SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Qupperneq 12
12 10. október 2010
Föstudagur
Ásgeir H Ingólfsson mætti Páli
Skúlasyni heimspekingi á harða-
hlaupum í átt að Aðalbyggingu HÍ,
það er eitthvað stór-
kostlega epískt við
65 ára hlaupandi
heimspeking í jakka-
fötum.
Fimmtudagur
Hrannar Magnússon leggur til að
allir sjúklingar Landspítalans verði
fluttir til Noregs í sparnaðarskyni.
Miðvikudagur
Jóhann Hlíðar Harð-
arson Vill einhver
segja mér hvað
þessir klikkuðu
statusar sem ganga
eins og vírus yfir fésbókina þýða?
Svavar Knútur Hressi gítarnema
hópurinn kominn... Enginn kom
með blöðin sín og einn hangir úr
ljósakrónu... Anda inn... Anda út...
Fara með æðruleysisbænina...
Gerður Kristný fékk
símhringingu í gær
frá þingmanni sem
taldi mig vera allt
aðra Gerði og vildi
tala við mig um fjár-
málafrumvarpið. Ég var vitaskuld
öll af vilja gerð(ur) þar til hann átt-
aði sig á mistökunum.
Fésbók
vikunnar flett
É
g er þeirrar skoðunar að styðja
beri við listsköpun, burtséð frá
gróðasjónarmiðum. Listin er
stór hluti af mennsku okkar.
Án hennar erum við jú ekkert nema
munnur og magi. En þegar við bætist sú
staðreynd að listir eru atvinnuskapandi
(fyrir fleiri en listamennina sjálfa) og
hala inn umtalsverðum tekjum í þjóð-
arbúið (mun meiru en lagt er til í formi
styrkja) blasir það við að fjármunir sem
veitt er í þessa átt eru fyrst og fremst
frábær fjárfesting. Eins og að setja niður
kartöflur og uppskera síðan ríkulega (í
stað þess að festa kaup á fokdýrum bún-
aði og framleiða snakk úr útsæðinu, sem
er sambærilegt við stóriðjustefnuna).
Þá, sem sjá ofsjónum yfir því hóflega
kaupi sem listamönnum er greitt úr
launasjóðunum, skortir þekkingu á
málefninu og sannarlega mætti gera
meira af því að fræða almenning um
þessi mál. Til dæmis um tengsl mynd-
listar og hönnunar. Um öll þau störf og
arð sem bókaútgáfa skapar á Íslandi auk
þess að auðga tungumálið okkar. Um þá
dýrmætu landkynningu og beina fjár-
muni sem verða til í tónlistarbrans-
anum. Poppstjörnur nútímans eru flest-
ar tónlistarmenntaðar og skínandi dæmi
um hversu mikilvægt er að tónlistarnám
sé niðurgreitt og þannig öllum aðgengi-
legt.
Á öllum tímum (ekki síst krepputím-
um) er skynsamlegt að styrkja menntun
og menningu. Menntun er undirstaða
allra raunverulegra framfara. Listamenn
skapa verðmæti úr engu auk þess að
vera í fararbroddi með nýjar hugmyndir
og hugsun sem allt annað kemur síðan í
humátt á eftir. Í þeim skilningi má segja
að menntun sé vagn atvinnulífsins og
listgreinarnar dragi vagninn með öllu
hlassinu.
Þegar maður er í vafa ætti maður alltaf
að kynna sér málið betur og muna að
það ber vitni um höfðingsskap og góðar
gáfur að kunna að skipta um skoðun.
MÓTI
Guðrún Eva
Mínervudóttir
rithöfundur
Þ
að er skylda ríkisins að gæta
öryggis borgaranna, standa
vörð um frelsi og eignarrétt
og tryggja þeim sem minna
mega sín ásættanlega stöðu. Auk þess
virðist vera samhljómur um það í nor-
rænum samfélögum að ríkinu beri að
tryggja aðgang að menntun og heilsu-
gæslu.
Hvað fyrrgreinda þætti varðar geta
flestir verið sammála um að þar gegni
ríkisvaldið hlutverki og réttlæti þar
með hóflega skattheimtu. En öll önnur
útgjöld ríkisins, sem til eru komin af of
mikilli skattheimtu, eru í raun lúx-
usvandamál og eiga ekkert skylt við
grunnskyldur hins opinbera.
Listir og menning eru vissulega stór
hluti af samfélaginu. Listin bætir við
mannlífið og að vissu leyti má segja að
hún geri andann ríkari, svo vitnað sé til
orðræðu afdankaðs pólitíkuss sem nú
er í forsvari fyrir bandalag listamanna.
En það er ekki þar með sagt að þeir
sem valið hafa að gerast listamenn geti
krafið annað vinnandi fólk (skattgreið-
endur) um greiðslur. Ef Pétur ákveður
að hann vilji skrifa leikrit getur hann
ekki ætlast til þess að Páll greiði honum
tilneyddur fyrir þá vinnu. Það er aldrei
hægt að réttlæta að fjármagn sé tekið
úr vösum vinnandi manna og dreift til
ákveðinna hópa eftir geðþótta stjórn-
málamanna.
Listir og menning eiga að vera háð
lögmálum markaðarins. Sá sem tekur
sig til og framleiðir list af einhverju tagi
á að vera háður því að einhveri vilji
neyta hennar og þar með greiða fyrir
það. List er í þessu samhengi ekki frá-
brugðin hverri annarri neysluvöru.
Að lokum vil ég hvetja alla þá sem
fylgjandi eru auknu framlagi skatt-
greiðenda til lista og menningar að fara
til Húsavíkur og Vestmannaeyja og út-
skýra fyrir íbúum þar af hverju þeir
þurfa nú í auknum mæli að sækja heil-
brigðisþjónustu til Reykjavíkur.
MEÐ
Gísli Freyr
Valdórsson
blaðamaður
Á að leggja niður
listamannalaun?
’
En það er ekki þar
með sagt að þeir
sem valið hafa að
gerast listamenn geti
krafið annað vinnandi
fólk (skattgreiðendur) um
greiðslur ’
Um öll þau störf og
arð sem bókaútgáfa
skapar á Íslandi auk
þess að auðga tungumálið
okkar