Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.10.2011, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 22.10.2011, Qupperneq 40
KYNNING − AUGLÝSINGJólahlaðborð LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 20114 Við verðum með jólahlað-borð bæði á Brauðbæ, fyrir einstaklinga og fjölskyld- ur, og á Bryggjunni á Granda- garði fyrir smærri og stærri hópa,“ segir Petra Dís Magnúsdóttir sem rekur veisluþjónustuna Kokkur- inn ásamt manni sínum Snorra Birgi Snorrasyni. Undir því nafni reka þau einnig veitingastaðinn Brauðbæ á Hótel Óðinsvéum og kaffihúsið Bryggjuna í Víkinni Sjóminjasafni. „Á Bryggjunni eru nokkrir salir af ýmsum stærðum með sæti fyrir allt að 130 manns. Þar er yndislegt að vera enda óvið- jafnanlegt útsýni yfir höfnina,“ segir Petra Dís. Petra og Snorri reyna að halda í gamlar hefðir. „Við höfum rekið Brauðbæ í þrjú ár en upphaflega stofnaði Bjarni í Brauðbæ stað- inn árið 1964. Hann var sá fyrsti til að halda jólahlaðborð á Íslandi árið 1980 og til að halda í hefðina höfum við boðið upp á klassískt danskt jólahlaðborð,“ segir Petra og telur upp nokkra af þeim réttum sem boðið verður upp á. „Við bjóð- um upp á nokkrar tegundir af síld, grafinn lax með gini, lime og eini- berjum, heita lifrarkæfu, svína- purusteik og jólaskinku svo eitt- hvað sé nefnt,“ segir hún og nefnir einnig að þau leggi mikið upp úr notalegri stemningu. Kokkur- inn er einnig í samstarfi við Hótel Óðinsvé og býður gestum upp á sérstakt tilboð í jólahlaðborð ásamt gistingu og morgunverði á 12.700 krónur miðað við tvo í her- bergi. „Þetta er frábært tilboð sem gerir fólki kleift að kíkja í bæinn fyrir jólin og fara út að borða fyrir sanngjarnt verð eða fyrir fólk sem vill leyfa sér smá huggulegheit og fara á hótel eina helgi,“ segir Petra. Kokkurinn býður einnig upp á að sjá um jólahlaðborð í heima- húsum. Matseðillinn er sá sami en lágmarksfjöldi er tíu manns. „Þetta er þægilegur kostur fyrir vinahópa, fyrirtæki eða fjölskyldur sem vilja borða heima hjá sér eða í vinnunni,“ segir Petra Dís og bætir við að þessi kostur sé mjög vinsæll. Jólahlaðborðin hef jast 19. nóvember. Opið er öll hádegi vik- unnar á Brauðbæ en á kvöldin frá miðvikudegi til sunnudags. Ódýr- ara verður á miðvikudögum og sunnudögum en það eru einn- ig sérstakir fjölskyldudagar. Á Bryggjunni verður opið frá mið- vikudegi til sunnudags en ein- ungis fyrir hópa. „ Við erum þegar byrjuð að taka við pöntunum og er staðurinn fljótur að fyllast,“ segir Petra og bendir á pöntunarsímann 511 6677. Þetta er ekki bara jólahlað-borð á veitingastað held-ur jólahlaðborð á skemmti- stað,“ segir Birgir Guðmundsson, veitingastjóri Radisson Blu, spurð- ur hvað einkenni jólahlaðborðin á Hótel Sögu umfram önnur. „Tekið er á móti gestum með lifandi jóla- tónum og Örn Árnason skemmtir eftir borðhald eins og honum er einum lagið og Jónas Þórir sér um að spila undir. Sigurður Hlöðvers- son sér svo um dansiball fram eftir nóttu. Það hefur verið einkennis- merki okkar í mörg ár að við höfum boðið upp á jólahlaðborð sem einn- ig er söng- og grínskemmtun.“ Jólahlaðborðið í Súlnasalnum er þó ekki það eina sem gestum Hótel Sögu stendur til boða. Í Skrúð verða jólahlaðborð bæði í hádeginu og á kvöldin og fyrir þá sem vilja gera enn betur við sig í mat og drykk býður Grillið upp á sérstakan jóla- matseðil þar sem hægt er að panta þrjá, fjóra eða sjö rétti eftir því sem lystin leyfir. „Síðast en ekki síst þá bryddum við upp á þeirri nýjung í ár að vera með jólahlaðborð fjöl- skyldunnar í Súlnasalnum síð- ustu helgina í nóvember og fyrstu helgina í desember í hádeginu bæði laugardag og sunnudag. Þar verð- um við með Örn Árnason sem gest- gjafa og Solla stirða og Íþróttaálf- urinn koma í heimsókn ásamt fleiri góðum gestum.“ Birgir segir engar sérstakar nýj- ungar verða í matargerðinni á jóla- hlaðborðunum í ár en þróunin hafi verið sú síðustu árin að matargerð- in hafi aðlagað sig að þeim breyt- ingum sem tímarnir krefjist. „Fólk hefur verið það ánægt með matinn hjá okkur að það er engin ástæða til að breyta breytinganna vegna,“ segir hann „Matreiðslumeistar- inn er G. Kristinn Stefánsson bæði í veisludeild og Skrúð en á Grillinu ræður Sigurður Helgason ríkjum.“ Þeim sem vilja vera út af fyrir sig stendur til boða að leigja einkasali sem taka allt frá fjörutíu manns og upp í hundrað fimmtíu og fá jóla- hlaðborðin þangað inn. Það ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á Hótel Sögu fyrir jólin. Jólahlaðborð af öllum stærðum og gerðum Hið margrómaða og sívinsæla jólahlaðborð verður í Súlnasal Hótel Sögu alla föstudaga og laugardaga frá 18. nóvember fram til jóla. Jólahlaðborð á Radisson Blu njóta mikilla vinsælda. Birgir Guðmundsson, veitingastjóri Radisson Blu. MYND/GVA Tekið er á móti gestum með lifandi jólatónum og Örn Árnason skemmtir eftir borðhald eins og honum er einum lagið JÓLABORÐ BRAUÐBÆJAR OG BRYGGJUNNAR HEFST 19. NÓVEMBER Ekta danskt jólahlaðborð Kokkurinn veisluþjónusta rekur bæði Brauðbæ á Þórsgötu og kaffihúsið Bryggjuna í Sjóminjasafninu við Grandagarð. Boðið verður upp á hefðbundið danskt jólahlaðborð á báðum stöðum auk þess sem Kokkurinn sér um að færa jólin heim í hús. Petra Dís situr út við glugga við Bryggjuna en þaðan er óviðjafnanlegt útsýni og án efa mikil stemning að fara þar á jólahlaðborð. MYND/GVA Forréttir Síld með karrý og eplum Síld með brennivíni og rauðbeðu- safa Síld í hunangi, balsamediki og tómat-compot Grafinn lax með gini, lime og eini- berjum Heit leverpostej (lifrarkæfa) með beikoni og sveppum Steikt rauðspretta með heimalög- uðu remúlaði og sítrónum Aðalréttir Svínapurusteik með epla- og sveskjumauki Jólaskinka með karamelluðum ananas Kryddbakaðar kalkúnabringur Heimalagað rauðkál Eplasalat með valhnetum Kartöflugratín Eftirréttir Crème brûlée Ris à l´amande Gammeldags dansk æblekage 7.600 kr. fim.-lau. 4.900 kr. mið. og sun. 3.900 kr. í hádeginu. Jólahlaðborð í hádeginu inni- heldur færri rétti og tekur skemmri tíma.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.