SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Side 55
2. maí 2010 55
Fyrir tæplega fimm árum hvarf bandarísk
menntaskólastúlka á eyjunni Aruba í Karíbahafinu
og hefur ekkert spurst til hennar síðan. Síðast sást
til hennar yfirgefa næturklúbb með þremur ung-
um mönnum. Þeir voru yfirheyrðir og fleiri til en
allt kom fyrir ekki. Enginn hefur verið sakfelldur
þó böndin hafi óneitanlega beinst að fylgd-
arsveinum stúlkunnar.
Fréttin um hvarf stúlkunnar kom upp í hugann
við lestur á kápu bókarinnar Fyrirsætumorðin (e.
Swimsuit) eftir bandaríska metsöluhöfundinn
James Patterson. „Ung fyrirsæta hverfur við
myndatökur á Hawaii. Blaðamaðurinn Ben Hawk-
ins er sendur til að fylgjast með málinu og brátt
kemur á daginn að í sólskinsparadísinni liggur
höggormur í leyni, slóttugur og fullur kvalalosta.
Fórnarlömbunum fjölgar og þegar siðblindi morð-
inginn heimtar að Ben skrifi um sig bók á hann
engra kosta völ - hann neyðist til að setjast niður
og hlusta á hryllingssöguna. Og hann veit að hann
verður að stöðva illvirkjann ... einhvern veginn.“
Lömbin þagna og Hannibal Lechter voru ljóslif-
andi við lestur bókarinnar. Og öll þessi viðbjóðs-
legu og tilgangslausu morð, eins og reyndar öll
morð eru, sem eiga sér stað vítt og breitt um
heiminn. Brjálæðingar og vitfirringar sem svífast
einskis. Sumir hafa náðst, aðrir ekki.
James Patterson fangar þessa sýn frábærlega.
Viðfangsefnið er ekki beint heillandi en það blasir
við úti um allt og verður ljóslifandi í frásögn Pat-
tersons. Lesandinn fær strax ógeð á óþokkanum
og það er spennandi að fylgjast með - úr fjarlægð -
hvað gerist næst. Kaldhæðnislegt með raunveru-
leikann í huga.
Steinþór Guðbjartsson
Mikil spenna og hryllingur
Bækur
Fyrirsætumorðin
bbbbn
Eftir James Patterson. Magnea J. Matthíasdóttir þýddi. JPV
útgáfa 2010. 260 bls. kilja.
James Patterson
Mons Kallentoft vann sér orð
fyrir skáldsögur áður en hann
sneri sér að glæpasögum með
góðum árangri. Fyrsta bók
hans þeirrar gerðar kom út
2007 og hét Midvinterblod
sem kemur nú út í íslenskri
þýðingu sem Vetrarblóð.
Höfuðpersóna bókarinnar er
fráskilin lögreglukona, Malin
Fors, sem á unglingsstúlku og
glímir við ýmsar tilfinn-
ingaflækjur, aðallega það þó að
hún vinnur of mikið. Hún býr
og vinnur í Linköping og
skammt fyrir utan borgina er
framið hrottalegt morð – lík
manns finnst hangandi í tré á
víðavangi, nakið og limlest.
Fljótlega kemur í ljós að við-
komandi var misþroska ut-
angarðsmaður sem mörgum
var í nöp við en engum svo að
hann mynda hengja hann upp
í tré og slátra á hrottalegan
hátt.
Flækjan í bókinni er fín, en
best þó hve höfundur dregur
upp sannfærandi líf í vel-
ferðaríkinu þar sem smæl-
ingjar eru malaðir og troðnir í
svaðið og þar sem syndir feðr-
anna koma margfalt niður á
börnunum. Við fáum að
skyggnast inn í heim þeirra
sem búa á jaðrinum, heim sem
lýtur öðrum óskiljanlegum
lögmálum. Forvitnilegt fyrir
íslenska lesendur að fá nasa-
sjón af því hvaða augum Svía
(sænskir krimmar?) líta
ásatrú, þó Kallentoft sé að
skæla það svo henti bókinni.
Persónur í bókinni eru trú-
verðugar, allar nema illvirkinn
reyndar, en hann dugir vel í
sínu hlutverki. Ég verð þó að
viðurkenna að ég var orðinn
dálitið þreyttur á ástarmálum
Malin Fors, en rætist vonandi
úr í næstu bókum. Fleira er
misjafnt í bókinni, sumir fé-
lagar Fors í lögreglunni eru
eiginlega frekar teiknimynda-
fígúrur, sem skýrist að vissu
leyti af því að þeim bregður
fyrir en við fáum ekki að
kynnast þeim af neinu viti.
Allir eiga þeir sín leyndarmál
og greinilega verið að búa
jarðveginn undir frekari sögur
af Malin Fors, en sálarháski
fyrrverandi eiginmanns henn-
ar finnst mér yfirdrifinn.
Stíllinn á bókinni er óvenju-
legur um margt og til að
mynda eru kaflarnir þar sem
hinn látni ávarpar lesandann
óvenjulegir og flestir vel gerð-
ir; þegar best tekst til gera
þeir óvenju- og skemmtilega
stemmningu, gæða bókina
stundum ljóðrænu lífi, en
stundum flækjast þeir líka fyr-
ir og þá finnst manni þeir til-
gerðarlegir. Sennilega er þetta
bók sem best er að taka með
áhlaupi, en ekki nuddast í
henni í nokkra daga.
Syndir feðranna og ávöxtur
illskunnar í velferðarríkinu
Bækur
Vetrarblóð
bbbmn
Eftir Mons Kallentoft. Uppheimar
gefa út. Hjalti Rögnvaldsson þýddi.
Mons Kallentoft
Árni Matthíasson
LISTASAFN ÍSLANDS
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Endurfundir
Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna!
Barnaleiðsögn
Sunnudaginn 2. maí kl. 14.
Opið alla daga 10-17.
Aðgangur ókeypis fyrir börn.
www.thjodminjasafn.is - s. 530 2200
Söfnin í landinu
13. mars - 9. maí 2010
Í barnastærðum
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
í samstarfi við Listasafn Íslands
ÍSLENSK MYNDLIST
hundrað ár í hnotskurn
OPIÐ: Fim.–sun. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
ANGURVÆRÐ Í MINNI 11.3.-2.5. SÍÐASTA SÝNINGARHELGI!
DYNDILYNDI - verði gjafa gagnstreymi 17.4. - 2.5. 2010
Sýningin er framlag Myndlistaskólans í Reykjavík til
Barnamenningarhátíðar 2010.
Listsmiðjur, endurmenntunarnámskeið og uppákomur
af ýmsu tagi. Dagskrá á www.dyndilyndi.is
LEIÐSÖGN - sunnudaginn 2. maí kl. 14
- Margrét H. Blöndal myndlistarmaður og leiðangurstjóri.
SAFNBÚÐ Fermingar- og útskriftartilboð á listaverkabókum.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR • www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009.
Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd.
„Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og
Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta.
Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna.
Myndgerð: Páll Steingrímsson.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
Listahátíð barna í 5. sinn
Samstarfsverkefni listasafnsins
og 10 leikskóla. Þemað: Hafið.
Sýningin stendur til 3. maí
Opið virka daga 11.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
VÍKINGAHEIMAR
Skipið Íslendingur og
sögusýning
- Söguleg skemmtun
VÍKINGABRAUT 1
- REYKJANESBÆ
Opið alla daga
frá 11:00 til 18:00
Sími 422 2000
www.vikingaheimar.com
info@vikingaheimar.com