Fréttablaðið - 17.12.2011, Side 120
17. desember 2011 LAUGARDAGUR88
Mozart við kertaljós
Kammertónlist á aðventu 2011
Camerarctica
Gestur: Daði Kolbeinsson óbó
Miðasala við innganginn, miðaverð kr. 2.500 / 1.500
Hafnarfjarðarkirkju mánudag 19. des. kl. 21.00
Kópavogskirkju þriðjudag 20. des. kl. 21.00
Garðakirkju á Álftanesi miðvikudag 21. des. kl. 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudag 22. des. kl. 21.00
Bækur ★★
Eitt andartak í einu
Harpa Jónsdóttir
Salka
Ástir og örlög
þorparanna
Eitt andartak í einu er fyrsta skáldsaga
Hörpu Jónsdóttur, en áður hefur hún
sent frá sér ljóðabók og barnabók. Hér
segir af lífi fólks í óskilgreindu þorpi
á Íslandi og eins og títt er í þorps-
sögum er höfundi mikið í mun að
koma sem flestum þorpsbúum að í
sögunni þannig að persónur birtast
eins og skrattinn úr sauðarleggnum í einu atriði eða tveimur,
eru hvorki kynntar til sögunnar né kvaddar, gufa bara upp. Aðalpersónurnar
eru Lárus, borinn og barnfæddur í þorpinu, og aðkomustúlkan Sólveig sem
flýr sollinn í höfuðborginni, komin sjö mánuði á leið. Þau fella að sjálfsögðu
hugi saman en lifa þó ekki lukkuleg upp frá því.
Þótt þorpið sé aldrei nefnt á nafn í sögunni er nokkuð ljóst að það er
Flateyri, vísað er aftur og aftur til „hörmunganna” sem dundu yfir, án þess
þó að nokkru sinni sé nefnt hvaða hörmungar það voru, það á lesandinn
greinilega bara að vita. Hvers vegna var þorpið ekki bara látið heita Flateyri?
Sömuleiðis liggur nokkuð beint við að setja spurningarmerki við hinar
tætingslegu uppdúkkanir ýmissa persóna. Sagan hefði orðið mun heillegri
og sterkari ef hún hefði verið þétt og skerpt og saga aðalpersónanna betur
útlistuð.
Lárus er nokkuð skýrt mótuð persóna en Sólveig er hins vegar huldukona,
kvenmynd eilífðarinnar í bláu, óræð og óútskýrð. Það er stór galli þar sem
örlög hennar verða ansi ótrúleg miðað við þær forsendur sem lesandinn
hefur.
Stíllinn er ekki tilþrifamikill, sagan byggist upp af náttúrulýsingum og
samtölum, sem mörg hver eru grátlega pínleg. Forsaga persónanna er öll í
mýflugumynd og hver klisjan rekur aðra: Þurri alkinn, flagarinn, skólastjór-
inn, stressaða konan á skrifstofu frystihússins, fúllynda kjaftakellingin, vondi
maðurinn að sunnan og vondar konur að sunnan, vonda tengdadóttirin,
fjárhagslega farsæli maðurinn í frosna hjónabandinu og svo framvegis og
svo framvegis.
Sagan sjálf er hefðbundin ástar- og örlagasaga, minnir á Ingibjörgu Sig-
urðar upp á sitt besta: trausti, þybbni, feimni, hægláti maðurinn með hjarta
úr gulli tekur að sér stúlkuna og býður henni að leggja heiminn að fótum
hennar, en hún lætur sér ekki segjast. Glefsurnar úr þorpslífinu lífga aðeins
upp á þennan þrautþekkta þráð, en einnig þær eru ansi klisjukenndar og
hefðu þurft að vinnast miklu betur. Harpa hefur hugmyndirnar og eljuna til
að skrifa þær, það sem vantar er vinnsla á textanum, þjöppun og skýrari sýn
á viðfangsefnið. Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Hefðbundin þorpssaga með velþekktum persónum en nokkuð
óvæntu tvisti.
Íslenski kammerhópurinn Nordic
Affect gerði á dögunum hljóm-
plötusamning við hollenska
útgáfufyrirtækið Brilliant Class-
ics og er geisladiskur með leik
þeirra á leið í verslanir um allan
heim 1. janúar næstkomandi.
