Fréttablaðið - 22.10.2011, Side 91
LAUGARDAGUR 22. október 2011 59
NÀTTÚRULEG VELLÍÐAN
ÞURRKUR KLÁÐI SVEPPASÝKINGAR?
Veltir þú fyrir þér hvað þú ert að nota á þitt viðkvæmasta svæði
LÍFRÆN dömubindi og tíðatappar
án klórs
án ilmefna
án plastefna
Diane Kruger hefur gaman af því
að leika í kvikmyndum þar sem
aðalsöguhetjan fær tækifæri til
að verja einhvern málstað. „Það
sem ég elska við hasarmyndir
er þegar þú færð það á tilfinn-
inguna að persónan er skynsöm
og hugsar um af hverju ákveðn-
ir hlutir eru að gerast,“ sagði
Kruger í heimildarmyndinni The
Hero´s Journey sem fjallar um
hasarmyndir. Kruger hefur leikið
í myndum á borð við Troy, Ing-
lourious Basterds og Inhale. „Þú
getur stutt málstað sem er stærri
en þú sjálfur. Oft er þetta mjög
venjulegt fólk í óvenju legum
aðstæðum.“
Málstaður er
mikilvægur
DIANE KRUGER Leikkonan hefur gaman
af persónum sem þurfa að verja mál-
stað.
Söngvarinn og leikarinn Justin
Timberlake ætlar að nota fríið
sitt það sem eftir er ársins til
að finna leiðir til að hressa upp
á Myspace-síðuna. Timberlake
á hlut í síðunni og hefur mikinn
hug á því að auka vinsældir henn-
ar. „Það er ekkert fram undan hjá
mér annað en að hugsa um ýmis-
legt í tengslum við Myspace. Ég
þarf ekki að vera á staðnum því
ég get fengið hugmyndir á golf-
vellinum eða snjóbrettinu,“ sagði
Timberlake. Myspace var vin-
sælasta samskiptasíðan á netinu
til ársins 2006 þegar Facebook
brunaði fram úr henni.
Hugsar um
Myspace
JUSTIN TIMBERLAKE Popparinn og
leikarinn ætlar að hugsa um Myspace í
fríinu sínu.
Hollywood-stjarnan John
Travolta hafði ekki erindi sem
erfiði þegar hún reyndi að panta
borð á skyndibitastaðnum KFC
í Sussex-skíri í Englandi. Talið
var að um gabb væri
að ræða þegar kona
hringdi á staðinn og
sagðist vilja panta
borð fyrir herra
Travolta. Starfs-
maður staðar-
ins sagði að fólk
gæti ekki pantað
borð á staðnum
og því hætti Tra-
volta við komu
sína. „Eftir á að
hyggja hefðum
við átt að panta borð fyrir
hann. Það er ekki á hverj-
um degi sem Hollywood-
stjarna borðar á veitinga-
staðnum,“ sagði talsmaður
KFC. Travolta var staddur
í Sussex vegna góð-
gerðakvöldverðar
sem var haldinn
af trúfélagi hans,
Vísindakirkjunni.
Kollegi hans Tom
Cruise var einnig
á meðal gesta.
Fékk ekki borð á KFC
HÆTTI VIÐ Leikarinn
John Travolta fékk ekki
að panta borð á KFC.
Hinn litríki hönnuður Jeremy Scott
hefur hannað skólínu fyrir Adidas
og inniheldur hún meðal annars
sérhannaða strigaskó fyrir hunda.
Strigaskórnir eru hlébarða-
munstraðir og reimaðir. Að auki
inniheldur skólínan górillu-
strigaskó og hlébarða strigaskó á
okkur mannfólkið og eru þeir með
litlu skotti að aftan. Hunda eigendur
geta því von bráðar klæðst eins
skóm og besti vinurinn. Það er
annað mál hvort eitthvað af skó-
pörunum muni seljast.
Hannar skó á hunda
HANNAR HUNDASKÓ Jeremy Scott
hannar strigaskólínu fyrir Adidas. Línan
inniheldur meðal annars strigaskó fyrir
hunda. NORDICPHOTOS/GETTY
Samstarfsverkefni Lou Reed og
Metallica hefur borið ávöxt. Platan
Lulu er væntanleg í lok október, en
hægt er hlusta á hana á sameigin-
legri vefsíðu karlanna. Mikið grín
hefur verið gert að plötunni og
einn gagnrýnandi gekk svo langt að
líkja henni við endalok heimsins.
Tónlistarspekingurinn Arnar Eggert
Thoroddsen á Morgunblaðinu
hefur ekki tjáð sig efnislega um
plötuna, en varar fólk við
að hlusta á hana á
Facebook-síðu sinni.
Tónlistarkonan Heiða
Eiríksdóttir er ekki á
sama máli og ver Lou
Reed og félaga
með kjafti og
klóm. Hún
lofsyngur
plötuna í
ítarlegum
dómi á
Facebook-
síðunni
sinni og
segist
hæst-
ánægð. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI