Fréttablaðið - 22.10.2011, Side 86

Fréttablaðið - 22.10.2011, Side 86
22. október 2011 LAUGARDAGUR54 folk@frettabladid.is Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf er fyrsta bók höfundarins en varð óvænt ein helsta metsölubók síðari ára í Svíþjóð. 3. endurprentun „Hún á skilið fullt hús af stjörnum því hún er fullkominn skemmtilestur. Eiginlega algjör dásemd.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið „ Ærslabók með frábærum boðskap… Þetta er bara alveg rosalega skemmtileg bók.“ Egill Helgason / Kiljan „Þetta er bara ógeðslega skemmtileg bók ... Ugglaust hjálpar það líka að hún er prýðilega þýdd ….“ Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan ÆRSLAFENGIN & HEILLANDI GLEÐISPRENGJA gamlingi sem fer á flakk um söguna 2.299.- áður 2.699.- Gildir til 26. október á meðan birgðir endast. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian giftist körfuknatt- leiksmanninum Kris Humphries fyrir skemmstu. Fjölmiðlar hið vestra virðast ekki hafa mikla trú á hjónabandinu því þeir keppast við að flytja skilnaðarfréttir af hjónakornunum. Samkvæmt fréttamiðlum í Bandaríkjunum er öllum í Kardashian-fjölskyldunni meinilla við Humphries og vonast til þess að Kim sæki um skilnað sem fyrst. Tímaritið People flutti einnig fréttir af því að Humphries hefði heldur kosið að fara út á lífið með vinum sínum en að sækja eigin- konu sína upp á flugvöll. „Hann særir hana stanslaust. Hann fer út að skemmta sér með vinum sínum í Miami í stað New York því hann telur minni líkur á að Kim frétti af strákapörum hans þar. Hann hagar sér einnig eins og hann sé enn einhleypur og sást meðal annars leiða ljóshærða stúlku út af skemmtistað,“ var haft eftir innanbúðar manni. Óhamingjusöm raunveruleikastjarna ÓHAMINGJUSÖM Bandarískir fjölmiðlar spá hjónabandi Kim Kardashian og Kris Humphries ekki langlífi og segja þau óhamingjusöm eftir aðeins nokkura vikna hjónaband. NORDICPHOTOS/GETTY Nýr tölvuleikur um Leður- blökumanninn er væntan- legur eftir helgi. Aðdáendur hans gátu hins vegar ekki beðið og slógu upp grímu- balli í miðborg Reykjavíkur þar sem alls kyns kynjaverur úr Batman-heiminum mættu til leiks. „Ég var alveg hissa á því hvað marg- ir mættu í flottum búningum,“ segir Sara Björk Másdóttir, sem skipu- lagði Batman: Arkham City búninga og útgáfuveisluna á Ölsmiðjunni en hún skrifar leikjadóma inn á afþrey- ingarsíðuna scene.is. Sara, sem er þjónn á Tapas-barn- um, fellur kannski ekki undir hina venjulega skilgreiningu tölvuleikj- anjarðarins og hún segir að svona viðburðir séu einmitt kærkomn- ir fyrir fólk sem spilar tölvuleiki, þar geti þeir spjallað saman um áhugamálið sitt. „Tölvuleikir eru ekki bara fyrir nörda-stráka.“ Sara dæmir leiki fyrir scene.is og var einmitt á leiðinni að ná sér í eintak af Batman-leiknum til að spila yfir helgina. „Hann er rosalega flottur.“ - fgg LEÐURBLÖKUMANNINUM ÁKAFT FAGNAÐ Þeir voru flottir strákarnir sem tóku þátt í Batman: Arkham-búningaveislunni á Ölsmiðjunni á fimmtudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Eiríkur Eiríksson tók sig vel út sem Mörgæsin. Guðmundur Vikar Sigurðsson kom, sá og sigraði sem Hr. Frosti. Aron Snær Melsteð var glæsilegur í hlut- verki Jonathans Crane eða Scarecrow. Þessar þrjár stúlkur létu sig ekki vanta á Batman-grímuballið. Ölvir Freyr Guðmundsson var flottur sem Scarecrow og hafnaði í öðru sæti. 2015 ER ÁRIÐ sem Liam Gallagher segir henta í að endurvekja hljómsveitina Oasis. Það yrði á 20 ára afmæli plötunnar (What's The Story) Morning Glory.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.