SunnudagsMogginn - 17.10.2010, Qupperneq 29
17. október 2010 29
var orðið dimmt í lofti. Þeir nálguðust árbakkann og við
Siggi biðum í bílnum. Þegar þeir áttu eftir um 200 metra
varð ég að fara út úr bílnum svo ég gæti tekið sjálfstæða
ákvörðun um það hvaða linsu ég gæti notað með góðu
móti þegar þeir kæmu upp úr ánni.
„Raaxi, viltu kex? Þú verður að borða eitthvað, það er
ómögulegt að vera svangur.“
Hestar voru á floti út um allt fannst mér og það var
verulega af þeim dregið. Fyrstu hestarnir komu í land og
voru greinilega fegnir að vera heimtir úr helju. En það átti
ekki fyrir öllum að liggja að ná landi, fjórir hestar
drukknuðu, þar af eitt folald. Björgunarsveitarmaður
hvatti einn hestinn áfram, hann átti eftir stutt í land en
gafst upp á síðustu metrunum og hvarf í vatnsflauminn.
„Náðir þú einhverjum myndum, Raxi? Nei það getur ekki
verið, það rignir svo óskaplega. Ætlar þú að koma inn í
bílinn svona rennandi blautur, það er ómöögulegt, hann
fyllist allur af móðu. Þú getur ekki keyrt heim, þú sérð
ekkert út. Já, jæja ég sendi þá bara myndir frá mér. Ég
náði einhverju út um gluggann. Þeeetta eru nú meeeiri
ósköpin. En bless Raxi minn, það var gaman að vera með
þér þó þú hafir ekki náð neinum myndum í dag. Við
sjáumst, blessaður.“
Það urðu svo sem engin listaverk til í þessari ferð en
eigi að síður eru þetta fréttamyndir sem skipta máli fyrir
lesendur Morgunblaðsins.
En Siggi, voru myndirnar nokkuð alslæmar? Varstu
annars búinn að senda þínar?
Sigurður Sigmundsson fréttaritari á góðri stundu.
’
„Raaxi, viltu kex? Þú
verður að borða eitt-
hvað, það er ómögu-
legt að vera svangur.“
á gúmmíbát á leið að sækja fleiri hesta.
Tveir hestar berjast fyrir lífi sínu í ánni.