Morgunblaðið - 24.04.2010, Síða 52
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 114. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Kann að segja Eyjafjallajökull
2. Höskuldur H. Ólafsson ráðinn
3. Stúlka sem lýst var eftir fundin
4. Ekkert millilandaflug ....
KRISTJÁN Árnason hlaut Íslensku
þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína
á Ummyndunum eftir Óvíd. Katrín
Jakobsdóttir, mennta- og menning-
armálaráðherra, afhenti verðlaunin
við hátíðlega athöfn á Gljúfrasteini.
Tilnefnd til verðlaunanna voru El-
ísa Björg Þorsteinsdóttir fyrir Mála-
vexti eftir Kate Atkinson, Guðbergur
Bergsson fyrir Öll dagsins glóð, safn
portúgalskra ljóða frá 1900–2008,
Kristján Árnason fyrir Ummyndanir
eftir Óvíd, María Rán Guðjónsdóttir
fyrir Kirkju hafsins eftir Ildefonso
Falcones og Sigurður Karlsson fyrir
Yfir hafið og í steininn eftir Tapio
Koivukari.
Í umsögn dómnefndar segir með-
al annars:
„Kristján Árnason snarar ljóða-
bálki Óvíds úr löngu útdauðu tungu-
máli yfir á lifandi og skemmtilegt
lausamál og gerir það einkar glæsi-
lega. Hann hefur unnið að þýðingu
sinni áratugum saman og verður
hún að teljast bæði stórvirki og
menningarviðburður. Kristján býr yf-
ir miklum orðaforða, skáldgáfu,
innsæi og þekkingu á myndmáli og
stíl sem birtist vel í þýðingu hans.
Hún er afar læsileg og aðgengileg,
það er hægt að grípa niður hvar
sem er og sökkva sér ofan í sögur
af örlagaglettum hinna fornu guða.
Alls staðar eru dæmi um útsjónar-
semi og næmi þýðandans fyrir blæ-
brigðum tungumálsins, bæði frum-
máls og þýðingar.“
Dómnefnd skipuðu þau Hjörleifur
Sveinbjörnsson, Þórdís Gísladóttir
og Steinunn Inga Óttarsdóttir.
Kristján Árnason
hlaut Íslensku
þýðingaverðlaunin
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hvöss austanátt, einkum syðst og dálítil væta þar. Þurrt og bjart
með köflum annars staðar á landinu. Hiti 2 til 7 stig að deginum.
Á sunnudag Norðaustan 8-15 m/s. Rigning eða slydda SA-til, dálítil él fyrir norðan, ann-
ars yfirleitt þurrt. Hiti 2 til 7 stig, en nálægt frostmarki norðantil yfir daginn.
Á mánudag Austan 8-13 m/s við suðurströndina, annars yfirleitt hægari vindur. Dálítil
rigning eða slydda með köflum S- og SV-lands, en bjart í veðri í öðrum landshlutum.
Keflvíkingar fengu liðsstyrk á lokakafla
Íslandsmótsins í körfuknattleik karla.
Bandaríski leikmaðurinn Nick Bradford
gekk í raðir Keflvíkinga í gær. Hann lék
með Njarðvíkingum í vetur. Bradford
gæti því leikið sinn fyrsta leik í dag gegn
Snæfelli í þriðja úrslitaleiknum um Ís-
landsmeistaratitilinn. Staðan er jöfn, 1:1.
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður
Íslandsmeistari. »1
Keflavík fékk liðsstyrk
á elleftu stundu
Gríðarlegur áhugi er á Akur-
eyri fyrir leik liðsins gegn
Val í undanúrslitum Íslands-
mótsins í handbolta karla í
kvöld. Óskar Bjarni Ósk-
arsson, þjálfari Vals, er
ánægður með að liðið skuli
ferðast saman í rútu norður
yfir heiðar. Hannes Karls-
son, formaður Akureyrar
handboltafélags, segir að
handboltabærinn sé vakn-
aður til lífsins á ný. »2
Handboltabærinn
er vaknaður á ný
Björgvin Björgvinsson ætlar að
taka þátt í 11 heimsbikarmótum á
næsta tímabili. Betri æfingaað-
staða á skíðasvæðum á Akureyri,
Dalvík og Siglufirði gerir skíða-
manninum frá Dalvík kleift að æfa
meira á Íslandi en áður. Grjót-
harðar skíða-
brekkur eru
efstar á
óskalista
Björgvins.
»4
Björgvin kýs grjót-
harðar skíðabrekkur
FRAM kom í veg fyrir að kvennalið Vals næði að
fagna Íslandsmeistaratitlinum í handknattleik í
gærkvöld með góðum sigri á útivelli, 29:27. Liðin
eigast við á ný á morgun á heimavelli bikar-
meistaraliðs Fram. Valur þarf aðeins einn sigur
til viðbótar til þess að fagna Íslandsmeistaratitl-
inum í fyrsta sinn í 27 ár. „Ég hugsa jákvætt og
er bara mjög bjartsýn á að við getum unnið þrjá
leiki í röð,“ sagði Ásta Birna Gunnarsdóttir, fyr-
irliði Fram, í gær en staðan er 2:1 fyrir Val en
það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslands-
meistari. kris@mbl.is | Íþróttir
FRAM SÝNDI STYRK SINN ÞEGAR MEST Á REYNDI
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
MATTHILDUR Haraldsdóttir er
laus úr öndunarvél eftir flókna og
viðamikla skurðaðgerð í München í
Þýskalandi í liðinni viku. Þetta var
önnur aðgerðin af þremur sem hún
þarf að fara í vegna sjaldgæfs æða-
og hjartagalla en stúlkan er aðeins
um fjögurra og hálfs mánaðar gömul.
„Aðgerðin gekk mjög vel,“ segir
Haraldur Ægir Guðmundsson, faðir
stúlkunnar. „Skurðlæknarnir voru
ánægðir með viðbrögð líkama hennar
og sína vinnu.“
Foreldrar stúlkunnar, Haraldur og
Harpa Þorvaldsdóttir, söngnemi, eru
með dóttur sinni á sjúkrahúsinu í
München, en móðir Haraldar er hjá
Halldóru Björgu, eldri dóttur þeirra,
í Salsburg í Austurríki, þar sem sú
stutta gengur í skóla. Þær komu til
München um liðna helgi og fjöl-
skyldan sameinast aftur á spítalanum
um þessa helgi.
Haraldur segir að veittur stuðn-
ingur hafi verið ómetanlegur. Hann
hafi gert foreldrunum mögulegt að
vera saman hjá dótturinni á spítal-
anum og þeim veiti ekki af að hafa
stuðning hvort af öðru í þessum erf-
iðu aðstæðum. | 6
Laus úr öndunarvél
Foreldrar fjögurra mánaða stúlku þakka fyrir stuðning
fjölskyldu, vina og annarra og segja hann ómetanlegan
Á réttri leið Matthildur Haralds-
dóttir hefur staðið í ströngu.