Morgunblaðið - 06.01.2010, Síða 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2010
Starfaðu og sýndu
kærleika þinn í verki.
Starfa, það er aðeins
eitt orð. Starfa ötullega og sýndu
kærleika þinn í verki. Óeigingjarnt
starf var innsta hugsun þín.
Þessi hugsun kom upp þegar ég
minnist þessarar yndislegu konu,
Hlífar Þ. Jónsdóttur frá Þorvalds-
stöðum í Breiðdal. Eitt veit ég að
ég þekkti hana alltaf og það var
henni að þakka eða kenna að ég
varð Breiðdælingur. Móðir mín
heitin og hún voru miklar vinkonur
og kynntust löngu áður en ég
fæddist. Þær voru báðar miklar
saumakonur og unnu saman hjá
Andrési klæðskera. Móðir mín var
Þorgerður Halldórsdóttir frá Kjal-
varastöðum í Borgarfirði. Báðar úr
sveit og báðar unnu sveitinni sinni.
Ég man hvað Hlíf kom oft heim og
var umhugsað um mína heilsu,
enda var ég meira og minna á spít-
ala fyrstu sex æviárin. Margar
voru húfurnar sem hún prjónaði á
mig og margar peysurnar.
Allavega langaði mig barnið í
sveit en þó ekki keyra langt í bíl.
Pabbi minn var sjómaður, því vildi
ég sigla þangað á skipi. Þær hafa
eitthvað lagt á ráðin saman vin-
konurnar, allavega kom Hlíf heim
og spurði mig hvort ég vildi ekki
fara austur í sveitina hennar. Jón-
as bróðir hennar og konan hans
Guðbjörg Steinsdóttir voru nýbúin
að eignast lítinn dreng og þau fóru
austur með skipi. Þá kæmist ég á
sjó því mig langaði svo á sjó og það
Hlíf Þórbjörg
Jónsdóttir
✝ Hlíf ÞórbjörgJónsdóttir fæddist
á Þorvaldsstöðum í
Breiðdal 26. júní 1924
og ólst þar upp. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi 8.
desember sl.
Útför Hlífar var
gerð frá Heydala-
kirkju í Breiðdal 19.
desember sl.
varð úr að ég fór
austur og varð eins
konar vinnukona hjá
þeim. Ég var held ég
tíu ára. Þar kynntist
ég öllum þessum
systkinum. Ég fór
austur þrjú sumur.
Fyrst var ég hjá
Diddu og Jónasi, svo
hin sumrin hjá Val-
borgu og Björgúlfi.
Svo undarlegt sem
það var þá batnaði
mér alltaf í eyrunum
þegar ég var komin
austur, enda hreint loft og mikil
viðbrigði að fara úr höfuðborginni.
Ég man að stundum var frosin eld-
hústuskan í vaskinum á nóttunni.
Ég verð að viðurkenna að stundum
var ég ekkert glöð við Hlíf þegar
hún kom austur á miðju sumri. Ég
varð að fara í margar peysur og
húfu því hún var svo hrædd um að
ég yrði veik. Ég vandist þessu.
Þetta fauk af mér þegar ég var
komin í hvarf bak við hólhúsið. Svo
var bara að klæða sig í allt aftur
áður en ég fór inn.
Það var mikið ort á Þorvalds-
stöðum. Ég held að þau öll systk-
inin hafi verið hagmælt. Enda báð-
ir foreldrarnir hagmæltir. Ég
kynntist ekki Guðnýju. Hún var
nýdáin þegar ég kom fyrst. En
Jóni kynntist ég vel. Hann bjó til
margar stökurnar sem ég man
enn. Valborg var vel hagmælt. Ég
og Þóra systir mín sem kom með
Einari og Ragnheiði austur höfð-
um báðar gaman af ljóðum og
drukkum allt í okkur.
Seinna fór ég aftur austur, þá
sextán ára gömul, til Valborgar og
Björgólfs og fór í Húsmæðraskól-
ann að Hallormsstað. Þar kynntist
ég manninum mínum fyrrverandi.
Við áttum heima á Breiðdalsvík í
yfir 30 ár.
Ég gæti skrifað heila bók um
sumrin mín á Þorvaldsstöðum. En
núna ætla ég að hætta. Hlíf vildi
hvílast í heimagrafreitnum á Þor-
valdsstöðum, við hliðina á mann-
inum sínum, Jóni frá Snæhvammi í
Breiðdal, þeim öðlingsmanni. Það
var guðsgjöf að þekkja þau hjón.
