Fréttablaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 40
17. desember 2011 LAUGARDAGUR40
F
lestir telja Sjálfstæðis-
flokkinn best til þess
fallinn að leiða tíu
af tólf stórum mála-
flokkum sem spurt
var um í nýrri skoð-
anakönnun MMR. Aðeins í tveim-
ur tilvikum telja flestir að öðrum
flokki sé best treystandi fyrir
ákveðnum málaflokki, í báðum
tilvikum Vinstri grænum.
Stuðningur við stjórnarflokk-
ana ýmist stendur í stað eða dalar,
og sama á við um traust almenn-
ings til þeirra þegar kemur að því
að leiða mikilvæga málaflokka.
Á sama tíma eykst traust
almennings á Framsóknar-
flokknum, en traust á Hreyfing-
unni dregst saman um helming.
Þetta er í fjórða skiptið sem
MMR kannar hvaða flokki fólk
treystir best til mikilvægra
verka. Í könnuninni eru þátttak-
endur spurðir hvaða flokki þeir
treysta best til að leiða tólf mála-
flokka. Í síðustu könnun, sem gerð
var í desember í fyrra, var spurt
um þrettán málaflokka. Nú var
ekki lengur talin þörf á að spyrja
hvaða flokki fólk treysti best til
að leiða Icesave-málið til lykta og
standa því tólf málaflokkar eftir.
Lesa má niðurstöðurnar úr
einstökum málaflokkum út úr
myndum á þessari síðu og þeirri
næstu. Úr myndunum má einnig
lesa hvernig þróunin hefur verið,
í sumum tilvikum allt frá því
MMR gerði fyrstu könnunina í
apríl 2009.
Í þeirri könnun treystu lands-
menn Samfylkingunni eða Vinstri
grænum best til þess að leiða alla
málaflokkana sem spurt var um,
allt frá efnahagsmálum og skatta-
málum að rannsókn á tildrögum
bankahrunsins.
Treysta VG best í tveimur tilvikum
Staðan hefur breyst verulega
síðan. Nú treysta landsmenn
Vinstri grænum best til að fara
með umhverfismál og rannsókn á
tildrögum banka hrunsins. Í öllum
öðrum málaflokkum segjast
hlutfallslega flestir treysta
Sjálfstæðis flokknum.
Litlar breytingar hafa orðið á
því ári sem liðið er síðan MMR
gerði síðustu könnun. Þegar litið
er á niðurstöðurnar í heild segj-
ast að meðaltali ívið fleiri treysta
Framsóknarflokknum í ein-
hverjum af málaflokkunum tólf.
Að meðaltali nefna 10,6 prósent
flokkinn í hverjum málaflokki,
samanborið við 8,9 prósent í
fyrra.
Heldur fleiri treysta Sjálfstæðis-
f lokknum í f lestum mála-
flokkunum. Að meðaltali treysta
37,3 prósent flokknum, saman-
borið við 35,2 prósent í fyrra. Þá
segjast aðeins fleiri treysta Sam-
fylkingunni, að meðaltali 18,9 pró-
sent, en 17,8 prósent í fyrra.
Svipað hlutfall treystir Vinstri
grænum, 16,3 prósent treysta
flokknum að meðaltali í mála-
flokkunum tólf, en 16,2 prósent í
fyrra.
Fylgi Hreyfingarinnar mælist
afar lágt, og þegar spurt er hvaða
flokki fólk treystir best til að
FRAMHALD Á SÍÐU 42
Flestir treysta Sjálfstæðisflokki
Landsmenn treysta Vinstri grænum best til að draga vagninn þegar kemur að umhverfismálum og rannsókn á tildrögum banka-
hrunsins. Í ellefu öðrum málaflokkum treysta þeir Sjálfstæðisflokknum best til að leiða málaflokkana, samkvæmt niðurstöðum
könnunar MMR. Brjánn Jónasson kynnti sér hvernig tengslin milli fylgis flokka og trausts í ákveðnum málaflokkum geta rofnað.
Könnun MMR var gerð dagana 6.
til 9. desember. Um netkönnun
var að ræða. Alls tóku 865 manns
á aldrinum 18 til 67 ára þátt í
könnuninni. Svarhlutfall var á
bilinu 55,9 til 61,8 prósent, mis-
jafnt milli spurninga. Að meðaltali
tók 60,1 prósent afstöðu til hverrar
spurningar.
Þátttakendur voru valdir
handahófskennt úr hópi liðlega
12 þúsund álitsgjafa MMR. Í hópi
álitsgjafa eru einstaklingar sem
valdir voru með tilviljunarúrtaki
í þjóðskrá og samþykktu að taka
þátt í netkönnunum og síma-
könnunum. Viðurkenndum
aðferðum er beitt til að svörun
endurspegli lýðfræðilega sam-
setningu þjóðarinnar.
AÐFERÐAFRÆÐIN
Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknar-
flokkinn hefur aukist á því ári sem liðið er síðan MMR
kannaði síðast traust til flokkanna til að sinna ákveðnum
málaflokkum. Stuðningur við ríkisstjórnarflokkana dalar
hins vegar enn, og var þó langt undir kjörfylgi samkvæmt
mælingunni í desember á síðasta ári.
Stjórnarflokkarnir mælast nú samanlagt með 31,1
prósents fylgi, en fengu samanlagt 51,5 prósent í
síðustu kosningum. Yrðu niðurstöður kosninga á þessa
leið myndi stjórnin falla, stjórnarflokkarnir fengju 22
þingmenn af þeim 32 sem þarf til að tryggja meirihluta.
Sjálfstæðisflokkurinn er sem fyrr stærsti flokkurinn.
Í dag segjast 38,5 prósent myndu styðja flokkinn yrði
gengið til kosninga nú. Í fyrra sögðust 35,7 prósent styðja
flokkinn. Flokkurinn er í dag með 16 þingmenn, en fengi
29 yrðu niðurstöður kosninga í samræmi við könnun
MMR.
Stuðningur við Framsóknarflokkinn eykst einnig
milli ára. Nú segjast 15,9 prósent styðja flokkinn, en 13
prósent studdu hann fyrir ári. Yrðu þetta niðurstöður
kosninga fengi Framsóknarflokkurinn 12 þingmenn, en
er með 9 í dag.
Stuðningur við Samfylkinguna er svipaður í þeirri
könnun sem gerð var nú í desember og í könnun sem
gerð var í desember í fyrra. Nú segist 18,1 prósent
myndu kjósa flokkinn, en 18,5 prósent í fyrra. Þessi
stuðningur myndi skila Samfylkingunni 13 þingmönnum,
en flokkurinn er með 20 þingmenn í dag.
Heldur dregur úr stuðningi við Vinstri græn. Flokkurinn
mælist nú með stuðning 13 prósenta landsmanna, en
14,5 prósent í könnuninni í fyrra. Flokkurinn fengi miðað
við þetta 9 þingmenn en er með 12 í dag.
Hreyfingin myndi þurrkast út yrðu niðurstöður kosn-
inga í takti við könnun MMR. Um 3,8 prósent myndu
samkvæmt henni kjósa flokkinn, en 6,7 prósent sögðust
myndu kjósa hann á sama tíma í fyrra. Stuðningurinn
myndi ekki duga flokknum til að ná manni á þing.
Alls segjast 10,8 prósent myndu kjósa einhvern
annan flokk, en 11,6 prósent sögðust vilja annan flokk í
könnuninni í fyrra.
Við útreikning á þingsætum er reiknað með að
þessi atkvæði dreifist á nokkra flokka en enginn nái
því lágmarki sem þarf til að ná manni á þing, þar sem
ómögulegt er að sjá fyrir hvernig stuðningur þessara
einstaklinga myndi dreifast á framboð sem enn hafa ekki
komið fram.
■ SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR OG FRAMSÓKNARFLOKKUR VINNA Á
Annar
flokkur
40
30
20
10
0
D
es
em
be
r
20
10
15,9% 38,5% 3,8% 18,1% 13,0% 10,8%
■ Heilbrigðismál
■ Lög og regla almennt
■ Skattamál
■ Atvinnuleysi
■ Innflytjendamál
■ Mennta- og skólamál
Annar
flokkur
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Annar
flokkur
Annar
flokkur
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Annar
flokkur
■ Apríl 2009
■ Desember 2010
■ Desember 2011
■ Apríl 2009
■ Desember 2010
■ Desember 2011
0 10 20 30 40
%%
Framsóknarflokkur
11,7%
Framsóknarflokkur
11,2%
Sjálfstæðisflokkur
45,5%
Sjálfstæðisflokkur
44,6%
Hreyfingin
2,9%
Hreyfingin
2,1%
Samfylkingin
16,9%
Samfylkingin
18,1%
Vinstri græn
11,2%
Vinstri græn
11,4%
Annar flokkur
11,9%
Annar flokkur
12,7%
Desember
2011
Desember
2011
Desember
2010
Desember
2010
11,3 36,3 1,9 23,7 13,9 12,9 8,7 35,2 3,6 21,4 17,6 13,5
0 10 20 30 40
■ Apríl 2009
■ Febrúar 2010
■ Desember 2010
■ Desember 2011
■ Apríl 2009
■ Febrúar 2010
■ Desember 2010
■ Desember 20119,2%
41,0%
2,6%
19,7%
14,7%
12,7%
9,9%
38,2%
1,9%
18,3%
19,5%
12,2%