SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Page 47
10. október 2010 47
LÁRÉTT
1. Lífvera í málstykkinu nær að vera friðsæl. (4,1,5)
4. Drepið með íslenskum drykk og erlenda grænmet-
inu. (8)
7. Takkinn sem er slitinn. (6)
9. Mæla utan um ruglaðan afann sem er félagsfælinn. (9)
10. Snaróður í veiðiferð. (5)
12. Pússað gæti heilagur þann sjaldgæfasta. (9)
13. Hlut fótar með líkamshluta karlmanns fær Kári að
hálfu frá kennara. (12)
14. Nál snýr aftur til eins óþekkts vegna peninga. (6)
15. Í korni ennþá finnst sú sem laumar á einhverju. (7)
18. Kalman aki eftir riti. (7)
21. Fegurð MR getur orðið að fyrstu gerð. (8)
24. Vegur í velgengni. (9)
26. Óð fer utan um hálfstaðið tvisvar að sögn óvissra.
(11)
28. Sylvía ágeng er doppótt. (8)
30. Sú sem er ekki hægt að greiða fyrir er ómetanleg.
(10)
31. Hljóð sem útvegar okkur veiði? (9)
32. Lína Equus asinus endar í heimskupörum. (9)
33. Herra hefur eins og hálfgerða unun af þrifum. (8)
LÓÐRÉTT
1. Varð ekki sleppt úr fangelsinu. (10)
2. Næ einhvern veginn í neistann úr áletruðu grjóti. (10)
3. Nöldur lyftist út frá dýri. (7)
4. Sá sem fær eignir er einhvern veginn fyrir sam-
eignir. (10)
5. Keppni fyrir djöfla einu sinni á ári. (6)
6. Kaloríuhópur fær köllunina. (6)
8. Lóð fyrir aur og þann hluta myndar er sýnist næstur
áhorfanda. (10)
11. Stinn með stunu út af mjólkurafurð. (6)
16. Óhult bíð einhvern veginn eftir gæsku. (8)
17. Ber aki í óþekktum. (5)
19. Drap mömmu í kjöltu. (10)
20. Jaki fær leirlög til að mynda fullkomleika. (11)
22. Það að framkvæma umdeilda aðgerð á ísraelskum
en tapa síl við það. (7)
23. Málfræðihugtak skilur á milli (7)
25. Fálm fyllibyttna veldur skoti. (7)
27. Meiðsl eftir skip og hlöss. (6)
28. Sauðfjársjúkdómur hjá fátækum. (5)
29. Stúlkan státandi. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta Morgun-
blaðsins, Hádegismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til að skila úr-
lausn krossgátu 10. október rennur
út fimmtudaginn 14. október. Nafn
vinningshafans birtist í blaðinu 17.
október. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning.
Vinningshafi krossgátunnar 3. október er Greta Jes-
sen. Hún hlýtur í verðlaun bókina Arsenik Turninn eftir
Anne B. Ragde. Mál og menning gefur út.
Krossgátuverðlaun
Íslensku liðin sem tefldu á Ól-
ympíumótinu í Khanty Manyisk í
Síberíu bættu árangur sinn veru-
lega frá síðasta Ólympíumóti.
Allir íslensku þátttakendurnir
hækkuðu á stigum og karlasveit-
in, sem varð í 40. sæti af 148 þátt-
takendum, bætti sig um 24 sæti
frá síðasta móti og var 14 sætum
ofar en styrkleikaröð fyrir mótið
gerði ráð fyrir. Þátttaka karla-
sveitarinnar var undir smásjá,
einkum vegna skipunar liðsins.
Undirrituðum var í árslok 2009
boðið að þjálfa liðið og gegna
starfi liðsstjóra og var síðar falið
að gera tillögu um skipan liðsins.
Sú tillaga var síðan samþykkt af
stjórn SÍ og hlaut harða gagnrýni.
Fannst ýmsum úr skákdeild
Hauka valið beinast gegn einstak-
lingi úr þeirra röðum. Eftir af-
hroðið í Dresden 2008, þar sem
Ísland varð í 64. sæti, hlaut að
liggja í augum uppi að enginn úr
þeirri sveit gat gengið í landslið
Íslands á eigin forsendum. Að
sinna ekki á neinn hátt æfingum
landsliðshópsins og hætta síðan
við þátttöku með litlum fyrirvara
á Skákþingi Íslands var ekki í boði
ef menn vildu komast í lið. Að
endingu voru valdir Hannes Hlíf-
ar Stefánsson, Héðinn Stein-
grímsson, Bragi Þorfinnsson,
Björn Þorfinnsson og Hjörvar
Steinn Grétarsson. Þessir ein-
staklingar, hver með sín sér-
kenni, náðu vel saman.
„Nýliðarnir“ voru drýgstir á
lokasprettinum. Bragi og Björn
Þorfinnssynir hlutu 3 ½ vinning
af fjórum í lokaumferðunum
tveimur. Sveitin hlaut 26 ½ vinn-
ing af 44 mögulegum um 60%
vinningshlutfall og 13 stig. Hefði
orðið mun ofar ef vinningar
sveita með 13 stig væru látnir
gilda en ekki flókinn útreikn-
ingur mótsstiga. Þannig hlutu
Svíar aðeins 24 vinninga og 13 stig
en reiknast samt í 34. sæti. At-
hyglisverð staðreynd er sú að Ís-
land var á svipuðu róli og of-
ursveit Búlgaríu sem hafnaði í 31.
sæti með 13 stig og 26 ½ vinning
en meðalstigin þar voru tæplega
2700 stig.
Ólympíumótsins í Khanty
Manyisk verður sennilega minnst
fyrir góða framkvæmd og frábæra
frammistöðu Vasilí Ivantsjúk sem
leiddi Úkraínumenn til sigurs. Iv-
antsjúk hlaut 8 vinninga úr tíu
skákum á 1. borði. Efstu lið urðu:
1. Úkraína 19 stig 2. Rússland 18
stig 3. Ísrael 17 stig 4. Ungverja-
land 17 stig 5. Kína 16 stig.
Í tíundu umferð mættu Íslend-
ingar sveita Litháa með feðgana
Evgenij Svesnikov, sem vann
Hannes Hlífar óvænt, og Vladimir
Svesnikov sem varð að láta í
minni pokann fyrir Braga Þor-
finnssyni á þriðja borði:
Bragi Þorfinsson – Vladimir
Svesnikov
Katalónsk byrjun
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. g3
dxc4 5. Bg2 c5 6. O-O Rc6 7. Da4
Bd7 8. Dxc4 b5 9. Dd3 Hc8 10.
dxc5 Bxc5 11. Rc3 O-O 12. Bg5
Rb4 13. Bxf6 gxf6 14. Dd2 Bc6 15.
Dh6 He8 16. Had1 Bf8 17. Dh5 Db6
18. a3 Rc2 19. Hc1 Bxf3
Sennilega eru þessi uppskipti
misráðin.
20. Dxf3 Rd4 21. Dg4+ Kh8 22.
Hcd1 Hed8 23. Dh5 Kg8 24. e3
Rb3 25. Be4 f5
Betra var 25. … h6.
Sjá stöðumynd
26. Rd5!
Þrumuleikur sem byggist á
valdleysi hróks á c8, t.d. 26. …
exd5 27. Bxf5 h6 28. Bxc8 Hxc8
29. Dg4+ og vinnur.
26. … Hxd5 27. Hxd5 Bg7
eða 27. … fxe4 28. Hg5+ Bg7 29.
Dh6 og vinnur.
28. Hd7 Hf8 29. Bg2 Bxb2 30.
Dg5+ Bg7 31. Hfd1 h6 32. De7 a5
33. Hb7 Da6 34. Hd8 Hxd8 35.
Dxf7+ Kh8
– og svartur gafst upp um leið.
Fjallað verður um frammistöðu
kvennaliðsins í næsta pistli.
Ísland bætti sig um 24 sæti í opnum flokki Ólympíumótsins
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang