Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 90
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR
„Ég sá mynd Pedro Almodóvar, The Skin I Live In,
um daginn og ég varð að segja að það var ekki
hans besta mynd. Hins vegar mæli ég með
myndinni Midnight In Paris eftir Woody
Allen, en hann klikkar aldrei.
Í dag mæli ég með því að fólk leggi leið
sína á Korpúlfsstaði þar sem Sigurður Valur
Sigurðsson er með yfirlitssýningu á sögu-
borðsteikningum. Ég ætla ekki að láta
sýninguna framhjá mér fara.“
Gott í bíó: Vera Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona
Woody Allen frekar
en Almodóvar
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 5. nóvember 2011
➜ Tónleikar
20.30 Bubbi Morthens heldur tónleika
í Grindavíkurkirkju. Miðaverð er kr.
2.500.
21.00 Jón Jónsson heldur tónleika í
Bíóhöllinni á Akranesi. Miðaverð er kr.
2.000.
21.30 Árshátíð hipphoppsins verður
á Gauki á Stöng þar sem BlazRoca,
XXX Rottweiler hundar, Sesar A, Tiny úr
Quarashi, Diddi Fel úr Forgotten Lores,
7berg, KáJoð úr Bæjarins bestu eru
meðal þeirra rappara sem munu trylla
lýðinn. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Bjartmar Guðlaugsson heldur
tónleika á Obladí Oblada, Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Tónleikar með Jónasi Sigurðs-
syni og Ritvélum Framtíðarinnar á
Græna hattinum. Miðaverð er kr. 2.500.
22.00 Andrea Gylfadóttir og Bíóbandið
leika lög úr þekktum kvik-
myndum á Café Rosenberg.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.
23.00 Hljómsveitin Retro
Stefson heldur tónleika á
Faktorý. Forsala miða
fer fram í Lólu,
Laugavegi 55 og á
Faktorý. Miðaverð
er kr. 1.000 í for-
sölu en. 1.500
við dyr.
23.00 Hljóm-
sveitin Trums kemur
fram á Players.
Sveitin spilar tónlist
með hljómsveitum
á borð við Queen
og Deep Purple.
➜ Opnanir
14.00 Sýningin Tvö pör opnar í 002
Galleríi, Þúfubarði 17 í Hafnarfirði.
Athugið að sýningin er aðeins opin
þessa einu helgi.
16.00 Ljóðskáldið Sveinn Snorri
Sveinsson opnar sýninguna Teikni-
myndasaga verður til, sem leiðir
áhorfandann í gegnum það ferli sem
á sér stað frá hugmynd að útgefinni
teiknimyndasögubók, í Galleríi Vestur-
vegg í Skaftfelli. Allir velkomnir.
17.00 Opnun sýningar á prentverkinu
American to Icelandic Dictionary /
Íslenska til bandaríska orðabók eftir
bandaríska myndlistarmanninn Abra
Ancliffe fer fram í Tækiminjasafni
Austurlands.
➜ Sýningar
11.00 Sviðsetning í MÍR-salnum,
Hverfisgötu 105, á orrustunni um Minsk
1944. Sýnt á stóru borði með módelum
í hlutföllunum 1:100. Húsið opnað kl.
11 og opið fram eftir degi. Aðgangur er
ókeypis.
➜ Síðustu forvöð
10.00 Sýningunni Dansleikur í Skyrtu-
dal á verkum austurríska listamannsins
Christians L. Attersee í Hafnarhúsi Lista-
safns Reykjavíkur lýkur um helgina.
10.00 Um helgina lýkur tveimur sýn-
ingum í Listasafni Reykjavíkur. Það eru
sýningarnar Ný list verður til á Kjarvals-
stöðum og Attersee - Dansleikur í
skyrtudal í Hafnarhúsi.
13.00 Síðasta sýningarhelgi á verkum
Þorbjargar Þorvaldsdóttur í Listasafni
Así. Safnið er opið frá kl. 13-17 og er
aðgangur ókeypis.
13.00 Sýningunni LeikVerk í Gerðu-
bergi lýkur um helgina. Á sýningunni
eru afar fjölbreytt og skemmtileg verk
sem eiga það öll sameiginlegt að fela
í sér leik á einn eða annan hátt. Þátt-
takendur í sýningunni eru tuttugu og
sjö talsins. Opnunartími Gerðubergs er
kl. 13-16.
13.00 Síðasta helgi sýningar Ingu
Þóreyjar Jóhansdóttur, Málverk og
myndastyttur, í Listasafni Así. Safnið er
opið frá kl. 13-17 um helgina. Aðgangur
er ókeypis.
14.00 Síðasta sýningarhelgi The Pleas-
ure Principle, norrænnar samsýningar
um samtímamálverk í sýningarstjórn
Mika Hannula, í Kling og Bang gallerí. Á
sýningunni eru skoðaðir möguleikar og
takmarkanir samtímamálverksins. Opið
er frá kl. 14-18 báða daga helgarinnar.
➜ Kvikmyndadagar
20.00 Heimildarmyndin An Independ-
ent Mind er sýnd á (Ó)sýnileg, kvik-
myndadögum Amnesty International
í Bíói Paradís. Myndin segir sögu átta
einstaklinga sem berjast fyrir rétti sínum
til tjáningar. Miðaverð er kr. 750.
➜ Unglist
14.00 Götuleikhús Hins Hússins
bregður fyrir sig betri fætinum og leikur
listir sínar sem aldrei fyrr á Laugaveg-
inum.
20.00 Nemendur af fataiðnbraut í
Hönnunar- og handverksskóla Tækni-
skólans sýna föt sem þeir hafa saumað
undir handleiðslu kennara, tískublaða
eða úr þeirra eigin hugskotum í innilaug
Laugardalslaugar við Sundlaugarveg.
➜ Ritþing
13.30 Á ritþingi Gerðubergs verður
farið yfir feril Vigdísar Grímsdóttur. Jafn-
framt les hún úr verkum sínum og Ellen
Kristjándóttir syngur.
➜ Kynningar
10.00 Ferðaskrifstofan ÍT ferðir verður
með ferðakynningu í Kringlunni frá
kl. 10-18. Áhugasamir geta skráð sig í
ferðir eins og í Knattspyrnuskóla Bobby
Charlton í Manchester, Körfuboltaskóla
Lazlo Nemeth í Englandi og göngu- og
ævintýraferð til Nepal.
➜ Málþing
11.00 Málþing um hlutverk og gildi
íslenskrar listasögu í samtímanum
fer fram í sal 1 í Listasafni Íslands við
Fríkirkjuveg 7 frá kl. 11- 14. Tilefnið er
útgáfa yfirlitsverksins Íslensk listasaga,
frá síðari hluta 19. aldar til upphafs
21. aldar. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
11.00 Íbúasamtök miðborgar, foreldra-
félög leik- og grunnskóla í miðborginni
og Hverfisráð miðborgar efna til mál-
þings um miðborgina sem íbúahverfi
kl. 11-15 í matsal Tækniskólans á
Skólavörðuholti.
14.00 Arkitektafélag Íslands fagnar
75 ára afmæli sínu með málþingi sitt í
Gyllta salnum á Hótel Borg. Aðgangur
á málþingið er frír og öllum opinn á
meðan pláss leyfir.
➜ Tónlist
22.00 Ómar á útvarpsstöðinni X-inu
stjórnar tónlistinni á Bar 11.
22.00 Lím Drím Tím, syngjandi plötu-
snúðar, syngja og spila tónlist á Faktorý.
23.00 Már og Níelsen stjórna tónlist-
inni á Kaffibarnum.
➜ Listamannaspjall
15.00 Halldór Ásgeirsson verður
með listamannaspjall um sýninguna
Bræð(r)alag ásamt því að bræða 5
hraunsteina ofan í jarðholu í Högg-
myndagarðinum, Nýlendugötu 17a.
Allir velkomnir.
➜ Myndlist
14.00 Samband íslenskra myndlistar-
manna heldur upp á Dag myndlistar
með opnum vinnustofum á víð og
dreif um landið. Nánari upplýsingar
um vinnustofurnar eru að finna á
dagurmyndlistar.is.
15.00 Lifandi viðburður með leik-
rænum tilburðum á Kjarvalsstöðum í
tengslum við sögusmiðjuna Sérvizka
Kjarvals sem myndlistarmaðurinn
Huginn Þór Arason leiðir með aðstoð
Klöru Þórhallsdóttur fulltrúa fræðslu-
deildar. Huginn veltir fyrir sér á lifandi
og myndrænan hátt hvort uppátæki
og hversdagslegar athafnir Jóhannesar
Kjarvals hafi í raun verið gjörningar.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
www.dagurmyndlistar.is
Opnar vinnustofur myndlistarmanna
Laugardaginn 05. nóvember 2011
Starfið felst í að sjá um heimasíðu Múrbúðarinnar.
Fara yfir og lagfæra núverandi síðu, setja inn
nýtt efni, útbúa kynningar og söluefni, þýða og
stað færa verklýsingar og aðrar upplýsingar.
Við leitum að starfsmanni með góð tök á texta-
gerð, þýðingum og þekkingu á myndvinnslu,
sem getur unnið sjálfstætt og með metnað
til að ná góðum árangri í starfi.
Viðkomandi starfsmaður verður með starfs-
aðstöðu að Kletthálsi 7 í Reykjavík.
Athugið að við erum ekki að leita að verktaka heldur föstum starfsmanni.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember. Umsóknir
ásamt starfsferilsskrá sendist á baldur@murbudin.is
UMSJÓN HEIMASÍÐU
MÚRBÚÐIN LEITAR AÐ STARFSMANNI