Morgunblaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010
Það er ótrúlegt að
hugsa til þess að nú sé
komið ár síðan við héldum upp á sjö-
tugsafmælið þitt, elsku pabbi. Það er
svo ótrúlega stutt síðan þú varst frísk-
ur og hress, stútfullur af orku og lífs-
gleði, en um leið svo ótrúlega langt.
Þú varst besti pabbi í heimi og við
systkinin vorum fordekruð. Cocoa
Puffs í morgunmat og tyggjóís á
kvöldin. Þú varst alltaf tilbúinn að
stoppa bílinn og leyfa okkur systrun-
um að skipta um stað þegar við vorum
að rífast um hvor fengi að sitja fram í.
Ég hef fyrir mörgum árum misst töl-
una á því hversu oft þú keyrðir og
sóttir mig og þegar við gerðum upp
íbúðina mína þá varstu þar allan þinn
frítíma. Ef ég veiktist þá varstu fyrsti
maðurinn á svæðið og þú hafðir alltaf
tíma til að hlusta á það sem ég var að
semja þá stundina og hafa skoðun á
því.
Þegar Hjörtur Martin fæddist og
við mæðginin fórum að fara í göngu-
túra þá rákumst við nokkrum sinnum
á þig þegar þú varst nýlagður af stað
að heiman að sinna hinum ýmsu er-
indum. Við röltum áfram heim til ykk-
ar mömmu og viti menn, stuttu seinna
komstu alltaf aftur heim, búinn að
ákveða að gera þessa hluti seinna.
Enda varstu uppáhalds manneskjan
hans Hjartar Martins á meðan þú
Marteinn H.
Friðriksson
✝ Marteinn H. Frið-riksson (f. Fritz
Martin Hunger) fædd-
ist í Meissen í Þýska-
landi 24. apríl 1939.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspítalans
í Kópavogi 10. janúar
2010.
Útför Marteins fór
fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík 22.
janúar 2010.
lifðir og fyrsta mann-
eskjan sem fékk hann
til að hlæja.
Þú hafðir alltaf tíma
fyrir börnin þín og við
fundum það skýrt að
við vorum alltaf í fyrsta
sæti. Sama hversu
mikið var að gera og
það verður að viður-
kennast að oft var ansi
mikið að gera. Aldrei
varst þú of þreyttur til
að sinna okkur og þeg-
ar ég horfi til baka þá
skil ég ekki hvar þú
fékkst alla þessa orku.
Til hamingju með afmælið, elsku
pabbi minn. Vona að Guð haldi fyrir
þig fallega veislu í tilefni dagsins. Ég
elska þig.
Þín
Þóra.
Elsku afi.
Þú varst yndislegur. Það er langt
síðan ég hélt upp á afmælið þitt með
þér því að ég bjó í Svíþjóð í 2 ár og
þegar þú áttir afmæli þá var páskafrí-
ið alltaf nýbúið. En loksins þegar ég
er flutt aftur til Íslands þá ert þú far-
inn. Þetta er skrítin tilhugsun og
núna líður mér eins og þú sért í út-
löndum og komir bráðum aftur. Ég
veit samt að það gerir þú ekki, því
miður.
Þú varst frábær afi og mjög góður
við mig. Það var sko alltaf til Engja-
þykkni hjá ykkur ömmu handa mér
og ef það var ekki til þá fórstu og
keyptir það fyrir mig. Og í þessi örfáu
skipti sem amma reyndi að skamma
mig þá skammaðir þú hana.
Ég elska þig, afi minn, og til ham-
ingju með afmælið.
Þín afastelpa,
Birna Rún.
✝ Sigurjón Árnasonfæddist í Sauð-
eyjum á Breiðafirði
24. apríl 1923. Hann
lést á Landspítalanum
15. apríl 2010. Sig-
urjón var sonur
hjónanna Guðbjargar
Jónsdóttur, f. 23.
september 1896, d.
16. september 1971,
og Árna Jóns Ein-
arssonar, f. 3. apríl
1893, d. 15 nóvember
1980. Sigurjón var
þriðji í röð fimm
systkina en þau eru: Bergþóra, f.
12. mars 1918, d. 8. september 2005,
Anna Aðalheiður, f. 11. maí 1920, d.
24. mars 1959, Elísabet Matthildur,
f. 8. júní 1924, og Hafliði Arnberg, f.
16. október 1934, d. 26. maí 1977.
Sigurjón kvæntist hinn 1. janúar
1956 Svanhvíti Bjarnadóttur, f. 8.
desember 1929. Foreldrar hennar
voru Sigríður Valdís Elíasdóttir, f.
16. september 1909, d. 2. ágúst 1994
og Bjarni Þórarinn Ólafsson, f. 7.
október 1905, d. 27. febrúar 1998.
Sigurjón og Svanhvít áttu heima í
Neðri-Rauðsdal til ársins 1956 en
hófu þá búskap sinn á Patreksfirði
og hafa búið þar síðan.
apríl 1964. Þeirra börn: a) Berglind
Eir, f. 1986. Berglind á eitt barn og
sambýlismaður hennar er Bjarni
Sigmar Guðnason, f. 1983. b) Guð-
bjartur Gísli, f. 1988. c) Jón Hákon,
f. 2000. 5) Sigurður Valgeir, f. 15.
maí 1968. Eiginkona hans er Björg
Ólöf Bragadóttir, f. 4. febrúar 1973.
Þeirra börn: a) Sigþór Örn, f. 1999.
b) Sandra Dögg, f. 2003.
Sigurjón er síðasta barn sem fætt
er í Sauðeyjum. Hann ólst fyrstu ár-
in upp í Sauðeyjum, síðan Hergilsey
á Breiðafirði. Frá Hergilsey fluttu
foreldrar hans til Flateyjar á
Breiðafirði þar sem hann bjó uns
hann flutti til Neðri-Rauðsdals á
Barðaströnd. Í Flatey stundaði
hann bátasmíðar og sjómennsku
ásamt föður sínum og fleirum. Sig-
urjón var annálaður hagleiksmaður
á nýsmíði og viðhald, hvort sem um
tré eða járn var að ræða. Til dæmis
eru bátar smíðaðir af honum fyrir
miðja síðustu öld enn í notkun. Á
tímabili starfaði hann í Bátalóni í
Hafnarfirði. Eftir að Sigurjón og
Svanhvít fluttu á Patreksfjörð
gerðist hann einn af stofnfélögum í
Vélsmiðjunni Loga hf. og starfaði
þar í mörg ár. Um tíma starfaði
hann við Mjólkursamlagið á Pat-
reksfirði. Síðustu starfsárin vann
hann hjá Orkubúi Vestfjarða á Pat-
reksfirði.
Útför Sigurjóns fer fram frá Pat-
reksfjarðarkirkju, í dag, 24. apríl
2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Börn Sigurjóns og
Svanhvítar eru: 1)
Bjarni Heiðar, f. 8.
mars 1952. Eiginkona
hans er Ólöf Henrí-
etta Aðalsteinsdóttir,
f. 10. ágúst 1956.
Þeirra börn: a) Svan-
hvít Jóna, f. 1976.
Svanhvít Jóna á tvö
börn, eiginmaður
hennar er Christian
Reith. b) Hilmir Þór,
f. 1979. Hilmir Þór á 3
börn, eiginkona hans
er Karen Pálsdóttir f.
1979. c) Bernharður, f. 1988. d) Elí-
as Kjartan, f. 1990. e) Hafliði Arnar,
f. 1993. 2) Einar Árni, f. 12. janúar
1958. Eiginkona hans, Unnur Erna
Óskarsdóttir, f. 22. janúar 1960.
Þau slitu samvistum. Þeirra börn:
a) Sigurjón Grétar, f. 1978. Sig-
urjón Grétar á 2 börn. b) Elma Sif, f.
1986. Sambýlismaður hennar er
Árni Gunnar Ásgeirsson, f. 1982. c)
Árni Jón, f. 1992. Börn Einars Árna
með Wanjiru Wahome: c) Samúel
Wahome, f. 2007. d) Elín Njoki, f.
2008. 3) Stúlka, f. 8. maí 1963, d.
sama dag. 4) Sigfríður Guðbjörg, f.
12. desember 1964. Eiginmaður
hennar er Egill Össurarson, f. 16.
Í dag er til moldar borinn Sigurjón
Árnason, tengdafaðir minn og einn
af mínum hjartfólgnustu vinum.
Það var sjálfsagt ekki björgulegur
eða traustvekjandi náungi sem vor-
dag einn, fyrir löngu síðan, stóð á
tröppunum hjá Sigurjóni, búinn að
herða upp hugann til að spyrja eftir
dóttur hans. Bara orðið eitt og sér;
„tilvonandi tengdapabbi“ hefur, eins
og menn vita, ætíð hljómað frekar
ábúðarmikið, svo maður ekki segi
ógnvekjandi. Enda var horkranginn
veginn eftir glöggu auga, en viti
menn. Á þeirri stundu og ætíð síðan
var engu nema hlýju og væntum-
þykju að mæta hjá Sigurjóni og öllu
hans fólki.
Fljótt myndaðist vinátta og traust
milli okkar, er hélst allar götur síðan.
Fyrir það verð ég alla tíð þakklátur.
Ófá eru handtökin sem hann átti,
ekki bara kringum bílaútgerð minn-
ar fjölskyldu, heldur við svo ótal-
margt annað. Ekki taldi hann til
dæmis eftir sér, þegar tengdasonur-
inn hafði álpast á ljósastaur við bíla-
stæðið hans, að eyða mörgum dögum
í að gera við bifreiðina. Með viðgerð-
inni fylgdu glettnar glósur um at-
hygli bílstjórans í viðureigninni við
ljósastaurinn, enda kímnigáfa við-
gerðarmannsins í góðu lagi. Mörgum
manninum hefur Sigurjón bjargað
úr vanda varðandi viðgerðir á bílum
og hverskonar hlutum, stundum gert
við úti í móa eða við aðrar enn furðu-
legri aðstæður. Gjarnan þurfti þá að
byrja á að smíða verkfærin, en það
vafðist ekkert fyrir honum. Engan
mann hef ég vitað úrræðabetri við
slíka hluti. Orðið „ómögulegt“ var
ekki til í orðabók Sigurjóns Árnason-
ar.
Engan mann hef ég vitað duglegri
við að halda utan um fjölskyldu sína.
Alltaf var hann í daglegu sambandi
við börnin sín og barnabörn. Þó þau
hafi tíðum búið vítt og breitt um
landið, stundum jafnvel erlendis,
vildi hann vita hvað þeim liði. Hann
var sannur fjölskyldufaðir í þessu
sem öðru.
Sigurjón hafði alla tíð brennandi
áhuga á öllum veiðiskap, sér í lagi
fiskveiðum og sjósókn, enda allt sem
viðkom bátum hugleikið honum. Allt
fram á síðasta dag spurði hann frétta
af aflabrögðum báta á Patreksfirði
og víðar.
Nú þegar þú, kæri vinur, hverfur
til betri heima, fylgja þér kærar
minningar allra ástvina þinna og
þeirra sem þú kynntist á lífsleiðinni.
Þær minningar eru allar bjartar. Við
sjáumst svo þegar kallið mitt kemur.
Egill Össurarson.
Ótal minningar hafa streymt um
hugann þessa síðustu daga. Þeir
voru ófáir dagarnir sem ég eyddi
með ykkur ömmu, og öðrum ættingj-
um, á Bergi í Flatey og ég hugsa til
þeirra með hlýju um leið og ég minn-
ist þín, elsku stóri sterki afi minn.
Þaðan er mér það einna minnisstæð-
ast þegar ég sat oft á skörinni hjá
þér uppi á lofti og hlustaði hugfangin
á sögurnar þínar, þú kunnir þær ansi
margar en uppáhaldið mitt var sag-
an um stóra hvalinn sem hafði ein-
hverju sinni verið að hrekkja þig úti
á Breiðafirðinum. Það eiga sko ekki
allir afa sem hafa lent í svona stór-
ræðum.
Þú áttir ávallt til góð ráð og ég veit
að þér fannst ég ekki alltaf velja það
rétta, en ég gleymi aldrei deginum
seinnipart síðastliðins sumars þegar
ég kynnti ykkur ömmu fyrir Bjarna
Sigmari. þið tókuð strax ástfóstri við
hann og þú sagðir mér oftar en einu
sinni hvað þetta væri góður strákur
og hve þér þætti vænt um hann. „Og
því máttu alveg skila til hans frá
mér“ bættirðu við.
Elsku afi, við þökkum þér sam-
fylgdina öll þessi góðu ár og kveðjum
þig með þeirri vissu að þú vakir yfir
okkur sem eftirlifum þig.
Berglind Eir, Bjarni Sigmar
og Einar Össur.
Sigurjón Árnason
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
INGVARS ÞORGILSSONAR
fyrrverandi flugstjóra,
Vogatungu 19,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópavogi fyrir góða umönnun og hlýju.
Guð blessi ykkur öll.
Inga Thorlacius,
Ágústína Ingvarsdóttir, Kristinn Sigtryggsson,
Haraldur Ingvarsson, Nanna K. Árnadóttir,
Þorgils Ingvarsson, Hólmfríður Benediktsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför okkar
ástkæru móður, tengdamóður, systur, ömmu og
langömmu,
ÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Hvammstanga,
síðast til heimilis í Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík.
Guðmundur Ingólfsson,
Kolbrún Ingólfsdóttir og fjölskylda,
Þorbjörg Guðmundsdóttir,
Elínborg Guðmundsdóttir.
✝
Sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi,
TRYGGVI RAGNARSSON,
Gránufélagsgötu 7,
Akureyri,
er látinn.
Útför hans fór fram í kyrrþey.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Stefán Ragnarsson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU SIGURÐARDÓTTUR,
Egg,
Skagafirði.
Starfsfólki deildar III og dagvistunar á Dvalarheimili
aldraðra á Sauðárkróki eru færðar þakkir fyrir góða
umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn, ömmu- og langömmubörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt
er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletr-
aður.
Minningargreinar