Fréttablaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 12
17. desember 2011 LAUGARDAGUR12
SVÍÞJÓÐ Sænska dagblaðið
Expressen birti í gær mynd sem
fyrrverandi klámbúllueigandinn
og glæpamaðurinn Mille Marko-
vic fullyrðir að sé af Karli Gúst-
af Svíakonungi innan um nektar-
dansmeyjar.
Expressen hefur látið sérfræð-
inga þriggja myndgreiningar-
fyrirtækja, tveggja breskra og
eins sænsks, rannsaka myndina.
Niðurstaða rannsókna þeirra er
að vissir hlutar myndarinnar
séu falsaðir, samkvæmt frásögn
Expressen.
Á myndinni, sem er af mynd-
bandsupptöku, situr karl-
maður, hallar sér aftur og
horfir á léttklæddar konur
sem gamna sér í sófa. Viss
tæknileg atriði þykja geta
bent til þess að skipt hafi
verið um andlit á mynd-
inni. Það er ljósara en aðrir
líkamshlutar mannsins auk
þess sem birtan fellur öðru-
vísi á hann heldur en á
aðra hluta myndar-
innar. Markovic,
sem dæmdur
hefur verið
fyrir fjölda
afbrota, sagði á leið í
réttarsal í gær að átt
hefði verið við mynd-
ina til þess að vernda
stúlkurnar.
Myndin verður birt
í ævisögu Markovic
sem kemur út í janú-
ar. Ævisöguritarinn,
Deanne Rauscher, er
annar höfunda bókar
um konunginn
sem kom út í
fyrra, Den
motvillige
monarken,
en í henni var greint frá meintum
kvennamálum konungs og heim-
sóknum hans í klúbba glæpa-
manna.
Meirihluti Svía vill að konung-
urinn láti af embætti samkvæmt
niðurstöðu könnunar á vegum
TV4 sem gerð var fyrir nokkr-
um dögum. Staða konungs hefur
versnað enn frekar eftir fréttir
af leynilegum samningaviðræð-
um náins vinar hans við mafíuna
um að Markovic hætti við birt-
ingu meintra konungsmynda gegn
greiðslu upp á milljónir sænskra
króna. - ibs
„Mynd af Svíakonungi“ sem sænska blaðið Expressen birti hefur valdið titringi hjá sænsku hirðinni:
Klámbúllumyndin af kónginum talin fölsuð
KARL GÚSTAF
SVÍAKONUNGUR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akur-
eyri lagði í fyrradag hald á fimmtíu
grömm af kannabisefnum og 200
þúsund krónur heima hjá manni um
tvítugt. Maðurinn hafði áður verið
handtekinn vegna gruns um akstur
undir áhrifum ólöglegra fíkniefna.
Í bíl hans hafði fundist smáræði af
kannabisefnum, sem leiddi til hús-
leitarinnar. Peningarnir eru taldir
vera ágóði af fíkniefnasölu.
Í iðnaðarhúsnæði á Akur-
eyri tók lögregla síðan rúmlega
tíu grömm af kannabisefnum
og nokkurt magn ofskynjunar-
sveppa.
Í gærmorgun var síðan gerð
enn ein húsleit þar sem hald var
lagt á 25 kannabisplöntur auk
tækja til ræktunar hjá manni á
þrítugsaldri. Öll málin þrjú telj-
ast upplýst. - jss
Þrjú fíkniefnamál komu upp á Akureyri:
Tóku kannabis og
ofskynjunarsveppi
ALÞINGI Allsherjar- og mennta-
málanefnd Alþingis hefur lagt til
að 24 verði veittur íslenskur ríkis-
borgararéttur og lagt fram frum-
varp þess efnis.
Meðal þeirra nafna sem finna
má á listanum er Mehdi Kavyan-
poor. Íraninn komst í fréttir í
mars þegar hann gekk inn í hús-
næði Rauða krossins, hellti yfir
sig bensíni og hótaði að leggja að
sér eld. Þetta gerði hann til að mót-
mæla því að hafa ekki fengið hér
hæli af mannúðarástæðum. Hann
fullyrti að hann hefði sætt pynt-
ingum af hálfu íranskra stjórn-
valda.
Mehdi var handtekinn og málið
rannsakað en að lokum var ákveð-
ið að gefa ekki út ákæru þar sem
ekki þótti sýnt fram á að hann
hefði ætlað að skaða aðra en sjálf-
an sig.
Mehdi var í skýjunum með
ákvörðun nefndarinnar þegar
Fréttablaðið náði tali af honum.
„Mér finnst ég svo heppinn, ég er
svo hamingjusamur,“ sagði hann,
þótt hann gerði þann fyrir vara
að frumvarpið hefði ekki verið
samþykkt. Hann segist ekki hafa
átt von á þessu. „Nei, ég er mjög
hissa og get hreinlega ekki hugs-
að skýrt.“
Annar sem nefndin leggur til
að fái íslenskt ríkisfang er Siim
Vitsut, tveggja ára sonur Hann-
esar Þórs Helgasonar, sem Gunn-
ar Rúnar Sigurþórsson myrti í
sumar lok í fyrra. Skömmu eftir
morðið kom í ljós að Hannes átti
son í Litháen.
„Ég er mjög ánægður með
þetta,“ segir Helgi Vilhjálmsson
í Góu, faðir Hannesar, um tillögu
nefndarinnar. „Þetta er ekki nema
eðlilegt, pabbi hans var íslenskur
og afi hans líka – rammíslenskur,“
bætir hann við.
Siim litla var útvegaður lög-
fræðingur til að gæta hagsmuna
hans við málareksturinn gegn
Gunnari Rúnari, hvað bætur og
annað varðaði. Helgi segist hafa
nefnt það við lögmanninn að
gaman væri ef drengurinn öðlaðist
tvöfalt ríkisfang og lögmaðurinn
hafi í kjölfarið gengið í að útbúa
umsókn.
„Auðvitað hefur maður áhuga á
því að drengurinn sé með íslensk-
an ríkisborgararétt svo maður geti
tekið á móti honum eins og öðrum
barnabörnum. Ég er svona barna-
karl,“ segir Helgi.
Allsherjarnefnd bárust 42
umsóknir um ríkisborgararétt að
þessu sinni og lagði til að 24 fengju
hann. Þeir eru frá átján löndum í
Evrópu, Asíu, Afríku og Suður-
Ameríku. stigur@frettabladid.is
Tillögur um
nýja borgara
vekja gleði
Mehdi Kavyanpoor segist ekki geta hugsað skýrt, svo
ánægður sé hann með tillögu um íslenskt ríkisfang
honum til handa. Helgi í Góu fagnar því að sonar-
sonur hans frá Litháen sé á lista allsherjarnefndar.
HELGI
VILHJÁLMSSON.
MEHDI
KAVYANPOOR.
ALÞINGI Allsherjar- og menntamálanefnd hefur lagt fram frumvarp um nýja Íslend-
inga. Alþingi á eftir að samþykkja frumvarpið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA