Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 88
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR60
Bækur ★★★
Bónusstelpan
Ragna Sigurðardóttir
Mál og menning
Kraftaverka-
stelpan á kass-
anum
Diljá, aðalsögu-
persóna Bónus-
stelpunnar,
er að ljúka
myndlistarnámi
í Listaháskól-
anum og fær
snjalla hug-
mynd að loka-
verkefni. Hún
hyggst afgreiða
á kassa í Bónus
„með Bónusbleikt hár og skær-
bleikar varir“ undir vökulli mynda-
vélarlinsu, sem sýnir gjörning
hennar í safnrýminu meðan á
útskriftarsýningunni stendur.
Fljótlega fer að bera á því að
viðskiptavinir sækja frekar á kass-
ann til Diljár en annarra, vegna
þess að sá kvittur hefur komist á
kreik að glaðlynda Bónusstelpan
miðli gæfu til viðskiptavina sinna
og geri ef til vill kraftaverk.
Lífseig trú Íslendinga á hið óút-
skýrða og yfirnáttúrulega er hinn
rauði þráður sögunnar. Fólk úr
öllum áttum sækir til Diljár í von
um að hún aðstoði það við að
láta enda ná saman, hjálpi þeim
að uppfylla vonir sínar og þrár,
og lækni jafnvel sjúka ættingja
þeirra.
Diljá er nokkuð óþroskuð ung
kona, lítt þolinmóð og hugsar
ekki alltaf áður en hún fram-
kvæmir. Hún er fávís og for-
dómafull á köflum, kynnir sig
t.d. fjálglega sem „antífemínista“
og segir m.a. því til útskýringar
að konur geti gert allt sem þær
ætli sér, vegna þess að Vigdís
hafi verið hér forseti í 16 ár. Diljá
er líka fremur lengi að gera sér
grein fyrir því að trú fólksins á
Bónusstelpuna sé raunveruleg.
Í upphafi hafði hún ekki skýrara
markmið með gjörningnum
heldur en að hann yrði: „List í
tengslum við samfélagið. Eitthvað
þannig.“
Bónusstelpan er margradda
saga, þar sem brugðið er upp
myndum af persónum sem ýmist
tengjast Diljá fjölskyldu- eða
vinaböndum eða eru hluti þess
hóps sem sækir í að nálgast hana
sem kraftaverkastúlku. Foreldrar
hennar og systir, hinn dularfulli
Hafliði, kona með með óléttuþrá-
hyggju og maðurinn hennar,
kona sem fór mjög illa út úr
hruninu og kona sem njósnar um
aðra eru meðal þeirra persóna
sem fá pláss í sögunni. Höfundur
tæpir á margvíslegum búksorgum
þeirra: einn karlmaðurinn er t.d.
svo myndarlegur að hann hefur
alla ævi orðið fyrir kynferðislegri
áreitni kvenna, annar getur ekki
unnið vegna stöðugs bakverks og
þriðji hefur einangrast í geð-
rænum veikindum og gripið til
óhefðbundinna aðferða til þess
að tengja sig við samfélagið.
Að mörgu leyti er Bónus-
stelpan prýðileg bók, vel hugsuð
og skemmtileg, en hún ristir
ekki sérlega djúpt. Diljá tekur út
nokkurn þroska í sögunni og það
skín í gegn boðskapurinn um að
ekki skyldi fólk dæma of fljótt,
þar sem öll eigum við okkur
sögu, sem ekki blasir við öðrum
við fyrstu sýn, öll eigum við þrár
og óuppfylltar langanir. Á köflum
verður matreiðslan á þeim sann-
indum nokkuð klisjukennd, en
það bætir höfundurinn upp með
forvitnilegri söguuppbyggingu og
snjallri persónusköpun.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Niðurstaða: Prýðileg skáldsaga
sem ef til vill ristir ekki sérlega
djúpt, en státar af skemmtilegum
persónum og byggir á frumlegri
hugmynd.
Átta frummælendur taka Íslenska
listasögu til kostanna á málþingi sem
Listasafn Íslands efnir til í dag. Undir-
skrift þingsins er „hlutverk og gildi
listasögunnar í samtímanum“. Tilefnið
er nýútkomið yfirlitsrit um íslenska
listasögu frá síðari hluta 19. aldar
til upphafs 21. aldar, sem Listasafn
Íslands og Forlagið gáfu út saman.
Deildar meiningar eru um ágæti
verksins og hafa ýmsir úr listageir-
anum gagnrýnt efnistök höfunda
opinberlega. Markmið málþingsins
er að skapa vettvang fyrir umræðu
um efni bókanna, hlutverk og gildi í
samtímanum og gefa lesendum tæki-
færi til að varpa fram spurningum
sem vaknað kunna að hafa við lestur
ritanna.
Frummælendur eru Ólafur Kvar-
an ritstjóri, Halldór Björn Runólfs-
son safnstjóri, Eiríkur Þorláksson
listfræðingur, Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur, Hrafnhildur Sigurðar-
dóttir, formaður SÍM, Páll Baldvin
Baldvinsson gagnrýnandi, Jón Proppé
listheimspekingur og Helgi Þor-
gils Friðjónsson myndlistar maður.
Fundarstjóri er Aðalheiður Lilja Guð-
mundsdóttir listheimspekingur.
Málþingið fer fram í sal 1 í Lista-
safni Íslands við Fríkirkjuveg 7 frá
klukkan 11 til 14 í dag. Aðgangur er
ókeypis.
Málþing um Íslenska listasögu
ÓLAFUR KVARAN Ritstjóri Íslenskrar listasögu verður meðal frum-
mælenda á málþinginu í Listasafni í Íslands í dag.
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzo sopran
Lenka Mátéová
Ásgeir H. Steingrímsson
& Eiríkur Örn Pálsson
Eggert Pálsson
Friðrik S. kristinsson
Miðaverð: 4.200 kr.
Miðasala á www.kkor.is eða á www.karlakorreykjavikur.is
í Skálholtsdómkirkju
Sveinn Dúa Hjörleifsson, tenor
í Hallgrímskirkju
KARLAKÓR
REYKJAVÍKUR
Á aðventu 2011