Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010
✝ Björn Ragn-arsson (Bjössi)
fæddist á Frosta-
stöðum í Blöndu-
hlíð í Skagafirði 1.
október 1943.
Hann lést á heimili
sínu, Miðleiti 5 í
Reykjavík, 9. apríl
2010.
Foreldrar hans
voru Ragnar
Björnsson, f. 25.
mars 1915, d. 28.
maí 1990 og Oddný
Egilsdóttir, f. 8.
apríl 1916, búsett í Garðakoti.
Björn var annar í röðinni af
fimm systkinum. Systkini Björns
eru Egill Ingvi, f. 1939, Pála, f.
1949, Árni, f. 1952 og Pálmi, f.
1957.
Hinn 17. júní 1969 kvæntist
Björn Jónu Bergsdóttur frá
Nautabúi, f. 17. júní 1949 og börn
þeirra eru 1) Bergur Hólm, f. 7.
júní 1968, kvæntur Svanbjörgu
Gróu Hinriksdóttur, f. 19. maí
1973. Börn þeirra eru: Arnór
björg Anna, f. 24. febrúar 1977,
ógift og barnlaus. 5) Hólmfríður,
f. 24. júní 1980, gift Jóni Grétari
Heiðarssyni, f. 29. júlí 1979. Börn
þeirra eru: Jóna Guðbjörg, f. 23.
september 2002, Agnes Brá, f.
28. nóvember 2004 og Birna Rún,
f. 8. janúar 2009.
Björn ólst upp í Garðakoti í
Hjaltadal, hóf ungur búskap að
Ingveldarstöðum þar sem hann
ásamt bústörfum sinnti mjólk-
urflutningum og síðan skóla-
akstri. Síðar fluttist Jóna til hans
þangað sem þau bjuggu saman
þar til þau fluttust að Nautabúi, í
sömu sveit 1974. Árið 1985 flytja
þau á Sauðárkrók þar sem hann
sinnti ýmsum störfum, en lengst
af starfaði hann hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga en síðustu árin á
Króknum vann hann á smurstöð
bílaverkstæðisins. Vorið 1997
var vendipunktur í lífi þeirra
hjóna þegar þau fluttu búferlum
til Reykjavíkur þar sem Björn
tók við húsvarðarstöðu í Miðleiti
5-7 og starfaði fram á síðasta
dag.
Björn verður jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 24.
apríl 2010, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Ingi og Bergrún
Lilja, f. 29. október
1996, Matthildur
Gróa og Hinrik
Jón, f. 9. nóvember
2004. 2) Ragnar, f.
30. apríl 1970,
kvæntur Joanne
David, f. 17. júní
1976. Barn hennar
er Jodyanna Dor-
vil, f. 30. ágúst
2000. Börn Ragn-
ars frá fyrra hjóna-
bandi eru: Andri
Björn, f. 18. sept-
ember 1992, Bjarni Gunnar, f.
11. ágúst 1996, Ísgerður Sandra,
f. 1. febrúar 2000, Ágústa, f. 10.
desember 2001 og hálfsystir
þeirra er Ásta Margét, f. 25.
febrúar 2005. 3) Árni, f. 19. júní
1971, giftur Sigríði Hinriks-
dóttur, f. 26. desember 1970.
Börn þeirra eru: Linda Björk, f.
22. janúar 1993, Sólrún Eva, f.
25. ágúst 1994, Hildur Birta, f.
28. febrúar 1998 og Hinrik Logi,
f. 22. desember 2001. 4) Ingi-
Þitt hjarta geymdi gullið dýra og
sanna,
að gleðja og hjálpa stærst þín unun
var.
Því hlaust þú hylli Guðs og góðra
manna
og göfugt líf þitt fagran ávöxt bar.
Ég blessa nafn þitt blítt í sál mér
geymi,
og bæn til Guðs mín hjartans
kveðja er.
Hann leiði þig í ljóssins friðarheimi,
svo lífið eilíft brosi móti þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín elskandi eiginkona,
Jóna.
Elsku pabbi minn.
Ég gleymi því seint þegar mamma
hringdi í mig og sagði mér að þú vær-
ir dáinn, ég trúði því ekki þá og ég
trúi því ekki enn, að þú værir farinn á
fund æðri máttar. Þið mamma sem
eruð búin að ganga í gegnum svo
margt saman, enda 40 ára hjónaband
að baki og enn fleiri ár síðan þið
kynntust, en þessi ár áttu að verða
miklu fleiri. Ég bíð eftir að þú
þrammir inn á þinn rösklega máta og
segir einn brandara eða svo og síðan
skellum við öll uppúr, eins og þér ein-
um var lagið, að koma öllum í kring-
um þig til að hlæja og brosa. Minn-
ingarnar um þig eru svo margar, en
allar þessar minningar eru hlýjar og
góðar, eins og þér yrði best lýst. Þú
hugsaðir alltaf fyrst um aðra, varst
alltaf boðinn og búinn til að aðstoða
og aldrei heyrði maður þig kvarta.
Ég gleymi aldrei þegar ég var lítil og
fékk að fara með þér á fóðurbílinn og
þú vissir alltaf hvað mér þótti mest
spennandi við þessar ferðir okkar,
það var ekki að fara í sveitirnar, held-
ur þegar þú dróst upp pokann þinn
og við fengum okkur malt í gleri og
prins póló og síðan að sjálfsögðu góða
spjallið sem við áttum í þessum ferð-
um.
Strax og Jón Grétar kom í fjöl-
skylduna tókstu mjög vel á móti hon-
um enda urðum þið miklir vinir og
brölluðuð mikið saman og oftar en
ekki hringdust þið á bara til að
spjalla. Og allar stundirnar okkar í
bústaðnum eru ógleymanlegar, alltaf
hlakkaði þér til að fara í þangað og
brasa. Þú varst mikill náttúrumaður
sem hafðir gaman af öllu sem tengd-
ist henni, og ekki get ég sleppt því að
nefna mannamótin okkar sem gaf
okkur öllum svo mikið.
Krökkunum fannst svo gaman að
því hvað þið mamma voruð virk í
leikjunum með okkur. Þú varst líka
frábær afi og öll barnabörnin þín
hafa misst mikið að missa þig, og ekki
eru mínar dætur undanskildar.. Þær
eru búnar að segja margt fallegt um
þig síðan við sögðum þeim fréttirnar,
t.d. hafði Jóna Guðbjörg áhyggjur af
því hver ætti að halda áfram að segja
henni sögurnar. Stóru stelpurnar
mínar eiga margar minningar um
þig, en því miður á Birna Rún ekki
eins margar, en hún á nafnið þitt í
staðinn. Við fjölskyldan erum búin að
vera svo rík að búa nálægt ykkur
mömmu og fá að njóta ykkar. Þið
voruð alltaf boðin og búin að passa
fyrir okkur og þökkuðuð þið fyrir að
fá að passa, þótt það hafi verið í okk-
ar hlut að þakka fyrir pössunina.
Eins og Agnes Brá sagði, þá varst þú
besti vinur ömmu og munum við fjöl-
skyldan passa hana vel.
Elsku pabbi, takk fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir mig og mína og takk
fyrir allar yndislegu minningarnar,
ég sakna þín.
Þín dóttir,
Hólmfríður.
Elsku hjartans pabbi minn. Ég er
alveg viss um að þú ert jafn undrandi
á þessari snöggu ferð þinni frá okkur
eins og við hin erum. Við erum slegin
og hugsum til þín á hverjum einasta
degi eins og við höfum gert í mörg ár,
en bara á aðeins öðrum nótum núna.
Þegar mamma hringdi í mig föstu-
daginn 9. apríl var þetta það síðasta
sem ég átti von á að hún myndi segja
mér, ég trúði ekki mínum eigin eyr-
um og brunaði eins hratt til ykkar og
ég gat, en það var of seint þú varst
farinn frá okkur og það löngu áður en
mamma kom heim af vaktinni. Við
bara skiljum þetta ekki, þú sem varst
alltaf í fullu fjöri, að vinna öllum
stundum í að smíða gömlu bæina,
þrífa bíla eða bara dúllast við okkur
krakkana. Þú sást aldrei eftir einu
handtaki í okkur sama hversu lítil-
fjörlegt það var.
Alltaf varstu reiðubúinn að aðstoða
alla sem þurftu á því að halda, vini,
kunningja, ættingja og okkur krakk-
ana svo ekki sé minnst á barnabörnin
sem áttu hug þinn allan. Það var
nokkuð oft sem þau komu í ömmu og
afa kot og fengu alla þá umhyggju og
hlýju sem hægt er að hugsa sér.
Missirinn í okkar fjölskyldu er mikill,
hver á núna að benda mér á að núna
eigi að skipta um dekk, smyrja bílinn,
samþykkja hugmyndir mínar eða
bara koma með hugmyndir að gjöfum
til annarra í fjölskyldunni. Þú varst
með allt svona á hreinu, skrifaðir hjá
þér allt sem þú þurftir að minna aðra
á. Að leita í viskubrunninn þinn var
ávallt ómetanlegt, þú kunnir svör við
flestöllu sem við spurðum þig að,
sama hversu kjánalegt það var þá
gerðir þú bara góðlátlegt grín að
manni og þá mundi maður það næst
þegar maður þurfti á því að halda. Það
var alltaf svo gott og gaman að tala við
þig, þú áttir sögur og brandara sem
gaman var að hlusta á og hlæja að.
Það er sama hvar maður er og við
hvern maður talar þá muna allir eftir
þér með gleði, jákvæðni og umhyggju
fyrir öðrum, muna eftir manninum
sem líkaði við alla og brosti til allra.
Kom fram við aðra eins og hann vildi
að aðrir kæmu fram við sig. Það verð-
ur gott að leita í þann brunn og reyna
að gera slíkt hið sama, frábær fyrir-
mynd sem allir litu upp til.
Ég er svo óendalega þakklát fyrir
spjallið okkar á fimmtudagskvöldinu
þar sem við vorum að skeggræða hin
ýmsu málefni og ræða hvað við ætl-
uðum að gera í sumar m.a. mannamót
þar sem við ætluðum að leika okkur
saman. Ég held í þessa minningu
lengi og nú þegar er ég búin að klára
eitt af þessum þremur málum sem þú
sagðir mér að þú ætlaðir að gera með
mér um helgina. Já og þá eru tvö at-
riði eftir og er ég búin að ákveða dag-
setningar í að klára þau mál með að-
stoð frá Árna bróður þínum.
Elsku pabbi minn, þúsund þakkir
fyrir alla aðstoðina, hlýhug í minn
garð og vina minna. Takk fyrir að
vera alltaf þú sjálfur með fallegasta
hjarta í heimi. Ég mun alltaf elska þig.
Þín,
Ingibjörg.
Elsku pabbi minn, mikið var þetta
snöggt. Þegar þú varst hjá okkur
núna um páskana, þá var svo gaman
hjá okkur og þú svo hress og áttir góð-
ar stundir með barnabörnunum þín-
um. Það var líka gott að við náðum að-
eins að grípa í spil sem þér þótti svo
gaman.
Þegar svona atburðir gerast og
maður lítur yfir farinn veg, þá er
huggun í því að hugsa til allra dýr-
mætu minninganna sem við eigum
saman og allar minningar með þér eru
svo góðar minningar. Það er af svo
mörgu að taka en bara sem dæmi um
hvernig þetta var svo oft er þegar við
vorum í sveitinni heima og ég var eitt-
hvað að keyra um á dráttavélinni að
vetri til og þú varst að gefa kindunum.
Það var þannig fyrir neðan fjárhúsin
að það hafði skafið í nokkuð mynd-
arlegan skafl en alveg autt sín hvorum
megin við skaflinn. Hvar keyrir
strákpjakkur dráttarvélinni við svona
aðstæður, nú auðvitað þar sem skafl-
inn er dýpstur. Það gekk nú bara
nokkuð vel þangað til allt varð pikk-
fast og „Deutsinn“ alveg á kviðnum.
Ég byrjaði eitthvað að moka frá og
hugsaði með mér að pabbi yrði nú
ekki ánægður með þetta, autt sín
hvorum megin og dráttarvélin pikk-
föst í miðjum skaflinum. Stuttu síðar
tek ég eftir því að þú komst til mín
með skóflu og fórst síðan að hjálpa
við að losa dráttarvélina. Það gekk
síðan vel og ég var enn að hugsa
hvers vegna þú værir ekki pirraður
við mig að fara í skaflinn þar sem
hann var dýpstur og fór eitthvað að
afsaka mig á þessu. Þá man ég svo
vel að þú sagðir: „Á þínum aldri, ég
hefði gert það sama“. Svona varst þú,
skilningsríkur og tilbúinn til þess að
gera gott úr öllu og sjá björtu hlið-
arnar á tilverunni.
Þú kenndir mér snemma að í lífinu
væru engin vandamál, aðeins verk-
efni til þess að leysa og það lífsvið-
horf hefur reynst mér vel.
Það stefndi allt í það að þið
mamma færuð aftur í fjörðinn fagra,
Skagafjörðinn þar sem rætur ykkar
beggja liggja, en þar verður þú svo
sannarlega í anda. Ég vil þakka þér,
elsku pabbi minn, fyrir öll dýrmætu
árin okkar saman og fyrir allt sem þú
hefur gefið mér og fjölskyldu minni.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Höf. ók.)
Minning þín mun lifa í hjörtum
okkar um ókomna tíð.
Þinn elskandi sonur,
Árni.
Elsku tengdapabbi, hér sit ég tóm
við eldhúsborðið á Laugavöllunum og
skrifa minningarorð til þín. Til þín!
Þú sem varst hér hjá okkur á Egils-
stöðum um páskana, fyrir nokkrum
dögum, svo fullur af gleði, hlýju og
fjöri í faðmi fjölskyldunnar við ferm-
ingu tvíburanna.
Föstudagsmorgunninn 9. apríl
2010 er dagur sem mun ekki líða okk-
ur úr minni. Hér sátum við fjölskyld-
an saman við morgunverðarborðið og
minntumst ástkærs föður míns, vinar
þíns og kollega sem varð bráðkvadd-
ur þennan sama dag fyrir sex árum
síðan langt fyrir aldur fram. Þetta
var svona „afastund“ við ræddum
saman um lífið og tilveruna, m.a. um
gildi minninganna og hve heppin við
séum að eiga ömmurnar tvær og þig,
„afa Bjössa“ að í lífinu. Börnin mín
skokkuðu svo léttstíg í skólann grun-
laus um þau sorglegu tíðindi sem fað-
ir þeirra færði mér skömmu síðar.
Höggið er þungt þegar ástvinir
kveðja svo fyrirvaralaust, engin
kveðjustund eða tækifæri til þess að
þakka liðna tíð og segja þér einu sinni
enn hve dýrmætur þú varst okkur.
Margs er að minnast frá þeim tutt-
ugu árum sem liðin eru síðan við Árni
minn fórum að vera saman. Þið Jóna
voruð ávallt höfðingjar heim að
sækja og tókuð mér strax opnum
örmum. Ég fann það strax að ég var
velkomin á heimili ykkar þegar þú
komst ásamt litlu stúlkunum þínum
Ingu og Hófí keyrandi með kerru aft-
an í bílnum upp á heimavist til þess
að flytja mig og dótið mitt niður á
Grundarstíg 8 í herbergið hans Árna
míns sem þá var í skóla á Akureyri.
Mannkostir þínir voru miklir, svo
hlýr og glaðvær að eðlisfari og vinnu-
samur, vandvirkur, handlaginn og
hjálpsamur varstu með eindæmum.
Þú varst góður faðir, tengdafaðir og
afi, fjölskyldan og vinirnir voru þér
það mikilvægasta í lífinu og það
sýndir þú ævinlega í verki. Mann-
kostir þínir öðluðust enn meiri dýpt
þegar þú varðst afi, því hlutverki
sinntir þú af alúð og ást og kenndir
þú þeim margt sem mun reynast
þeim gott veganesti í framtíðinni.
Orðstír sá sem þú skilur eftir þig hér,
karlinn minn, talar sínu máli um það
hvern mann þú hafðir að geyma. Fyr-
ir þér voru engin vandamál, aðeins
verkefni sem þurfti að leysa.
Elsku Bjössi, ég vil þakka þér fyrir
árin okkar á Króknum, í Reykjavík
og allar gleðistundirnar sem við átt-
um saman í heimsóknum ykkar hing-
að austur, á hinni árlegu fjöl-
skylduhátíð Manna í sælureitnum
ykkar Jónu í Skagafirði og í ógleym-
anlegu ferðinni í Kolbeinsdal sl. sum-
ar. Hjartans þakkir fyrir allt það sem
þú varst okkur og gafst okkur Árna
og börnunum í lífinu. Það er mér
sannur heiður að hafa fengið að
kynnast þér og vera tengdadóttir
þín, ég minnist þín með söknuði og
virðingu.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Blessuð sé ætíð minning þín, Björn
Ragnarsson.
Þín tengdadóttir,
Sigríður.
Elsku afi okkar.
Við söknum þín alveg rosalega
mikið, þú varst alltaf svo góður við
okkur, alltaf svo skemmtilegur og við
erum búin að bralla svo margt
skemmtilegt með þér. Við systur er-
um svo ríkar af minningum um þig.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Á,E.)
Takk fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir okkur og takk fyrir að vera allt-
af svona góður afi.
Við pössum ömmu fyrir þig.
Jóna Guðbjörg, Agnes Brá
og Birna Rún.
Elsku afi, ég og þú höfum átt dýr-
mætar stundir saman. Fyrstu árin
mín, þegar við bjuggum á Króknum,
brösuðum við margt saman, bæði á
Grundarstígnum og úti í bústað þar
sem ég rótaðist í trjá- og blómabeð-
um með þér með bláu hjólbörurnar
mínar, ég var svo stolt að hjálpa afa.
Þú kenndir mér að spila, reyta arfa
og svo átt þú heiðurinn af því að hafa
gefið mér mat í fyrsta sinn, smá skyr-
slettu við eldhúsborðið á Grundar-
stígnum.
Þau voru ófá skiptin sem ég þurfti
að fara til Reykjavíkur þegar ég var í
tannréttingum. Ég man varla ferð
suður án þess að elsku afi minn stæði
við komuhliðið á flugvellinum bros-
andi og tilbúinn til að knúsa mig og
keyra mig um borgina. Það var alltaf
gleði í kringum hann og ef hann gekk
inn í herbergi fékk hann alltaf alla til
að hlæja á örskotsstundu. Ég hef
aldrei verið þekkt fyrir hæð mína og
það var hann afi minn ekki heldur og
stóðum við því ávallt saman þegar
upp komu spakmæli eða skop um hve
lítil við værum.
Afi var alltaf athafnasamur maður,
verkefni sem hann tók sér fyrir hend-
ur voru nánast búin áður en hann
byrjaði á þeim og hann vildi alltaf
hjálpa öllum á sem flesta mögulega
vegu.
Minning mín um þennan hlýja,
glaða og ástríka mann mun lifa með
mér til æviloka, takk fyrir allt. Ég
sakna þín afi.
Linda Björk.
Elsku afi minn. Þú varst hress,
kátur og alltaf glaður, hlýr og góður
afi. Takk fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman. Þegar ég
hugsa til baka um elskulega afa
minn, þá man ég ekki eftir þér öðru-
vísi en alltaf brosandi, jákvæðum og
alltaf eitthvað að gera fyrir aðra. Þú
varst rólegur og ekki voru til nein
heimsins vandamál, þú sagðir alltaf
„þetta reddast“. Ég er þakklát fyrir
allan þann tíma sem við áttum sam-
an. Ég lærði mikið af þér, margt gott
Björn Ragnarsson HINSTA KVEÐJA
Elsku pabbi.
Þú ert rosalega sérstakur
karl og pabbi. Ég var svo glöð
að fá að vera í fjölskyldu þinni.
Þú ert alltaf í hjartanu mínu og
ég gleymi þér aldrei. Takk ynd-
islega fyrir að vera pabbi minn
líka.
Mér þykir leitt að geta ekki
verið hjá þér til að kveðja, en ég
kveiki á kerti fyrir þig og hugur
minn er hjá þér.
Þín
Kristy.