SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Síða 2
2 26. júní 2011
Við mælum með
Þriðjudagur 28. júní kl. 21
AfroCubism er samstarfsverk-
efni meðlima Buena Vista Social
club frá Kúbu og úrvals tónlist-
armanna frá Malí undir forystu
Toumani Diabaté.
AfroCubism er umtalaðasta
hljómsveitin í flokki heimstón-
listar um þessar mundir. Fyrsta
tónleikaferð hópsins hefst
snemma vors og munu virtustu
tónleikahús Evrópu hýsa hann.
Afrókúbisma í Hörpu
13 Stór skref til hjálpar
Klúbburinn Geysir starfar fyrir fólk sem á við geðræn vandamál að
stríða og vinnur að því að efla hæfileika einstaklingsins.
18 Vopnin kvödd
Útgjöld til hernaðarmála hafa dregist saman í Evrópu. Fagna ber því
að hægt sé að verja opinberu fé í annað en vígbúnað en …
20 Mæðgur féllu frá sama daginn
Jóhanna Sigfríður Guðjónsdóttir og María Valgerður Jónsdóttir létust
hinn 1. júní síðastliðinn. Þær voru mæðgur.
26 Rauðisandur um Rauðasand
Stórbrotinni náttúrufegurð Rauðasands á sunnanverðum Vestfjörðum
eru gerð góð skil í fyrstu ljósmyndabók Rutar Hallgrímsdóttur.
28 Frjálsir í faðmi
fjallkonunnar
Skörun og innbyrðis skyldleiki apamanna er
mjög til umræðu. Erfðaefni okkar og sjimp-
ansans er sömu gerðar að 99% leyti.
31 Vígalegur
gítarleikari
Arnar Grétarsson í Sign og myndaalbúmið.
38 Florence hundadagadrottning
Florence Welch hefur slegið í gegn með kraftmikilli rödd sinni, frá-
bærri tónlist, skemmtilegum persónuleika og flottum fatastíl.
Lesbók
44 Uppgjör Hitchens við erkióvininn
Í rafbókinni The Enemy gerir Christopher Hitchens upp óvininn Osama
bin Laden, „íslamófasisma“ og stríðið gegn hryðjuverkum.
24
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Ernir Eyjólfsson.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
32
Augnablikið
V
íkingahátíðin 2011 var haldin í Vík-
ingaþorpinu í Hafnarfirði við Fjörukrána
um síðustu helgi. Það er jafnan góð
skemmtun og líka þjóðleg fyrir þá sem
vilja gera eitthvað öðruvísi á 17. júní en hátíðin er
alltaf haldin í kringum þjóðhátíðardag Íslendinga.
Það er heilmikil stemning á hátíðinni, þetta er eins
og að fara í annan heim því mikið er af uppáklæddu
fólki. Allir sem taka þátt eru klæddir að hætti vík-
inga og einhverjir gestanna líka. Grill við opinn eld
og hlóðapottur bæta ennfremur á ekta andrúms-
loftið. Um allt svæðið eru markaðsbásar, sem selja
ýmiss konar handverk, allt frá víkingaskarti yfir í
leðurpunga. Dagskráin var þéttskipuð, m.a. Vík-
ingaskóli barnanna, ýmis tónlistaratriði, sögur og
sýning á fornum leikjum. Vinsælasta atriðið er samt
án efa bardagasýning, sem var einmitt að hefjast
þegar fjölskyldan mætti á staðinn. Var það við
nokkurn fögnuð barnanna, tveggja drengja, annar
er tæplega tveggja en hinn þriggja og hálfs árs. Þó
þetta sé allt í plati er sýningin frekar ofbeldisfull og
hugsaði maður með sér að það væri kannski einum
of mikið að láta fjöldann öskra hástöfum: „Drepa,
drepa, drepa!“ Allir sem eiga ung börn vita að þau
eru afskaplega fljót að læra og því fór um móðurina
þegar eldri drengurinn sönglaði: „Drepa, drepa!“ í
kvöldbaðinu þegar hann var að skjóta úr vatns-
byssunni á plastsjóræningja. Ó, nei!
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Bardagasýningar eru eitt af því sem trekkir að á Víkingahátíðinni í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Ernir
Drepa, drepa!
Handverk á gamla mátann er líka áberandi.
Ekki er í fljótu bragði gott að átta sig á því hvort þessi ágæta kona var
að vinna eða bíða ósigur á tennisvellinum á föstudag. Hér með upp-
lýsist þó að tárin eru komin til af gleði en Yanina Wickmayer frá
Belgíu átti afskaplega erfitt með að hemja hamingju sína eftir að hafa
lagt hina rússnesku Svetlönu Kuznetsovu á Wimbledon-mótinu.
Veröldin
Reuters
Gleði eða sorg?
1. júlí
Hljómsveitin
Angist heldur
fjáröfl-
unartónleika
til þess að koma út fyrstu plötu
sinni. Henni til halds og trausts
verða hljómsveitirnar Chao,
Bloodfeud, Bastard og Abom-
inor. Það kostar 1.000 kr. inn og
verður húsið opnað kl. 22 og
fyrsta band fer á svið stundvís-
lega klukkan 22.30.
30. júní til 2.
júlí
Blúshátíðin í
Ólafsfirði
verður haldin í
12. sinn. Meðal listamanna sem
koma fram eru Ragnheiður
Gröndal, Guðmundur Pét-
ursson, Halldór Bragason, Blús-
band Fjallabyggðar, Beggi Smári
og Mood og Blúsmenn Andreu.