Morgunblaðið - 24.04.2010, Page 1
BIKSVÖRT aska liggur eins og mara yfir ökrum og túnum undir Eyjafjöllum. Hreinsunarstarf er þegar hafið en ljóst er að mikið verk er óunnið og óvíst hvernig búskapur í sveitinni þróast.
Víða er skaðinn mikill, svo sem á stórbýlinu Þorvaldseyri, sem hér sést á myndinni. Þar hefur búskap raunar verið hætt um stundarsakir og aðrir bændur í sveitinni eru að meta stöðu sína. | 18
ÞORVALDSEYRI UNDIR SVÖRTUM MÖTTLI ÖSKUNNAR
Morgunblaðið/RAX
L A U G A R D A G U R 2 4. A P R Í L 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
94. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
DAGLEGT LÍF
MJAÐMAHNYKKIR Í
BOLLYWOOD-DANSI
HARALDUR FREYR GÍSLASON
POLLAPÖNK FYRIR
KÁTA KRAKKA
6
KRÖFUHAFAR Byrs og Spari-
sjóðs Keflavíkur þurfa að afskrifa
um 80 milljarða króna í kjölfar yfir-
töku ríkisins á sjóðunum tveimur.
En greint var frá því að kvöldi sum-
ardagsins fyrsta að Fjármálaeftir-
litið hefði tekið yfir stjórn beggja
sjóða.
Talið er að erlendir kröfuhafar
láti reyna á hvort lögmætt sé að
beita neyðarlögum 18 mánuðum eft-
ir hrun. Beiting laganna, og þá sér í
lagi færsla innistæðna fremst í
kröfuröð, hafi verið réttlætanleg í
október 2008 þegar neyðarástand
hafi ríkt á íslenskum fjármálamark-
aði og bankaáhlaup að eiga sér stað.
Hins vegar sé allt annað ástand í
dag og því hæpið að beita lögunum
nú. | 20
Reyni á lög-
mæti neyð-
arlaganna
Afskrifa 80 milljarða
Kristján Lofts-
son, fram-
kvæmdastjóri
Hvals, segir að
málamiðlunar-
tillögur Alþjóða-
hvalveiðiráðsins
komi ekki á óvart. „Þetta er kjafts-
högg, það er ekki að spyrja að því,
en þessar tillögur skipta bara engu
máli,“ segir hann og bætir við að
þær verði aldrei samþykktar á árs-
fundi ráðsins. »24
Tillögur Alþjóðahval-
veiðiráðsins út í hött
Eftir Björn Jóhann Björnsson, Hlyn
Orra Stefánsson og Baldur Arnarson
FLUGÁÆTLUN Icelandair fyrir
næstu daga gerir ráð fyrir áframhald-
andi lokun Keflavíkurflugvallar
vegna gjósku frá Eyjafjallajökli.
Áætlun sem tekur mið af þessu hefur
þegar verið lögð fram fyrir mánudag
en út frá því má ætla að tjón félagsins
vegna gossins sé nú á annan milljarð.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun
bundu flugfélögin, Icelandair og Ice-
land Express, vonir við að hægt yrði
að lenda á Akureyrarflugvelli í dag.
Spár um öskudreifingu bentu til að
það væri ekki gefið og mun milli-
landaflug þá hugsanlega færast til
Egilsstaða ef með þarf, að sögn Hjör-
dísar Guðmundsdóttur upplýsinga-
fulltrúa hjá Flugstoðum.
Til að bæta gráu ofan á svart eru
austanáttir ríkjandi í spám Veður-
stofunnar, með hættu á viðvarandi
öskuskýjum yfir landinu.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Icelandair, er
röskunin sem orðið hefur á flugi til og
frá landinu sú mesta í sögunni.
Sú lykkja sem farþegar þurfa að
leggja á leið sína hefur leitt til afbók-
ana og Icelandair áætlar að daglegt
tap vegna gossins sé um 100 milljónir.
Hundruð flugfarþega fóru um flug-
stöðina á Akureyri í gær en bæði
hvetja flugfélögin farþega til að fylgj-
ast vel með breytingum sem verða á
áætlunum þeirra.
Áfram útlit fyrir
mikla röskun á flugi
Icelandair gerir ráð fyrir lokun Keflavíkurflugvallar fram á
mánudag Afbókanir auka tjónið Fordæmislaus röskun
Skapti Hallgrímsson
Akureyrarflugvöllur Margt var um manninn á Akureyrarflugvelli í gær eft-
ir að flugfélögin færðu millilandaflug sitt þangað vegna öskufalls.
Flækjan fælir | 16
Sunnudags Mogginn
er borinn út með laugardags
Morgunblaðinu