Fréttablaðið - 17.12.2011, Qupperneq 71
LAUGARDAGUR 17. desember 2011 3
Sendum í póstkröfu
Kringlan 4 - 12
Reykjavík s: 588 - 1705
Hafnarstræti 106, göngugötunni
Akureyri s: 463 - 3100
Lj
ós
m
yn
da
ri
He
id
a.
is
S - XL 5.900.-S - XL 5.900.-
Skyrta S - XL 5.900.-
Golla S - XL 4 litir 4.950.- Gallabuxur d.bláar stretch 7.900.- Gallabuxur bláar stretch 7.900.-
25% afsláttur af HUMMEL
laugardag & sunnudag
JÓLAGJÖFINA FINNUR ÞÚ HJÁ OKKUR !
Ég gæti trúað að það lægi í eðli
okkar kvenna að vilja hlúa að
samfélaginu og eitt af gildum
ELLU er að vera samfélagslega
ábyrgt fyrirtæki,“ segir Elínrós
Líndal, eigandi ELLU, um ástæðu
styrkveitingarinnar. „Við völd-
um UN Women af því við viljum
styðja við konur sem minna mega
sín í þróunarlöndum. Styrkurinn
okkar rennur óskertur í Styrkt-
arsjóð samtakanna til að afnema
ofbeldi gegn konum. Þannig mun
ELLA með litlum vængjaslætti
í norðri hafa fiðrildaáhrif á líf
kvenna og fjölskyldna þeirra víða
um heiminn.“
Ilmvötnin ELLA Day og ELLA
Night voru sett á markað í apríl
á þessu ári og Elínrós segir það
hafa verið ákveðið strax í upphafi
að heita á UN Women. „Við trúð-
um því að það færði okkur lukku,
og það hefur sannast. Salan hefur
verið ótrúlega góð og við fáum
pantanir í gegnum vefsíðuna alls
staðar að úr heiminum.“ Elínrós
vill þó ekki gefa upp hversu há
upphæð styrksins er en hún sé
umtalsverð miðað við fyrirtæki í
nýsköpun. „Það er gleðilegt þegar
svona lítið nýsköpunarfyrirtæki
getur látið til sín taka með þess-
um hætti og við erum mjög ánægð
og þakklát.“
UN Women hafa starfað á
Íslandi í tæpt ár og Elínrós segir
samtökin eiga sérstakan stað í
hjarta sér. „Ég var svo lánsöm að
hafa tíma aflögu fyrir nokkrum
árum og vann þá hluta af ári fyrir
þessu einstöku samtök. Þar kynnt-
ist ég því hversu vel rekin þessi
stofnun er og hversu mikil áhrif
hún hefur. Til styrktarsjóðsins
sækja konur um fjármagn til að
útrýma ofbeldi í sínum samfélög-
um. Þetta eru konur rétt eins og þú
og ég nema hvað að þær eru ekki
svo lánsamar að vera fæddar hér á
landi. Þess vegna er svo mikilvægt
að við styrkjum þær og sendum
skýr skilaboð um að annars stað-
ar á jarðkringlunni séu konur sem
láta sig velferð þeirra varða.“
fridrikab@frettabladid.is
Styrkir UN Women með
ágóða af ilmvatnssölu
ELLA gefur 1.000 krónur af hverju seldu ilmvatnsglasi til UN Women og verður styrkurinn afhentur í hófi
í versluninni á morgun á afmæli samtakanna. Elínrós Líndal, eigandi ELLU, segir söluna á ilmvatninu
hafa farið fram úr björtustu vonum.
Elínrós Líndal, eigandi ELLU, segist þakklát og ánægð með viðtökurnar sem
ilmvötnin ELLA Day og ELLA Night hafa fengið. MYND/LILJA BJÖRG
Jón Svavar Jósefsson og djasskvartettinn Ferlíki verða í
jólaskapi á Café Haiti í kvöld og leika og syngja djasskorn og
dægurljóð úr ýmsum áttum.
„Ég er nú tiltölulega nýkominn inn í þetta. Ferlíki var búið að
spila saman í töluverðan tíma áður en ég bættist við. En við höfum
haldið tvenna tónleika og erum bara svo góðir að fólk vill endilega
heyra meira frá okkur,“ segir Jón Svavar og glottir. „Við verðum í
léttum aðventufíling og uppistaðan í prógramminu eru svona „krú-
nerdjasslög“. Trommuleikarinn verður reyndar fjarri góðu gamni
en í staðinn fáum við trompetleikarann Ragnhildi Gunnarsdóttur
til liðs við okkur og ég er mjög spenntur fyrir því.“
Jón Svavar mun einnig syngja með Ferlíki á Kaffibarnum á
þriðjudagskvöldið og þá verður trommarinn Magnús Tryggvason
Eliassen aftur mættur til leiks. „Þar verðum við væntanlega í enn
meiri aðventufíling,“ segir Jón Svavar. „Og þá er frítt inn meira að
segja.“
Aðrir meðlimir Ferlíkis eru Ásgrímur Angantýsson á píanó, Jón
Ómar Árnason á gítar og Þórður Högnason bassaleikari. - fsb
Við erum bara
svo góðir
Jón Svavar Jósefsson söngvari verður í
aðventufíling með djasskvartettinum Ferlíki
á Café Haiti í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jólasýning Árbæjarsafns er opin á sunnudaginn frá
klukkan 13 til 17. Klukkan 14 er guðsþjónusta í safn-
kirkjunni og á sama tíma les Bryndís Björgvinsdóttir
úr bók sinni Flugan sem stöðvaði stríðið.
Klukkan 15 hefst jólatrésskemmtun á
torginu. Þar verða sungin jólalög og
dansað í kringum jólatréð. Jólasveinar
verða á vappi frá 14 til 16.
www.gerumeitthvad.is