Fréttablaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 123
Verkefnisstjóri
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
113
49
9
Verkefnisstjóri hjá Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands
Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands leitar að verkefnisstjóra í framtíðarstarf til að sinna ráðgjöf á sviði
hagnýtingar þekkingar, einkaleyfa, stofnunar sprotafyrirtækja og þjónustu við háskólasamfélagið í sókn
eftir fjármagni til rannsókna og þróunar úr innlendum og erlendum samkeppnissjóðum. Starfið felur í sér
þátttöku í alþjóðlegu samstarfi.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi a.m.k. á meistarastigi á sviði raun- eða lífvísinda, laga-,
verk- eða viðskiptafræða. Reynsla af einhverju eftirfarandi er kostur: fyrirtækjarekstri eða stofnun
sprotafyrirtækja, vinnu við einkaleyfi, annað hvort einkaleyfaumsóknir eða framsalssamninga,
vinnu við umsóknir í alþjóðlega samkeppnissjóði eða reynsla af ráðgjöf og verkefnastjórnun.
Umsóknarfrestur er til 30. desember n.k. Ráðið verður í starfið frá 1. febrúar 2012.
Nánari upplýsingar um starfið á www.starfatorg.is, á heimasíðu
stofnunarinnar www.rthj.hi.is og hjá forstöðumanni,
Ágústi Hirti Ingþórssyni, í síma 525 4900, netfang: ahi@hi.is.
Fjarfestingatækifæri
Fasteignin Bjarkardalur 33, Reykjanesbæ, er til sölu en
hún er í eigu þrotabús Týrusar ehf. Um er að ræða þriggja
hæða fjöleignarhús með sex þriggja herbergja og tíu
fjögurra herbergja íbúðum sem eru tilbúnar til innréttinga
auk átta fokheldra bílskúra en fasteignin var byggð var
árið 2009. Íbúðirnar eru 98m2-121m2 að stærð. Óskað er
eftir tilboðum í eignina í heilu lagi.
Fasteignin Reynidalur 1, Reykjanesbæ, er til sölu en hún er
í eigu þrotabús Týrusar ehf. Um er að ræða tveggja hæða
fjöleignarhús með fjórum þriggja herbergja og ellefu
fjögurra herbergja íbúðum. Eignin er fullfrágengin en
fasteignin var byggð árið 2008. Íbúðirnar eru 97m2-118m2
að stærð. Óskað er eftir tilboðum í eignina í heilu lagi.
Fasteignirnar seljast í núverandi ástandi sem væntanlegir
tilboðsgjafar eru beðnir að kynna sér rækilega.
Allar nánari upplýsingar fást hjá skiptastjóra þrotabús
Týrusar ehf., Guðna Bergssyni hdl., sími 515-7400,
gudni@lr.is.
Eignirnar verða sýndar áhugasömum kaupendum á
milli kl. 13-14, þriðjudaginn 20. desember.
OP
IÐ
HÚ
S
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
5
73
50
1
1/
11
Umsjón með úrvinnslu umsókna hafa
Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Hilmar Garðar Hjaltason
(hilmar.hjaltason@capacent.is) hjá Capacent Ráðningu.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent
Ráðninga: www.capacent.is. Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starfið.
Orkuveita Reykjavíkur er orku- og veitufyrirtæki sem á hagkvæman og
sjálfbæran hátt tryggir lífsgæði og hæfni samfélagsins og hefur það hlutverk
að veita íbúum og atvinnulífi grunnþjónustu með veiturekstri. Starfssvæði
Orkuveitu Reykjavíkur nær til Suður- og Vesturlands auk höfuðborgarsvæðisins.
Hjá fyrirtækinu starfa 450 manns með mikla reynslu og þekkingu.
Hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á jafnrétti og eru einstaklingar af báðum kynjum
hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 2. janúar 2012.
Tæknistjóri hitaveitu
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Leiðir uppbyggingu og þróun hitaveitunnar
• Stýrir áætlanagerð hitaveitunnar
• Þátttaka í stefnumótun hitaveitunnar og sviðsins í heild
• Skilgreinir hönnunarforsendur fyrir uppbyggingu og öruggan rekstur
• Ábyrgð á forgangsröðun fjárfestinga og gangsetningu verkefna
• Heildaryfirsýn og eftirlit með allri virkni veitunnar
• Mótun á gjaldskrá veitunnar og eftirlit með tekjustreymi
• Vöktun á arðsemi og afkomu veitunnar
• Leiðir samningagerð fyrir hönd veitunnar
• Samskipti fyrir hönd hitaveitunnar við sveitarfélög og hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Próf í vélaverkfræði eða önnur sambærileg menntun
• Frumkvæði, metnaður, sveigjanleiki og eldmóður í starfi
• Reynsla af hitaveitukerfum, dælubúnaði og stýrikerfum æskileg
• Þekking og menntun í viðskiptafræðum kostur en ekki skilyrði
• Almenn rekstrar- og hönnunarreynsla æskileg en ekki skilyrði
• Mjög góð tölvukunnátta
• Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
og sjálfstæði í vinnubrögðum
Veitusvið Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir að ráða vélaverkfræðing.
Önnur sambærileg menntun kemur einnig til greina.
Tæknistjóri hitaveitu gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu, rekstri og afkomu hitaveitunnar og stuðlar með frumkvæði
og metnaði að hagkvæmum og öruggum rekstri stærstu hitaveitu landsins. Tæknistjóri heyrir undir forstöðumann
tækni á veitusviði. Veitusvið annast rekstur og uppbyggingu allra veitukerfa Orkuveitunnar, sinnir eftirliti og viðhaldi
og hefur með höndum stjórnun og vöktun á öllu kerfinu.