Fréttablaðið - 05.11.2011, Síða 18

Fréttablaðið - 05.11.2011, Síða 18
18 5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 L íklega er það rétt sem Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem nú hefur tilkynnt að hún sækist eftir formennsku í Sjálfstæðisflokknum, segir í Fréttablaðinu í gær að formannsslagur þeirra Bjarna Benediktssonar snúist fremur um aðferðir og persónur en pólitískar áherzlur. Að minnsta kosti verður ekki séð að neinn grundvallarmunur sé á pólitík formannsins og áskorandans. Hanna Birna beitti vissulega nýjum aðferðum í borgarstjórn Reykjavíkur þegar hún var borgarstjóri; leitaðist við að auka sátt og samstöðu um mál og vinna með minnihlutanum þar sem það var hægt. Það sama reyndi hún eftir að Sjálfstæðisflokkur- inn lenti í minnihluta, þótt sú til- raun hafi ekki gengið upp. Málflutningur hennar eftir að hún tilkynnti formanns- framboð er þó ekki að öllu leyti í anda samstöðustjórnmálanna. Hún sagði til dæmis í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld að sum mál væri ekki hægt að semja um; hún myndi til dæmis ekki semja við Vinstri græn um skattahækkanir eða við Samfylkinguna um ESB-aðild. Samt er það nú svo að vilji Sjálfstæðisflokkurinn mynda ríkisstjórn að loknum næstu kosningum gæti hann þurft að semja um annað- hvort þessara mála eða bæði. Bjarni og Hanna Birna eru klárlega sammála um að ekki eigi að leita neinnar sáttar um aðildarviðræðurnar við Evrópu- sambandið, þrátt fyrir að rétt tæpur helmingur stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins vilji halda þeim áfram samkvæmt skoðana- könnun Fréttablaðsins í september síðastliðnum. Hanna Birna er afdráttarlaus í þeirri afstöðu að draga eigi aðildarumsóknina til baka og að Ísland eigi ekkert erindi í Evrópu sambandið. Það er sama afstaða og Bjarni Benediktsson hefur lýst að undanförnu. Hún er þó heldur afdráttarlausari ef eitthvað er, því að Bjarni hefur stundum virzt vilja skoða nýja kosti í gjaldmiðilsmálum, en keppinautur hans er harður á að krónan sé sá gjaldmiðill sem henti Íslendingum bezt. Formannskandídatarnir eru þannig sammála um að ekki eigi að klára aðildarviðræður við ESB og kjósa um niðurstöðuna, heldur eigi að hætta viðræðunum, sem þegar eru komnar á rek- spöl. Þessi sameiginlegi málflutningur þeirra er ekki líklegur til að höfða til þess umtalsverða hóps stuðningsmanna Sjálfstæðis- flokksins, ekki sízt í viðskiptalífinu, sem vill láta reyna á aðildar- viðræður. Hann er heldur ekki líklegur til að sækja mörg ný atkvæði í hinn stóra hóp óákveðinna kjósenda, en könnunin sem áður var vitnað til sýnir að um 63 prósent þeirra vilja ljúka aðildarviðræðunum. Það er þess vegna sama hvernig formannsslagurinn í Sjálfstæðis flokknum fer, flokkurinn mun ekki sækja inn á miðju stjórnmálanna í leit að atkvæðum. Þvert á móti mun hann áfram gefa öðrum framboðum frítt spil á miðjunni. Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Flestir vilja að stjórnmála-flokkar haldi sig við þá stefnu sem þeir boða. Um leið vilja menn að forystu- menn þeirra hafi umboð til að semja við aðra um málamiðlanir. Á annan veg verður landinu ekki stjórnað. Forystumenn VG hafa átt erfið- ari daga en aðrir að þessu leyti. Ástæðan er fjarlægð flokksins frá þeim meginlínum sem aðrir flokk- ar fylgja. Einkum hefur þetta átt við um utanríkismál. En það er nú að breytast. Í samþykkt landsfundar VG um Evrópumál er ítrekuð ára- tuga andstaða sósíalista við aðild. Flokkur- inn hefur hins vegar verið klof- inn í afstöðu til aðildar viðræðna. Nú er hann ein- huga um að h a ld a þ e i m áfram að formi til. Málamiðlun- in felst í því að fela ráð herrunum að setja nægjanlegar sterkar hindr- anir fyrir framgangi þeirra. Það hafa þeir reyndar gert bæði leynt og ljóst með góðum árangri. Segja má að ályktunin geymi ekki raunverulega breytingu á afstöðu. Hún er hins vegar skýrari en áður. Fyrir samstarfs flokkinn þýðir þessi samþykkt að hann getur ekki lengur lokað augun- um fyrir þeirri staðreynd að þessi ríkis stjórn hefur ekki það vald á málinu að hún geti lokið því. Hér gæti verið á ferðinni vísir að nýjum öxli VG, Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokksins um grundvöll utanríkisstefnunnar sem leysti af hólmi gamla öxulinn milli sjálfstæðismanna, jafnaðar- manna og framsóknarmanna um NATO. Vísir að nýjum öxli í utanríkismálum ÞORSTEINN PÁLSSON Ályktanir VG, Alþýðu-b a n d a l a g s i n s o g Sósíalista flokksins um úrsögn úr Atlantshafs- bandalaginu hafa í gegnum tíð- ina aðeins þjónað því hlutverki að vera æfing í hópefli á innanflokks- fundum. Út á við hefur andstað- an hins vegar verið óvirk. En hví skyldi ályktun um Evrópumál vera virk á sama tíma og ályktun um Atlantshafsbandalagið er það ekki? Aðstæður eru einfaldlega ólíkar þó að málin séu skyld. Þar kemur einkum tvennt til. Andstaða sósíalista var virk við inngönguna í Atlantshafs- bandalagið. Eftir það hafa þeir sætt sig við óbreytt ástand með óvirkri andstöðu vegna órofa sam- stöðu hinna flokkanna þriggja. Evrópusambandsaðild þýðir aftur á móti að Ísland stígur nýtt skref á sama utanríkispólitíska grundvelli og aðildin að NATO byggðist á. VG þarf að taka ábyrgð á þeim gern- ingi eigi að ljúka samningum. Það er stefnubreyting sem flokkurinn þolir tæpast. Síðan er veruleikinn sá að pólitísk staða VG hefur styrkst eftir að ljóst var að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn geta ekki unnið saman, hvorki á þessu né næsta kjörtímabili. Í þeirri stöðu þarf VG ekki að gefa eftir. Sam- fylkingin á enga útleið. Er þá ekki verið að svíkja stjórnar sáttmálann? Sjálfsagt má færa rök fyrir því. En meðan Samfylkingin lítur sjálf ekki svo á komast forystumenn VG eins langt og þeir sjálfir kjósa með þeirri aðferðafræði sem landsfundurinn samþykkti. Virkar ályktanir og óvirkar Evrópusambandið hefur tekið við af Atlantshafs-bandalaginu sem þunga-miðja pólitískrar samvinnu Evrópuþjóða. Í því ljósi er full aðild rökrétt framhald þeirrar utanríkis- stefnu sem mótuð var eftir seinni heimsstyrjöld. Það er nýtt skref á sömu braut í samræmi við breyttar aðstæður. Alþýðubandalagið var á sínum tíma einangrað í andstöðu við NATO vegna samstöðu þeirra flokka sem mynduðu öxul, utan sem innan stjórnar, um grundvöll utanríkis- stefnunnar. Nú hafa Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknar flokkur hins vegar fært sig að sjónarmiðum VG varðandi andstöðu við Evrópu- sambandið og um leið framtíðar- þróun utanríkis stefnunnar. Sameiginleg rök flokkanna þriggja er mynda vísinn að þessum nýja öxli gegn Evrópusambands- aðild eiga líka við EES-samninginn. Eigi að síður er ólíklegt að þeir leggi til að honum verði sagt upp í bráð. Á hinn bóginn má reikna með að stöðugleika stefna með virkri þátt- töku í bandalögum annarra Evrópu- þjóða verði smám saman víkjandi þáttur í utanríkisstefnu nýja öxuls- ins. Málflutningur flokkanna bend- ir til að tekin verði upp sveigjan- legri stefna með ríkari áherslu á að aka seglum eftir vindi og reyna að hafa gott af helstu valdaþjóðum til skiptis. Fríverslunar samningur við Kína gæti orðið fyrsta stóra verk- efnið. Þetta þýðir að utanríkis- stefnan breytist hægt og bítandi. Með vissum hætti er verið að veðja á að skammtímaráð dugi betur en langtíma skuldbindingar. Aðild að Evrópusambandinu á rætur í þeirri íhaldssemi að rétt sé að byggja áfram á þeim hugsjóna- grunni sem lagður var fyrir sex ára- tugum. Eins og málum er komið er þversögnin sú að hugsanlega þarf róttæka uppstokkun á flokka kerfinu til þess að þau íhaldssjónarmið lifi af. Utanríkisstefnan breytist hægt og bítandi Formannskandídatar í Sjálfstæðisflokknum eru sammála um að gefa frítt spil á miðjunni. Keppni um að minnka flokk
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.