Fréttablaðið - 22.10.2011, Side 44
„Pabbi hefur frá fyrstu tíð verið
hrifinn af tónlist minni og þegar
ég var yngri fórum við í heilmik-
ið ferli þar sem ég fékk hann til að
gagnrýna textana mína og kenna
mér að ritstýra þeim. Við erum
svipaðir í raddböndunum sem heyr-
ist vel á nýju plötunni. Þar liggur
rödd mín dýpra en áður þegar ég
söng flest í sópran, og hentar mér
betur nú þegar röddin hefur elst og
þroskast,“ segir Gísli sem á nýju
plötunni fer ótroðnar slóðir.
„Að þessu sinni ákvað ég að láta
eftir mér að fara alveg inn í hliðar-
tungumál mitt, sem sumir kalla
rödd hins geðveika. Í textunum
segi ég umbúðalaust það sem þykir
óviðeigandi, ómálefnalegt, barna-
legt og banalt. Það er mikilvægt að
leyfa sér að segja hluti sem koma
upp í tónlist og láta ekki gagnrýnar
raddir þeirra sem skapað hafa regl-
ur um hvað má og má ekki segja
stoppa sig í ritskoðun út frá ein-
hverjum réttritunarstíl.“
Gísli hélt utan til Rússlands eftir
prófgráðu í rússnesku við Háskóla
Íslands. Í austri lauk hann námi
í pólitískri svæðafræði um land-
svæði gömlu Sovétríkjanna eftir
hrun þeirra. Þá hvarf hann frá
meistaranámi í rússnesku eystra
þegar íslenskt efnahagslíf fór á
hausinn 2008.
„En mig dreymir um að fara
aftur og klára gráðuna því það er
gaman í Rússlandi. Ég heillaðist af
landinu vegna stærðar þess og víð-
áttu, en líka vegna þess hve það er
langt í burtu. Mér fannst ég kominn
á útmörk veraldar svo langt, langt
í austur. Það var því land og þjóð
en ekki ástin sem dró mig þangað,
en ég lokaði ekki á þann möguleika
að ástin gæti leynst þar. Hjartað er
hins vegar bara með sjálfum mér,
það tilheyrir engu landi,“ segir
Gísli alvarlegur og lítur upp úr
rússneskum þýðingum, en annars
starfar hann við leynileg verkefni
hjá hinu opinbera.
„Tónlistin mun svo alltaf fylgja
mér því hafi ég góðan texta er eins
og hljómarnir breimi á mig. Ég
vinn nú að sveitatónlist fyrir næstu
plötu því eftir langvarandi hávaða
rokksins þarf maður aftur til baka,
rétt eins og maður þarf gott faðm-
lag eftir fæting.“
thordis@frettabladid.is
Ný plata Gímaldins og félaga, Þú ert ekki sá sem ég valdi, fæst í Smekkleysu. Útgáfu-
tónleikar verða á næstu vikum.
Framhald af forsíðu
TILBOÐSDAGAR
HJÁ PITSTOP
FJÖGUR VETRARDEKK ÁSAMT
UMFELGUN MEÐ YFIR 25% AFSLÆTTI
TILBOÐIN GILDA AF NEGLANLEGUM OG ÓNEGLANLEGUM VETRARDEKKJUM
Á ÖLLUM ÞJÓNUSTUSTÖÐVUM PITSTOP Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST.
STÆRÐ TILBOÐSVERÐ
175/65 R14 45.900 kr. fullt verð 61.400 kr.
185/65 R14 49.900 kr. fullt verð 66.400 kr.
185/65 R15 51.900 kr. fullt verð 70.200 kr.
195/65 R15 54.900 kr. fullt verð 73.400 kr.
205/55 R16 63.900 kr. fullt verð 83.000 kr.
225/45 R17 72.900 kr. fullt verð 97.400 kr.
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
DUGGUVOGI 10 RVK HJALLAHRAUNI 4 HFJRAUÐHELLU 11 HFJ
PITSTOP.IS WWW568 2020 SÍMI
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
Í Tösku- og hanskabúðinni finnur þú
mikið úrval af handtöskum, tölvu- og
skjalatöskum, seðla-og leðurveskjum,
ferðatöskum, leðurhönskum og vönduðum
göngustöfum svo fátt eitt sé nefnt.
Þú getur litið við í verslun okkar eða farið á
slóðina www.th.is þar sem hægt er
að skoða úrvalið og gera góð kaup!
VETRARGLEÐI
Í MIÐBÆNUM
Dagana 21. og 22. október.
Sölufulltrúar:
Jóna María
jmh@365.is 512 5473
Brynja Dan
brynjadan@365.is 512 5465
Snorri
snorris@365.is 512 5457
Karlakórinn Eldri Þrestir er tuttugu ára um þessar
mundir og mun hann af því tilefni efna til tónleika í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag klukkan 17. Söngstjóri er Guð-
jón Halldór Óskarsson og píanóleikari Bjarni Jónatansson.