Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 44
44 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010  Sönkonan Lára Rúnarsdóttir hit- ar upp fyrir Amy MacDonald í júní. Eru þetta sérstakir tónleikar á veg- um stórtímaritsins Q. Ekki nóg með það, heldur mun Mundi, spútnik- hönnuður íslenskrar tízku í dag sjá um stíliseringu á Láru. Myndband við fjórðu smáskífuna af hinni vel lukkuðu Surprise í leikstjórn Henry Bateman verður þá frumsýnt á mánudaginn. Lára hitar upp fyrir Amy MacDonald Fólk TVÖ ár eru liðin frá því að barnaplatan vinsæla Gilli- gill kom út. Innihélt hún lög og texta eftir Braga Valdimar Skúlason og var undirleikur í höndum Mem- fismafíunnar. Platan hlaut mikið lof. Nú hafa þeir Guðmundur Kristinn eða Kiddi eins og hann er oft kallaður og Bragi farið aftur í hljóðverið og hafið upptökur á nýrri barnaplötu. Þeir félagar hafa fengið til liðs við sig Óttar Proppé sem mun ljá funk-prófessornum einum rödd sína og sjá um að kenna krökkum manna- siði. Kiddi segir plötuna hafa tekið smá breytingum frá því sem byrjað var með. „Nú erum við búnir að búa til smá sögu í kringum þetta allt. Fjallar hún um tvo krakka sem sendir eru í fágunarskóla við Diskóflóa þar sem prófessorinn sér um að kenna þeim mannasiði. Þannig þetta verður barnaplata með smá funki enda prófessorinn mikill funk-maður.“ Kiddi segir að búið sé að taka upp alla grunnana á plötunni og unnið sé að mótun sögunnar. Stefnt er á að setja lag í spilun í sumar og að hún verði gefin út síðar í vetur. En er komið á hreint hverjir munu sjá um sönginn á plötunni?„Ég er með fullt af nöfn- um í huganum, en ég þarf eiginlega að tala við söngvarana áður en ég fer með það í blöðin. Ætli þetta verði ekki mikið af sama fólkinu og var á Gilligill.“ En á henni voru til dæmis Sigtryggur Baldursson úr Þey, Magga Stína risaeðla, Sigga í Hjaltalín, Gummi úr Baggalúti, Snorri í Sprengjuhöllinni, Egill Ólafsson í Spilverkinu og Björgvin Halldórsson úr Change. Verður spennandi að heyra hverjum prófessorinn mun syngja með. matthiasarni@mbl.is Prófessorinn kennir krökkunum mannasiði  Á þessu ári hefði tónskáldið og myndlistarmaðurinn Sigfús Hall- dórsson orðið 90 ára og því eru Kópavogsdagar 2010 tileinkaðir skáldinu. Hver kannast ekki við lögin Tondeleyo, Litla flugan, Vegir liggja til allra átta, Dagný, Við Vatnsmýrina, Lítill fugl eða Íslenskt ástarljóð …? Boðið verður upp á sannkallaða stórtónleika á Kópavogsdögum þegar perlur Sig- fúsar verða fluttar af Stefáni Hilmarssyni, Heru Björk Þórhalls- dóttur og Agli Ólafssyni. Hljómsveitarstjórn er í höndum Björns Thoroddsen. Tónleikarnir verða dagana 7., 8., 14. og 15. maí í Salnum. „ …ég eflaust gæti kitlað nefið þitt …“  Hann Gunnlaugur Briem, trymb- illinn taktfasti, gerir það ekki enda- sleppt en eftirfarandi skeyti barst menningardeild: „Var að koma úr magnaðri ferð til Suður-Afríku þar sem Mezzo- forte spilaði tvenna tónleika. Ég fór þaðan til Jóhannesar- borgar og fékk að kynnast Nelson Mandela Foundation, hljóðritaði afrískan barnakór fyrir Earth Affa- ir sveitina mína og margt fleira.“ Gulli Briem vinnur með afrískum barnakór Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is HIN mjög svo ágæta sveit Who Knew hefur verið starfandi síðan 2006, með mismikilli virkni þó. Loksins hillir undir breiðskífu, en hún kemur út um alla Evrópu í maí en er væntanleg á hverri stundu í búðir hérlendis. Heitir hún Bits and pieces of a major spectacle. Ármann Ingvi, söngvari: „Það hafa verið mannaskipti og ýmislegt í gangi. Við erum af- skaplega kátir yfir því að platan sé loks komin út. Hún var tekin upp í Sundlauginni, í Hljóðrita hjá Kidda Hjálmi og svo í okkar eigin stúdíói, Stúdíó Skjön.“Ármann segir að plötunni hafi m.a. seinkað vegna til- færslu erlendis, fólk þar hafi viljað flýta henni og seinka á víxl. Nú hungri meðlimi hins vegar í næsta skammt. „Við erum með samning við fyrirtækið 101 Berlin sem er undirmerki hjá Devil Duck. 101 Berlin er búið að skipuleggja túr yrtra sem hefst 22. maí og svo verð- ur mögulega annar túr í sept- ember.