Alltaf var maður velkominn til
þeirra. Guð blessi þeirra minningu
og ég vil kveðja með þessari vísu
eftir Ingu mína frá Kleif í Breið-
dal:
Breiðdalurinn bjartur fagur,
blessuð sól á Tinda skin,
Nú er vorsins dýrðardagur,
dásamlegust fjallsýn.
Með kveðju og þökk,
Gerður J. Ben. (Gerða).
Með þessum orðum vil ég kveðja
móðursystur mína, hana Hlíf eða
Hlíbbu eins og hún var alltaf köll-
uð. Hún var smávaxin kona með
stórt hjarta og hlýjan faðm sem
var okkur öllum opinn. Hjá henni
var alltaf pláss fyrir alla. Við erum
örugglega mörg sem eigum eftir að
sakna þessarar snaggaralegu
konu, sem reyndist okkur öllum
svo vel. En við yljum okkur við
góðar minningar um glaðværa,
orkumikla konu sem lifði lífinu lif-
andi fram á síðasta dag og féll
aldrei verk úr hendi, listakonu sem
skildi eftir sig marga fagra muni.
Elsku Hlíbba, ég og fjölskylda
mín viljum þakka þér allar góðu
stundirnar sem við höfum átt hjá
þér í gegnum tíðina en þær eru
ófáar. Við vottum börnum þínum
Guðnýju Elínu, Sigurjóni, tengda-
börnum, barnabörnum þínum og
barnabarnabarni okkar dýpstu
samúð því þau eiga nú um sárt að
binda þar sem þú varst svo stór
þáttur í lífi þeirra.
Minningin þín er ljós í lífi mínu.
Þeir segja mig látinn, ég lifi samt
og í ljósinu fæ ég að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá hjarta mínu berst falleg rós,
því lífið ég þurfti að kveðja.
Í sorg og í gleði ég senda mun ljós,
sem ykkur er ætlað að gleðja.
(Höf. ók.)
Kveðja,
Erla, Fjölnir, Fanndís og
Þorsteinn Freyr.
Amma stendur með opinn faðminn
og krefst þess að fá að faðma mig. Ég
knúsa hana og hún smellir á mig
nokkrum kossum í leiðinni áður en
hún hleypir mér inn úr forstofunni,
inn í hreina fallega húsið þeirra afa og
ömmu þar sem engar aðrar reglur
Rannveig Hulda
Ólafsdóttir
✝ Rannveig HuldaÓlafsdóttir
(Ransý), bóksali á
Laugum, fæddist á
Patreksfirði 23. apríl
1931. Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Þing-
eyinga á Húsavík 15.
desember síðastlið-
inn.
Útför Ransýjar fór
fram frá Þorgeirs-
kirkju 29. desember
2009. Jarðsett var á
Einarsstöðum.
gilda en reglurnar
hennar ömmu. Ég
þekki þær reglur og fer
eftir þeim án nokkurra
vandræða enda eru
þær ekkert flóknar.
Þegar ég er komin inn
er ég strax spurð hvort
ég sé ekki svöng og
þegar ég svara því ját-
andi eru mér bornar á
borð ýmsar krásir sem
ég fæ hvergi annars
staðar en einmitt hjá
ömmu. Þegar ég hef
fengið mér að borða og
er orðin nokkurn veginn pakksödd fer
ég fram í stofu og skoða alla fallegu
hlutina þar eða hleyp inn á gang og
næ í barnabækurnar sem bíða mín
þar inni í skáp. Kannski fer ég jafnvel
ein á eftir og næ í póstinn eða kaupi
eins og tvo lítra af mjólk eða kannski
röltum við amma það saman og þá fæ
ég kannski að kaupa eitthvert gotterí
til kvöldsins í leiðinni. Í kvöldmatinn
verða svo fiskibollur að hætti ömmu
og þá fæ ég að velja hvort þær verða
soðnar eða steiktar. Í kvöld horfum
við svo öll þrjú saman á sjónvarpið al-
veg þangað til ég get ómögulega hald-
ið augunum opnum lengur en þá hátta
ég og fer inn í afarúm, en amma er bú-
in að búa um afa í gestaherberginu
eins og svo oft þegar ég kem. Amma
sjálf sefur við hliðina á mér. Mér líkar
þetta fyrirkomulag vel og ég held
reyndar að við séum öll bara nokkuð
sátt. Við amma vöknum svo morgun-
inn eftir um hádegisleytið. Við liggj-
um í rúminu fram að hádegisfréttum
en þá hlustum við á veðrið í útvarpinu
og að því loknu trítlum við fram og
þegar okkur hefur tekist að vekja afa
þá fáum við okkur öll þrjú morgun-
mat, margréttaðan og rausnarlegan
að hætti ömmu. Að loknum morgun-
mat klæðum við okkur og setjumst
fram í stofu og spjöllum þar um alla
heima og geima. Þegar mamma og
pabbi renna svo upp að húsinu á bíln-
um erum við amma búnar að pakka
saman sænginni og koma öllu dótinu
mínu fyrir í töskunni ég kveð afa með
kossi og amma faðmar mig og kyssir í
kveðjuskyni rétt eins og þegar ég
kom. Þegar ég keyri svo norður veg-
inn stendur hún úti á tröppum og veif-
ar mér alveg þangað til að ég hætti að
sjá hana.
