SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Síða 8
8 10. október 2010
Mainz er höfuðborgin í Rheinland-
Pfalz og jafnframt stærsta borgin
í sambandslandinu. Borgin á sér
langa sögu, en knattspyrna hefur
ekki verið snar þáttur í henni.
Reyndar var knattspyrnuliðið 1.
FSV Mainz 05 stofnað 1905, en
ferill þess hefur hvorki verið
glæstur né litríkur og enginn bik-
araskápur í höfuðstöðvunum.
Haft hefur verið á orði að alvöru-
fótboltaáhugamenn í borginni gefi
lítið út á Mainz 05 og styðji frekar
Kaiserslautern eða Frankfurt.
Mainz 05 varð meistari áhuga-
mannaliða árið 1982. 1997,
2002 og 2003 mátti litlu muna að
Mainz 05 kæmist í búndeslíg-
unna, en það tókst ekki fyrr en
2004. Tvö næstu tímabil náði lið-
ið 11. sæti og var meira að segja
verðlaunað fyrir drengilegan leik
með þátttöku í UEFA-keppninni.
Eftir þrjú tímabil í búndeslígunni
féll Mainz aðra deild, en hafði nú
skamma viðdvöl og komst aftur í
hóp þeirra bestu vorið 2009. Í
fyrra tókst liðinu að halda sér uppi
og byrjar nú með látum. Það er
ekki lengur hallærislegt að halda
með Mainz og Frankfurt og Kais-
erslautern verða þessa dagana að
láta sér nægja 10. og 14. sæti.
Besti árangur Mainz frá upphafi
Áhangendur Mainz fagna. Einn þeirra leyfir sér að dreyma um fyrsta
meistaratitil liðsins og heldur eftirlíkingu af verðlaunaskálinni á lofti.
Reuters
L
ítilmagninn er kominn á kreik. Í Frakk-
landi er Rennes á toppi efstu deildar í
fyrsta skipti í 40 ár. Í upphafi leik-
tímabilsins skaut Cesena upp kollinum á
toppi ítölsku deildarinnar, en hefur reyndar misst
flugið síðan. Hercules sigrar Barselóna með tveim-
ur mörkum gegn engu á heimavelli þeirra síð-
arnefndu og nýliðarnir West Bromwich Albion
heimsóttu Arsenal og sigruðu 3-2. Mesta athygli
hefur hins vegar liðið Mainz 05 vakið í þýsku bún-
deslígunni. Liðið hefur unnið sjö fyrstu leikina í
deildinni. Þetta hafa aðeins tvö lið önnur gert, Ka-
iserslautern og Bayern München. Sigri Mainz
Hamborg um næstu helgi setur liðið met.
Sigurganga Mainz er einstök og furðu lostnir fót-
boltaáhugamenn leita skýringa. Fyrir rúmu ári
spilaði liðið í 2. deild, lenti þá í öðru sæti og komst
upp. Því gekk þokkalega í fyrra og endaði um
miðja deild, í níunda sæti, sem verður að teljast
nokkuð gott af nýliðum að vera. Þá fékk liðið 47
stig í 34. umferðum, nú er það komið með 21 stig
eftir sjö umferðir.
Mainz getur ekki þakkað árangurinn auðveldum
andstæðingum. Fyrir hálfum mánuði lagði liðið
Bayern München í München. Um liðna helgi sigr-
aði Mainz Hoffenheim, sem var spútniklið tíma-
bilsins fyrir tveimur árum.
