Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 27
Umræðan 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010 MÖNNUM er að verða ljóst að orsakir hrunsins eru margar og víðfeðmar. Rætur þeirra liggja djúpt í þjóðarsálinni. Engin einföld skýring er nægileg. Menn nefna áhættufíkn, græðgi, aðgerð- arleysi, galla í stjórn- skipuninni, íslensku krónuna og fleira. Allt á þetta sinn þátt í hvernig fór. Ég vil nefna eitt atriði til við- bótar. Velgengni. Páll Kolka, héraðslæknir á Blönduósi ritaði á sínum tíma að maðurinn kynni ekki að fóta sig í meðlæti. Maðurinn væri langvanur alls kyns basli, fátækt, hungri, vos- búð, heilsuleysi, striti og þrælkun. Öll hans tilvera og viðbrögð væru við þetta mótlæti miðuð. Þegar andstreymi sleppir og allt gengur í haginn, tapar maðurinn oft áttum því hann er kominn í stöðu sem hann er ekki vanur og þekkir ekki. Ég skildi Vigdísi Finnbogadóttur svo á afmæli hennar 15. apríl, að hún þakkaði forsjóninni þann styrk sem hún hefði til að hljóta meðbyr og gæfu jafnt og að taka and- streymi og erfiðleikum. Því meiri sem velgengni hennar væri því auð- mýkri yrði hún og þakklát. Hún óskaði þess að fleiri gætu notið sömu gæfu og hún sjálf. Áður en hrunið dundi yfir áttum við gott þjóðfélag, betra en nokkru sinni fyrr. En við kunnum ekki að meta happ okkar og gæði. Þess í stað lögð- um við velsæld okkar undir í spilamennsku og heimtuðum miklu meira. Hófleg aukning hefði gert gott þjóð- félag ennþá betra, en við slepptum okkur al- veg í taumlausum glæ- frum í spilavíti sem við þekktum ekkert til. Berum þetta saman við viðbrögð okkar við nátt- úruhamförum. Eldgos brýst út. Viðbrögð eru skjót, fumlaus og örugg. Reynt er að draga úr tjón- inu eins og hægt er. Varkárni og þekking eru hvarvetna. Þegar ógn steðjar að kunnum við okkar fag og bregðumst rétt við. Stóraukin, snögg mannleg hag- sæld er okkur miklu hættulegri en náttúruhamfarir vegna þess að við hvorki þekkjum hana né óttumst. Við verðum að gera okkur ljóst að auðurinn er jafn hættulegur og eldurinn ef við kunnum ekki með hann að fara. Er velgengnin ein af orsökum hrunsins? Eftir Jóhann J. Ólafsson Jóhann J. Ólafsson » Stóraukin, snögg mannleg hagsæld er okkur miklu hættu- legri en náttúruham- farir vegna þess að við hvorki þekkjum hana né óttumst. Höfundur er stórkaupmaður. Fáðu úrslitin send í símann þinn ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.HUSAVIK.NET Reynir Björnsson, lögg. fasteignasali Elías Haraldsson, lögg. fasteignasali Sími 510-3800 NÝTT HÚS FRÁ HÚSVIRKI S K IS S A Boðaþing er reitur sem Húsvirki hf. og Hrafnista DAS fengu úthlutað til skipulagningar fyrir almennar íbúðir, þjónustu-íbúðir, hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð aldraðra. Þetta er skemmtilega skipulagt svæði sem myndar kjarna almennra íbúða í kringum hjúkrunaríbúðir og þjónustu- miðstöð á vegum Kópavogsbæjar og Hrafnistu DAS. Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar 55+Glæsilegar íbúðirfyrir fólk á besta aldriBoðaþing 6-8  Alfhending strax.  Allar íbúðir með sólskála.  Íbúðir með hjónasvítu.  Stærðir frá 97-162 m2.  Rúmgóð bílageymsla.  Verð frá kr. 243.000 m2. Sætún 8 Reykjavík Til sölu heildareignin að Sætúni 8 í Reykjavík, samtals 8.132,2 fm skrifstofur, verslunarhúsnæði og vörugeymsla. Eignin skiptist m.a. í 4.553 fm skrifstofuhúsnæði á 5. hæðum auk kjallara og vörugeymslu á baklóð um 1.560 fm. Hluti eignarinnar er hið virðulega Ó.J Kaaber hús sem er skráð um 2.020 fm. Til greina kemur að selja eignina í heild sinni eða í hlutum. Hér er um að ræða sérlega áhugaverðan fjárfestingarkost á frábærum stað rétt við strand- lengjuna með fjölda bílastæða, útsýni af -skrif- stofuhæðum og miðsvæðis í Reykjavík. Jason Guðmundsson, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali  | Síðumúla 13 | www.miklaborg.is569 - 7000 Eignin verður til sýnis, sunnudaginn 25. apríl 2010 í samráði við Óskar R. Harðarson í síma 661-2100 og Þröst Þórhallsson í síma 8970634. Hringið og bókið skoðun og fáið nánari upplýsingar. Einkasala.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.