Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010 LJÓST varð í gærkvöldi að Akur- eyrarflugvöllur myndi einnig lokast í dag fyrir blindflug vegna út- breiðslu öskuskýja í flughæð frá Eyjafjallajökli. Gerðist það mun fyrr en áður hafði verið reiknað með. Horfur fyrir sjónflug voru heldur ekki góðar fyrir daginn í dag þannig að svo gæti farið að innan- landsflug legðist þá niður. Að sögn Hjördísar Guðmunds- dóttur, upplýsingafulltrúa Flug- stoða, mun millilandaflug færast til Egilsstaða ef með þarf í dag. Verður staðan metin aftur í morgunsárið með tilliti til nýrra upplýsinga um veður- og öskufallsspár. Mikill viðbúnaður var á Akureyr- arflugvelli í gær, eftir að millilanda- flugið færðist þangað yfir daginn. Alls fóru 12 vélar þaðan á loft og álíka margar lentu frá miðnætti í gær. Skiptu farþegarnir hundruðum sem fóru um völlinn og annríki því mikið í flugstöðinni. Hefur flug- umferð um Akureyri ekki verið svo mikil í seinni tíð. Hjördís segir þá aðgerðaáætlun hafa gengið vel, sem sett var í gang, í góðu samstarfi við embætti toll- stjóra og lögreglu, auk slökkviliðsins á Akureyri sem bætti við mannskap og tækjum á vellinum. Flytjist milli- landaflugið til Egilsstaða þarf svip- aðan viðbúnað þar. Ekki eru til fordæmi fyrir því á seinni árum að millilandaflug frá Keflavík raskist með þessum hætti. Leifsstöð var því æði tómleg í gær eins og myndin sýnir. bjb@mbl.is Millilandaflug til Egilsstaða  Viðbúnaður aukinn á Akureyrarflugvelli í gær  Fjöldi véla þar sjaldan meiri  Horfur á að Egilsstaðir sleppi við öskuna  Innanlandsflug gæti lagst niður Ljósmynd/Víkurfréttir Keflavík Tómlegt var um að litast við innritunarborðin í Leifsstöð í gær- morgun og hætt við að svo verði áfram næstu daga miðað við öskuspár. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is MILLILANDAFLUG Icelandair og Iceland Express færðist að lang- mestu leyti til Akureyrar í gær, þeg- ar loka varð Keflavíkurflugvelli vegna öskuskýja frá eldgosinu í Eyja- fjallajökli. Opið var fyrir sjónflug á Reykjavíkurflugvelli fram eftir degi í gær, þannig að minni röskun varð á innanlandsfluginu hjá Flugfélagi Ís- lands og Flugfélaginu Örnum. Ekið var með farþega í millilanda- flugi í rútum frá BSÍ milli Reykjavík- ur og Akureyrar en vélar frá Kaup- mannahöfn, London og Glasgow lentu í gær á Akureyri. Vegna lok- unarinnar í Keflavík setti Icelandair upp tengistöð í Glasgow fyrir flugið milli Evrópu og Bandaríkjanna. Síð- an var flug til og frá Glasgow með þá farþega sem leið áttu til og frá Íslandi með félaginu. Ætlar Icelandair að bjóða upp á þessar ferðir milli Glas- gow og Akureyrar tvisvar á dag yfir helgina. Vegna þessa var aukinn við- búnaður á Akureyrarflugvelli og fjöldi starfsmanna félagsins fór líka til Glasgow í gær, m.a. þjónustu- fulltrúar, stjórnendur, tæknimenn og áhafnir. Allt þetta flækjustig hefur fælt far- þega flugfélaganna frá og því nokkuð borið á afbókunum eða breytingum á flugi. Um þrjú þúsund farþegar áttu bókað flug frá Íslandi um helgina, þar af um tvö þúsund hjá Icelandair, en hætt er við að eitthvað færri leggi í hann á endanum. Veldur askan frá eldgosinu félögunum mun meira tjóni nú en þegar flugvellir á meginlandi Evrópu lokuðust. Síðan bentu veður- og öskufallsspár til þess í gærkvöldi að Akureyrarflugvöllur myndi lokast í dag og millilandaflug þá færast til Egilsstaða. Horfurnar framundan eru heldur ekki bjartar þar sem austanáttir eru ríkjandi í spám Veð- urstofunnar, með hættu á viðvarandi öskuskýjum yfir landinu. Iceland Express bjóst við að fljúga daglega til Kaupmannahafnar og London á meðan aðstæður leyfðu hér á landi. Til viðbótar stóð til að fljúga til Alicante og Varsjár í dag. Alls fóru um 300 farþegar á vegum félagsins um Akureyri í gær og áætlað var að fjöldi farþega í dag yrði um 600 tals- ins. Slapp innanlands til kvölds Innanlandsflugið gekk sem fyrr segir betur fyrir sig í gær. Um tíma í gærmorgun var Reykjavíkurflugvelli lokað fyrir allt flug en heimild var síð- an gefin til sjónflugs til áfangastaða innanlands um níuleytið. Hafði þetta í för með sér einhverjar tafir en að öðru leyti gekk flugið samkvæmt áætlun fram eftir degi. Flugfélagið Ernir varð að aflýsa morgunflugi til Hornafjarðar og seinni ferðin til Sauðárkróks féll nið- ur. Annars náði félagið að halda áætl- un. Flugfélag Íslands varð að fella niður allt flug til Vestmannaeyja og síðustu ferðir til Akureyrar, Ísafjarð- ar og Egilsstaða féllu einnig niður. Flækjan fælir farþega frá  Millilandaflug íslensku félaganna raskaðist verulega í gær  Flugi var beint til Akureyrar sem lokast svo í dag  Innanlandsflugið raskaðist minna í gær Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Umferð um Akureyrarflugvöll jókst í gær vegna lokunar Keflavíkurflugvallar fyrir millilandaflug. Hundruð farþega fóru um flugstöðina nyrðra. Áhrif eldgossins á millilandaflug Flug til Evrópu USA - Glasgow (tenging yfir N -Atlantshaf) Akureyri - Glasgow Flug til Evrópu (Lokað fyrir millilandaflug) Heimildir: Flugfélögin og MetOffice Flugleiðir Icelandair Flugleiðir Iceland Express Spá umöskudreifingu undir 20.000 fetum, gefin út kl. 18.00 í gær.Gildir til kl. 12.00 í dag. Glasgow Farþegar fluttir með rútu frá BSÍ til Akureyrar M.v. lokanir og áætlanir í gær Akureyri Röskunin sem varð á milli- landaflugi vegna öskunnar frá eld- gosinu í Eyja- fjallajökli varð til þess að flugpóst- urinn lá niðri í nokkra daga. Að sögn Önnu Katrínar Halldórsdóttur, fram- kvæmdastjóra sölu- og markaðs- sviðs Íslandspósts, vantar enn upp á að allur flugpóstur skili sér þó að talsvert magn hafi borist eftir að flugumferð komst á að nýju. Hún segir að það muni taka einhverja daga að vinda ofan af þessu. Skömmu áður en flugvellir opn- uðust var stór sending af böggla- pósti frá Danmörku sett í skip og er hún væntanleg eftir helgi, alls 11 bretti. bjb@mbl.is Póstur enn að skila sér heim Eldgosið í Eyjafjallajökli Skóverslun Smáralind Sími 511-2020 Verð 2.990, st. 19-24 Verð 2.990 st. 19-24 Verð 8.990, st. 24-30 Verð 16.990 Verð 9.990 Verð 14.990 Verð 6.990 Verð 9.990 Flottir sumarskór fyrir alla í fjölskyldunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.