Fréttablaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 78
17. desember 2011 LAUGARDAGUR6
FÉLAGSÞJÓNUSTA RANGÁRVALLA-
OG VESTUR SKAFTAFELLSSÝSLU
Félagsmálastjóri
Félagsþjónusta Rangárvalla og Vestur-Skaftafellssýslu bs óskar
eftir að ráða félagsmálastjóra til starfa.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
Um er að ræða krefjandi og áhugavert starf í fjölbreyttu og góðu
samfélagi og tækifæri til þróunar þjónustu eru mikil.
Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með rekstri og ábyrgð á allri
starfsemi sem heyrir undir Félagsþjónustuna. Um er að ræða
félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, félagslega heimaþjónustu,
barnavernd, þjónustu við fatlað fólk, þjónustu við aldraða, hús-
næðismál, forvarnir o.fl. Félagsmálastjóri ber ábyrgð á meðferð
og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun,
þróun verklags og þjónustugæða. Einnig sinnir félagsmálastjóri
teymisvinnu og starfar með mismunandi fagstéttum innan
þjónustusvæðis sem utan.
Almennt stjórnunarsvið
Félagsmálastjóri starfar og stjórnar í samræmi við lög og
reglugerðir sem gilda um verkefni félagsþjónustu. Einnig eftir
lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu og samkvæmt
markmiðum Félagsþjónustunnar og fjárhagsáætlunar á hverjum
tíma. Nokkrir helstu samráðsaðilar eru stjórn byggðasamlagsins,
barnaverndarnefnd, félagsmálanefnd og þjónusturáð í málefnum
fatlaðra.
Menntunar- og hæfnisksröfur
Krafist er menntunar á sviði félagsráðgjafar, sálfræði eða
sambærilegrar menntunar sem nýtist í starfi. Viðkomandi þarf að
hafa frumkvæði og geta unnið sjálfstætt, hafa góða skipulags- og
samskiptahæfni og leiðtogahæfileika. Bílpróf er skilyrði. Reynsla
af stjórnunarstörfum og vettvangi félagsþjónustu sveitarfélaga er
æskileg.
Búseta
Æskilegt er að viðkomandi verði búsettur í Rangárvalla- eða
Vestur-Skaftafellssýslu.
Kjör
Laun og starfskjör samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stétt-
arfélags og launanefndar sveitarfélaga.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst. Aðsetur Félagsþjónustunnar er nú á Hvolsvelli
en mun flytjast á Hellu fyrri hluta árs 2012 og verður það eitt af
verkefnum félagsmálastjóra að skipuleggja starfsemina í nýju
umhverfi.
Umsóknarfrestur.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá berist fyrir 2. janúar n.k. á net-
fangið margret@rang.is eða í pósti: Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir,
Bolöldu 4, 850 Hella. Nánari upplýsingar veitir Margrét í síma
861-0484 eða í tölvupósti.
Wilhelmsen Ship Management. Mail: P O Box 33 NO - 1324 Lysaker, Norway. Office: Strandveien 20, 1366 Lysaker, Norway. Tel: +47 67 58 40 00, Fax: +47 67 58 44 96, Internet: www.wilhelmsen.com
MARITIME POSITIONS ON SEISMIC VESSELS
Due to expansion in our seismic fleet, Wilhelmsen Ship Management AS is looking for Captains, Chief Officers, Chief Engineers, 2nd Engineers, Electricians and Workboat-drivers
for seismic vessels on behalf of our seismic client.
Wilhelmsen Ship Management
Qualifications and skills:
Seismic experience required for Captain and Chief
Engineer
Seismic experience preferred for other positions
Good spoken and written English
Good computer skills
Able to work under pressure
Flexibility with a positive attitude and good social skills
Other information:
We can offer competitive conditions, good working
environment and good career opportunities in one of the
worlds leading ship management companies.
Contact person:
Manning Superintendent Marianne Sundgot, e-mail:
Marianne.sundgot@wilhelmsen.com, tel: +47 977 12 424.
We want all applicants to apply online only.
On PGSRECRUTING@wilhelmsen.com
We will request certificates and other documentation later.
Application deadline:
We are expanding our fleet and will therefore hire
throughout the year. The majority is needed from
the beginning of 2012 and the hiring process starts
immediately. Please send your application soonest.
Wilhelmsen Ship Management is one of
the world’s largest providers of third-party
ship management services. With an
extensive range of solutions to all vessel
segments on a global level, we can offer
you the management services that you
want – when and where you need them.
Our ship management services include:
technical management, crew management
and training, technical consultancy,
insurance, commercial management,
engineering consultancy and IT solutions.
Tvö embætti dómara við héraðsdóm
Reykjavíkur laus til umsóknar
Embætti tveggja dómara með fast sæti við héraðsdóm
Reykjavíkur eru laus til umsóknar, sbr. ákvæði laga um
dómstóla nr. 15/1998. Miðað er við að skipað verði í em-
bættin frá og með 1. mars 2102, eða hið fyrsta eftir að
nefnd um hæfni dómara hefur lokið starfi sínu í sam-
ræmi við 4. gr. a, sbr. 3. mgr. 12. gr. laga um dómstóla
nr. 15/1998 og reglur um störf dómnefndar sem fjallar um
hæfni umsækjenda um dómaraembætti nr. 620/2010. Laun
eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 12. gr.
laga um dómstóla nr. 15/1998. Í samræmi við 4. gr. reglna
nr. 620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsing-
ar um 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af
dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu
af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s.
kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar
um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilegir fyrir-
lestrar o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum
aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum
við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um
almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um and-
legt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 10) upp-
lýsingar um þrjá fyrrverandi samstarfsmenn sem geta
veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar
um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr.
reglna nr. 620/2020 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað
geta ljósi að faglega eiginleika og færni umsækjanda sem
máli skiptir fyrir störf héraðsdómara.
Umsóknir óskast sendar til innanríkisráðuneytisins,
Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík og á netfangið postur@irr.
is. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af
prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum
sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði,
3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi
hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) af-
rit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið
síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tíma-
ritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímarits-
greinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6)
Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til
starfa sem héraðsdómari.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna, er áskilið að um-
sækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga
öll samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu Sölvhóls-
götu 7, 150 Reykjavík eigi síðar en 4. janúar nk.
Innanríkisráðuneytinu,
15. desember 2011.