Tveir leikmenn þykja sérstaklega hafa skarað
fram úr hjá Mainz, Lewis Holtby, sem er tvítugur,
og André Schürrle, sem er 19 ára, en ekki má
gleyma Sami Allagui og Adam Szalai. Joachim Löw,
þjálfari þýska landsliðsins, fór á leikinn við Hof-
fenheim: „Báðir eru mjög áhyggjulausir, tæknilega
góðir og mjög fljótir,“ sagði Löw og hrósaði Holtby
sérstaklega: „Það hvernig hann lagði upp fyrsta
markið var eitt og sér aðgangseyrisins virði.“ Löw
hefur sagt að þeir verði sennilega í landsliðinu gegn
Svíþjóð 17. nóvember, en þeir léku ekki með liðinu
á föstudag gegn Tyrklandi. Undir 21 árs liðið, sem
leikur gegn Úkraínu á morgun, mánudag, var látið
ganga fyrir.
Árangur Thomasar Tuchels, þjálfara Mainz, er
ekki tilviljun og enginn heppnisstimpill á sigrum
liðsins. Þar ríkir leikgleði og leikmennirnir vita að
þeir mega taka áhættu án þess að þjálfarinn taki þá
á teppið. Tuchel býr liðið vel undir hvern andstæð-
ing og hikar ekki við að gera gagngerar breytingar
á liðinu telji hann að það henti. Gegn Bayern skipti
hann til dæmis út fimm leikmönnum frá umferð-
inni á undan. Þar mætti lið, sem er með 15 milljónir
evra í árslaun, liði, sem er með 100 milljónir evra í
árslaun. Þegar Tuchel var að blása kjarki í liðið fyrir
leikinn vitnaði hann í blaðagrein um leikstíl liðs-
ins, sem endaði á orðunum: „Vonandi verður Ma-
inz áfram Mainz.“ „Þetta er kjörorðið okkar,“
sagði hann við liðið. „Við sýnum áfram kjark, líka í
München, líka á þessum leikvangi.“ Eftir sigurinn í
München líkti Lundúnablaðið The Times Tuchel,
sem fyrir 15 mánuðum var unglingaþjálfari hjá Ma-
inz, við einn sigursælasta þjálfara samtímans, José
Mourinho, sem nú er hjá Real Madrid.
Þótt liðið hafi fengið fljúgandi start er tímabilið
rétt að hefjast og þjálfarinn vill vera með fæturna á
jörðinni. Eftir sigurinn gegn Hoffenheim sungu
stuðningsmenn Mainz: „Aldrei aftur önnur deild.“
„Ég er ánægður með að stuðningsmenn okkar
syngja ekki um meistaradeildina eða meistaratit-
ilinn,“ sagði Tuchel í viðtali við vefsíðu Der Spie-
gel. „Það sýnir að þeir gera okkar markmið að sín-
um. Okkar markmið er að festa okkur í sessi í
fyrstu deild. Við erum vel á veg komin með það.“
Hinn ungi Holtby segir að liðið verði að halda
áfram að reyna að ná sér í stig þangað til „við erum
komnir með 40 og getum ekki lengur fallið. Þá
fyrst getum við ef til vill byrjað að láta okkur
dreyma“.
Lítilmagninn lætur
að sér kveða
Fótboltaliðið Mainz 05 trónir
á toppi þýsku búndeslígunnar
Lewis Holtby fagnar öðru marki sínu fyrir FSV Mainz 05 í leik gegn FC
Köln. Holtby, sem er aðeins tvítugur, þykir hafa leikið vel með liðinu.
Reuters
André Schürrle, framherji Mainz 05, fagnar marki í
leik við Kaiserslautern um miðjan september.
Reuters
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Einn Íslendingur hefur leikið
með Mainz 05. Helgi Kolviðs-
son var hjá félaginu tvö tíma-
bil, 1998 til 2000. Liðið var
þá í 2. deild og Helgi var einn
af lykilmönnum þess. Helgi
þjálfar nú Pfullendorf, sem
hann lék eitt sinn fyrir. Liðið er
í 4. deild og hefur Helgi fengið
lofsamlegar umsagnir í
blaðinu Kicker fyrir störf sín.
Helgi spilaði
með Mainz
Nýtt!
Heill kjúklingur með lime
og rósmarín, skorinn í tvennt
765 kr.kg
meira fyrir minna