Amma Ransý var ein af mikilvæg-
ustu manneskjunum í mínu lífi og af
henni lærði ég fjöldamargt. Amma
var mér góð fyrirmynd og það er
margt sem var í fari ömmu sem ég
vildi gjarnan tileinka mér. Ég á eftir
að sakna ömmu mikið og það að fá að
umgangast hana og þekkja hana voru
fyrir mig mikil forréttindi.
Elsku amma mín og vinkona,
þakka þér fyrir allar stundirnar sem
við áttum saman. Þær eru mér ómet-
anlegar.
Þórarna Ólafsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og systir,
DÓRA HJÖRLEIFSDÓTTIR,
Unnarholtskoti,
Hrunamannahr. Árn.,
síðast til heimilis að dvalarheimilinu
Blesastöðum Skeiðum,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstu-
daginn 25. desember, verður jarðsungin frá Hrunakirkju laugardaginn
9. janúar kl. 14.00.
Sigurður Guðnason, Kristín Ingólfsdóttir,
Ólafur Guðnason, Fanney Rut Eiríksdóttir,
Anna Dóra Ólafsdóttir,
Sandra Ólafsdóttir,
Guðbjörg Ýr Ólafsdóttir,
Ólafur Marel Halldórsson,
Valgerður Hjörleifsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar,
JÓNÍNA MARGRÉT EGILSDÓTTIR,
Borgarheiði 17v,
Hveragerði,
lést þriðjudaginn 15. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Ljósheima
á Selfossi fyrir hlýju og góða umönnun.
Ásgeir Stefán Ásgeirsson,
Svala Ásgeirsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
KATRÍNAR ÓLAFSDÓTTUR HJALTESTED,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. janúar
kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Rauða
kross Íslands.
Ólafur Mixa, Kristín Þorsteinsdóttir,
Már Wolfgang Mixa, Kristín Loftsdóttir,
Halla Guðrún Mixa,
Katrín J. Mixa,
Mímir, Alexía, Sól og Svanfríður.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
SVANUR HJARTARSON,
Dalbraut 10,
Búðardal,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 2. janúar.
Útförin fer fram frá Hjarðarholtskirkju laugardaginn
9. janúar kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Breiðfirðinga.
Edda Tryggvadóttir,
Elísabet Svansdóttir, Magnús A. Jónsson,
Sigurður Svansson, Ólöf Eðvarðsdóttir,
Bryndís Svansdóttir, Halldór L. Arnarson,
Arnar Svansson, Sólrún L. Þórðardóttir,
barnabörn og langafabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
FINNBOGI VIKAR,
Hjalla í Ölfusi,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum Selfossi
fimmtudaginn 24. desember, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. janúar kl. 13.00.
Guðmundur K. Vikar, Guðný Snorradóttir,
Lilja Vikar, Þorsteinn Hauksson,
Erna Vikar,
Unnur Vikar, Friðrik Kjartansson,
Sigrún Vikar, Benedikt Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
PÉTUR SIGURÐSSON
fyrrv. framkvæmdastjóri,
Breiðdalsvík,
lést á hjukrunarheimili aldraðra, Höfn Horna-
firði, þriðjudaginn 5. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Bergþóra Sigurðardóttir,
Arnleif Pétursdóttir, Manfred Kleindienst,
Jóhanna Pétursdóttir, Sveinn F. Jóhannsson,
Sigurður Pétursson, Ólöf Kristjánsdóttir,
Hreinn Pétursson, Linda H. Guðmundsdóttir,
Pétur Pétursson, Ingunn H. Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.