekin skoðun okkar samfélags er sú að rann- sóknir og skrásetningar á veruleikanum fari fram með mælieiningum á borð við þyngd, ummál og stærð til dæmis. Haraldur sýnir hér vel hvernig upp- lýsingar geta borist á milli í öðru formi sem ef til vill segir miklu meira, án orða og þekktra mælieininga. Annar listamaður sem hefur verið ötull við að koma undirmeðvitundinni á kortið er David Lynch, sem hefur verið afar áhrifamikill meðal fjölda listamanna. Einnig hjá honum birtast smáatriði eins og minn- ispunktar um hverfulleika lífsins, dularfull op og holur eins og dyr inn í aðra vídd, hold er mold. Haraldur er fyrst og fremst myndlistarmaður og ljóðskáld en ekki ljósmyndari, hér talar tilfinn- ingalegt inntak myndanna til áhorfandans en ekki myndræn uppbygging, áferð eða litasamsetningar. Ljósmyndir úr hversdagslífinu, myndrænar frásagnir, hafa um alllangt skeið verið þekkt fyrirbæri í mynd- listinni. Haraldi tekst, þrátt fyrir að vinna innan vel þekktrar, allt að því gamalkunnrar, hefðar að birta persónulega sýn um leið og myndir hans eru opnar og óskilgreindar. Í myndunum koma fram kunnuglegir þættir nátt- úru okkar og umhverfis, menningu og samtíma. Sammannlegir þættir sem flestir þekkja. Sumt er augljóslega meðvitað, eins og myndir teknar að nóttu birta framandi hliðar á kunnuglegu umhverfi. Einnig má sjá ákveðin myndefni endurtaka sig; dýr, liti, lík- amshluta, börn, holur, pör. Flestar myndirnar virð- ast samt hafa „birst“ listamanninum óvænt og slíkri tilfinningu er miðlað áfram. Sjónarhornið og samsetning mynda er óútskýrt og verður til þess að tengslin sem hver og einn myndar við bókina eru einstök. Þannig má ætla að sú sýn sem birtist skoðanda segi meira um hann sjálfan en um listamanninn eða bókina. Mín upplifun á hverf- ulleika lífsins, síendurteknar áminningar um dauða og sjúkdóma, óútskýrðar tilviljanir og væg tilfinning fyrir depurð í verksummerkjum um mannlega návist er því til vitnis um sjálf mitt, frekar en að bókin innihaldi endilega þetta. Tilfinningin sem TSOYL skilur eftir sig er þó ekki dapurleg heldur mun frekar í áttina að gleði vegna möguleikans á hinu und- ursamlega, trú á lífið. Sú mótsögn sem í þessari upp- lifun felst, annars vegar depurð vegna hverfulleika lífsins en hins vegar möguleiki augnabliksins, er síð- an ef til vill raunverulegt viðfangsefni bókarinnar. Minnis- punktar um hverf- ulleika Myndlist TSOYL bbbmn Eftir Harald Jónsson. Bókaútgáfan Útúrdúr, 2010 Ragna Sigurðardóttir Haraldur Jónsson er fyrst og fremst myndlistarmaður og ljóðskáld en ekki ljósmyndari, hér talar tilfinningalegt inntak mynd- anna til áhorfandans en ekki myndræn uppbygging, áferð eða litasamsetningar. Ljósmynd/Haraldur Jónsson Á undanförnum árum hefur þeirri grein bókmennta sem menn kalla „chick lit“ eða skvísubækur vaxið fiskur um hrygg, en það eru bækur sem skrifaðar eru fyrir ungar konur og oft einmitt skrifaðar af ungum konum. Á stundum hefur merkimiðinn verið notaður sem köp- uryrði, en það er óþarfi að mínu viti, slíkar bækur eru ekki síðri en megnið af því sem kemur út af afþreyng- arbókum. nefni glæpareyfara sem dæmi. Víst rista þær ekki alltaf djúpt sem bókmenntir, en maður er nú ekki alltaf að leita að djúpsálfræðilegum átökum við grimmi- leg örlög þegar maður tekur sér bók í hönd. Bókin Sítrónur og saffran er dæmigerð skvísubók, létt og skemmtileg, dálítið froðukennd, en það á við nú þeg- ar farið er að vora eins og sumarleg kápan undistrikar. Bókin segir frá Agnesi, sem orðin er yfirþjónn á helsta veitingastað í Stokkhólmi og er í sambúð með glæsilegu rokkgoði þegar allt ferð á hvolf, hún missir vinnuna, kærastinn tekur aðra framyfir hana og skyndilega er lífið orðið jafn ömurlegt og það var frábært forðum. Væntanlega kemur það fáum á óvart að allt fer vel, Agnes nær að höndla haminguna að nýju eftir þreng- ingar sem ganga ansi nærri henni og lærir líka að treysta á sjálfa sig. Víst eru vandamál hennar ekki svo hræðileg þegar upp er staðið og úrlausn þeirra ævintýraleg, en því ætti maður að velta fyrir sér hinstu rökum tilverunnar þegar maður er að skemmta sér? Sumarleg, létt og skemmtileg Bækur Sítrónur og saffran bbmnn Eftir Kasja Ingemarsson. Mál og menning gefur út. Sænski rithöfundurinn Kasja Ingemarsson, höfundur bókarinnar um ástir og örlög Agnesar. Árni Matthíasson Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.