Fréttablaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 70
„Allt frá því ég byrj-
aði að handgera konfekt
2003 hefur mig dreymt
um að eignast súkkulaði-
búð,“ segir Hafliði, sem
fékk bakstursáhugann á
æskuárunum.
„Ég minnist nota-
legra stunda í smáköku-
bakstri með mömmu og
áts dásamlegs bakkelsis
hjá ömmu og svo afa í
hina áttina sem var bak-
ari. Bakstur er svo nota-
legur, en einnig skap-
andi. Þá sköpunarþrá og
skemmtun þarf að varð-
veita við störf í bakaríi
og ekki nóg að henda í
hrærivél og inn í ofn,
því þá verður bragðið ekki einu sinni gott. Því þarf alltaf að baka með
ástríðu og heilum hug,“ segir Hafliði, sem einnig starfar í Mosfells-
bakaríi sem hefur verið í eigu fjölskyldu hans í hartnær þrjátíu ár.
„Ég baka lítið heima í eldhúsi fyrir jólin, fyrir utan að hnoða í pipar-
kökur og setja saman piparkökuhús til að fá jólalykt í húsið. Þá lími ég
húsið saman og börnin skemmta sér við að skreyta.“
Og þótt nú sé upp runnin síðasta helgi fyrir jól segir Hafliði enn
tíma til að skella í nokkrar smákökur.
„Það er aldrei of seint að baka, en enginn verður góður bakari án
þess að hafa prufað sig áfram. Æfingin skapar meistarann í þessu sem
öðru. Mikilvægt að velja góðar, einfaldar og margreyndar uppskriftir
og fara eftir þeim í hvívetna,“ segir Hafliði sem býður sínum gestum
eðlilega upp á smákökur úr bakaríinu um jólin.
Um helgina ætlar Hafliði að setja heimili sitt í jólabúning og kaupa
fáeinar jólagjafir.
„Ég er nýbyrjaður í jólainnkaupunum því mér finnst skemmtilegast
að vera í bænum þegar mikið er af fólki og jólastemningin allsráðandi.
Konan mín sér um stærstu innkaupin en ég fer með, segi já og nei, og
tek upp budduna. Þá ætla ég með krakkana á jólamarkaðinn á Ingólfs-
torgi og velja þar stafafuru í fyrsta sinn sem jólatré.“
thordis@frettabladid.is
Hafliði í súkkulaðibúðinni í húsi Skúla fógeta í Aðal-
stræti 10. Þar verður opið til klukkan 22 fram til jóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Framhald af forsíðu
laxdal.is
Glæsileg vönduð
Ullarkápa er
drauma-jólagjöfin
25% af hagnaði frá framleiðanda fer til góðgerðamála,
nú í ár styðjum við samtök gegn einelti.
Á Íslandi ætlum við að styrkja
Regnbogabörn.
Útsölustaðir:
Kastanía Höfðatorgi, Rvík
Versl. Arna Grímsbæ, Rvík
Kultur Kringlunni, Rvík
Úr og Gull Firði Hafnarfirði
Nýtt á Íslandi
Good Works leðurarmböndin sem slegið
hafa í gegn víða um heim
Heildsöludreifing:
Óm snyrtivörur ehf
Tunguvegi 19
108 Reykjavík
S: 568 0829
www.om.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið mán - fös 10-18,
laugardaga og sunnudaga 10-18,
www.topphusid.is
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða haldnir um helgina. Þar
syngur kórinn ásamt Gradualekór Langholtskirkju, en stjórnandi er Jón
Stefánsson. Kórarnir flytja jólalög hvor fyrir sig og einnig allir saman en
gestakór er Táknmálskórinn. Í hléi er boðið upp á rjúkandi jólasúkkulaði
og piparkökur.
Hlýja og kærleikur er þemað á
árlegri Sælustund í Fríkirkjunni.
Áhorfendur leika ekki síður hlut-
verk í dagskránni en þeir tón-
listarmenn er fram koma.
Svokölluð árleg Sælustund í
skammdeginu er haldin í Fríkirkj-
unni í Reykjavík í kvöld og hefst
klukkan 21. Sælustundin saman-
stendur af ljúfri jóladagskrá,
söng, hugvekjum og sögum, þar
sem fram koma tónlistarmenn úr
ýmsum áttum. Má þar nefna Karít-
ur Íslands og Hilmar Örn Agnars-
son, Svavar Knút, Önnu Jónsdóttur
sópransöngkonu og Myrru. Þá er
slegið til samsöngs en áherslan er
á hlýju og mannlega nærveru.
Miðaverð er 2.500 krónur en
ókeypis er fyrir börn í fylgd með
foreldrum. Miðasala er meðal ann-
ars á midi.is.
Sælustund í
skammdegi
Meðal tónlistarfólks sem fram kemur í
Fríkirkjunni í kvöld eru Karítur Íslands,
Anna Jónsdóttir og Myrra.