SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Blaðsíða 31
26. júní 2011 31
A
rnar Grétarsson fæddist í Reykjavík árið 1986. Æsku-
árum sínum eyddi hann í norðurbæ Hafnarfjarðar þar
sem hann lauk grunnskólaprófi úr Víðistaðaskóla.
Arnar lagði einnig stund á tónlistarnám við Tónlist-
arskóla Hafnarfjarðar. Árið 2005 gekk Arnar til liðs við rokk-
sveitina Sign sem æskuvinur hans, Ragnar Sólberg, stofnað
nokkrum árum áður. Sign hefur getið sér gott orð fyrir þétta
rokktónlist og allt að því brjálæðislega sviðsframkomu, en Arnar
þykir gríðarlega vígalegur á sviði. Hljómsveitin hefur gefið út
fjórar breiðskífur og von er á þeirri fimmtu innan skamms „Ég
fór til Svíþjóðar og heimsótti Ragnar þar sem við leigðum okkur
sumarbústað og sömdum efni fyrir nýja plötu. Við ætlum að gefa
út tvær plötur, annarsvegar smáskífu með íslensku efni, sem við
munum gefa frítt á netinu, og hinsvegar breiðskífu á ensku,“
segir Arnar. Arnar ætlar að nýta sumarið í ferðalög innanlands:
„Ég ætla að reyna að ferðast eins mikið og ég get um Ísland í
sumar. Við fjölskyldan eigum sumarhús í Veiðileysufirði og kem
ég til með að vera þar stóran hluta sumarsins.“ Næstu tónleikar
Sign fara fram 6. júlí næstkomandi á Sódóma, en hljómsveitin
mun einnig koma fram á Eistnaflugi á Neskaupstað helgina eftir.
robert@mbl.is
Þessi er tekin á grand rokk á einum af
fyrstu tónleikum mínum með Sign.
Þetta var ódýrasti ferðamátinn til að koma
okkur og dótinu upp á flugvöll í BNA.
Strákarnir að taka á móti gullplötu á Kerrang-verðlaunahátíðinni.
Þetta er tekið á veröndinni í sumarbústaðnum í Svíþjóð, þar sem ég og
Ragnar unnum mikið af efni fyrir næstu plötur!
Ég og konan að skemmta okkur um áramót.
Þetta er á stærstu tónleikum sem ég hef spilað á, Download Festival í Englandi 2008. Vor-
um að opna stóra sviðið á laugardeginum og bjuggumst ekki við svona mörgum.
Vígalegur
gítarleikari
Arnar Grétarsson gítarleikari
hljómsveitarinnar Sign var svo
elskulegur að opna myndaalbúm
sitt að þessu sinni.
Þarna er maður 12 eða 13 ára með Fender
Stratocaster.
Á Localicen-tónleikunum á Nasa í apríl
2010, aðeins of gott gigg!
Þessi mynd er tekin á Gay Pride í Don-
caster í Englandi.
Þarna er ég í miðbæ Stokkhólms í
apríl síðastliðnum.
Ég og besti hundurinn í besta firðinum (Veiðileysufirði).
Myndaalbúmið