Diskurinn verður þó fáanlegur í
12 Tónum fyrir jól. Á diskinum er
að finna verk eftir þýska gömbu-
snillinginn Carl Friedrich Abel
sem uppi var á 18. öld. Þetta eru
tónsmíðar sem standa á mörkum
barokks og klassíkur og eru ekki
oft fluttar í dag.
Kammerhópurinn Nordic
Affect hefur verið starfræktur
frá árinu 2005 og hefur með tón-
leikum sínum á Íslandi og víðs
vegar um Evrópu flutt allt frá
danstónlist 17. aldar til raftón-
sköpunar nútímans og hlotið fyrir
afbragðsdóma.
Aðrar hljóðritanir með hópnum
hafa jafnframt hlotið Kraums-
verðlaunin og Íslensku tónlistar-
verðlaunin. Listrænn stjórnandi
hópsins frá upphafi er Halla
Steinunn Stefánsdóttir.
Nordic Af-
fect dreift á
heimsvísu
Kammersveit Reykja-
víkur heldur jólatónleika
með ítölsku ívafi í Hörpu á
morgun. Gestahljóðfæra-
leikarar frá Brasilíu koma
fram með sveitinni.
Kammersveit Reykjavíkur
heldur sína árlegu jólatónleika
í kvöld. Boðið verður upp á
ítalska jólaveislu í ár en á efnis-
skránni eru jólakonsertar eftir
ítölsku barokk tónskáldin Arc-
angelo Corelli, Giuseppe Torelli
og Pietro Antonio Locatelli, Con-
certo grosso fyrir blokkflautu og
óbó eftir Alessandro Scarlatti og
blokkflautukonsertar eftir Anton-
io Vivaldi og Nicola Fiorenza, auk
Jólasinfóníu eftir Gaetano Maria
Schiassi.
Þetta eru 38. jólatónleikar
Kammersveitarinnar. Tónleik-
arnir hafa um árabil verið haldn-
ir í Áskirkju en verða að þessu
sinni í Norðurljósasal Hörpu. „Við
ætlum að búa til frábæra jóla-
stemningu og bregða upp rauð-
um litum í Norðurljósasalnum,“
segir Guðrún Hrund Garðarsdótt-
ir, víóluleikari og framkvæmda-
stjóri Kammersveitar Reykja-
víkur. Ítalska þemað segir hún
að eigi sér nokkurn aðdraganda.
„Jólakonsert Corellis hefur
verið fastur liður hjá okkur í
gegnum tíðina. Þegar við fórum
að skoða þetta nánar fundum við
fleiri ítölsk tónskáld og fund-
um fleiri sem sömdu verk fyrir
jólahátíðina. Sum verkanna sem
við flytjum eru kunnugleg en
önnur hafa ekki verið flutt áður
hér á landi, svo ég viti til. Þetta
er kjörið tækifæri til að upplifa
gleði og hátíðleika jólanna í gegn-
um verk ítölsku meistaranna.“
Gestir Kammersveitarinnar
eru semballeikarinn Claudio
Ribeiro og blokkflautuleikar-
inn Inês d‘Avena, en þau eiga
það sameiginlegt að vera bæði
af ítölskum ættum en fædd og
uppalin í Brasilíu og nú búsett
og starfandi í Hollandi eftir að
hafa lokið námi við barokkdeild
Konunglega tónlistarháskólans
í Haag. Önnur einleikshlutverk
á jólatónleikunum eru í höndum
Unu Sveinbjarnardóttur konsert-
meistara, Helgu Þóru Björgvins-
dóttur fiðluleikara, og Matthíasar
Nardeau óbóleikara.
Tónleikarnir verða hljóðrit-
aðir af Ríkisútvarpinu og þeim
útvarpað á öðru degi jóla á Rás 1.
bergsteinn@frettabladid.is
Ítölsk kammerjól í Hörpu
LANDVINNINGAR Plata kammerhópsins
Nordic Affect verður gefin út um allan
heim í upphafi næsta árs.
JÓLAVEISLA Kammersveit Reykjavíkur heldur sína árlegu jólatónleika í kvöld þar sem flutt verða verk eftir ítölsk tónskáld.
Brasilískir gestahljóðfæraleikarar munu koma fram með sveitinni.