SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Side 24

SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Side 24
24 26. júní 2011 S aga þessa lands er óvíða áþreif- anlegri en í gamla bænum í Borgar- nesi. Það liggur við að maður heyri andardrátt þeirra feðga, Skalla- Gríms og Egils, þegar maður stendur við Landnámssetur Íslands og horfir út á Brákarsundið. Þangað út flúði ambáttin og fóstra Egils, Þorgerður brák, í dauðans of- boði undan Skalla-Grími. Andartaki áður hafði hún bjargað lífi Egils litla með því að snúa athygli hins hamramma Skalla-Gríms yfir á sjálfa sig. Kappinn elti hana langa leið niður að sjó þar sem hún lagðist til sunds en hann henti á eftir henni steini miklum sem kom milli herða fóstrunni. Kom hvorugt upp síðan, segir sagan. Gegnt Landnámssetrinu var í síðasta mánuði opnað listhús, Gallerí Gersemi, og ráða þar húsum hjónin Þorkell Þorkelsson ljósmyndari og Heba Soffía Björnsdóttir sem er menntuð í sálfræði en hefur jafn- framt langa reynslu af markaðsstarfi. Var að kafna í Madríd Þorkell og Heba hafa verið á flandri und- anfarin ár. Fyrst dvöldust þau um tíma á Spáni, síðan í Danmörku, næst á Írlandi, þar sem Heba lauk meistaraprófi í vinnu- sálfræði og loks í Bretlandi, þar sem Þorkell lagði stund á meistaranám í ljósmyndun. Heba er fædd og uppalin í Borgarnesi en gerði ekki ráð fyrir að setjast þar að aftur – þar til fyrir fáeinum árum. „Það var þegar við bjuggum í Madríd að ég fór að velta þessum möguleika fyrir mér. Ég var að kafna í stórborginni miðri, sá bara þökin á næstu húsum. Ég saknaði víðáttutilfinning- arinnar og hafsins og þegar við Þorkell fluttum heim fyrir hálfu öðru ári ákváðum við að láta á það reyna að búa hér í Borg- arnesi.“ Svo skemmtilega vill til að bóndi hennar á líka rætur í Borgarnesi en afi hans, Eggert Ólafur Einarsson, var þar héraðslæknir um árabil. Kona hans var Magnea Jónsdóttir. „Ég gisti stundum hérna sem strákur og er eiginlega alveg viss um að ég hafi séð Hebu niðri á höfn að veiða kola. Það var allavega kotroskin stelpa,“ rifjar hann upp og hlær. Heba hefur á hinn bóginn sínar efasemd- ir. „Þetta getur varla verið, alla vega tók ég ekki eftir þér. Það er skrýtið fyrst þú varst strákur úr Reykjavík.“ Dátt er hlegið. Hvort sem sagan er sönn eður ei búa þau nú steinsnar frá staðnum þar sem Heba á að hafa verið að veiða í svonefndu Hervalds- húsi. „Sumir kalla húsið nú bara skókass- ann, vegna smæðar þess,“ bendir Þorkell á, „en húsið er ekki allt þar sem það er séð.“ Heba réð sig fyrst í vinnu á Markaðsstofu Vesturlands, þar sem hún starfaði í rúmt ár, en þar sem lengi hefur blundað í þeim Þor- keli að fara út í eigin rekstur fóru þau fljót- lega að velta fyrir sér möguleikum í Borg- arnesi. „Ég hef listatenginguna og Heba vann lengi að markaðsmálum, meðal ann- ars hjá SPRON og Íslandsbanka, þannig að í galleríinu sameinum við krafta okkar,“ segir Þorkell. Í framhaldinu festu þau kaup á húsnæði á Brákarbraut 10 ásamt foreldrum Hebu sem þeim þykir kjörin staðsetning. „Gamli bær- inn hérna í Borgarnesi er allur að lifna við með Landnámssetrinu, Brúðuheimum, Safnahúsi Borgarfjarðar, Gamla mjólk- ursamlaginu og úrvali gististaða, auk þess sem nokkrir listamenn eru með vinnustofur í Brákarey,“ segir Heba og Þorkell bætir við að þetta minni hann á Álafoss-svæðið fyrir tíu til fimmtán árum. „Samlegðaráhrifin eiga vonandi eftir að verða góð, þetta vinn- ur allt saman.“ Ljósmyndir eru eðli málsins samkvæmt fyrirferðarmiklar í Galleríi Gersemi. Hægt er að kaupa myndir eftir Þorkel og marga fleiri ljósmyndara, auk þess sem einn vegg- ur í galleríinu verður jafnan lagður undir sýningu. Fyrstur til að sýna verk sín þar er breski ljósmyndarinn Peter Doubleday en þeir Þorkell kynntust í námi ytra. Á sýn- ingunni eru svokallaðar „still life-myndir“ og segir Þorkell myndir Doubledays við fyrstu sýn ekki láta mikið yfir sér en þegar betur er að gáð sé vandað reglulega vel til verks. „Peter er upprunalega málari en hef- ur nú snúið sér alfarið að ljósmyndun. Hon- um þótti málverkið of seinvirkt.“ Sýning Doubledays stendur til 17. júlí. Leggja upp úr gæðunum Eitt af markmiðum gallerísins er að kynna ljósmyndina sem listform og Þorkell er boðinn og búinn að segja gestum söguna bak við myndina. „Það breytir öllu að út- skýra hlutina fyrir fóki,“ segir Heba og Þor- kell bætir við að þau vilji gjarnan heyra í sem flestum ljósmyndurum. „Við erum að leita að öllum mögulegum gerðum ljós- mynda, ekki bara landslagi.“ Óðurinn til gleðinnar Gallerí Gersemi nefnist nýtt metnaðarfullt listhús í gamla bænum í Borgarnesi sem hjónin Þorkell Þor- kelsson og Heba Soffía Björnsdóttir eiga og reka. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Árni Sæberg og Þorkell Þorkelsson Verk eftir breska ljósmyndarann Peter Doubleday sem sýnir fyrstur manna í Galleríi Gersemi. Heba Soffía Björnsdóttir og Þorkell Þorkelsson í hinu nýopnaða Galleríi Gersemi í Borgarnesi. Gallerí Gersemi er að finna gegnt Landnámssetri Íslands í Borgarnesi. Margra grasa kennir í galleríinu.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.