Morgunblaðið - 24.04.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010
Ekki er vafi á að óðagotsumsókn aðEvrópusambandinu skaðar efna-
hagsuppbygginguna á Íslandi.
Stjórnarand-staðan er á
móti málinu og
annar stjórnar-
flokkurinn var
dreginn á hárinu,
hræddur og
kjökrandi til
verksins. (Hugs-
anlega á skegginu
í tilfelli Stein-
gríms J.)
Samfylkinginþarf á málinu
að halda til að fela
að hún hefur ekk-
ert annað fram að
færa.
Tilburðir utanríkisráðherra til aðláta líta svo út að hann sé bara í
vinnunni nauðugur viljugur að fylgja
eftir ákvörðunum Alþingis eru í besta
falli broslegir.
Fyrirrennari Össurar sem utanrík-isráðherra og eftirmaður hans
sem flokksformaður hefur lagt til að
umsóknarferlinu verði frestað, sem
þýðir á mannamáli að því skuli hætt.
Um það segir Össur: „Ég er mjöghissa á þessum ummælum Ingi-
bjargar.“
En það sem hann nefnir ekki en erþó augljóslega bæði hissa og
reiður yfir er ástæðan sem Ingibjörg
Sólrún gefur fyrir afstöðu sinni.
Hún segir „engan vera að berjastfyrir inngöngu Íslands í Evrópu-
sambandið um þessar mundir“.
Við hvern skyldi hún eiga? Þeim semleita að blórabögglinum er bent á
að byrja mjög aftarlega í stafrófinu.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Össur
Skarphéðinsson
Neistaflug í fjölskyldunni
Veður víða um heim 23.4., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 2 heiðskírt
Akureyri 2 heiðskírt
Egilsstaðir -4 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 0 alskýjað
Nuuk 3 léttskýjað
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló 5 skýjað
Kaupmannahöfn 9 léttskýjað
Stokkhólmur 8 léttskýjað
Helsinki 5 skýjað
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 15 heiðskírt
Glasgow 9 alskýjað
London 14 heiðskírt
París 19 heiðskírt
Amsterdam 13 heiðskírt
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 13 heiðskírt
Vín 11 alskýjað
Moskva 6 skýjað
Algarve 21 skýjað
Madríd 19 léttskýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 16 skýjað
Aþena 21 heiðskírt
Winnipeg 19 heiðskírt
Montreal 10 léttskýjað
New York 16 heiðskírt
Chicago 17 skýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
24. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:24 21:29
ÍSAFJÖRÐUR 5:16 21:46
SIGLUFJÖRÐUR 4:59 21:30
DJÚPIVOGUR 4:50 21:01
VÖKULIR áhorfendur leikja í und-
anúrslitum Meistaradeildar Evrópu
í knattspyrnu sem sýndir eru á sjón-
varpsstöðinni Stöð 2 Sport tóku eftir
því að annar leikurinn í síðustu viku
var í opinni dagskrá. Þar var ekki
um mistök að ræða því í samningum
365 um sýningarétt á Meistaradeild-
inni er kveðið á um að einn leikur í
hverri umferð verði að vera opinn
öllum, óháð áskrift.
Samkvæmt upplýsingum frá 365
hefur þetta verið fyrirkomulagið
undanfarin ár. Þeir leikir sem sýndir
eru í ólæstri dagskrá eru valdir með
góðum fyrirvara og af handahófi.
Úrslitaleikurinn er svo ávallt órugl-
aður.
Í hádeginu á mánudag ræðst svo
hvort leikur Lyon og Bayern Münc-
hen á þriðjudag eða Barcelona og
Inter á miðvikudag verður ólæstur.
Reuters
Boltinn Meistaradeildin nýtur mik-
illar hylli knattspyrnuunnenda.
Annar í op-
inni dagskrá
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„ÞETTA var góður bónus á ferðina
og krakkarnir ánægðir með að lenda
hér nyrðra eftir töfina ytra,“ segir
Margrét Þóra Einarsdóttir, kennari í
Brekkuskóla á Akureyri. Alls 25
manna hópur nemenda og kennara úr
skólanum náði til síns heima í fyrri-
nótt eftir að hafa orðið innlyksa í
fimm daga á Spáni. Þangað fór hóp-
urinn 8. apríl og átti að koma heim sl.
sunnudag. Vegna öskufalls úr Eyja-
fjallajökli var hins vegar ekki flugfært
og varð hópurinn því að halda kyrru
fyrir í Galíleu á Spáni, þar sem krakk-
arnir voru á spænskunámskeiði.
Fjórtán tíma rútuferð
Hópurinn flaug upphaflega til
Pobra do Caraminal í norðurhluta
Spánar með millilendingu í Kaup-
mannahöfn og Madrid og stóð til að
taka sömu leggi í heimfluginu. Sá
möguleiki reyndist hins vegar ekki
fær og því var brugðið á það ráð að
fljúga heim með Iceland Express sem
flaug frá Alicante á Spáni á fimmtu-
dagskvöld, fjórum dögum síðar en
áætlað var. „Til Alicante frá Pobra
var fjórtán tíma rútuferð og leiðin vel
á annað þúsund kílómetrar. Það sem
annars stendur upp úr er hve góðar
móttökur við fengum. Við gistum á
einkaheimilum og þar þótti ekkert til-
tökumál að hýsa okkur lengur en til
stóð vegna þessara óvæntu og óvið-
ráðanlegu aðstæðna. Og þessir fjórir
viðbótardagar nýttust vel til
spænskunáms auk þess sem við vor-
um í beinu sambandi við Brekkuskóla
heima á Íslandi í nokkurskonar fjar-
námi,“ segir Margrét.
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur ver-
ið í fréttum á Spáni síðustu daga, eins
og annars staðar. Hópurinn frá eld-
fjallaeyjunni var því kallaður í viðtöl í
ýmsum fjölmiðlum á Spáni.
Klappað í flugvélinni
Nemendurnir úr Brekkuskóla
komust í flug frá Alicante á fimmtu-
dagskvöld og lentu á Akureyri undir
morgun í fyrrinótt, en þá var búið að
loka flugvöllum syðra vegna hættu á
öskufalli. „Flestir í vélinni voru ekki
ýkja kátir með að lenda á Akureyri og
þurfa að taka rútuna suður. Krakk-
arnir okkar voru hins vegar ánægðir
og klöppuðu þegar okkur var tilkynnt
hvar skyldi lenda,“ segir Margrét.
Sumir voru reyndar komnir á tæpasta
vað með heimferðina miðað við sín
plön. Einn mun til dæmis fermast í
dag og í fjölskyldu annars er brúð-
kaup um helgina.
Urðu innlyksa á Spáni
Hópur frá Akureyri tafðist á Spáni vegna eldgossins
Voru víða í viðtölum Í fjarnámi við skólann heima
Ljósm/Margrét Þóra
Spánargleði! Biðin var löng og þá var brugðið á leik. Nemendur úr Brekkuskóla fóru með spænskum vinum í sigl-
ingu til eyjarinnar Sálvora. Íslendingarnir frá hinni fjarlægu eldfjallaeyju voru í viðtölum í spænskum fjölmiðlum.
Í HNOTSKURN
» Alls 20 nemendur frá Ak-ureyri voru í spænskunámi
í vetur og var utanferðin hluti
af því. Fimm fylgdu hópnum.
» Hópurinn frá hinni fjar-lægu eldfjallaeyju vakti at-
hygli ytra og var m.a. kallaður
í viðtöl við spænska fjölmiðla.
Yfir 200 í
Vormara-
þoninu í dag
Vel fylgst með
Birni Margeirssyni
Morgunblaðið/G.Rúnar
Keppni Það er gott að byrja hratt.
VEL á þriðja hundrað manns munu
í dag taka þátt í Vormaraþoni Fé-
lags maraþonlaupara (FM) sem nú
er haldið í 25. sinn. Keppt er í hálfu
maraþoni og maraþoni.
Sérstaka athygli vekur þátttaka
landsliðmannsins og millivega-
lengdahlauparans Björns Margeirs-
sonar í maraþoni og er mikil spenna
fyrir því hvort honum takist að
bæta árangur bróður síns, Sveins
Margeirssonar frá haustinu 2002.
Þá var hlaupið eftir annarri leið
en nú og hljóp Sveinn maraþonið á
2:44:24.
Gísli Ásgeirsson, ritari FM, segir
að þó að töluverð athygli beinist að
þátttöku Björns sé keppni í mara-
þoni ávallt stórviðburður fyrir
hvern og einn hlaupara.
Ræst er í maraþoni kl. 8:30 við
stokkinn yfir Elliðaárdal. Hlaupa-
leiðin liggur vestur að Ægisíðu þar
sem er snúið við. Kort má sjá á
hlaup.is og hlaup.com.
Líka haustmaraþon
Ræst verður í hálfu maraþoni
stundvíslega klukkan 10:30.
Í gær höfðu um 180 manns skráð
sig til leiks í hálfu maraþoni og um
30 í maraþoni. Fleiri hafa sjálfsagt
bæst við en minnt er á að ekki er
tekið við skráningum við rásmark.
FM stendur einnig fyrir haust-
maraþoni og verður það haldið 23.
október nk. runarp@mbl.is
Aðalfundur VR
verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica hóteli,
miðvikudaginn 28. apríl nk. og hefst fundurinn kl. 19:30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Lagabreytingar
Innborgun í VR varasjóð
Virðing
Réttlæti
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS