Morgunblaðið - 24.04.2010, Síða 36
36 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010
✝ Árdís Olga Stein-grímsdóttir fædd-
ist á Blönduósi 16.
september 1922. Hún
lést á Landspít-
alanum Fossvogi hinn
15. apríl síðastliðinn.
Foreldrar Árdísar
Olgu voru Stein-
grímur Árni Björn
Davíðsson, skólastjóri
á Blönduósi, fæddur á
Neðri-Mýrum, Engi-
hlíðarhreppi, Austur-
Húnavatnssýslu 17.
nóvember 1891 og
lést 9. október 1981 og kona hans
Helga Dýrleif Jónsdóttir, fædd á
Gunnfríðarstöðum, Langadal,
Austur-Húnavatnssýslu 8. desem-
ber 1895 og lést hinn 7. júní 1995.
Árdís Olga var þriðja elst af tólf
dætur, þær Helgu Sigríði og Elísu
Sigrúnu. 1) Helga er fædd 2. des-
ember 1945, gift Sigurði G. Guð-
mundssyni f. 1941. Þau eiga fjögur
börn: a) Árdís Olga, f. 1964, gift Ár-
manni Ólafssyni og þau eiga tvö
börn, Sigurð Reyni og Laufeyju
Rut. b) Elín Ragna, f. 1967, gift Víði
Stefánssyni og eiga þau þrjú börn
þau Helgu Sif, Stefán Má og Gígju
Sif. c) Guðmundur Elías, f. 1971,
hann á þrjú börn; Söru Dýrleif,
Krumma Thor og Parísi Freyju. d)
Ragnar, f. 1980, trúlofaður Þórunni
Hyrnu Víkingsdóttur og eiga þau
eitt barn, Bergþór Flóka. 2) Elísa
er fædd 9. mars 1962, gift Friðriki
Guðnasyni f. 1959. Börn þeirra eru
tvö; a) Daníel Þór, og b) Árdís Eva.
Olga eins og hún var alltaf kölluð
ólst upp á Blönduósi og gekk þar í
barnaskólann. Áður en hún flutti til
Reykjavíkur um tvítugt var hún í
Kvennaskólanum á Blönduósi. Olga
starfaði í mörg ár hjá Iðnskólanum
í Reykjavík og jafnframt til fjölda
ára hjá Fönn.
Útför Olgu fór fram í Seljakirkju
23. apríl 2010.
systkinum, sem eru
Anna, f. 1919, d. 1993,
Svava f. 1921, Hólm-
steinn, f. 1923, Hauk-
ur, f. 1925, Fjóla, f.
1927, d. 1993, Jón-
inna, f. 1928, Bryn-
leifur, f. 1929, Sigþór,
f. 1931, Davíð, f. 1932,
Pálmi, f. 1934, d.
2001, og Sigurgeir, f.
1938.
Árdís Olga giftist
Ragnari Elíassyni
hinn 11. júní 1945.
Foreldrar Ragnars
voru Elías Einarsson og Sigríður
Vigfúsdóttir. Olga og Ragnar
bjuggu í Reykjavík frá 1944, lengst
af í Njörvasundi og á Langholts-
vegi en síðast í Árskógum 8,
Reykjavík. Þau eignuðust tvær
Nú er dagur að kveldi kominn á
langri og viðburðaríkri ævi
tengdamóður minnar. Hún kvaddi
sátt við lífið og tilveruna. Ég
þakka henni fyrir okkar ánægju-
legu stundir í gegnum tíðina.
Ég fékk það tækifæri að fá að
ferðast með henni í góðar fjöl-
skylduferðir jafnt innanlands sem
utan. Sérstaklega er ég þakklátur
fyrir ferðina okkar á Blönduós
fyrir tveimur árum ásamt bróður
hennar.
Síðasta árið var henni sérstak-
lega erfitt sökum veikinda en
aldrei lét hún bilbug á sér finna
og stundaði tíðar heimsóknir til
eiginmanns síns í Skógarbæ. Síð-
ustu vikurnar naut hún frábærrar
umönnunar starfsfólks Landspít-
alans í Fossvogi og návistar ást-
vina sinna sem dvöldu við sjúkra-
beð hennar.
Elsku Olga, takk fyrir sam-
fylgdina. Blessuð sé minning þín.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Þinn tengdasonur,
Sigurður Guðmundsson.
Fallin er frá elskuleg amma
okkar. Hún kvaddi okkur sátt við
lífið og fannst Guð hafa verið góð-
ur við sig. Hún bar sig ávallt vel
og með mikilli reisn óháð veik-
indum og amstri dagsins. Dugn-
aður og umhyggja gagnvart öðr-
um voru hennar einkunnarorð.
Eljusemi hennar kom víða fram,
ekki síst í vinnu og við heim-
ilisstörf. Hún hugsaði vel um
heimilið og var alltaf að.
Heimilið og garðurinn var
hennar líf og yndi, sérstaklega
þegar hún bjó á Langholtsvegi.
Hún hafði einstaklega gaman af
fallegum húsmunum og þá átti
hún svo sannarlega. Ávallt bar
hún hag annarra fyrir brjósti og
fylgdist vel með okkur barna-
börnunum og langömmubörnum
sínum. Hún var með alla afmæl-
isdaga á hreinu og var sú fyrsta
til að skila inn afmæliskveðju.
Minningar okkar frá ferðinni
norður á Blönduós í tilefni af 80
ára afmæli hennar eru afar
skemmtilegar og ómetanlegar.
Þar gafst okkur færi á að kynnast
æskuslóðum hennar og hún veitti
okkur innsýn í sín uppvaxtarár.
Sögur frá uppvaxtarheimilinu sem
hún sagði okkur frá þegar við
vorum þar stödd eru okkur mjög
dýrmætar. Þessi ferð gaf okkur
betri hugmynd um líf þeirra
systkina á Blönduósi. Það hefur
nú sjálfsagt ekki alltaf reynst
dans á rósum.
Þegar afi fór yfir á Skógarbæ
reyndist það ömmu erfitt þar sem
hún hafði hugsað svo mikið og vel
um hann síðustu árin. Eftir það
voru tíðar heimsóknir til afa og á
því voru aldrei gerðar undantekn-
ingar sama hvernig hún var til
heilsunnar.
Elsku amma, við þökkum þér
kærlega fyrir hversu vel þú kvadd-
ir okkur á spítalanum.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju
sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn
stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum
hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Elsku amma, við þökkum þér
fyrir öll árin og umhyggju þína.
Hvíl í friði.
Þín barnabörn,
Olga, Elín, Guðmundur
og Ragnar.
Elsku amma okkar.
Við systkinin ætlum að minnast
elskulegrar ömmu okkar Olgu.
Amma var virkilega góð kona og
var tilbúin að gera allt fyrir alla.
Hún var mjög dugleg og hugsaði
rosalega vel um afa og heimilið.
Hjá henni var allt fínt, hlýlegt og
snyrtilegt. Sérstaklega motturnar
á gólfinu og litla bleika krúttlega
baðherbergið.
Þú varst einstök amma og alltaf
góð við okkur. Við munum aldrei
gleyma því þegar þú passaðir okk-
ur í Árskógum. Þá spiluðum við ól-
sen ólsen á kvöldin og borðuðum
ostapopp. Svo þegar við vöknuðum
komstu alltaf með ristað brauð
með marmelaði og osti og mjólk að
drekka þegar við horfðum á Carto-
on Network.
Þegar við komum í heimsókn
varstu alltaf búin að baka eitthvað
handa okkur.
Þú og afi komuð öll jól til okkar
og munu næstu jól vera mjög tóm-
leg án þín.
Hafðu engar áhyggjur af afa, við
munum sjá vel um hann.
Við værum ekki jafn góð börn og
þú sagðir okkur vera, ef þú hefðir
ekki verið amma okkar.
Þín verður sárt saknað.
Við kveðjum okkar yndislegu
ömmu með þessari bæn sem hún
kenndi okkur.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín barnabörn,
Árdís Eva og Daníel Þór.
Elsku amma Olga.
Það er svo skrítið að hugsa um
það að þú sért farin frá okkur.
Okkur finnst það vera svo óraun-
verulegt. Við eigum svo margar
góðar minningar um þig, sem eiga
alltaf eftir að lifa í hjörtum okkar.
Þú varst svo yndisleg, það var ekki
hægt að biðja um betri langömmu.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn.)
Við söknum þín svo mikið, elsku
langamma okkar. Guð verði með
þér.
Þín langömmubörn,
Helga Sif , Stefán Már og
Gígja Sif.
Saga mín og saga Olgu systur
var samofin á fyrstu árum ævi
minnar. Sá vefur hafur nú rofnað.
Olga fæddist á Blönduósi, í
torfbæ, sem bar nafnið Brautar-
holt. Þar leit ég líka dagsins ljós
sjö árum síðar. Við fluttumst úr
þessum rammíslensku húsakynn-
um áður en ég man vel eftir mér.
Í Pálmalundi bjuggum við svo
fram að seinni heimsstyrjöld. Þar
stækkaði fjölskyldan enn. Þar
fæddust foreldrum okkar fjórir
drengir. Lifandi systkinahópurinn
fyllti þá tylftina. Það var mann-
margt í Pálmalundi. Móðir okkar
þurfti því á hjálp að halda. Eldri
systurnar voru nærtækar til að
hyggja að þeim sem óvitar voru.
Við sem vorum að spretta úr grasi
nutum því umhyggju og tilsagnar
þeirra.
Olgu á ég margt að þakka frá
þessum barnsárum mínum. Hún
þvoði mér og klæddi og seinna var
hún hluti eldhússins. Það var ekki
ónýtt að eiga hauk í horni þegar
maturinn var annars vegar. Hún
geymdi stundum fyrir mig matinn
þegar ég gleymdi mér. „Binni
minn, þú kemur svo á réttum tíma
næst,“ aldrei eitt styggðaryrði.
Mér voru því allir vegir færir.
Framlag hennar til fjölskyld-
unnar á þessum árum var ómet-
anlegt. Mér fannst stundum eins
og hún væri í hlutverki öskubusku.
Svo fluttist hún suður eins og það
var kallað að flytjast til Reykjavík-
ur. Þar fann hún sér mann, Ragn-
ar Elíasson bifreiðastjóra, og
stofnaði sitt eigið heimili. Ég kom
oft á heimili Olgu og Ragnars. Þar
var myndalega um híbýli gengið.
Hún kunni svo sannarlega til
verka.
Nokkru eftir að Olga giftist
veiktist Ragnar af lömunarveiki og
lá á gamla sóttvarnarhúsinu.
Þangað kom ég með Olgu. Ragnar
var þá allur að hressast og náði
furðu góðri heilsu og varð vinnu-
fær. Hann lifir konu sína í hárri
elli.
Ég kveð Olgu systur, þessa víl-
lausu og góðu konu sem ég á svo
margt að þakka.
Hvíli hún í friði.
Kveðja fylgir til Ragnars, dætr-
anna og venslafólks.
Brynleifur Steingrímsson.
Árdís Olga
Steingrímsdóttir
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
BJÖRNS ÁRNASONAR
kennara,
Bakkavör 14,
Seltjarnarnesi.
Þökkum innilega þeim sem önnuðust hann af hlýju
og fagmennsku í veikindunum. Starfsfólki líknar-
deildar Landspítalans í Kópavogi sendum við sérstakar þakkir fyrir
einstaka umhyggju.
Guðrún Haraldsdóttir,
Haraldur, Arnar og Brynjar Björnssynir,
Árni Jónsson, Gisela Schulze,
Ingunn G. Árnadóttir, Stefán Pétursson,
Ingveldur Dagbjartsdóttir,
Magnús Haraldsson, Sigríður Gunnarsdóttir,
Kristín Haraldsdóttir, Haukur Örvar Pálmason.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vegna andláts og jarðarfarar
ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
INGIBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Auðunarstöðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands, Hvammstanga.
Kristín Jóhannesdóttir,
Margrét Jóhannesdóttir, Guðmundur Gíslason,
Guðmundur Jóhannesson, Kristín Björk Guðmundsdóttir,
Ólöf Jóhannesdóttir
og fjölskyldur.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
UNNAR HELGU MÖLLER,
Siglufirði,
er lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar fimmtu-
daginn 8. apríl.
Björgvin Jónsson, Halldóra Pétursdóttir,
Steinunn Jónsdóttir, Freyr Sigurðsson,
Brynja Jónsdóttir, Hallgrímur Jónsson,
Salbjörg Jónsdóttir, Sigurður Vilmundsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður og afa,
FINNBOGA K. EYJÓLFSSONAR,
Sóltúni 13,
Reykjavík,
og heiðruðu minningu hans.
Guðrún Jónsdóttir,
Katrín Finnbogadóttir, Oddur Eiríksson,
Guðrún Oddsdóttir,
Ragnar Finnbogason, Lingdi Shao,
Ósk Ragnarsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir fallegar kveðjur og einlægan
hlýhug sem var okkur mikil huggun og líkn við
fráfall okkar elskaða eiginmanns og fjölskylduföður,
MARTEINS HUNGER FRIÐRIKSSONAR
dómorganista,
f. 24.04.1939 – d. 10.01.2010.
Hugur okkar er hjá öllu því góða fólki á Land-
spítalanum, í heimahlynningunni og á líknardeildinni
í Kópavogi sem annaðist hann af nærgætni og kærleika.
Sérstaklega þökkum við vinum okkar í Dómkórnum og Dómkirkjunni og
tónlistarfólkinu sem heiðraði minningu hans á útfarardegi.
Þórunn Björnsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörnin.