Fréttablaðið - 22.10.2011, Síða 96

Fréttablaðið - 22.10.2011, Síða 96
22. október 2011 LAUGARDAGUR64 FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið verður í eldlínunni í Pápa í Ung- verjalandi í dag þegar liðið mætir heimamönnum í fjórða leik sínum í undankeppni EM 2013 en jafn- framt þeim fyrsta á útivelli. Edda Garðarsdóttir er komin aftur inn í íslenska hópinn eftir meiðsli og munar miklu um það. Edda segist þó ekki vera orðin 90 mínútna manneskja. „Ég er ekki búin að spila í 90 mínútur ennþá og Siggi veit nú af því. Ég er samt öll að koma til og ég er alltaf klár í slaginn,“ segir Edda. Stuttu eftir að viðtalið var tekið var byrjunarlið Íslands tilkynnt og ljóst er að Edda byrjar á bekknum í dag. Hún missti af tveimur síðustu landsleikjum vegna rifins liðþófa en þetta voru fyrstu alvöruleikir liðsins án brimbrjótsins á miðjunni síðan Sigurður Ragnar Eyjólfsson tók við liðinu 2007. Edda segir að það hafi verið mikill munur á upp- lifun sinni að vera uppi í stúku á leikjunum tveimur. Í þeim fyrri unnu íslensku stelpurnar 3-1 sigur á Noregi en gerðu síðan marka- laust jafntefli við Belgíu. „Við kláruðum þetta bara á fyrsta hálftímanum á móti Nor- egi en það var alveg skelfing að horfa á Belgíuleikinn, Ég fékk harðsperrur í magann af því ég var alltaf að hrópa upp fyrir mig. Við sköpuðum okkur þvílíkt mörg færi í þessum leik og ég veit ekki hversu oft manni fannst bolt- inn vera á leiðinni inn en svo fór hann ekki inn. Það er fínt að taka með sér þann leik og vera ennþá ákveðnari i boxinu og í færunum á móti Ungverjum,“ segir Edda, sem býst við því að Ungverjar pakki í vörn líkt og Belgar. „Við erum orðnar það góðar að lið sem eru neðar en við á styrk- leikalistanum munu spila svona á móti okkur. Við þurfum bara að eflast við þá áskorun og læra að spila þessa leiki skipulagðar og þolinmóðar,“ segir Edda, en stelp- urnar fara síðan til Norður-Írlands þar sem þær mæta heimastúlkum á miðvikudaginn. „Það er hrikaleg pressa á að klára þessa tvo leiki og það er ekkert annað inn í myndinni. Við ætlum okkur á EM og þá þurf- um við bara að vinna þessa vinnu og gera það með bros á vör. Við þurfum bara að reyna að skora snemma svo að þessi titringur fari úr okkur,“ sagði Edda. „Það eru einhver meiðsli í hópn- um eins og gengur og gerist. Ég held að gamla konan (Katrín Jóns- dóttir) sé eitthvað búin að finna fyrir í náranum en mér sýndist hún samt vera spræk á æfingunni áðan,“ segir Edda en leikmenn íslenska liðsins eru að ljúka löngu og ströngu tímabili. Edda segir að liðið hafi ekki fengið að spila á æfingunni í gær. „Okkur var kippt út áður en komið var að spilinu á æfingunni. Það er alltaf svo mikill tryllingur í spilinu hjá okkur og þar er eng- inn miskunn. Það er Svala sjúkra- þjálfari sem er alvaldur þegar kemur að svona ákvörðunum og hún er rödd skynseminnar fyrir alla, bæði leikmenn og þjálfara,“ segir Edda. Leikur íslenska liðsins hefst klukkan 12.00 í dag að íslenskum tíma en Ungverjar eru að spila sinn annan leik í riðlinum eftir að hafa tapað 6-0 á útivelli á móti Noregi í þeim fyrsta. „Við verðum að halda áfram að bæta okkar leik. Mér finnst það fínt að fá leik svona fljótlega á eftir Belgíuleiknum því í vor leið alltof langur tími á milli lands- leikja. Við fórum til Algarve í lok febrúar og svo var enginn leikur fyrr en mánuðum seinna. Það er fínt að fá leik svona fljótt aftur og þá ætti ekki að vera vandamál að skerpa aðeins einbeitinguna,“ sagði Edda að lokum. ooj@frettabladid.is Fékk harðsperrur í magann Íslenska kvennalandsliðið mætir Ungverjum í dag í fyrsta útileik sínum í undankeppni EM 2013. Liðið náði bara jafntefli á móti Belgum í síðasta leik en hefur nú endurheimt lykilleikmanninn Eddu Garðarsdóttur. 90. LANDSLEIKURINN Í DAG Edda Garðars dóttir hefur spilað 89 A-landsleiki á ferlinum og bætir væntanlega einum við í Ungverjalandi í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KÖRFUBOLTI Það hefur vakið nokkra athygli að körfuknattleikslið Njarðvíkur skartar auglýsingu á búningi sínum þar sem stend- ur: „Stöðvum einelti.“ Forkólfar körfuknattleiksdeildarinnar segja að einelti sé samfélagslegt vanda- mál á Suðurnesjum og þeir vilja leggja sín lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn þessu samfélags- meini. „Einelti er samfélagslegt vanda- mál á Suðurnesjum líkt og víðar. Það hafa verið að koma fréttir úr Garðinum og svo þarf ekki að minnast á harmleikinn í Sand- gerði. Við höfðum tækifæri til þess að velja málefni í gegnum samstarf okkar við Landsbank- ann. Skólarnir hérna á svæðinu fá 500 þúsund krónur í gegnum samstarfssamninginn til þess að taka þátt í átakinu gegn einelti,“ sagði Davíð P. Viðarsson hjá körfu- knattleiksdeild Njarðvíkur, sem fékk heimamann til þess að hanna merkið sem er á búningunum. „Þetta hefur mælst vel fyrir og vakið mikla eftirtekt í bæjar- félaginu. Við höfum verið að fá mjög góð viðbrögð frá foreldrum og öðrum. Við teljum að það þurfi að vera ákveðin vakning í þessum málum og vildum leggja okkar af mörkum.“ Davíð segir að Njarðvíkingar hætti ekki þarna í baráttunni gegn samfélagsmeinum. „Við erum að setja af stað forvarnarverkefni sem heitir „Bolti gegn böli“. Þar ætlum við að leita á náðir fyrir- tækja svo hægt sé að kaupa fyrir- lestra og annað sem getur hjálpað okkar félagsmönnum. Það mun ná til alls félagsins en ekki bara körfuknattleiksdeildarinnar. Þar verður tekið á öllum samfélags- legum vandræðum.“ - hbg Njarðvíkingar láta samfélagsleg vandamál á Suðurnesjum sig máli skipta og eru farnir í herferð: Vilja stöðva einelti og önnur samfélagsmein STÖÐVUM EINELTI Auglýsingin á Njarðvíkurbúningunum hefur vakið athygli. FÓTBOLTI Það er sannkallaður stór- leikur á dagskránni í enska boltan- um á morgun þegar Manchester- liðin, United og City, mætast á Old Trafford í uppgjöri efstu liða úrvalsdeildarinnar. City komst í toppsæti deildar- innar um síðustu helgi á kostn- að nágranna sinna sem ætla sér toppsætið á nýjan leik. Þessi tvö lið hafa verið áberandi sterkust í upphafi leiktíðar og baráttan um Manchester-borg er nú orðin miklu meira en nágrannaslagur. Nú er þetta orðinn lykilleikur í baráttunni um meistaratitilinn. Menn hafa beðið eftir því að City færi að veita United keppni um titilinn eftir að félagið fór að eyða ótrúlegum upphæðum í nýja leikmenn. Hinn ítalski stjóri Man. City, Roberto Mancini, segist bera mikla virðingu fyrir kollega sínum, Sir Alex Ferguson, sem hann lítur á sem kennara. „Ég ber gríðarlega virðingu fyrir honum og því sem hann hefur gert á síðustu 25 árum. Hann er kennari fyrir okkur hina og ég reyni að læra af honum eins og aðrir,“ sagði Mancini. „Þó svo að hann sé orðinn 69 ára er hann enn fullur af orku og vill ekkert annað en vinna. Hann er okkur ungu stjórunum mikil fyrir mynd. Vonandi get ég unnið af slíkum krafti á hans aldri en það verður ekki auðvelt.“ Síðan Mancini tók við City árið 2009 hefur honum ekki enn tekist að vinna United í deildarleik. „Við höfum bætt okkur mjög mikið á einu ári og við verðum að halda þeirri vinnu áfram. Vissu- lega væri gott að fara frá Old Trafford með eitt stig en við vilj- um meira, rétt eins og United.“ Sir Alex segir að sínir menn séu klárir í slaginn. „Þetta gæti orðið rosalegur leikur og ég get ekki beðið. Við elskum svona áskoran- ir. Þessir leikur sker ekki úr um tímabilið en hann gæti haft áhrif á lokaniðurstöðuna og framhaldið hjá liðunum,“ sagði Ferguson. - hbg Gríðarleg spenna fyrir stórleikinn á Old Trafford þar sem Manchester-liðin leiða saman hesta sína: Man. City vill meira en eitt stig á Old Trafford EKKERT GEFIÐ EFTIR Nemanja Vidic og Mario Balotelli læsa hér saman hornum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason og Selfyss- ingurinn Jón Daði Böðvarsson eru komnir heim eftir að hafa verið á reynslu hjá danska félaginu FC Nordsjælland. For- ráðamenn FC Nordsjælland eru að leita að leikmönnum til að styrkja liðið í janúarglugganum. Jan Laursen, íþróttastjóri Nord sjælland, var í viðtali á bold. dk þar sem hann tjáði sig um íslensku strákana. Það er ekki að heyra annað en að danska félagið hafi áhuga á því að fá Kjartan Henry í janúar. „Jón er ungur leikmaður en hann er ekki tilbúinn eins og er. Þetta hefur verið góð reynsla fyrir hann og hann þarf bara að fara heim og æfa sig meira,“ sagði Laursen. „Það er aftur á móti mögu- leiki á að fá Finnbogason í janúar. Hann stóð sig vel, góður náungi sem veit hvar markið er. Við verðum í sambandi við hann og höfðum líka séð nokkra leiki með honum á DVD. Hann kemur til greina þegar við plönum leik- mannahópinn en við verðum að sjá til hvað gerist,“ sagði Laur- sen. Kjartan Henry skoraði í æfingaleik með Nordsjælland. - óój Kjartan Henry Finnbogason: Nordsjælland hefur áhuga KJARTAN HENRY Var einn af bestu leik- mönnum Íslandsmótsins í sumar. Hér er hann fyrir miðri mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HANDBOLTI Íslenska kvenna- landsliðið spilar sinn annan leik í undan keppni EM í Höllinni á morgun. Andstæðingurinn að þessu sinni er Úkraína. Stelpurnar töpuðu gegn Spáni í vikunni og þurfa sárlega á sigri að halda gegn Úkraínu til að halda draumi sínum um að kom- ast aftur á EM lifandi. Leikurinn hefst klukkan 16.00 og aðgangseyrir á leikinn er 1.000 kr. Kvennalandsliðið í handbolta: Mæta Úkraínu í Höllinni ÞÓREY RÓSA Verður í eldlínunni í Höll- inni á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Byrjunarliðið (4-3-3) Þóra B. Helgdóttir markvörður Ólína G. Viðarsdóttir hægri bakvörður Sif Atladóttir miðvörður Katrín Jónsdóttir, fyrirliði miðvörður Hallbera G. Gísladóttir vinstri bakvörður Málfríður Erna Sigurðardóttir tengiliður Laufey Ólafsdóttir tengiliður Sara Björk Gunnarsdóttir tengiliður Fanndís Friðriksdóttir hægri kantur Hólmfríður Magnúsdóttir vinstri kantur Margrét Lára Viðarsdóttir sókn FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyjólfs son, þjálfari Íslands, hefur valið byrjunarlið sitt fyrir leik- inn gegn Ungverjalandi ytra á morgun sem er liður í undan- keppni EM 2013. Edda Garðarsdóttir er í byrjunar liðinu en hún hefur misst af síðustu landsleikjum vegna meiðsla. Hún er á bekknum í dag eins og Dóra María Lárus- dóttir sem byrjaði í síðasta leik Íslands. Í stað þeirra koma þær Málfríður Erna Sigurðardóttir og Laufey Ólafsdóttir, báðar úr Val, í byrjunarliðið og spila á miðjunni ásamt Söru Björk Gunnarsdóttur. Að öðru leyti er byrjunarliðið eins skipað og í síðasta leik liðs- ins – er Ísland gerði markalaust jafntefli við Belgíu á heimavelli í síðasta mánuði. - esá Byrjunarlið Íslands: Málfríður Erna og Laufey byrja BYRJAR Margrét Lára Viðarsdóttir er á sínum stað í byrjunarliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Jón Vilhelm Ákason skrifaði í gær undir tveggja ára samning við ÍA, en hann er uppalinn Skagamaður. Hann fór fyrir tímabilið 2010 til Vals, þar sem hann spilaði alls 36 leiki og skoraði í þeim átta mörk. ÍA vann sér sæti í efstu deild á nýjan leik nú í haust eftir þriggja ára fjarveru. Það er Skagamönn- um mikil styrking að fá Jón Vil- helm aftur í sínar raðir, en hann á alls að baki 132 leiki í deild og bikar á ferlinum, bæði með Val og ÍA. Í þeim leikjum hefur hann skorað nítján mörk. - esá Góð tíðindi fyrir Skagamenn: Jón Vilhelm aftur til ÍA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.