Morgunblaðið - 24.04.2010, Side 41
Dagbók 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ODDI, ERTU TIL Í AÐ
STANDA EKKI SVONA
NÁLÆGT MÉR?
ÞÚ ÞARFT
NÝJA SÝN Á
LÍFIÐ, KALLI
ÉG REYNDI ÞAÐ... EN ÞAÐ VORU ALLT OF
MARGAR PRENTVILLUR
REYNDU AÐ LÍTA Á LÍFIÐ
SEM BÓK OG HVERN DAG
SEM NÝJA BLAÐSÍÐU
AFI VILL AÐ ÞÚ KOMIR
HEIM MEÐ FÍNAN, FRANSKAN
RAKSPÍRA HANDA HONUM
HANN VILL LÍKA AÐ ÞÚ KOMIR MEÐ FÍNA,
FRANSKA DÖMU TIL AÐ RAKA HANNPSST...PSST... PSST...
PSST...
PSST... PSST...
GRÍMUR, MANSTU EKKI
EFTIR VINI MÍNUM,
ELLA LETIDÝRI?
AUÐVITAÐ!
RÉTTU MÉR
SPAÐANN!
ÉG GET EKKI HALDIÐ
HÖNDINNI LENGUR!
BARA SMÁSTUND
Í VIÐBÓT. HANN
ER BYRJAÐUR AÐ
LYFTA HÖNDINNI
HÆ,
ADDA
HÆ, MAMMA!
HVERNIG GENGUR
KOSNINGA-
BARÁTTAN?
BARA
VEL!
NÚNA FER
ALVARAN
AÐ BYRJA
ÉG VAR
AÐ SPÁ Í
AÐ BJÓÐA
MIG FRAM
TIL AÐ
AÐSTOÐA
FRÁBÆRT! ÖLL HJÁLP
ER VEL ÞEGIN. HÉR ER
ALLTAF NÓG AÐ GERA,
ÞANNIG AÐ VIÐ FINNUM
EITTHVAÐ HANDA ÞÉR
ÉG HEF SAMT EKKI MJÖG
MIKINN TÍMA
HVAÐ EF ÉG SET
ÞIG BARA Á AÐRA
HVERJA MÍNÚTU
ÉG ER
EKKI
VISS
HVORT STEIKIN ÞÍN
SÉ OF LÍTIÐ STEIKT
EÐA EKKI?
NEI! ERTU Í ALVÖRUNNI HRIFIN
AF MÉR EÐA ERTU BARA AÐ LEIKA
ÞÉR AÐ TILFINNINGUM MÍNUM?
ÞÚ ERT ÓTRÚLEGUR, JONAH!
ÉG HEYRÐI FRASANN „LEIKA
ÞÉR AÐ TILFINNINGUM MÍNUM“
SÍÐAST Í LÉLEGRI KVIKMYND
Bjarni Bene-
diktsson
ÉG ber mikla virðingu
fyrir Bjarna Bene-
diktssyni alþingis-
manni, hann heilsar
fólki þegar hann hittir
það á götu. Ég hef hitt
marga alþingismenn
aðra, en þeir heilsa
ekki.
Reykvíkingur.
Endurnýjun
EINN útrásarvíking-
urinn segir í blaða-
grein, sem birtist
sumardaginn fyrsta, að hann hafi
villst af leið. Því miður var ástandið í
siðferðismálum orðið svo, að menn
treystu orðið alfarið á kaupmátt og
lögmál hagkerfisins í staðinn fyrir
hinn æðri mátt, sem stjórnar veröld-
inni og boðorð hans og bönn.
Mig langar til að benda á orð Páls
postula í bréfi hans til
safnaðarins í Rómar-
veldi, sem löngu er fall-
ið eins og íslenska fjár-
málaveldið, þó að
kristindómurinn standi
enn. Í bréfi sínu sagði
Páll m.a.: „Hegðið yður
eigi eftir öld þessari,
heldur takið hátta-
skipti með endurnýj-
ung hugarfarsins, svo
að þér fáið að reyna,
hver sé vilji Guðs, hið
góða, fagra og full-
komna.“ (Rómverja-
bréfið 12:2)
Ef Íslendingar
temdu sé þetta gamla
og góða heilræði gætum við búist við
farsælla samfélagi og betri tímum
fyrir land og þjóð.
Einar Ingvi Magnússon.
Ást er…
… stundum vegur sem
leiðir til einskis.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Sigmundur Benediktsson ortibrag undir yfirskriftinni „Á
sumardaginn fyrsta 2010“:
Glóey brosir, geislarak
grámans vosi eyðir.
Vetur losar veðratak,
vorið flosið breiðir.
Veitir mesta vonaglóð
vor og best hér skrýðir.
Syngja hresstir sigurljóð
sumargestir fríðir.
Viður brumar vaxtar til,
vel sig plumar haginn.
Fljóð og gumar fyllast yl
fyrsta sumardaginn.
Lækir sindra, kliða kátt,
klakabinding lauga.
Skýjamyndir skoðar þrátt
skarpsýnt lindarauga.
Kyrrist ægir, brosa ból,
blóm úr gægjast foldu.
Vinda lægir, vermir sól,
vakna fræ í moldu.
Heimi gagnist hlýrri tíð,
hugir magnast þori.
Gleðin hagnast hrein og blíð,
hjörtun fagna vori.
Sigmundur lét þó fylgja kveðj-
unni, að sér hefði verið tregt um að
yrkja þessar vísur, því hugurinn
flögraði sífellt að öskufallssvæðinu
og þar hafi hann séð aðra og dekkri
mynd: „Megi allt hið góða blessa
þar jörð, fólk og fénað.“
Arnmundur Gíslason (1890-1978)
var einnig til húsa á Akranesi og
orti fallega til vinar síns:
Bægist frá þér böl og stríð.
Blómgist æ þinn hagur.
Öll þín verði ævitíð
eins og sumardagur.
Skáldkonan Margrét Jónsdóttir
orti á sínum tíma:
Brosa fjöllin bláum kjól.
Blikar særinn fagur.
Gefðu öllum ást og sól
ungi sumardagur.
Loks Sigurpáll Hallgrímsson á
Dalvík:
Eftir norðan storm og steyt
stórum batnar hagur.
Fögur gefur fyrirheit
1. sumardagur.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af sumardeginum fyrsta
Einar Ólafsson og Þorsteinn
Þorsteinsson unnu keppnina
um Súgfirðingaskálina
Einar Ólafsson og Þorsteinn Þor-
steinsson sigruðu í keppni um Súg-
firðingaskálina en naumt var það í
lokin. Staða þeirra félaga var vænleg
fyrir síðustu lotu en risaskor hjá
Gróu Guðnadóttur og Unnari Atla
Guðmundssyni feykti þeim næstum
af toppnum. Því voru grafin ný nöfn
á skálina
Keppnin var í 5 lotum og giltu
fjögur beztu skorin til verðlauna.
Alls spiluðu 16 pör í mótinu.
Lokastaðan eftir 5 mót.
Einar Ólafsson – Þorsteinn Þorsteinss. 802
Gróa Guðnadóttir – Guðrún K Jóh.
/ Unnar Atli Guðmss. 800
Jón Óskar Carlsson – Karl Jónsson 792
Guðbj. Björnss. – Steinþór Benediktss. 779
Hlynur Antonsson – Auðunn Guðmss. 773
Úrslit í lokalotunni
Gróa Guðnad. – Unnar Atli Guðmss. 227
Guðbj. Björnss. – Steinþór Benediktss. 220
Jón Óskar Carlss. – Karl Jónsson 201
Ásgeir Sölvason – Sölvi Ásgeirss. 198
Í mótslok afhenti formaður Súg-
firðingafélgsins, Atli Ómarsson, sig-
urvegurum Súgfirðingaskálina og
þremur eftstu pörum verðlaun til
minningar um góðan árangur í
skemmtilegu móti.
Spilastjóri var Sigurpáll Ingi-
bergsson
Sigurvegarar frá upphafi
2010 Einar Ólafss. –
Þorsteinn Þorsteinss.
2009 Gróa Guðnad. –
Guðrún K. Jóhannesd.
2008 Arnar Barðas. – Hlynur Antonsson
2007 Arnar Barðas. – Hlynur Antonsson
2006 Karl Bjarnason – Valdimar Ólafsson
2005 Ásgeir Sölvason –
Guðni Ólafsson
2004 Gróa Guðnad. –
Guðrún K. Jóhannesd.
2003 Guðbj. Björnss. –
Steinþór Benediktss.
Bridsfélag Hreyfils
Önnur umferðin í tvímenningnum var
spiluð sl. mánudag. Sigurður Ólafsson og
Birgir Sigurðsson skoruðu best eða 56,5. Jón
Sigtryggsson og Birgir Kjartansson voru
með 56% og Þorsteinn Héðinsson og María
Birna Gunnarsdóttir með 55,6%.
Lokaumferðin verður spiluð nk. mánu-
dagskvöld í Hreyfilshúsinu kl. 19.30.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði,
Stangarhyl 4, fimmtudaginn 15. apríl. Spilað
var á 11 borðum. Meðalskor: 216 stig.
Árangur N - S:
Jón Þór Karlsson - Jón H. Magnúss. 249
Jens Karlsson - Auðunn Guðmss. 241
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 231
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 229
Árangur A - V:
Magnús Jónsson - Gunnar Jónsson 257
Helgi Hallgrímss. - Jón Hallgrímss. 257
Jóhannes Guðmannss. -
Björn Svavarss. 234
Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 224
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is