Morgunblaðið - 24.04.2010, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010
KEPPNISSKAP má finna í fleirum en mann-
skepnunni. Þessi hundur lagði sig allan fram þar
sem hann tók virkan þátt í knattleik við tvífæt-
ling á vordegi í síðustu viku. Sá svarti var aftur á
móti enginn Ronaldo, hann var meira að skottast
á kantinum og skemmta sér, virtist ekki hafa
mikið vit á fótbolta. Kannski þessa hunda dreymi
báða um að komast á heimsmeistaramótið í fót-
bolta sem hefst í júní, hvutti veit.
VORIÐ VEKUR LEIKINN Í DÝRUM OG MÖNNUM
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HLUTUR Novators, félags Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar, í Verne
holding var til umræðu á fundi iðn-
aðarnefndar Alþingis í gærmorg-
un, en nefndin er með til umfjöll-
unar frumvarp til laga um heimild
til samninga um gagnaver í
Reykjanesbæ. Engin niðurstaða
varð af fundinum en annar er boð-
aður strax eftir helgi.
„Við erum að vinna með mögu-
legar lendingar í málinu og þurfum
að viða að okkur frekari upplýs-
ingum áður en hægt er að ná nið-
urstöðu,“ sagði Skúli Helgason,
formaður nefndarinnar. Þó hann
þori ekki að segja fyrir um það,
vonast hann til þess að málið verði
klárað í næstu viku.
Einn þeirra sem hvað mest hafa
þrýst á að málið verði klárað er
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks og nefndarmaður í
iðnaðarnefnd. Hann segir siðferð-
isþáttinn sitja í mönnum, og sé það
svo sem ekkert óeðlilegt. „En það
liggja m.a. fyrir hugmyndir um, að
girt verði fyrir að fyrirtæki Björg-
ólfs Thors muni njóta þess arðs
sem myndast vegna þeirra skattí-
vilnana sem fyrirtækið fær, heldur
komi það með öðrum hætti til
baka.“
Jón bendir einnig á, að eitt öfl-
ugasta fjárfestingafélag í Bretlandi
verði meirihlutaeigandi í félaginu
og eignarhlutur Novator muni
rýrna mikið í nánustu framtíð;
stefni jafnvel niður í 5-7%. Hann
minnir á að málið hefur verið til
meðferðar í nefndinni síðan í des-
ember og í dag sé 15% atvinnu-
leysi á Suðurnesjum.
Hugmynd uppi um að Novator
njóti ekki arðgreiðslna af Verne
Gagnaver Mun skapa ríflega 500
störf þegar allt er talið með.
Iðnaðarnefnd Alþingis fundaði í hádeg-
inu í gær um gagnaver á Suðurnesjum
Í HNOTSKURN
»Jón segir skjóta skökku viðað á sama tíma og stórir
þátttakendur í efnahags-
hruninu stýri stærstu fyrir-
tækjum landsins á sínum svið-
um, s.s. í smásölu, sé þetta mál
tafið í þinginu.
»Novator á um 40% hlut íVerne holding.
Ríkisstjórnin
samþykkti í gær
viðbótarfjárveit-
ingu upp á 106
milljónir til at-
vinnumála náms-
manna. Atvinnu-
leysistrygginga-
sjóður leggur
fram fjármagn á
móti. Þetta
tryggir að hægt
verður að greiða kjarasamnings-
bundin laun til samtals 1.200 náms-
manna sem eru á atvinnuleysiskrá.
800 námsmenn fá vinnu með ákvörð-
un sem tekin var í gær en áður höfðu
400 námsmönnum verið tryggð
störf.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra segir að þetta ætti að létta
verulega á varðandi sumarvinnu
námsmanna.
Jafnframt hefur ríkisstjórnin
ákveðið að setja 500 milljónir til við-
bótar í endurbætur á opinberu hús-
næði. Þetta kemur til viðbótar 2,7
milljörðum í þetta verkefni sem áður
var ákveðið. Jóhanna segir að stefnt
sé að því að setja svipaða upphæð í
þessi verkefni á árunum 2011 og
2012. Jóhanna segir þetta fjármagn
fara í viðhald á skólum, söfnum,
sjúkrahúsum, heilsugæslu og Há-
skóla Íslands, svo dæmi sé tekið.
egol@mbl.is
Um 1200
námsmenn
fá vinnu
Jóhanna
Sigurðardóttir
Aukið fjármagn til
viðhalds á húsnæði
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra, hefur skipað nýja
fulltrúa í starfshóp sem ætlað er að
móta og setja fram heildstæðar til-
lögur um breytingar og umbætur á
skattkerfinu.
Starfshópurinn var fyrst skipaður
19. apríl og sátu þá í honum 6 karlar
og 1 kona. Bent var á, að þetta upp-
fyllti ekki ákvæði jafnréttislaga um
jöfn hlutföll kynja í nefndum, ráðum
og stjórnum á vegum hins opinbera
og því óskaði Steingrímur eftir nýj-
um tilnefningum.
Starfshópnum er ætlað að skila
áfangaskýrslu til fjármálaráðherra
eigi síðar en 15. júlí nk. með helstu
stefnumarkandi tillögum og tillögum
um þær lagabreytingar sem hægt
verði að leggja fram til afgreiðslu á
haustþingi 2010. Skulu þær tillögur
vera í samræmi við áætlun um jöfn-
uð í ríkisfjármálum.
Skipar nýjan
starfshóp
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur. | Í ÍÞRÓTTAHÚSINU á Sauðárkróki
var allt á ferð og flugi er tæpur sólarhringur var í að opn-
uð yrði þar skagfirsk stórsýning á öllu milli himins og
jarðar, eins og Áskell Heiðar Ásgeirsson sýningarstjóri
og titlaður „aðalkallinn“ orðaði það. „Þetta eru rúmlega
eitt hundrað sýnendur, allir af Skagafjarðarsvæðinu.
Allt er þetta í bland, einstaklingar, fyrirtæki, stórfyr-
irtæki, opinberar stofnanir og félagasamtök.“
Nokkuð er frá því að hugmyndin að sýningunni kvikn-
aði, en rétt um tveir mánuðir eru síðan ákveðið var að
gera áformin að veruleika, og þá þurfti að vinna hratt.
„Okkur fannst tilvalið að marka upphaf Sæluviku, sem
hefst næstkomandi sunnudag, með sýningunni.“ Bæði í
dag og á morgun verða starfræktar málstofur þar sem
fjallað verður um nýsköpun í víðasta samhengi við at-
vinnulíf og þjónustu. Það eru heimamenn í bland við ut-
anaðkomandi fagaðila sem stýra umræðum.
Að sögn Áskels Heiðars er sýningin, sem haldin er af
sveitarfélaginu Skagafirði og Skagafjarðarhraðlestinni, í
senn hugsuð til að létta mönnum lundina í sumarbyrjun
og koma þeim boðum áleiðis að kominn sé tími til að
bretta upp ermar og láta hjólin fara að snúast aftur. Því
sé ánægjulegt hve þátttaka hafi verið góð.
Bretta upp ermarnar
Rúmlega hundrað þátttakendur sem allir koma af
Skagafjarðarsvæðinu taka þátt í skagfirskri stórsýningu
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Atvinnulífssýning Góð þátttaka er meðal skagfirsks
athafnafólks, sem var ekki lengi að setja upp sýninguna.
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. 14–16
Listmunauppboð á næstunni
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma
551-0400, 896-6511 (Tryggvi),
845-0450 (Jóhann)
Erum að taka á móti verkum núna í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg