Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 28
28 Umræðan
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010
Stórfréttir í tölvupósti
EFTIR að ég nýlega
las greinar í Morg-
unblaðinu eftir Svein
Halldórsson, formann
Framsóknarfélags
Hafnarfjarðar, þar
sem hann lýsir vinnu-
brögðum flokkseig-
endafélagsins, sem
hann kallar svo og seg-
ir að öllu ráði þar, þá
hvatti það mig til að
segja örlítið frá vinnubrögðum sem
viðhöfð voru hér í Framsóknarfélagi
Akureyrar við galopið prófkjör, sem
fram fór í janúar sl. vegna sveit-
arstjórnarkosninganna í vor.
Eftir framhaldsfund í félaginu þar
sem ekki allir voru sammála um
ágæti galopins prófkjörs fór það svo
að það var samþykkt með meirihluta
atkvæða af klíku þeirri, sem ákveð-
inn aðili í félaginu stýrir, og voru sett
fram mjög léleg rök fyrir því. Þetta
var m.a. gert í nafni lýðræðis, sem er
að verða eitt mest notaða orðið í ís-
lensku, en jafnframt það sem er oft-
ast nauðgað, þ.e. notað til að fela hið
raunverulega.
Ég hef alla tíð verið á móti gal-
opnu prófkjöri af þeirri einföldu
ástæðu að ég hef ekki viljað að ann-
arra flokka fólk raði á framboðslista
hjá Framsókn því það leiði til spill-
ingar og skemmdarverka, og hef
mælt með uppstillingu, sem síðan er
borin undir flokksfólk og það látið
ráða.
Í kosningunum 2006 var einnig
galopið prófkjör viðhaft við uppstill-
ingu á listann og þá töpuðust tveir
bæjarfulltrúar, en Framsókn á Ak-
ureyri hefur í gegnum árin verið með
þrjá til fjóra bæjarfulltrúa og þá hef-
ur verið viðhöfð uppstilling og kosn-
ing. Nú erum við með EINN.
Vinnubrögðin hafa verið slík innan
Framsóknarfélags Akureyrar að æ
færri mæta þar á fundi og flokks-
bundið fólk skilar sér jafnvel ekki að
kjörborðinu vegna þess því líkar ekki
klíkustarfsemin, og ekki heldur það
utanflokksfólk sem er vélað til að
kjósa í galopnum prófkjörum.
Og einu sinni enn átti „lýðræðið“
að „blífa“.
Mér hafa borist upp-
lýsingar um að ómæld
smölun hafi m.a. verið í
gangi innan ákveðins
íþróttafélags hér í bæ
og þar var sumu fólki,
sem bauð sig fram í
prófkjörinu en þókn-
aðist ekki klíkunni, út-
húðað og það uppnefnt.
Einnig var mér sagt
að listi hefði gengið inn-
an íþróttafélagsins þar
sem raðað var í fjögur
fyrstu sætin, sem sýndi hvernig fólk
átti að kjósa, en þar skipuðu sæti
m.a. fyrrum frægar hetjur í íþróttum
innan félagsins.
Allur þessi áróður varð m.a. til
þess að fyrrverandi bæjarfulltrúi og
núverandi varafulltrúi, sem er kona,
hrundi niður í 8. sæti listans, en hún
hefur unnið Framsóknarfélagi Ak-
ureyrar meira gagn en flestir aðrir
félagsmenn, bæði í bæjarstjórn og á
öðrum sviðum. En engu er eirt af
klíkunni.
Auðvitað tók viðkomandi ekki sæti
á listanum og það gerðu tveir aðrir
líka, sem höfðu gefið kost á sér í
prófkjörinu og höfðu fengið sinn
skerf af áróðrinum. Það skal tekið
fram að báðir þessir aðilar eru hætt-
ir að mæta á fundi og annar þeirra
sagði sig úr Framsóknarfélagi Ak-
ureyrar.
Eru þetta líðandi vinnubrögð? Hér
í bæ er listinn kallaður KA-listinn.
Nýútkomin skýrsla rannsókn-
arnefndar Alþingis fjallar mikið um
siðferði og þó að hún sé óskyld þess-
um skrifum sýnist manni að margir
fleiri mættu líta í eigin barm hvað
siðferði varðar.
Um galopin
prófkjör
Eftir Hjörleif
Hallgríms
Hjörleifur Hallgríms
» ...æ færri mæta
þar á fundi og
flokksbundið fólk
skilar sér jafnvel ekki
að kjörborðinu vegna
þess því líkar ekki
klíkustarfsemin...
Höfundur er framkvæmdastjóri og
fyrrv. ritstjóri.
ÞETTA var yfirskrift átaks gegn
heimilisofbeldi sem sett var í gang
árið 2006. Nú er þörf á því að end-
urvekja þetta átak til að sporna við
kynferðislegu ofbeldi gegn þeim sem
minnst mega sín eða börnunum okk-
ar.
Rannsóknir sem gerðar hafa verið
á Íslandi sýna átakanlegar tölur eða
að 17% barna verða fyrir kynferðis-
legu ofbeldi fyrir 18 ára aldur, ein af
hverjum fimm stelpum og einn af
hverjum 10 strákum. Rannsóknir
sýna ennfremur að karlmenn eru
gerendur í yfir 90% tilfella og að
gerandinn er í flestum tilfellum
tengdur fórnarlambinu fjöl-
skylduböndum. Þetta hefur alltaf
verið feimnismál og erfitt að ræða,
ekki síst hjá okkur karlmönnunum,
þess vegna er mikilvægt að við nýt-
um okkur þetta átak og verðum
meðvitaðir um þetta ofbeldi sem er
að gerast í kringum okkur. Opnum
umræðuna, fræðum okkur í leiðinni
og þá erum við tilbúin að fræða
börnin, það er dýrt fyrir samfélagið
að gera ekki neitt. Stærstur hluti
baráttufólks um kynferðislegt of-
beldi gegn börnum er kvenmenn,
oftar en ekki fórnarlömbin sjálf sem
hafa viljað forða sem flestum börn-
um frá því að þurfa að upplifa þá
ægilegu lífsreynslu sem kynferð-
islegt ofbeldi er.
Aðeins fimm prósent af þeim sem
mættu á ljósagöngu gegn kyn-
bundnu ofbeldi voru karlmenn, af
um það bil 30 leiðbeinendum hjá
samtökunum Blátt áfram eru aðeins
þrír karlmenn. Það er alveg ljóst að
við verðum að taka okkur á, við karl-
menn verðum að stíga fram og sam-
einast baráttukonunum, þetta er far-
aldur og það er okkar samfélagslega
ábyrgð að taka á þessum faraldri.
Það var laglega tekið á svínaflens-
unni á sínum tíma, rokið upp til
handa og fóta og ekkert sparað til
hjá ríki og bæjarfélögum, af hverju
getum við ekki tekið á þessum far-
aldri með slíkum hætti? Við karl-
mennirnir þurfum að leggja karl-
mennskuna til hliðar og fara að tala
opinskátt um kynferðislegt ofbeldi
gegn börnum og leggja þessari bar-
áttu lið.
Að lokum skora ég á önnur bæjar-
félög að taka Akureyrarbæ til fyrir-
myndar og senda fólk á kostnað bæj-
arins á leiðbeinendanámskeið á
vegum Blátt áfram, fræða og opna
þessa umræðu fyrir fólk sem vinnur
með börnum.
HLYNUR BIRGISSON,
forstöðumaður Vinnuskólans á
Akureyri.
ORRI STEFÁNSSON,
umsjónarmaður félagsmiðstöðv-
arinnar Tróju á Akureyri.
Þeir eru báðir leiðbeinendur hjá
samtökunum Blátt áfram.
Frá Hlyni Birgissyni og
Orra Stefánssyni
Karlmenn til ábyrgðar