Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.10.2011, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 22.10.2011, Qupperneq 74
22. október 2011 LAUGARDAGUR42 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jón Ægir Norðfjörð Guðmundsson sem andaðist þriðjudaginn 18. október síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 28. október kl. 15.00. María Þóra Benediktsdóttir Gísli Páll Jónsson Ágúst NorðfjörðJónsson María Ágústsdóttir Gróa Norðfjörð Jónsdóttir Sunneva Sif Ingimarsdóttir Salvör Norðfjörð Ágústsdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju vegna fráfalls föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Gísla Kristjánssonar Keldulandi 11, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sunnuhlíðar, Kópavogi. Gísli Már Gíslason Sigrún Sigurðardóttir Halldóra Gísladóttir Eiríkur Líndal Anna Gísladóttir Kjartan Örn Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra fjöl- mörgu er vottuðu virðingu og sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, Bergs Jónssonar rafmagnsverkfræðings og fv. rafmagns- eftirlitsstjóra ríkisins, Löngulínu 27, Garðabæ. Hjartans þakkir til allra þeirra er önnuðust hann; lækna, hjúkrunarfólks og starfsfólks á meltingardeild, krabbameinsdeild og líknardeild LHS á Landakoti. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinga Karitas sem sýndu honum einstaka umhyggju í sínu óeigingjarna starfi. Skátum þökkum við innilega veitta virðingu við útförina. Enn fremur þakkir til allra ættingja og vina sem sýndu honum umhyggju í veikindum hans. Við erum djúpt snortin. Guð blessi ykkur öll. Ingunn Guðmundsdóttir Magnús Bergsson Guðrún Elín Guðnadóttir Bergþóra Bergsdóttir Reynir Þór Sigurðsson Jón Örn Bergsson Ásgerður Bergsdóttir Högni Sigurþórsson og barnabörn. Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com GRANÍT OG LEGSTEINAR Fallegir legsteinar á einstöku verði Frí áletr un Gjótuhrauni 8, 220 H fnarfirði Sími 571 400 ranit@granit.is timamot@frettabladid.is „Engin tvö handrit eru eins heldur hvert með sín sérkenni, líkt og ein- staklingur. Í því liggur þeirra mikli sjarmi,“ segir Svanhildur Óskarsdótt- ir, rannsóknardósent hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hún sér um erindaröð fyrir almenn- ing um handrit úr safni Árna Magnús- sonar sem verður hleypt af stokkunum klukkan 15 í dag – fyrsta vetrardag – í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Þar fjallar Guðrún Nordal, forstöðu- maður Árnastofnunar, um kvæða- handrit Gísla Jónssonar biskups sem hann skrifaði hugsanlega handa Helgu dóttur sinni. „Þetta er merkilegt hand- rit frá 16. öld. Það geymir bæði kaþólsk helgikvæði og lúterska sálma og er því eins og gluggi inn í lífið á Íslandi ein- mitt þegar siðbreytingin gengur yfir,“ lýsir Svanhildur. Handritasafn Árna Magnússon- ar, sem bæði er geymt í Reykjavík og Kaupmannahöfn, hefur verið tekið upp á varðveisluskrá sem nefnist „Minni heimsins“ hjá Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. „Viður- kenning UNESCO sýnir hvað safnið er álitið mikilvægt í alþjóðlegu tilliti, enda varðveitir það miklar heimildir um menningu og sögu Norður-Evrópu – ekki bara Íslands,“ bendir Svan- hildur á og segir erindaröðina haldna til að minna okkur á hvað góssið hans Árna er merkilegt og fjölbreytt. „Í því er næstum allur heimurinn,“ segir hún. „Þar eru dómar og lög, rímur, þulur og kvæði, Íslendingasögur og aðrar sögur. Flottustu miðaldahandritin hefur tekið marga mánuði að skrifa, maður fyll- ist lotningu við að virða þau fyrir sér. Sum þeirra eru líka fallega lýst, sem er orð yfir myndskreytingu handrita. Þar erum við komin út í listasöguna.“ Svanhildur segir ekki aðeins text- ana merkilega og rannsókna virði heldur einnig margt sem tengist sögu þeirra. „Handritin ganga frá manni til manns og safna á sig sögum því stundum nótera eigendurnir eitthvað á spássíurnar. Segja má að þau „fæð- ist” á einum tíma og eigi svo langt líf sem markar þau og mótar.“ Annað erindið verður haldið mið- vikudaginn 26. október klukkan 12.15 þegar Guðrún Ása Grímsdóttir fjallar um merka skjalabók vestan af fjörð- um sem skráð var á 17. öld af séra Sig- urði Jónssyni frá Vatnsfirði. Svo verða þau eitt af öðru á dagskrá annan hvern miðvikudag í vetur og lýkur síðasta vetrardag, 18. apríl. Hvert handrit verður til sýnis í Þjómenningarhús- inu meðan erindi um það er haldið. „Þá getur fólk komið í hádeginu og kynnst einu handriti, einum einstak- lingi, hvaðan hann kemur og hvað hann hefur fram að færa. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill,“ segir Svanhildur brosandi og bendir á slóð- ina www.arnastofnun.is/page/hand_ gossid_hans_arna SVANHILDUR ÓSKARSDÓTTIR: RÖÐ ERINDA UM HANDRITIN HEFST Í DAG KL. 15 Minnir okkur á hvað góssið hans Árna er merkilegt SVANHILDUR ÓSKARSDÓTTIR DÓSENT „Íslendingar höfðu mikinn áhuga á handritum Árna meðan barist var fyrir því að fá þau hingað heim um og eftir miðja síðustu öld. Þau hafa ekki verið jafn miðlæg í menningunni á seinni árum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Merkisatburðir 1253 Bærinn á Flugumýri í Skagafirði er brenndur þegar brúð- kaupsveisla fer þar fram og farast þar 25 manns. 1576 Um 500 byggingar í Haarlem í Hollandi brenna eftir að eldur kemur upp í brugghúsi. 1961 Bjarni Benediktsson er kosinn formaður Sjálfstæðis- flokksins. 1976 Fyrsta breska pönkplatan kemur út í London, smáskífan New Rose með bresku hljómsveitinni The Damned. 1985 Fimm aurskriður renna niður í þorpið á Bíldudal og valda nokkrum skemmdum. 1995 Heimsfrumsýning er á myndinni Toy Story. ÓLAFÍA JÓHANNSDÓTTIR, rithöfundur og baráttukona (1863-1924), fæddist þennan dag. „Frjáls hugsun er skilyrði fyrir því að einstaklingurinn geti haft full not af því er fyrir hann ber.“ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elsku mömmu okkar, tengdamömmu, ömmu og langömmu, Huldu Guðmundsdóttur Hallveigarstíg 8, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sóltúns. Margrét Medek Peter Medek Björk Hjaltadóttir Guðmundur Brynjólfsson Vigdís Hjaltadóttir ömmubörn og langömmubörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurdís Guðmundsdóttir Akurgerði 21, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 19. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 28. október kl. 14.00. Kristjana Ragnarsdóttir Tómas Ævar Sigurðsson Kristín Svava Tómasdóttir Ólafur Rúnar Björnsson Dísa Lind Tómasdóttir Eyrún Sif Ólafsdóttir Guðmundur Sigurjónsson Tómas Ævar Ólafsson Silvía Sif Ólafsdóttir Tómas Þórisson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.