Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010 ✝ Valgerður Sig-urðardóttir fæddist í Götu- húsum á Stokks- eyri 24. nóvember 1920. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 18. apríl 2010. For- eldrar hennar voru hjónin Sigurður Sigurðsson sem al- inn var upp í Skál- holti og kona hans Valgerður Jóns- dóttir frá Skúm- stöðum á Eyrarbakka. Val- gerður var ein af sex börnum þeirra hjóna sem upp komust. Sigurður og Valgerður bjuggu í Götuhúsum á Stokkseyri. Systk- ini Valgerðar voru Kristín, Sig- ríður, Halldóra, Sigurður og Jón. Eiginmaður Valgerðar var þeirra: a) Þórður, f. 1973, maki Dýrley Dan Sigurðardóttir. Börn þeirra: Kristófer Dan, f. 2000, Lára Dís, f. 2005, Eva Mjöll, f. 2009. b) Linda Mjöll, f. 1978, maki Kristján Sigvaldason. Börn þeirra: Dagur Freyr, f. 1999, Karen Tanja, f. 2002, Emilía Erna, f. 2006, Andrea Gerður, f. 2006. 3) Jóhann, f. 23. júní 1961, d. 1. maí 1991. Valgerður ólst upp í Götu- húsum á Stokkseyri hjá for- eldrum sínum og systkinum. Hún gekk í Barnaskóla Stokkseyr- ar.Valgerður fór í vist að Háteig í Reykjavík og vann einnig í frystihúsi Stokkseyrar. Hún hóf búskap með Þórði Guðnasyni í Sjólyst á Stokkseyri og byggðu þau svo Sunnutún á Stokkseyri sem var heimili hennar alla tíð þar til fyrir tveimur árum að hún fluttist að Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Kumbaravogi. Valgerður var mikil húsmóðir og hannyrðakona góð. Útför Valgerðar fer fram frá Stokkseyrarkirkju í dag, 24. apr- íl 2010, og hefst athöfnin kl. 13.30. Þórður Guðnason, f. 31 júlí 1917, d. 12. september 1991. Foreldrar hans voru: Guðni Jóhannsson og Pet- rúnella Þórð- ardóttir. Börn Val- gerðar og Þórðar eru: 1) Elfar Guðni, f. 17.10. 1943, maki Helga Jónasdóttir. Börn þeirra eru: a) Valgerður Þóra, f. 1965, maki Ás- mundur Sig- urgíslason. Börn þeirra Herdís Sif, f. 1988, Jóhann Þórður, f. 1992, Ívar Kvaran, f. 1996. b) Elfa Sandra, f. 1970, maki Grétar Sigurgíslason. Börn þeirra: Alex- andra Eir, f. 1997, Petra Lind, f. 2003. 2) Gerður, f. 3.9. 1948, maki Bjarni Hallfreðsson. Börn Okkur langar að minnast hennar ömmu með nokkrum orðum. Amma í Sunnó eins og við kölluðum hana var einstaklega ljúf og góð kona, alltaf fann hún eitthvað gott í öllum, og fannst okkur alltaf notalegt að koma í Sunnutún og spjalla við ömmu og fá kaffisopa og auðvitað gömlu tertuna, en það vorum við vön að kalla eina af svo mörgum góðum tertum og jóla- kökum sem hún var vön að baka. Eldhúsborðið var aldrei tómt hjá henni Völu ömmu. Einstaklega góð var hún í handavinnunni og voru ófá- ir vettlingar og sokkar prjónaðir í Sunnutúni. Árið 1991 missti amma bæði yngsta son sinn Jóhann og nokkrum mánuðum seinna eiginmann sinn Þórð afa, en þrátt fyrir þetta var amma alltaf svo ótrúlega sterk. Nú þegar amma hefur kvatt þennan heim munum við trúa því að feðg- arnir taki á móti henni. Elsku góða amma, langamma við eigum eftir að sakna þess að geta komið til þín og spjallað, en þú varst orðin svo þreytt þessa síðustu viku sem þú lifðir svo við vissum að þú yrðir fegin hvíldinni. Við munum geyma allar minningarnar og voru þær ófáar alla okkar tíð og viljum við þakka þér innilega fyrir að hafa allt- af verið svona yndisleg amma og langamma. Hvíl þú í friði. Valgerður Þóra. Ásmundur. Jóhann Þórður. Ívar Kvaran. Elsku amma Vala í Sunnutúni, núna er kveðjustundin runnin upp, þessi erfiða sorgar- og saknaðar- stund. En það er huggun í því að hafa fengið að njóta þess að eiga margar góðar og yndislegar stundir með þér. Þú tókst alltaf svo vel á móti mér eða okkur öllum í fjölskyld- unni, þegar við komum í heimsókn í Sunnutún. Alltaf var dekkað borð með heimabökuðum kökum og fíner- íi, já og ekki má gleyma gömlu tert- unni sívinsælu sem þú bakaðir á meðan þú hafðir heilsu til. En þú varst samt alltaf í þjónustuhlutverk- inu, þ.e.a.s. að ná í þetta og rétta hitt, alltaf til þjónustu reiðubúin. Mig langar aðeins að nefna það hvað þú varst sterk í þeirri miklu sorg þegar Jói frændi og afi dóu með nokkurra mánaða millibili árið 1991. En ég veit að þeir feðgar taka á móti þér með opnum örmum. Árið 2008 fórst þú á Kumbaravog og þá var mikill söknuður í því að geta ekki kíkt upp í Sunnutún í heimsókn. Ég er þakklát fyrir það að hafa unnið á Kumbaravogi þessi síðustu 2 ár og geta hitt þig þessa daga sem ég var að vinna. Ég gat nú ekki séð annað en að þér liði vel á Kumbaravogi, enda sagðir þú að það væri nú ekki hægt annað því að allir væru svo góðir og almennilegir og vildu allt fyrir þig gera. Þú áttir nú erfiðast með að þiggja þá aðstoð og hjálp sem var í boði, enda varst þú vön að þjóna öðrum. Mikið verður nú tómlegt að mæta í vinnuna, ég kvaddi þig í hvert skipti sem vinnudegi lauk og þú baðst alltaf að heilsa öllum og þó sér- staklega stelpunum mínum, Alex- öndru og Petru. Elsku amma Vala, þín verður sárt saknað og þú munt eiga stað í hjarta okkar allra. Þú varst algjör perla. Saknaðarkveðjur. Elfa Sandra og fjölskylda. Elsku amma mín. Á þessum tíma- mótum huga ég til baka og rifja upp allar góðu stundirnar sem ég átti með þér. Ég man svo vel eftir því þegar ég kom til þín og afa á sumrin og dvaldi hjá ykkur. Þetta eru tímar sem lifa svo vel í minningunni því það var svo gott að vera hjá ykkur. Þú varst góðhjartaðasta manneskja sem ég hef hitt á lífsleiðinni. Morgunmat- ur, hádegismatur, kaffi, kvöldmatur og svo kvöldkaffi. Þú varst alltaf með matartímann á hreinu. Hollur matur var ávallt á borðum og nóg til. Þú ert besti kokkur sem ég hef hitt. Sagó- grjónagrautur, hann var uppáhaldið mitt, og ábrystir fékk ég hjá þér og hvergi annars staðar. Svo var það gamla tertan þín sem þú áttir alveg út af fyrir þig. Aldrei hef ég fengið jafngóða köku og gömlu tertuna. Þegar ég tók stúdentspróf bauðst þú mér að koma til þín og vera hjá þér á meðan ég var að læra. Þá fann ég virkilega hvaða manneskju þú hafðir að geyma. Þú hugsaðir svo vel um alla í kringum þig og ætíð var fjölskyldan númer eitt í hjarta þínu. Ég átti þarna yndislegan tíma með þér sem ég geymi í minningunni. Þetta var löng ævi sem þú gekkst og þú lifðir tímana tvenna. Misstir son þinn og mann en ávallt stóðst þú upprétt og hélst áfram. Ég mun ávallt líta upp til þín elsku amma mín. Ég er svo glaður að þú hafir getað kynnst börnunum mínum og ég mun segja þeim sögu þína. Elsku amma. Ég á eftir að sakna þín mikið og nærveru þinnar. Megir þú hvíla í friði og takk fyrir samveruna og allt sem þú gafst mér. Guð geymi þig elsku amma mín. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þinn Þórður. Nú hefur elskuleg langamma mín kvatt þennan heim næstum níræð að aldri, nú er hún komin til strákanna sinna sem hún saknaði svo mikið, Jóa og langafa, sem vafalaust hafa tekið vel á móti henni. Langamma var ein yndislegasta manneskja sem ég hef nokkurn tíma hitt, hún vildi öllum vel og var uppáhald allra. Hún vildi aldr- ei láta hafa neitt fyrir sér og vildi helst snúast í kringum alla aðra á meðan hún gat. Heima hjá henni í Sunnutúni var alltaf hlaðborð af alls kyns góðgæti, stór hluti heimabak- aður, og er þar minnisstæðust gamla tertan sem var hennar einkenni að baka og ekki má gleyma kreminu sem maður fékk sér alltaf aukalega af úr ísskápnum. Það var alltaf lúxus að komast til langömmu í Sunnutúni, spjalla við eldhúsborðið og fá sér kaffi eða fá að sitja í hægindastóln- um hennar sem hún prjónaði alltaf í og horfa á sjónvarpið. Síðastliðnum tveimur árum eyddi langamma á dvalarheimilinu Kumb- aravogi þar sem henni leið mjög vel í góðum félagsskap heimilisfólks og starfsfólks. Ég vann þar síðustu ár og er sá tími mér mjög dýrmætur þar sem ég fékk að eyða svo miklum tíma með elsku langömmu, ég kíkti alltaf til hennar á hverri vakt og spjallaði um allt milli himins og jarð- ar. Það var alltaf hægt að tala við þig um allt elsku langamma mín, þú skildir allt svo vel og ekki var langt í húmorinn hjá þér, þú sást alltaf já- kvæðu og spaugilegu hliðarnar á öllu og þau voru ekki fá hlátursköstin sem við fengum saman inni í her- berginu þínu. Þér fannst svo gaman að fíflast í mér og oftar en ekki þegar ég kom inn til þín og tók upp símann minn þá varstu vön að spyrja með glettnissvip: „Var hann að hringja …“ og svo sprungum við báðar úr hlátri. Svo hikuðum við ekki við að láta fólk vita af því að þú værir langamma mín og mikið rosalega var ég stolt af því að vera barnabarna- barnið þitt, elsta barnabarnabarnið. Einu sinni minntist ein starfsstúlkan á það við þig að henni fyndist ég vera líkust þér af öllum mínum ættingjum og við fífluðumst oft með það, þér fannst það svo sniðugt og ég er ekki frá því að það sé satt. Ég á alltaf eftir að sakna þessara litlu hversdagslegu hluta, þú varst svo stór hluti af lífi mínu elsku amma mín. Mér leið alltaf vel að fá að um- gangast þig og hugsa um þig, þú varst alltaf svo fín og snyrtilega til fara og svo þakklát fyrir allt, alveg sama hversu lítið það var sem fólk gerði fyrir þig þá gafstu það alltaf þúsundfalt til baka. Undir lokin var heilsan farin að segja til sín eftir langa, viðburðaríka en góða ævi og ég fann að þú vildir bráðlega fá að fara til strákanna þinna elsku langamma mín. Mikið ofboðslega á ég eftir að sakna þess að komast ekki til þín og geta bara setið og talað, horft á þig prjóna eins og þér einni var lagið, kysst þig svo bless og faðmað þig í lok dagsins þegar ég var búin að gefa þér augndropana þína. Góða ferð elsku langamma mín, við hittumst aftur þarna uppi hjá stjörn- unum, ég þakka fyrir þann dýrmæta tíma sem ég fékk að eyða með þér og að vera svo heppin að eiga þig fyrir langömmu. Ástar- og saknaðar- kveðjur. Þín Herdís Sif. Elsku amma. Ég man þegar ég var lítil hvað það var alltaf gaman að fara til ömmu í Sunnutúni, keyra í langan tíma (fannst manni þá) í hálfgert ferðalag. Labba inn og fá faðmlag frá þér. Það var það besta sem ég gat fengið. Ég var mikið hjá þér þegar ég var lítil, kom alltaf og fékk að vera hjá þér og afa þegar ég vildi, sem var nokkuð oft. Alltaf áttir þú eitthvað gott að borða og þá sérstaklega gömlu- tertuna, mmmmmmmmm, hún var alltaf svo góð. Ég fékk að búa hjá þér þegar ég var að vinna í frystihúsinu í 3 sumur. Alltaf þegar ég kom heim í hádeginu þá varstu búin að elda fyrir mig og ég man að það besta sem ég fékk voru pulsur og bjúgu í kartöflu- mús. Ég bjó í næsta húsi við þig þegar ég var tvítug, man svo vel þegar ég var ólétt að Degi, þá var Kristján að vinna í burtu. Hann kom oft heim á kvöldin en fór svo aftur á næturnar, þér fannst nú ekki mikið mál að ég trítlaði yfir til þín um 4 á nóttinni, varst alltaf búin að búa um mig og ég gat sofið hjá þér restina af nóttinni. Við áttum saman áhugamál, það voru sjónvarpsþættir og ástarmynd- ir. Og í sérstöku uppáhaldi hjá okkur voru Leiðarljós, Glæstar vonir og ástarmyndirnar eftir Daniellu Steel. Við gátum talað endalaust um þætt- ina og myndirnar, og gátum setið tímunum saman og horft á þá saman og það var alltaf hægt að fá lánaða hjá þér eldgamla þætti sem þú hafðir tekið upp og haldið utanum. Ef ég spurði þig um þættina með Taylor og Ridge þar sem þau giftu sig þá varstu ekki lengi að finna hvar það var í öllum spólunum. Þú fluttir frá Sunnutúni og á Kumbaravog 2008, fékkst lítið krútt- legt herbergi sem þú varst bara ánægð með. Komst þér vel fyrir með stólinn góða, hillur með myndum og með myndirnar af afa og Jóa fyrir of- an rúmið hjá þér. Þú varst dugleg í höndunum, föndraðir mikið og prjónaðir heil ósköp af vettlingum og sokkum, alveg fram á síðasta dag. Nú ertu komin til afa og Jóa og ég veit að þeir hafa tekið vel á móti þér, þið hafið örugglega mikið að tala um. Horfið niður á okkur hin og sjáið hvað þið hafið afrekað með börnun- um ykkar og barnabörnum og barnabarnabörnum. Elsku amma, þú munt alltaf eiga stað í hjarta mér. Ég kveð þig með þessum orðum og bið góðan guð að geyma þig. Ég elska þig alltaf. Þín Linda. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Elsku langamma, með þessu ljóði kveðjum við þig með söknuði. Elskum þig og geymum mynd af þér í huga okkar. Þín barnabarnabörn, Dagur Freyr, Karen Tanja, Andrea Gerður og Emilía Erna. Í dag kveðjum við hana Valgerði frænku á Stokkseyri. Hún hefur lok- ið jarðlífi sínu með sóma. Níræð að aldri. Fyrir tæpu ári síðan kvöddum við hina ömmusystur okkar, sóma- konuna Sigríði Sigurðardóttur tæp- lega 92 ára gamla. Af þessum tilefn- um er