“ Hérlendis verða svo útgáfu- tónleikar 5. maí næstkomandi á Só- dómu Reykjavík. Í maí er einnig von á heimildarmynd um sveitina sem hefur óneitanlega tekið tímann sinn í að springa út. Tilbúnir Who Knew, klárir í slaginn. Langþráð plata Who Knew kemur út í maí  Fylgt eftir í Evrópu í vor og í haust Eftir Matthías Árna Ingimarsson matthiasarni@mbl.is Sem útskriftarverkefni sittfrá Kennaraháskóla Íslandsárið 2006 sendu þeir félagarHaraldur Freyr Gíslason og Heiðar Örn Kristjánsson frá sér plötuna Pollapönk. Þeir félagar vinna báðir sem leikskólakennarar ásamt því að vera í hljómsveitinni Botnleðju. Skemmst er frá því að segja að platan féll í góðan jarðveg bæði hjá börnum og fullorðnum. Ári eftir að platan kom út barst þeim Haraldi og Heiðari liðsstyrkur þegar Arnar Gíslason og Guðni Finnsson úr hljómsveitunum Ensími og Dr. Spock gengu til liðs við Pollapönk. Í febrúar á þessu ári fóru þeir fé- lagar svo í hljóðver og tóku upp plöt- una Meira Pollapönk og er lagið 113 vælubíllinn farið að heyrast í útvarp- inu og fimmtán laga plata svo vænt- anleg í byrjun sumars hjá Records Records-útgáfunni. Plata númer tvö ákveðin Haraldur Freyr segir að í upphafi hafi ekkert endilega verið hugsunin að gera fleiri en eina plötu og stofna hljómsveit í kringum hana. „Eftir að við fórum að spila plöt- una fyrir fólk með Arnari og Guðna var þetta bara svo rosalega skemmtilegt að við ákváðum að gera plötu númer tvö og vinna hana eins og hljómsveitir gera venjulega.“ – Nú var þetta útskriftarverkefni ykkar Heiðars frá 2006. Eruð þið búnir að vera að semja efni á þessa plötu síðan þá? „Við erum búnir að vera að semja þessi lög á nokkuð löngu tímabili. Svo byrjuðum við að æfa hana núna fyrir jólin 2009. Fórum svo bara beint í stúdíó eftir áramót og erum svona að leggja lokahönd á hana þessa dagana.“ – Nú eru þið báðir leikskólakenn- arar, prófið þið lögin fyrst á leikskól- anum? „Já, við gerum það nú alltaf, til að heyra hvað virkar og hvað virkar ekki og þau lög sem virka ekki er bara hent. „Til dæmis fyrsta lagið sem er í spilun núna, 113 vælubíllinn, var lag sem ég samdi í samverustund með krökkunum. Ég tók það ekkert upp eða neitt og steingleymdi laginu. Svo næst þegar það var samverustund báðu krakkarnir um lagið og ég bara vissi ekki neitt og þau hjálpuðu mér að muna það, þannig þau mundu það en ég ekki. Það fannst mér nokkuð merkilegt og hef ekki lent í þannig áður.“ – Hjálpa krakkarnir kannski til þegar þið semjið lögin? „Þau hafa mikið um það að segja hvaða tilfinningu maður fær fyrir hvað er líklegt til að virka og hvað ekki. Það er svo merkilegt með börn hvað textarnir höfðar til þeirra. Það er oft allt annað sem þau skilja út úr textanum heldur en fullorðnir og kannski hvað við erum að reyna segja. Það getur verið mjög gott því þá er hægt að vera tvíræður og gera þetta fyrir bæði börn og fullorðna.“ Tónlist fyrir börn og fullorðna Markmiðið með Pollapönki er að búa til tónlist og texta sem bæði börn og fullorðnir hafa gaman af. „Þótt þetta sé hugsað fyrir börn reynum við að tengja þetta þannig að fullorðnir geti ekki síður haft gaman af tónlistinni.“ – Verður plötunni svo fylgt eftir með tónleikahaldi? „Við höfum hugsað okkur að vera duglegir að spila. Þá bæði fyrir bönd og fullorðna. Þessi diskur verður vonandi þannig að fjölskyldan geti sameinast í að hlusta á hann.“ – Eruð þið kannski byrjaðir á þriðju plötunni? „Já, það eru komnar hugmyndir að fjórum lögum sem við getum hugsað okkur að setja á nýja plötu. Það er að segja ef vel gengur með nýja diskinn og við setjum ekki út- gáfuna á hausinn.“ Meira Pollapönk á leiðinni  Útskriftarverkefni við Kennaraháskóla Íslands sem undið hefur upp á sig Morgunblaðið/Kristinn Kátur Leikskólakennarinn og tónlistarmaðurinn Haraldur Freyr Gíslason. Árið 2001 sendi Haraldur Freyr frá sér barnaplötuna Hallilúja. Plötunni var vel tekið af hlust- endum sem og gagnrýnendum. Taldi gagnrýnandi Morgun- blaðsins Harald einstaklega lag- inn við að setja sig í spor barna með tilheyrandi textum. Eða eins og segir í dómi blaðsins frá lok árs 2009. „Sterkasta hlið þessa disks er án efa hvað Halli á auðvelt með að setja sig í spor barnsins. Textarnir eru í senn gagnrýnir, fyndnir og jafnvel hæðnir og kannski ekki nema von því veruleiki fullorðna fólks- ins getur virst býsna öfug- snúinn út frá sjónarhóli barns- ins.“ Hallilúja var byrjunin Funk-prófessorinn Óttar Proppé

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.