ástæða til að þakka fyrir allt sem frá þessum góðu frænkum okk- ar kom – í okkar hlut sem annarra sem á vegi þeirra urðu í þessu lífi. En Vala frænka var síðasta systkinið úr Götuhúsunum á Stokkseyri til að kveðja þennan heim. Í huga barnsins var Stokkseyrar- fólkið eiginlega önnur dýrategund innan sömu fjölskyldu. Þar snerist allt um sjóinn og bátana og Frysti- húsið (með stórum upphafsstaf). Bara bryggjur og fiskur og þessi stanslausi undarlegi mystíski tónn frá hafinu og briminu sem engu var líkur. Allir í þessum undarlega heimi unnu við þessa einu atvinnugrein. Og þegar heim var komið hlustuðu allir á bátabylgjuna í stóra útvarpinu hans Þórðar til að heyra um afla- brögð, veður og erfiðu innsiglinguna inn höfnina. Margar sögur sagði hún Kristín amma okkur af því þegar hún var ung og bátarnir voru að far- ast í innsiglingunni í briminu og heilu fjölskyldurnar stóðu við brim- garðana og horfðu á mennina drukkna rétt fyrir framan sig og gátu ekkert að gert. Þar fóru eig- inmenn, synir, bræður, mágar, ná- grannar og æskufélagar, – allir í einu þegar bátunum hvolfdi fyrirvara- laust í þessari skelfilegu innsiglingu. Það var stundum sagt sem kenni- leiti um systurnar úr Götuhúsum á Stokkseyri, Kristínu (ömmu okkar), Halldóru Pálínu, Sigríði og Valgerði að þær hlægju alltaf þegar þær töl- uðu. Það segir meira en margt sem segja þarf um lundarfar þessara systra. Enda man ég aldrei eftir að hafa orðið vitni að því að þær skiptu skapi. Í það minnsta aldrei hún amma okkar, hún Kristín. Það hefur ekki erfst til afkomendanna. Jú, það var einu sinni að ég heyrði Völu hækka róminn og það eftir- minnilega. Þá hafði Landsíminn forðum steypt saman í sparnaðar- skyni handvirku símstöðvunum á Stokkseyri og Eyrabakka, með að- setri á Eyrarbakka. Þangað þurftu Stokkseyringar að hringja til að fá samband suður í Reykjavík eða ann- að. Nei, henni Valgerði og öðrum Stokkseyringum var svo gróflega misboðið að þurfa að „hringja í ein- hverja kellingu niðri á Bakka til að biðja um samband“. Nei, það gat sko ekki gengið! – Enda varð vesalings Síminn að breyta fyrirkomulaginu allsnarlega í eldra og óhagkvæmara form aftur, svo friður héldist í þess- ari undarlegu sveit. Allt hefur sinn tíma þótt í barns- minni festist að eilífu góðar minn- ingar um gott fólk. Barninu finnst að þannig fólk og tími þess hljóti að vera eilíft. Þannig var það í minningu okkar systkinanna þegar land var lagt undir fót og komið í heimahag- ana hennar ömmu á Stokkseyri á fjölskyldubílnum og endastöðin var hjá Þórði og Völu í Sunnutúni. Allar kökur Stokkseyrar kláruðust þegar griðungarnir úr Reykjavíkinni komu í heimsókn, glorhungraðir að vanda, eins og engisprettufaraldur sem ekkert skildi eftir sig nema auðn í eldhúsinu. Að lokum segjum við eins og krakkarnir. Hafðu góða ferð í Sum- arlandið, frænka. Magnús H. Skarphéðinsson. Valgerður Sigurðardóttir HINSTA KVEÐJA Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. (Har. S. Mag.) Góða nótt, elsku amma. Kristófer Dan, Lára Dís og Eva Mjöll. Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.